Morgunblaðið - 16.03.1982, Page 39
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 16. MARZ 1982
47
Landsbyggðarverzlun og verð-
lagsmál aðalmál fundarins
- segir Magnús E. Finnsson,
framkvæmdastjóri samtakanna
AÐALFUNDUR Kaupmannasamtaka íslands verdur haldinn fimmtu-
daginn 18. marz nk., en að sögn Magnúsar E. Finnssonar, framkvæmda-
stjóra samtakanna má búast við, að landsbyggðarverzlunin og verd-
lagsmál verði aðalmál fundarins, auk venjulegra aðalfundarstarfa.
Fundurinn hefst klukkan 10.00 að Hólel Sögu.
Gunnar Snorrason, formaður mun flytja ræðu í upphafi fund-
Kaupmannasamtaka íslands, arins, en síðan mun ég flytja
Menntaskólinn á
Laugarvatni set-
ur Leynimel 13 upp
LEIKRITIÐ Leynimelur 13 eftir
Þrídrang var frumsýnt að Laugar
vatni laugardaginn 13. marz síð-
astliðinn. Leikritið er sett upp af
nemendum Menntaskólans á
Laugarvatni og taka um 20 manns
þátt í sýningunni.
Æfingar hafa staðið yfir und-
anfarnar 6 vikur undir stjórn
Höllu Guðmundsdóttur. Halla
lauk prófi frá Leiklistarskóla ís-
lands vorið 1972. Hún er nú bú-
sett að Asum í Gnúpverjahreppi
og hefur starfað mikið að leiklist
í uppsveitum Arnessýslu undan-
farin ár.
Leynimelur 13 er gamanleikur
saminn á 5. áratugnum. Hann er
að mestu byggður upp á vanda-
málum síns tíma, en þó er ýmis-
legt, sem heimfæra má upp á
þjóðfélagsaðstæður vorra daga.
Fyrirhugðuð er leikför með
sýninguna um Suðurland og verð-
ur sýnt á eftirtöldum stöðum:
Selfossbíói þriðjudagskvöld 16.
marz klukkan 21.00, Aratungu
miðvikudagskvöld 16. marz á
sama tíma, Árnesi fimmtu-
dagskvöld 18 marz á sama tíma
og í Vestmannaeyjum laugardag-
inn 20. marz klukkan 16.00.
KrétUtilkjrnninK.
INNLENT
skýrslu mína og í kjölfar þess
mun gjaldkeri samtakanna skýra
reikninga þeirra, sagði Magnús
E. Finnsson ehnfremur.
Þá kom það fram hjá Magnúsi,
að á fundinum færu fram kosn-
ingar, m.a. yrðu formaður og
varaformaður kosnir þar. Á
fundinum mun viðskiptaráð-
herra, Tómas Árnason, ávarpa
fundarmenn og með tilliti til
þeirra tillagna, sem liggja fyrir
Alþingi um verðlagsmál, má
reikna með, að ráðherra hafi ein-
hvern boðskap fram að færa á
fundinum, sagði Magnús E.
Finnsson ennfremur.
Magnús sagði, að atkvæðis-
bærir á fundinum væru rétt-
kjörnir fulltrúar hinna einstöku
aðildarfélaga, sem eru 24 að tölu,
en fjöldi fulltrúa fer eftir stærð
félaganna. Hins vegar er auðvit-
að öllum kaupmönnum heimilt
að sækja fundinn og reyndar ætl-
ast til þess. Þeir hafa málfrelsi,
en ekki atkvæðisrétt. Þá má geta
þess, að í tengslum við fundinn
halda kaupmenn árshátíð sína á
laugardaginn og er hún jafnan
fjölsótt, sagði Magnús E. Finns-
son, framkvæmdastjóri Kaup-
mannasamtaka íslands að síð-
ustu.
Magadansmær fri Túnis lætur vel að Guðjóni Einaresyni, Ijósmyndara
Tímans, á blaðamannafundi sem ferðaskrifstofan Úrval stóð að. Einnig má
sjá Knút Óskarsson og Stein Lárusson á myndinni.
Sumarleyfis-
ferðir til Túnis
FORSTÖÐUMENN Úrvals hf.
efndu til blaðamannafundar í gær til
að kunngera sumarleyfisferðir, sem
ráðgerðar eru til Túnis á sumri kom-
anda á vegum ferðaskrifstofunnar.
Þessi fundur var hið mesta augna-
gaman þar sem túnískar magadans-
meyjar skemmtu viðstöddum við
undirleik trumbuslagara. Eru þessir
listamenn hingað komnir á vegum
ferðamálaráðs — og flugfélags Tún-
is. Þeir munu koma fram á ýrasum
skemmtistöðum landsins þessa viku
og sýna listir sínar.
Steinn Lárusson, framkvæmda-
stjóri Úrvals, sagði m.a. á þessum
fundi að Túnis sé sífellt að verða
vinsælli sumarleyfisstaður fyrir
Evrópubúa, enda séu aðstæður þar
betri en í flestum öðrum Afríku-
ríkjum. Ennfremur kom fram að
fyrirhuguð er 12—13 daga ferð til
Túnis hinn 24. apríl nk. En þriggja
vikna sumarferðir Úrvals til Túnis
hefjast 28. maí og standa yfir til
10. sept.
Patreksfjörður:
44% kjörsókn í sameiginlegu
prófkjöri þriggja flokka
l'atrt ksfjordur, 15. mars.
PRÓFKJÖR þriggja flokka, Alþýðu-
flokks, Framsóknarfiokks og
Sjálfstæðisfiokks var haldið hér um
helgina. Alþýðuflokkurinn fékk fiest
atkvæði, samtals 142, Sjálfstæðis-
fiokkurinn 88 og Framsókn 62 at-
kvæði. Alls kusu 306 af 685 á kjör
skrá eða um 44%. 11 atkvæðaseðlar
voru ógildir og 2 auðir.
Hjá Sjálfstæðisflokknum urðu í
5 efstu sætunum Stefán Skarphéð-
insson, Erna Aradóttir, Pétur
Sveinsson, Ingimar Andrésson og
Haraldur Karlsson. Hjá Alþýðu-
flokknum urðu efstir Hjörleifur
Guðmundsson, Björn Gíslason,
Guðfinnur Pálsson, Birgir Pét-
ursson og Gunnar Pétursson. 5
efstu sæti Framsóknar skipuðu
Sigurður Viggósson, Magnús
Gunnarsson, Snæbjörn Gíslason,
Erna Hafliðadóttir og Sveinn
Arason.
Alþýðubandalagið hafnaði boði
um þátttöku í prófkjörinu og óvíst
er hvort það býður fram sér, það
hefur boðið fram ásamt óháðum
að undanförnu.
I núverandi hreppsnefnd Pat-
reksfjarðar eiga sæti 2 frá AI-
þýðuflokknum, 2 frá Sjálfstæðis-
flokki, 2 frá óháðum og einn frá
Framsókn. — Fréttaritari
Aðalfundur Kaupmannasamtaka Islands á fimmtudag:
Kynning á Invile System
INVITE SYSTEM er stílhreint og haganlegt
innréttingakerfi. Þaö hentar vel í ganga og
anddyri sem í svefnherbergi, -eöa jafnvel á
skrifstofur.
Höfum sett upp sérstaka sýningu á INVITE
SYSTEM í verslun okkarað Síöumúla34. Þar
séröu kerfiö uppsett í allri sinni reisn. Allt frá
einum snaga í heilar veggsamstæöur. Auk
þess símaborö og svefnsófar í sama stíl.
Sýningin er opin á venjulegum búðartíma
-og um helgar.
INVITE SYSTEM er hágæöavara á hagstæöu
verði.
Hönnuöur:
Pétur B. Lúthersson húsgagnaarkitekt FHÍ
Framleiöandi:
Smíöastofa Eyjólfs Eðvaldssonar.
Komdu vid í Sídumúlanum og kynntu
þér INVITE SYSTEM
Síðumúla 34. Sími 84161