Morgunblaðið - 10.06.1982, Blaðsíða 31

Morgunblaðið - 10.06.1982, Blaðsíða 31
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 10. JÚNÍ 1982 31 l'rá kröfugttngn sýningargesta á Don Kikóta frá Hafnarbíói og niður á Torg. Ljósm. KÖE Neyðist Alþýðuleik- húsið til að loka? Á MÁNUDAGSKVÖLD var síðasta sýning Alþýðuleikhússins á þessu leikári á Don Kíkóta. Fjttlmenni var á sýningunni og urðu margir frá að hverfa. Meðal þeirra sem sóttu sýninguna voru fulltrúar á Norræna leiklistarþinginu. Alþýðuleikhúsið var með 211 sýn- ingar á þessu leikári og hefur leik- húsið frumsýnt 7 verk á árinu, þar af 3 fyrir börn og unglinga, og eru sýningargestir komnir yfir 29 þús- und. Fjárhagsstaða leikhússins er mjög slæm nú í lok leikársins. Al- þýðuleikhúsið skuldar um 900 þús- und krónur, þar af yfir helming í launakostnað og höfundarlaun. Þrátt fyrir það hefur stór hluti af fólki sem er á mánaðarlaunum unn- ið ólaunaða vinnu til að halda leik- húsinu gangandi. ALþýðuleikhúsið fékk 400 þúsund kr. á síðustu fjár- lögum til starfsemi sinnar frá rík- inu og frá borginni fékk það 140 þúsund krónur, auk 100 þúsund króna sem gengu upp í kostnað vegna breytinga á Hafnarbíói. Fyrir viku fékk leikhúsið síðan 600 þúsund króna aukafjárveitingu frá ríkinu til að halda starfsemi sinni gangandi til vors. n Fulltrúar Norræna leiklistar- þingsins tóku málefni leikhúsa á borð við Alþýðuleikhúsið sérstak- iega fyrir og samþykktu ályktun sem m.a. felur í sér, að Norræna ieiklistarþingið leggi sérstaka áherslu á að íslensk menningar- og fjármálayfirvöld viðurkenni til- verurétt frjálsra leikhópa með því að veita nægilegt fjármagn til slíkr- ar starfsemi. Þá segir í ályktuninni: „Alþýðuleikhúsið er dæmi um frjálsan leikhóp sem hefur sýnt og sannað tilverurétt sinn. Þess vegna skorum við á hið opinbera að beita öllum tiltækum ráðum til að starf- semi AL þurfi ekki að leggjast niður." Eftir sýninguna á Don Kíkóta í fyrrakvöld fóru sýningargestir í kröfugöngu frá Hafnarbíói og niður á Torg, til að minna á tilurð leik- hússins. Þar var flugeldasýning og greidd voru atkvæði um „líf eða dauða" leikhússins og var samþykkt einróma að reyna að sporna við þeirri þróun að Alþýðuleikhúsið yrði að leggja upp laupana. í viðtali við blaðið sagði Sigrún Valbergsdóttir hjá Alþýðuleikhús- inu „að mikill vilji væri fyrir því að halda leikstarfinu áfram næsta haust; þau ættu æfð tvö leikrit fyrir börn og unglinga, auk þess sem þau væru núna að sýna Don Kíkóta fyrir fullu húsi.“ Sigrún sagði ennfremur að ekki yrði hægt að hefja leikhúsrekstur næsta haust ef ekki kæmu til aukn- ar fjárveitingar frá því opinbera. Breyttur skrifstofutími Frá 7. júní til 31. ágúst veröa skrifstofur okkar aö Hallveigarstíg 1 opnar frá kl. 08.00—16.00 mánudag til föstudags. Félag íslenskra iðnrekenda. Útflutningsmiðstöð iðnaðarins KORT viö öll tækifæri. Gjafapappír, gjafavörur, sumarleikföng, Matchbox- módel og módellökk, litabækur og litir. Verslunin Örk, Verslunarmiðstöðinni Miðvangi, Hafnarfirði. Sími 54333. Útsala Útsala Innflutt húsgögn Seljum næstu daga meó 20% afslætti: Furu eldhúsborð og stóla. Húsbóndastóla með skammeli o.fl. Eitt gullfallegt leðursófasett á aðeins 20.700,- Útsala S STÁLIÐJANhf SMIÐJUVEGI 5, KÓPAVOGI, SÍMI 43211 ER BYGGINGAVÖRUR HE SUÐURLANDSBRAUT 4. SÍMI 33331. ÞAK3A1 i hvaöa lengd semer „Standard” lengdir eða sérlengdir, allt eftir óskum kaupandans. Að auki þakpappi, pappasaumur, þaksaumur, kjöljárn, rennu- bönd og rennur. I- iann Dúddi er fluttur ■ JzJ\ Dúddi hárgreiðslumeistari er fluttur frá Suðurlandsbraut 10 að Hótel Esju. ^ 5 Idttcl

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.