Morgunblaðið - 23.03.1982, Qupperneq 15

Morgunblaðið - 23.03.1982, Qupperneq 15
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 23. MARZ 1982 15 Að loknum fyrirlestrinum svar- aði Niels Jörgen Haagerup fyrir- spurnum fundarmanna. Meðal annars var hann spurður að því, hvort ríki utan Evrópubandalags- ins gaetu tengst hinni pólitísku samvinnu, úr því að hún byggðist ekki á beinum samningum. Haag- erup sagði, að slík tengsl yrðu að byggjast á tvíhliða samskiptum við eitthvert af aðildarríkjunum, til dæmis gegndu Danir mikil- vægu hlutverki vegna tengslanna við Norðurlönd. Norðmenn hefðu þó nokkurn áhuga á að tengjast pólitíska samstarfinu með ein- hverjum hætti og hefði Sven Stray, utanríkisráðherra þeirra, rætt þetta nýlega við Leo Tinde- mans, utanríkisráðherra Belga, sem er í forsæti ráðherranefndar EB um þessar mundir. Aðildarrík- in 10 vildu ekki, að þjóðir utan bandalagsins yrðu þarna beinir þátttakendur. Frá fundi SVS og Varðbergs á Laugardag. Þessi ólíku viðhorf breyttu engu um það, sagði Haagerup, að örygg- ishagsmunir V-Evrópu og Banda- ríkjanna eru jafn nátengdir og áð- ur og hvergi heyrist sú rödd meðal ábyrgra aðila í Evropu, að gjör- breyta eigi varnarsamstarfinu við ríkin í N-Ameríku. Hann sagði, að á Evrópuþinginu væru hægri menn með tillögu um, að stofnuð yrði undirnefnd á vegum stjórn- málanefndarinnar um öryggismál. Sjálfur sagðist Haagerup vera andvígur þessari tillögu, það ætti ekki að draga mörk á milli utan- ríkismála almennt, sem stjórn- málanefndin fjallar um, og örygg- ismála. Hins vegar væri óformlegt samstarf um öryggismál á þinginu og sagðist hann taka virkan þátt í því. Haagerup sagði, að Mariano Rumor, fyrrum forsætisráðherra Italíu, formaður stjórnmálanefnd- arinnar, hefði falið sér að semja skýrslu um stjórnmál og örygg- ismál í Evrópu. Því verki væri vel á veg komið og þar yrði leitast við að gera hið ómögulega: að draga mörk á milli varna og öryggis, því að enginn sæi fyrir, að Evrópu- þjóðirnar myndu sameinast í sér- stöku varnarbandalagi. í lok máls síns velti Haagerup fyrir sér þeirri spurningu, hvort hin aukna pólitíska samvinna EB-ríkjanna væri „samkeppni" við NATO. Hann sagði, að unnt væri að komast þeirri niðurstöðu, að svo væri. Hins vegar væri hér ekki um „samkeppni" í varnar- og ör- yggismálum að ræða, heldur fengi samstarfið innan NATO nýja póli- tíska hlið, evrópska hlið, þannig að hið pólitíska samráð á vett- vangi NATO fengi meiri dýpt en áður. Royal INSTANI PUDOING f ItllHC Llnjjir or altlnir njótn þess að borða köldu Royal búðinRana. BraRðteRundir: — Súkkulaði. karamellu, vanillu og EF ÞAÐ ER FRÉTT- fj NÆMT ÞÁ ER ÞAÐ í ^ MORGUNBLAÐINU ad kaupa ný jan Skoda Nonni litli þarf ekki einu sinni að brjóta baukinn sinn og lána þér, því verðið er aðeins frá63.000kr. og greiðsluskilmálamir eins góðir og hugsast getur. Enda selst hann grimmt þessa dagana nýi Skódinn og þvf betra að tiyggja sér bíl strax. Þjóðskáldið góð*. Hinn míkli listnmaður bundins og óbundins máls. Ljóð I — Ljóð II — Ljóð III — Léttara hjal — Myndir og minningar — Menn og minni — Æviþættir og aldarfar I — Æviþættir og aldarfar II — Æviþættir og aldarfar III — Æviþættir og aldarfar IV. ( k Almenna bókafélagið, V_| J Austurstræti 18, sími 25544. — Skemmuvegi 36, Kóp. Sími 73055. r^Tómas Guðmundsson - Rit I-X

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.