Morgunblaðið - 23.03.1982, Page 20

Morgunblaðið - 23.03.1982, Page 20
20 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 23. MARZ 1982 ptagtnil>fftfrU> Útgefandi Framkvæmdastjóri Ritstjórar Fulltrúar ritstjóra Fréttastjórar Auglýsingastjóri hf. Árvakur, Reykjavík. Haraldur Sveinsson. Matthías Johannessen, Styrmir Gunnarsson. Þorbjörn Guömundsson, Björn Jóhannsson. Freysteinn Jóhannsson, Magnús Finnsson, Sigtryggur Sigtryggsson. Baldvin Jónsson. Ritstjórn og skrifstofur: Aöalstræti 6, sími 10100. Auglýsingar: Aö- alstræti 6, sími 22480. Afgreiösla: Skeifunni 19, sími 83033. Áskrift- argjald 110 kr. á mánuði innanlands. í lausasölu 7 kr. eintakiö. Rætt við Alusuisse Nú í vikunni kemur Dr. P.H. Maller, formaður framkvæmdastjórnar Alusuisse, til viðræðna við íslensk stjórnvöld. Nauðsynlegt er, að í þeim viðræðum náist tvennt fram. I fyrsta lagi fáist niðurstaða um það, hvernig farið skuli með súrálsmálið svonefnda. Og í öðru lagi takist á ný eðlileg samvinna milli Alusuisse og íslenskra stjórnvalda, sem leiði til viðræðna um áframhaldandi samstarf á viðunandi grundvelli fyrir báða aðila, með hækkun á raforkuverði og stækkun verksmiðjunnar í Straumsvík. Eins og málum er háttað er lausn á fyrra atriðinu forsenda fyrir, að hið síðara komi til álita. Til að spara tíma og tryggja hlutlæga málsmeð- ferð er skynsamlegast að vísa súrálsmálinu og öðrum deilumálum út af fyrri viðskiptum í gerð. Samningar íslands við Alusuisse veita fulla tryggingu fyrir því, að báðir aðilar geti sett öll sjónarmið sín fram gagnvart gerðardómi. Giftusamleg nauðlending Fokkers með 25 manns um borð: „Ég bjóst við mei um í nauðlending Deilur í Fram- sóknarflokknum Málefnaágreiningur innan þingflokkanna, sem styðja ríkisstjórnina, setti svip sinn á stjórnmálaumræður síðustu viku. Tvö mál leiddu þennan ágreining í ljós, annars vegar undirritun samkomulags um Blönduvirkjun og hins vegar tillaga iðnaðarráðherra í ríkisstjórninni um að steinullarverksmiðja verði reist á Sauðárkróki. Fyrra málið leiddi einkum til deilna innan þingflokks framsóknarmanna, þar sem þeir hafa tekist á þingflokksformaðurinn og flokksformaðurinn. Hefur ekki feng- ist niðurstaða í málinu, þegar þetta er ritað. Agreiningurinn um stein- ullarverksmiðjuna setur svip sinn á samstarf allra aðilanna að stjórn- arsamstarfinu, jafnvel hinn fámenni hópur, sem kjörinn var á þing af sjálfstæðismönnum og stjórnina styður, er klofinn í málinu. Þingmaður Alþýðubandalagsins hefur þó látið stærst orð falla um málið. Nú er það síður en svo algilt, að ólík sjónarmið innan þingflokka verði að hávaðadeiium utan þeirra og flokksbræður skiptist á heitingum á opinberum vettvangi. Andstæðingar Sjálfstæðisflokksins hafa til dæmis ekki getað bent á málefnaágreining innan þingflokks hans, þegar þeir leggja stund á þá iðju að halda því á loft, að ekki sé samstaða meðal sjálfstæðismanna. Stuðningsmenn núverandi ríkisstjórnar í Sjálfstæð- isflokknum tóku fyrst til við það eftir myndun stjórnarinnar, að skýra þátttöku sína í samstarfi við framsóknarmenn og kommúnista með vísan til málefnaágreinings. Þeir hafa fyrir löngu hætt öllu slíku og á landsfundi sjálfstæðismanna sl. haust var staðfest, að ágreiningurinn innan flokksins er um ríkisstjórnina og þá stefnu, sem hún fylgir. Það er ekki síst alvarlegt fyrir Framsóknarflokkinn, að þar skuli menn bæði deila um Blönduvirkjun og steinullarverksmiðju. Flokkurinn sækir afl sitt í að standa sameinaður um það, sem talsmenn hans kalla byggðastefnu. Nú klofnar þingflokkurinn einmitt um mál, sem um er deilt milli hreppa og landshluta. í raun er nú tekist á innan Framsókn- arflokksins um aðra meginstoð hans, landsbyggðarstefnuna, og í Helgu- víkurmálinu reyna kommúnistar að vega að hinni stoðinni með því að halda því á loft, að framsóknarmenn gangi á hagsmuni SÍS með stefnu utanríkisráðherra. Er það tilviljun, að iðnaðarráðherra efnir til stórdeilna innan Fram- sóknarflokksins með tveimur ákvörðunum í síðustu viku? Iðnaðarráð- herra telur sig hafa í fullu tré við Garðar Sigurðsson í eigin þingflokki, enda nýtur ráðherrann stuðnings fjármálaráðherra og flokksbroddanna allra í steinullarmálinu. Kommúnistum hefur lengi verið það ljóst, að bæði Blönduvirkjun og steinullarverksmiðjan væru viðkvæm mál innan Framsóknarflokksins. Iðnaðarráðherra hefur þessi mál formlega í hendi sinni. Nú hefur hann beitt valdi sínu til að koma af stað óeiningu í Framsóknarflokknum. Slík vinnubrögð kommúnista eru þekkt um heim allan og sagan sýnir, að kommúnistum duga þau jafnan b'est, þegar ráðlausir miðjuflokkar, sem sækja afl sitt til þröngra hagsmuna, eiga í hlut. Sauðárkrókur eða Þorlákshöfn Iðnaðarráðherra hefur lagt til innan ríkisstjórnarinnar, að reist verði steinullarverksmiðja á Sauðárkróki. Þingmenn Suðurlands hafa flutt um það tillögu á Alþingi, að ríkisstjórnin gangi nú þegar til samninga um steinullarverksmiðju í Þorlákshöfn. í öllum vestrænum löndum fara nú fram miklar umræður um afskipti stjórnmálamanna af ákvörðunum, sem forystumenn í atvinnulífi telja eðlilegast að séu í sínum höndum. Miðað við fast verðlag í september 1981 er stofnkostnaður við steinullarverksmiðju frá um 100 milljónum upp í 120 milljónir eftir stærð. Þingmenn Suðurlands segja, að þeim finnist „sjálfsagt", að ákvörðun um stað fyrir steinullarverksmiðju verði tekin á Alþingi. Þessi skoðun þingmannanna er í andstöðu við þær forsendur, sem auðvitað eiga að ráða ákvörðunum í þessu efni. Það getur ekki verið sjálfgefið, að verksmiðju sem þessa sé ekki unnt að reisa án fjármagns úr ríkissjóði — sé hún arðbær, ætti að vera unnt að afla fjár með öðrum hætti. Sá aðili, sem vill taka áhættuna, útvegar fjármagn, tækni og markaði á að reisa þessa verksmiðju. Síst af öllu er skynsam- legt, að hún verði reist sem minnisvarði um framtak þingmanna fyrir fé skattgreiðenda. „I»ETTA tókst giftusamlega og ég er þakklátur samstarfs- mönnum mínum, Hallgrími flugmanni og Guðrúnu flugfreyju, fyrir góda samvinnu þegar við þetta óhapp var að glíma,“ sagði Gunnar Arthursson, flugstjóri hjá Flugleiðum, í samtali við Mbl., en hann stjórnaði Fokkernum sem nauðlenti í Keflavík á einu hjóli og einum mótor eftir að sprenging eyðilagði mótorinn skömmu eftir flugtak frá Isafirði sl. laugardag og náðist annað hjól vélarinnar ekki niður eftir sprenginguna. „Mikill hvellur og vélin hnykktist til“ Nauðlendingin tókst með afbrigð- um vel og varð engum meint af, en um borð voru 22 farþegar og þriggja manna áhöfn, auk Gunnars, Hall- grímur Viktorsson, aðstoðarflug- maður, og Guðrún Gunnarsdóttir, flugfreyja. Slökkviliðið á Keflavík- urflugvelli undir stjórn Sveins Ei- ríkssonar, slökkviliðsstjóra, hafði gert allt klárt fyrir nauðlendingu, kvoðað brautina og fleira og voru allir farþegarnir komnir út úr vél- inni heilu og höldnu um það bil einni mínútu eftir að vélin lenti. „Þetta var mikill hvellur og vélin hnykktist aðeins til þegar spreng- ingin varð," sagði Gunnar flug- stjóri. „Turninn á ísafirði kallaði um leið og tilkynnti að eldur væri laus. Við sáum að það var í vinstri hreyfli og gerðum strax ráðstafanir til þess að slökkva eldinn. Við ráð- gerðum fyrst að lenda aftur á ísa- firði, en þar sem við náðum hjólinu ekki niður var ákveðið að fara til Keflavíkur þar sem mjög góð örygg- issvæði eru meðfram flugbrautinni og heppileg við þær kringumstæð- um sem við þurftum á að halda. Þessi staða olli mér ekki svo miklu hugarangri, því það er jú komin reynsla á slíkar nauðlendingar og þær hafa heppnast mjög vel, en það liggur ekkert fyrir ennþá hvað hef- ur valdið þessari sprengingu sem varð í um það bil 150 metra hæð. „Bjóst við meiri látum í nauðlendingunni“ „Þetta var vissulega sérstæð lífs- reynsla, en fólkið var mjög rólegt og ég held að flestir hafi haft trú á því að þetta tækist allt vel,“ sagði Kristín Bjarnadóttir frá Bolungar- vík, sem var með tvö börn sín í flug- vélinni, Viktor Jónmundsson og Ernu Jónmundsdóttur, 5 og 6 ára gömul. „Vélin var rétt komin í loftið og kastaðist til þegar sprengingin varð og það var megn brunalykt í vélinni, enda gaus eldur úr hreyflin- um,“ sagði Kristín, sem var að skreppa til Reykjavíkur í skemmti- ferð. „Flugfreyjan sagði okkur vendilega hvernig við ættum að haga okkur í lendingunni, en að Lengst til hægri er Gunnar Arthursson Gunnarsdóttir, flugfreyja, og Hallgrímu in er tekin skömmu eftir nauðlendingui öðru leyti var flugið til Reykjavíkur ekkert óvenjulegt. Ég bjóst hins vegar við meiri látum en raun bar vitni í sjálfri nauðlendingunni. Það voru allir ósköp rólegir í vélinni, en helzt að það hafi komið einhver skjálfti í mann þegar þetta var um garð gengið." „Var svo hræddur um að deyja“ Erna litla, sem er 6 ára, kvaðst Helgi Tómas- son tognaði á sýningu IIKLGI Tómasson, ballcttdansari, tognaöi á sýningu Þjóðleikhússins á ballcttinum Gisellc á sunnudaginn. Að sögn Svcins Kinarssonar, Þjóðlcikhús- stjóra, hafði Helgi fundið fyrir cymsl- um i fa'ti i fyrra þætti og afráðið að koma ckki fram eftir hlc af þcim sök- um. Svo heppilega vildi til að Svíinn Per Arthur Segerström, sem taka átti við hlutverki Helga á sjöundu sýningu, var af tilviljun staddur í húsinu meðan á sýningu stóð. Hljóp hann í skarðið fyrir Helga eftir hlé. Þó hann hefði aldrei dansað á móti Maríu Gísladóttur, komst hann glæsilega frá sýningunni að dómi Sveins. Sveinn sagði ennfremur, að meiðsli Helga væru ekki alvarlegs eðlis, ef marka mætti orð Helga sjálfs. En þó yrði nokkra daga hvíld nauðsynleg.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.