Morgunblaðið - 10.06.1982, Síða 1
48 SIÐUR
124. tbl. 69. árg.
FIMMTUDAGUR 10. JÚNÍ 1982
Prentsmiðja Morgunblaðsins.
Hörðustu loftbardagar, sem
um getur í Miðausturlöndum
Tel Aviv og Beirút, 9. júní. AP.
GEYSILEGIR loftbardagar, þeir mestu sem um getur í Miðaustur-
löndum, urðu í dag yfir Beirút í Líbanon. Börðust um 150 flugvélar
ísraela og Sýrlendinga yfir borginni þegar átökin urðu hörðust.
ísraelsmenn segjast hafa skotið niður 22 flugvélar Sýrlendinga, sem
á móti segjast hafa skotið niður 19 flugvélar þeirra af F-15- og F-16-
gerð. Sjálfir segjast Sýrlendingar hafa misst 16 vélar, en Israels-
menn segjast enga vél hafa misst í átökunum. í orrustunni eyðilögðu
ísraelsmenn fjölda loftvarnaflauga Sýrlendinga.
„Þetta er vendipunkturinn 1
styrjöldinni," sagði varnarmála-
ráðherra ísraela, Ariel Sharon.
Israelsmenn náðu í sókn sinni í
dag bænum Damour, um 13 km
suður af Beirút, sem til þessa hef-
ur verið sterkt vígi Palestínu-
skæruliða. Fylgdi fregninni, að
upprunalegum íbúm bæjarins,
kristnum Líbönum, yrði gert kleift
að setjast að þar á ný.
Sharon sagði ennfremur að sig-
urinn í orrustunni í dag gerði það
að verkum, að nú gætu Israels-
menn einbeitt sér að eldflauga- og
vopnabirgðageymslum í austur-
hluta landsins. Sagði hann enn-
fremur, að her landsins væri að
hrekja Sýrlendinga burt af þeim
svæðum, sem þeir lögðu undir sig.
Sýrlendingar segjast á hinn bóg-
inn hafa stöðvað framrás ísra-
elsmanna.
„Við reyndum allan tímann að
gera Sýrlendingum það skiljan-
legt, að ekki væri ætlun okkar að
ráðast á þá, en þeir virtu yfirlýs-
ingar að vettugi og drógust inn í
deiluna strax í byrjun," sagði
Sharon.
Talið er að nú séu einhvers stað-
ar á bilinu 20.000 til 60.000 ísra-
elskir hermenn í Líbanon. Her
þeirra telur um 170.000 manns og
án teljandi erfiðleika er hægt að
auka þá tölu í 400.000. Herafli
Sýrlendinga er um 250.000 manns
og geta þeir að auki gripið til
100.000 manna liðs ef þörf krefur.
Allt frá 1976 hafa 30.000 hermenn
Sýrlendinga haft aðsetur í Líban-
on. ísraelar eiga að því að talið er
3.050 skriðdreka og Sýrlendingar
litlu færri.
Talsmenn PLO í Lundúnum
segja útilokað að framrás Israel-
anna sé sú, sem þeir segja sjálfir.
Segir PLO að upplýsingar ísra-
elsmanna séu lygar og þvættingur
að meginhluta til. Þá hafa æðstu
menn PLO lýst því yfir, að bana-
tilræðið, sem sendiherra ísraels
hafi verið sýnt í Lundúnum, hafi
verið jafn mikil ögrun við samtök-
in, ísrael og Bandaríkin.
& *_ •' — * «
*
ísraelskur skriðdreki á ferð um óhrjálegan borgarhluta í Nabatiye i suðurhluta Líbanon eftir töku borgarinnar á
mánudag.
Bresku liðsflutningaskipi
sökkt og þrjú önnur löskuð
London, 9. júní. AP.
írakar bjóða
„friðarpakka“
Manama, Bahrain, 9. júní. AP.
HELSTU leiðtogar íraka komu sam-
an til fundar í Baghdad í kvöld til að
setja saman „friðarpakka", sem þeir
ætla að bjóða írönum. Hljóðar til-
boðið upp á tafarlaust vopnahlé og
að írakar dragi allt herlið sitt til
baka frá íran innan tveggja vikna.
FJÖGIJR bresk herskip urðu fyrir
hörðum loftárásum Argentínumanna
við Falklandseyjar í gær og er talið
fullvíst að liðsflutningaskipið „Sir
Galahad" hafi sokkið eftir að gífur-
legur eldur braust út í skipinu. Talið
er að um 250 hermenn hafi verið um
borð í skipinu.
I fréttum, sem bárust seint í
kvöld, er skýrt frá því, að 39 af 68
manna áhöfn skipsins sé saknað.
Er óttast, að flestir þeirra hafi far-
ist. Er þetta þá versta manntjón
Breta í einni og sömu orrustunni í
Falklandseyjadeilunni til þessa.
Verið var að undirbúa landgöngu
hermannanna í Fitzroy er árásin
var gerð. Annað liðsflutningaskip,
„Sir Tristram", og freigátan „HMS
Plymouth" urðu einnig fyrir árás
og skemmdust bæði. Ekki var getið
um fjórða skipið.
Landvarnarráðuneytið breska
vildi ekki staðfesta neinar af þeim
fregnum, sem bárust heim frá
fréttariturum, en viðurkenndi þó,
að manntjón hefði orðið í árásinni
á Sir Galahad. í orrustunni skutu
Bretar niður 7 argentínskar flug-
vélar og jafnvel er talið að fjórar
til viðbótar hafi ekki náð að kom-
ast til lands eftir að hafa orðið
fyrir skotum.
Fréttamaður bresku fréttastof-
unnar ITN, Michael Nicholson,
fylgdist grannt með atburðarás-
inni. Segir hann, að Sir Galahad
hafi orðið fyrir mikilli skothríð og
hafi eitt skeyta Argentínumann-
anna hæft skotfærageymslu skips-
ins og við það hafi orðið gífurleg
sprenging og skipið breyst í „log-
andi víti“ á svipstundu. Sagðist
hann hafa séð, þar sem breskir her-
menn stukku í ískaldan sjóinn til
að forðast logana. Þyrluhermenn
sýndu mikið hugrekki við björgun-
arstöf við nánast vonlausar að-
stæður.
„Hefði árásin verið gerð klukku-
stundu síðar hefðu allir komist
heilu og höldnu í land,“ sagði Nich-
olson. Hins vegar minntist hann
ekki á, að flugvélar Argentínu-
manna hefðu verið skotnar niður,
eins og landvarnarráðuneytið
skýrði frá. „Þetta var sorgardag-
ur,“ sagði Nicholson, en bætti við,
að um leið hefðu hetjudáðir verið
drýgðar við björgunarstörf.
Fundur æðstu
manna NATO
Bonn, 9. júní. AP.
„ÉG VEIT, að þúsundir manna
munu mótmæla fundi bandalagsins,
en það er skoðun min, að það fólk
beini spjótum sínum í ranga átt,“
sagði Josef Luns, framkvæmdastjóri
Atlantshafsbandalagsins, í ræðu,
sem hann hélt í dag. Fjöldi manns
var þá saman kominn til að mót-
mæla fundi æðstu manna banda-
lagsins og gert var ráð fyrir að á
morgun myndu allt að 150.000
manns safnast saman til mótmæla.
Gunnar Thoroddsen, forsætis-
ráðherra, Ólafur Jóhannesson,
utanríkisráðherra, auk þeirra
Hannesar Hafstein frá utanríkis-
ráðuneytinu, Jóns Orms Halldórs-
sonar, prófessors Gunnars
Schram og Péturs Eggerz, sendi-
herra í Bonn, sitja fundinn fyrir
íslands hönd.
Bella og Igor Korchnoi fá heimild að flytjast úr landi:
„Ég er himinlifandi“
sagði Bella Korchnoi í samtali við Mbl.
„Mér þykir vænt um að heyra þessi tíð-
indi“ sagði Friðrik Ólafsson forseti FIDE
„ÉG ER himinlifandi; ég ól þá von í
brjósti að við fengjum að flytjast frá
Sovétríkjunum; — von sem virtist
þó svo fjarri að rætast þegar Igor
fékk herkvaðningu fyrir skömrau.
Nú eru sex ár frá því ég sá Viktor
síðast; sex löng og erfið ár og fang-
elsun Igors bætti ekki úr skák. Eg
hlakka mikið til að hitta mann
minn aftur," sagði Bella Korchnoi,
eiginkona sovéska útlagans og
stórmeistarans Viktors Korchnoi, í
samtali við Mbl. í gærkvöldi, en þá
var hún stödd á heimili sinu í Len-
ingrad. Bella hefur ásamt syni sín-
um, Igor Korchnoi, fengið leyfi til
þess að flytjast frá Sovétríkjunum
fyrir 27. júní næstkomandi.
„A mánudag fengum við heim-
ild til þess að flytjast frá Sovét-
ríkjunum. Ég hringdi þá til Vikt-
ors og sagði honum tíðindin.
Hann var ákaflega ánægður. Nú
þurfum við vegabréfsáritun og
síðan munum við kaupa farseðla
til Sviss. En það eru bara forms-
atriði. Við Igor munum flytjast
úr landi fyrir mánaðamótin. Ég
þakka Friðriki Ólafssyni innilega
hans framgöngu í málinu," sagði
Bella Korchnoi.
„Mér þykir vænt um að heyra
þessi tíðindi. Þetta hefur ekki
verið opinberlega staðfest en ekki
er ástæða að ætla annað en þetta
eigi við rök að styðjast. Ég hefi
aldrei haft ástæðu til að ætla
annað en við það yrði staðið, að
þau fengju að flvtjast úr landi,"
sagði Friðrik Ólafsson, forseti
FIDE, Alþjóðaskáksambandsins,
í samtali við Mbl. í gærkvöldi.
„Ákvörðun mín að setja lausn
fjölskyldumála Korchnois á
oddinn beindist ekki gegn einum
eða neinum. Þetta var gert með
góðum vilja; til þess að finna
Bella Friðrik
Korchnoi Ólafsson
lausn á vandamáli, sem olli mikl-
um erfiðleikum í starfsemi FIDE
og eitraði andrúmsloftið. Ef fjöl-
skylda Viktors Korchnoi fær að
flytjast úr landi, eins og allar lík-
ur benda til, þá sýnir það glögg-
lega að hægt er að koma fram
málum án hávaða og gauragangs
og er góð lexía fyrir þá, sem hafa
gagnrýnt mig fyrir framgöngu
mína í málinu," sagði Friðrik
Ólafsson.
Sjá bls. 2: „Þetta hefur ekki verið
létt ganga“ — viðtal við
Friðrik Olafsson.