Morgunblaðið - 16.03.1982, Qupperneq 29
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 16. MARZ 1982
37
Attræðisafmæli:
Jensína Björnsdóttir
Móðursystir mín, Jensína
Björnsdóttir, er áttræð í dag.
Þegar ég horfi til liðinna stunda
og hugsa um kynni mín af henni,
þá er sem vorbjört heiðríkja setj-
ist að völdum í sál minni. Birta og
fegurð eru eðlisþættir, sem eru
henni órjúfanlega tengdir í vitund
minni.
Jensína frænka mín er fædd að
Miklabæ í Blönduhlíð. Foreldrar
hennar voru sr. Björn Jónsson
prófastur og Guðfinna Jensdóttir,
kona hans. Þau eignuðust 11 börn
og var Jensína næst yngst af þeim
stóra hópi, ásamt tvíburasystur
sinni, Ragnheiði, sem lést rúmlega
tvítug. Fimm systkinanna eru enn
á lífi.
Jensína ólst upp á Miklabæ hjá
foreldrum sínum. Heimilið var
rómað fyrir rausn og myndarskap,
mikið menningarsetur í þess orðs
bestu merkingu. Þar fengu börnin
það veganesti út í lífið og hina
margvíslegu baráttu þess, sem
reyndist þeim nytsamt, varanlegt
og blessunarríkt.
Skólamenntun hlutu Miklabæj-
arsystkinin bæði mikla og góða í
heimahúsum. Faðir þeirra var
mikill og góður fræðari og nutu
börnin þess í ríkum mæli.
Og göfgi hjartans voru bæði
hjónin samhent í að innræta þeim.
Um eins vetrar skeið stunduðu
þær tvíburasystur, Jensína og
Ragnheiður, nám við Hvítár-
bakkaskólann í Borgarfirði.
Þegar sr. Björn lét af embætti
árið 1921, sökum heilsubilunar, þá
fluttu þau hjónin að Sólheimum í
Blönduhlíð. Þangað flutti Jensína
með þeim og var þeirra hjálp og
styrkur síðustu árin sem þau lifðu.
Einkum kom það í hennar hlut að
stunda móður sína, sem varð há-
öldruð og mikill sjúklingur síðustu
æviárin.
Um langt árabil átti Jensína við
mikla vanheilsu að stríða. En hin
síðari árin hefir í þeim efnum
mjög brugðið til hins betra á ný.
Þrautir sínar bar hún með þol-
gæði og trúarstyrk, sem áreiðan-
lega átti sinn þátt í að ieiða hana
til sigurs í sjúkdómsstríðinu.
A sínum tíma var Jensína talin,
af þeim sem til þekktu, ein glæsi-
legasta unga stúlkan í Skagafirð-
inum, og þótt víðar væri leitað. Og
samfara ytri fegurð var innri tign
og göfgi. Hún átti áreiðanlega
mjög margra góðra kosta völ, ef
hún hefði kosið sér það hlutskipti
að stofna eigið heimili sem eigin-
kona og húsmóðir. En hún valdi
sér aðra leið, leið hinnar hljóðu
kærleiksfórnar.
Hún eignaðist einn son, Ragnar
Fjalar Lárusson, sem nú er sókn-
arprestur við Hallgrímskirkju í
Reykjavík. Honum helgaði hún
hug sinn og hjarta. Fyrir framtíð-
argæfu hans barðist hún í bæn og
starfi. Og vissulega hefir hún orð-
ið þeirrar hamingju aðnjótandi að
sjá vonir sínar og bænir varðandi
framtíð sonarins verða að björtum
veruleika.
Eftir að sr. Ragnar kvæntist og
stofnaði heimili, hefir Jensína átt
heimili og öruggt athvarf hjá hon-
um og konu hans, Herdísi Helga-
dóttur. Og alla tíð hefir hún verið
heimilinu blessunargjafi og gæfu-
valdur. Það eru þó ekki fyrst og
fremst störfin hennar í þágu
heimilisins, sem ég á við, svo ágæt
sem þau eru, heldur þau góðu,
hlýju og göfgandi áhrif, sem hún,
með nærveru sinni einni saman,
breiðir yfir umhverfi sitt.
Miklir kærleikar voru milli
Jensínu og foreldra minna, og þá
ekki síður milli okkar drengjanna.
Það var alltaf hátíð á heimili
okkar, þegar Jensína og Ragnar
komu í heimsókn.
Ég minnist þess á meðan ég lifi,
hve mjög hún gat rætt við okkur
af djúpum og víðfeðmum skilningi
á þeim hugðarefnum, sem hæst
gnæfðu hjá okkur hverju sinni. Og
aldrei lét hún það undan falla að
beina hugsunum okkar og athöfn-
um að einhverju því marki, sem
birta og fegurð settu svipmót sitt
á og haft gætu göfgandi áhrif á
ómótaðar barnssálir.
Þannig var Jensína og þannig er
hún enn í dag. Þess vegna fylgir
henni sú hlýja birta, sem lætur
öllum líða vel í návist hennar. Og
sjálf hefir hún í sinni fögru og
hljóðlátu fórnarþjónustu fundið
þann tilgang í lífinu, sem hefir
gert hana að gæfukonu.
Elsku Jensína mín, ég óska þér
af alhug til hamingju á merkum
áfanga æfi þinnar. Guð blessi þig
og gefi að geislar kvöldsólarinnar
megi verða þér bjartir og hlýir og
vermandi blíðir.
Þess skal að lokum getið, að
Jensína er heima hjá sér í dag að
heimili sr. Ragnars sonar síns, að
Auðarstræti 19.
Björn Jónsson
Þjóðverji, búsettur í V-Þýzka-
landi, skrifar á íslenzku. Hann
langar að eignast pennavini hér á
landi. Segist hafa venjuleg áhuga-
mál, og tali sænsku, norsku, ensku
og „dálitla íslenzku", auk móð-
urmálsins:
Volker Weskamp,
TheodorStorm-Strasse 27,
d—2447 Heiligenhafen,
W-Germany.
Tólf ára ensk stúlka óskar eftir
bréfasambandi við stúlkur á aldr-
inum 11—14 ára. Mörg áhugamál:
Nicky Lindsay,
13 Osborn Gardens,
Mill Hill,
London NW7,
England.
Frá Ghana skrifar 23 ára karl-
maður, sem óskar að eignast
pennavini hér á landi. Hann er 23
ára, hefur mikinn áhuga á íþrótt-
um, tónlist, bókalestri, o.fl.:
Jake Adams,
P. O. Box 258,
Sekondi,
Ghana.
Nítján ára piltur í Ghana, m.a.
með áhuga á íþróttum og tónlist:
Anthony Togbegah,
Kristo-Asato Mission,
P.O. Box 686,
('ape Coast,
Ghana.
Námstefna 1
„Nýsköpun og hagræðing
í opinberum rekstri"
í tilefni af heimsókn Povl Hjelt, stjórnarformanns
Dansk Management Center og fyrrum forstjóra
Dönsku ríkisjárnbrautanna, til íslands, mun Stjórnun-
arfélagiö efna til námstefnu um „Nýsköpun og hag-
ræöingu í opinberum rekstri". Námstefnan verður
haldin í Kristalssal Hótels Loftleiða fimmtudaginn 18.
mars kl. 09.30—18.00.
Á námstefnunni mun Povl Hjelt
fjalla um:
— nýsköpun opinberra tyrirtækja og
breytingar á stöðu þeirra á næstu ár-
um.
— hagræöingaraögeröir hjá Dönsku
ríkisjárnbrautunum á sl. áratug og
árangur þeirra,
— samanburö á stjórnunaraöferðum
opinberra tyrirtækja og einkafyrir-
tækja,
— þjálfun stjórnenda og viöhald á stjórn-
unarþekkingu.
Námstefna þessi er ætluð alþingismönnum, ráðu
neytisstjórum og yfirstjórnendum stærstu einka
fyrirtækja, sveitarfélaga og opinberra fyrirtækja.
ÞÁTTTAKA TILKYNNIST TIL SKRIFSTOFU
STJÓRNUNARFÉLAGSINS í SÍMA 82930.
ASHÓRNUNARFÉtAG ÍSIANDS
SÍOUMÚLA 23 105 REYKJAVÍK SÍMI 82930
Fjórar 16 ára stúlkur í Uganda
skrifa og gefa aðeins upp heimil-
isfang skóla síns. Eins og nærri
má geta hafa þær mörg og marg-
vísleg áhugamál:
Justine Zziwa,
('aroline Opit,
Vincencia Amuge eða
Bessie Namuddu:
Mt. St. Mary’s Namagunga,
P.O. Box 18,
Lugazi, tlganda.
Sextán ára japönsk skólastúlka,
hefur m.a. talsverðan sundáhuga:
Takashi Ata,
114 Yanaka-machi,
Takasaki City,
Gumma,
370 Japan.
fyllir og þéttir á frábæran hátt
Evonor 165 - polyúreþan sem fyllir og þéttir milli veggeininga, við glugga-
karma, huröarkarma, kringum rör, rafmagnsleiöslur o.fl. o.fl. Einstakt efni,
sem einangrar ótrulega vel.
Evonor 165 er sprautað í fljótandi formi, en þenst út og harðnar á
skömmum tima.
Polyúreþanið rotnar hvorki né myglar, brennur ekki við eigin loga og þolir
flest tæringarefni auk vatns, bensins, olíu, hreingerningarefna og sýra.
Úreþanið binst flestum efnum, s.s. steypu, pússningu, tré, spónaplötum
og plastefnum.
Fjöldi annarra
þéttiefna og áhalda til þéttingar
GLERBORG HF
OALSHRAUNI 5 - HAFNARFIRÐI - SÍMI 53333