Morgunblaðið - 23.03.1982, Síða 11

Morgunblaðið - 23.03.1982, Síða 11
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 23. MARZ 1982 11 Jónas, Chopin og Mussorgski á Selfossi ÞEIR komu hingað þrír í kvöld þann 21. mars, og það er Guðmundur sem skrifar, því að ég er einn þeirra mörgu, sem rann á hljóðið, vestur í bíósal núna, þar sem l'etrov-flygill- inn bíður alla daga eftir snillingi — að fara sólstormi, éli og blíðum blæ um sína þöndu strengi. Svo hittist á, þetta var þeirra 9. ferð út til fólksins með afmarkað prógramm sitt: tva r pólonesur, ópus 40 númer 1 og 2, sex etýður og Ballöðuna sem Chopin samdi á flóttafór sinni til vesturs, meðan kósakkarnir voru að hertaka hans elskuðu Warsjá á öldinni sem leið. Kftir hléið galdraði Jónas svo fram myndir á sýningu, 10 talsins, eftir herra Mussorgski. Ég á auðvelt með að verða hissa, og venjulega trúi ég því sem ég heyri, þó að ótrúlegt sé. Ég hef þekkt Jónas Ingimundarson frá því hann var drengur og Ágústu konu hans frá því hún var telpa. Ágústa leikur vel á píanóið, en hún lék alls ekki núna, hún lét Jónas einan um það, og hún hlýtur að hafa brosað út að eyrum. Aldr- ei hef ég heyrt Jónas leika jafn vel, ég er sannfærður um að sjálf- ur Liszt hefði ekki gert það betur. En það er alveg sérstakt með virtuós eins og Jónas Ingimund- arson er, að hann skuli um leið vera margfaldur ferðalangur sam- anborið við Sindbað, sem fór eitthvað sjö ferðir. Ég held Jónas sé búinn að fara tuttugu og tvær langferðir um Islandsfjöll ogdali í vetur með undraverða snillinga sína í farangrinum og blása í þá rauðglóandi lífi hver sem hann finnur flygel eða píanó upp á palli, en eins og ég sagði áðan var Sel- fosskonsertinn sá 9. í röðinni með þeim Chopin og Mussorgski. Helga Ingólfsdóttir semballeikari og ('amilla Söderberg flautuleikari. Þær eru meðal flytjenda í Útskála- kirkju á sunnudaginn kemur. Garöur: Musica Antica í Útskálakirkju <>arAi, 22. mars. NK. SUNNUDAG 28. marz verða árlegir tónleikar Tónlistarskólans í Garði fyrir nemendur og velunnara skólans á Suðurnesjum. Kemur fimm manna hópur sem kallar sig Musiea Antica fram en sú hefð hefir skapast að fá þekkta listamenn á þessa tónleika. I fyrra komu Manu- ela Wiesler og llelga Ingólfsdóttir en á fyrsta starfsári skólans kom Hamrahliðarkórinn í heimsókn til skólans. Musiea Antica er skipuð fimm listamönnum: Camilla Söderberg spilar á blokkflautu, Michael Shelton á fiðlu, Ólöf Sesselía Óskarsdóttir á gömbu, Helga Ing- ólfsdóttir á sembal og í hópnum er einnig ung og upprennandi sópr- ansöngkona Signý Sæmunds- dóttir. Tónleikarnir verða í Út- skálakirkju og hefjast kl. 14. í tónlistarskólanum eru nú um 50 manns og er starfið með mikl- um blóma. Á síðasta hausti fékk skólinn blásturshljóðfæri og hefir verið stofnuð blásarasveit við skólann. Eru 14 nemendur í sveit- innu en kennari er Herbert H. Ág- ústsson. Formaður skólanefndar Tónlist- arskólans í Garði er Edda Karls- dóttir en hún hefir verið formaður frá upphafi. Arnór Jónas er hinn sannkallaði trú- boði tónlistarinnar á okkar tím- um. Honum nægir ekki að leika fyrir spesíalistana í Reykjavík, eða segjum þá sérfróðu, heldur sækir hann heim þá fátæku í anda og þá sem eiga ekki margra kosta völ, og sjálfur er hann svo óspillt- ur og hjartahreinn, að hann vílar ekki fyrir sér að túlka í orðum efni þess sem hann ætlar að fara að leika. Það er bæði skemmtilegt og þakklætisvert, því það auðveldar áheyrandum að njóta verkanna, og skilja þau þegar þau flæða und- an fingurgómum meistarans við hljóðfærið. Fögur kona færði Jónasi rósir Yfirdýralæknir: Jóna-s Ingimundarson frá okkur hinum, Hafsteinn Þor- valdsson flutti honum þakkir í ræðu. G.D. KUEÐNING ÁPÖK Oft er utanáliggjandi einangrun besta lausnin til að einangra þök, bæði tæknilega og hagrænt. Er i mörgum tilfellum sú eina lausn sem finnst. Þessvegna höfum við framleitt þak- einangrunarplötur sem leggja má á þök bæði flöt, sem og önnur, i þykkt- um frá 100 mm — 400 mm. Þakein- angrunarplöturnar er hægt að fá sniðnar til að fá fram yatnshalla, jafn- framt þvl að um góða einangrun er að ræða. Einangrunarplöturnar eru með sterku asfaltlagi. Glerullar ÞRÍHYRNA Þegar einangra á eldra húsnæði. er oft erfitt að koma einangrun út undir þakskeggið. Þessvegna framleiddum við þríhyrnuna, hana er hægt að fá i þrem mismunandi stærðum eftir halla þaksins og þykktar þeirrar einangrun- ar sem nota á, á loftplötuna. Þríhyrn- an er framleidd úr samanþjappaðri glerull og varin með plastlagi (gatað til útgufunar). Glerullar GÖNGUBRÚ Þegar endureinangrun á sér stað ofaná gömlum eða nýjum loftum, þarf að styrkja þann hluta endureinangr- unarinnar sem ganga skal á, eða það svæði sem er notað til geymslu. Glerullar-göngubrúin er framleidd úr samanþjappaðri glerull sem er kant- skorin, með hörðu yfirlagi. Glerullar- göngubrúin fæst í þrem mismunandi þykktum. Glerullar BATTINGAR Hingað til hefur verið svo til ómögu- legt að endureinangra eldra húsoæði án kuldaleiðara. En með framleiðslu glerullar-battinga hefur þetta orðið mögulegt. Glerullar-þattingar notast á stað trégrindar, og eru settir upp á sama hátt. Báttingarnir eru búnir til úr samanþjappaðri glerull, og klæddir með krossviði. Einangrunin er lögð á milli að venju og er þá veggurinn ein- angraður án kuldaleiðara. Engin hætta er á að glerullar-battingur vindi sig. Sölustaðir : Husasmiöjanhf. Reykjavik Burstafell. Reykjavik Þ. Þorgrimsson hf. Reykjavik J. L. Byggingavörur, Reykjavik T. Hannesson, Byggingavörur, Reykjavik J. Þorláksson & Norðmann hf. Reykjavik Blikksmiðjan Vogur, Kópavogi Sesam hf. Hafnarfirði Gin- og klaufaveikin í Danmörku mun tæplega hafa áhrif hér á landi „ÞAD eru nánast engar líkur á að gin- og klaufaveikin í Danmörku komi til með að hafa áhrif hér á landi. Allur innflutningur kjrtts frá Danmörku er bannaður og þar sem þetta veikindatilfelli er ekki útbreitt eru engar líkur á því, að til komi ð banna þurfi innflutning trjáplantna og garðávaxta frá Danmörku," sagði yfirdýralæknir, l’áll A. Pálsson, í samtali við Morgunblaðið. „Breiðist veikin hins vegar út gæti það orðið, en Danir eru vanir að fást við svona tilfelli, því þeir bólusetja ekki gegn veikinni að staðaldri. Þessi í stað skera þeir niður þar sem veikin kemur upp og hefta síðan útbreiðslu hennar með því að bólusetja í kringum þann stað, sem veikinnar hefur orðið vart,“ sagði Páll ennfremur. RÚLLUR- MOTTUR GLERULLAR-RÚLLUR OG MOTTUR I ÖLLUM STÆROUM. A-gerð, B-gerð, með ál-lagi. með pappa-lagi. s: Glerull Leysir vandann Glerull A-GERÐ Nýja A-gerðin er mjög sterk. Hægt er að rúlla ullinni út i langar lengjur. Varla finnst betri einangrun á mark- aðnum. Skjótur árangur og minni kuldaleiðarar. A-gerðin vegur minna en önnur jarðefnaeinangrun. Það fer minna fyrir þjappaðri glerull i flutn- ingi, sem þýðir lægri flutningskostn- aður. Einnig er A-gerðin mjög teygjan- leg. Stigi einhver á ullina færist hún í fyrra horf og heldur fullu gildi. Alls þessa getur maður ekki vænst að ann- arri jarðefnaeinangrun. RÖRA HÓLKAR I öllum stærðum og þykktum HLJÓÐ EINANGRUN Fyrir skóla, skrifstofur, verslanir, verk- smiðjur og stofnanir o.fl. Jón Fr. Einarsson, Bolungarvík Tlmburverslunin Björk, ísafirði Versl. Sigurðar Pálmasonar. Hvammstanga Stuðlafell hf. Akureyri Hiti hf. Akureyri Fjalar hf. Husavik Trésmiðja Fljótsdalshéraðs. Fellabæ (Egilstööum S. G. Einingahús, Selfossi Trésmiðja Þórðar, Vestmannaeyjum ^Supertosfl Glérull Gerir búsetu á Istandi htýtegrí Umboð: O. Johnson & Kaaber hf., Steintúni — Sími 24000 | Hringið og fáið senda upplýsingabæklinga varðandi allskonar einangrun. Hugsanlega höfum við lausnina sem þú ert i

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.