Morgunblaðið - 10.06.1982, Page 3
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 10. JÚNÍ1982
Nýr vinstri meirihluti í Kópavogi:
Bæjarstjóraskiptum mótmælt
Framsókn fórnar stefnu fyrir bæjarstjóra, segir Richard Björgvinsson
FULLTRÚAR Alþýðubandaiags, Alþýðuflokks og Framsókn-
arflokks í bæjarstjórn Kópavogs hafa komið sér saman um
samstarfsyflrlýsingu til næstu fjögurra ára. í þessari yfírlýs-
ingu er gert ráð fyrir að Kristján Guðmundsson, félagsmála-
stjóri Kópavogs, taki við starfi bæjarstjóra af Bjarna Þór
Jónssyni.
Samstarfsyfirlýing flokkanna
þrigga var í gærkvöldi kynnt á
fundi fulltrúaráðs Framsóknar-
flokksins í Kópavogi og á almenn-
um flokksfundi Alþýðuflokksfé-
lags Kópavogs. I kvöld verður hún
síðan kynnt á fundi í Alþýðu-
bandalagi Kópavogs. A morgun er
ráðgert að leggja samstarfsyfir-
lýsinguna fyrir bæjarstjórnarfund
og kjósa bæjarstjóra fyrir yfir-
standandi kjörtímabil.
Starfsfólk á Bæjarskrifstofum
Kópavogs hefur nær einróma mót-
mælt fyrirhuguðum bæjarstjóra-
skipti. Máli sínu til áréttingar hef-
ur það skrifað nöfn sín undir sam-
eiginlega yfirlýsingu sem hér fer á
eftir:
„Á kreik er kominn orðrómur
um að samkomulag hafi verið gert
við samninga um meirihluta-
samstarf, þess efnis að núverandi
bæjarstjóri, Bjarni Þór Jónsson,
verði ekki endurráðinn.
Við starfsmenn bæjarins, sem
unnið höfum undir hans stjórn,
lítum svo á að aðstæður við ráðn-
ingu hans hafi verið þannig að
þeir menn, sem knúðu hann til að
taka því starfi, þegar þeim lá mest
við, hafi siðferðilega skyldu til að
tryggja honum starfið áfram, þar
eð hann hefur gegnt því með sóma
og áfallalaust og aflað sér virð-
ingar og trausts, jafnt starfs-
manna og bæjarbúa."
Undir þessa yfirlýsingu skrifa
þrjátíu starfsmenn Bæjarskrif-
stofa Kópavogs, en það munu, eft-
ir því sem Mbl. kemst næst, vera
nær allir þeir sem viðstaddir voru
er undirskriftalistinn var látinn
ganga um vinnustaðinn.
Aðspurður kvað Bjarni Þór
Jónsson bæjarstjóri það rétt, að
til hans hefði verið leitað er fyrr-
verandi bæjarstjóri féll frá á
miðju síðasta kjörtímabili, og
hann beðinn um að taka að sér
þennan starfa. í fyrstu kveðst
hann hafa færst undan þessari
beiðni en eftir ítrekaðar óskir fall-
ist á hana. Bjarni Þór upplýsti að
hér hafi verið um að ræða sömu
aðila og nú eru að koma sér saman
um samstarfsyfirlýsingu.
„Ég get alveg staðfest það, enda
er þetta komið út um allt,“ svaraði
Björn Ólafsson, bæjarfulltrúi Al-
þýðubandalags, er Mbl. bar undir
hann þann orðróm sem vitnað er
til hér að framan, þess efnis að
Bjarni Þór yrði látinn víkja fyrir
Kristjáni Guðmundssyni. Guð-
mundur Oddsson, bæjarfulltrúi
Alþýðuflokks, sagði: „Bæjar-
stjóraskiptin í Kópavogi eiga ekk-
ert skylt við nein pólitísk hrossa-
kaup.“
Richard Björgvinsson, bæjar-
fulltrúi sjálfstæðismanna, sagði
hins vegar: „Eftir því sem ég hef
heyrt, hefur Framsóknarflokkur-
inn fórnað allri sinni stefnu í
skólamálum, framhaldsskóla
Kópavogs, til að ná saman þessum
meirihluta og til að Kristján Guð-
mundsson verði gerður bæjar-
stjóri."
Nefnd kannar möguleika á
háskólakennslu á Akureyri
MENNTAMÁLARÁÐHERRA hefur ákveðið að skipa nefnd til þess að gera
tillögur um, hvernig vinna megi að því að efla Akureyri sem miðstöð mennta
og vísinda utan höfuðborgarinnar. í þessu sambandi ber að hafa í huga
margs konar menningarstarfsemi, sem nefndinni er ætlað að kanna nánar og
meta, hvort flokkast skuli undir viðfangsefni hennar, að höfðu samráði við
ráðherra. Sérstaklega er nefndinni ætlað að kanna, hverjir möguleikar séu á
að taka upp kennslu á háskólastigi á Akureyri.
í nefndina eru skipaðir: Birgir Magnússon, rektor Háskóla Is-
Thorlacius, ráðuneytisstjóri í lands, og Tryggvi Gíslason, skóla-
menntamálaráðuneytinu, og er meistari Menntaskólans á Akur-
hann formaður, dr. Guðmundur eyri.
3
Veiðin glæðist
VEIÐIN er að glæðast í þeim tveim-
ur laxveiðiám sem veiði er hafin i,
Norðurá í Borgarfirði og Laxá á Ás-
um. llpp úr Norðurá voru komnir 19
laxar í gær, en úr Laxá voru komnir
3 laxar.
Haukur Pálmason, bóndi á
Röðli, sagði í samtali við Morgun-
blaðið að laxinn væri farinn að
ganga, enda væri áin orðin 11
stiga heit og hefði hitnað verulega
síðustu daga. Sagði Haukur að
einn laxanna hefði vegið 14 pund,
en þeir hefðu allir verið nýrunnir.
Einn fiskurinn fékkst í Mánafossi,
sem er veiðistaður ofarlega í ánni.
I veiðihúsinu við Norðurá feng-
ust þær upplýsingar í gær, að 19
laxar væru komnir úr ánni, en það
er mun minni veiði en á sama
tíma í fyrra. Þá höfðu veiðst um
70 laxar. í upphafi veiðitímans
var Norðurá mjög vatnsmikil og
skoluð og kenndu menn því m.a.
um trega veiði. Nú hafa aðstæður
batnað við ána og hún hlýnað og
veiði aukist. Af þeim 19 löxum,
sem veiðst hafa, veiddust 17 á
maðk en tveir á flugu samkvæmt
upplýsingum sem Mbl. fékk í
veiðihúsinu. Tóku fiskarnir báðir
túbu, annar túbu sem ber nafnið
„Kjaftopna", en hinn á „Bóa“.
Þvímiður!
Franldtórtamferðirnar
eru uppseldar.
I staðiim bendum við á
bæjarins bestuí
‘Bæjarins bestu sérfargjöld til útlanda hjá Flugleiðum.