Morgunblaðið - 10.06.1982, Side 19
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 10. JÚNÍ1982
19
I 1 1\ "^ljÍ
á Jr ' ; 1 SíB 1 ■ j JJ i 1 f
jy'lÉk Éw* : m r WÆ
r r f m
Fjölbrautaskólinn á Akranesi
brautskráði 88 nemendur
Fjölbrautaskólanum á Akranesi
var slitið í fimmta sinn föstudaginn
21. maí. Nemendur skólans voru á 7.
hundrað en þar af voru um 100 í
öldungadeild og um 90 nemendur í
9. bekk grunnskóla, en sú bekkjar-
deild var starfrækt undir stjórn fjöl-
brautaskólans.
í ræðu skólameistara, Ólafs
Asgeirssonar, kom m.a. fram að
gerð hefur verið áætlun um upp-
byggingu skólans næsta áratug.
Hefur væntanleg uppbygging
skólans verið miðuð við þessa
áætlun, og er nú gert ráð fyrir að
um 4000 m2 þurfi að byggja af
kennsluhúsum, en að auki þarf að
ljúka byggingu heimavistar og
þjónustumiðstöðvar. Við skólaslit-
in var tekinn í notkun hluti fyrsta
áfanga verknámshúss, sem hafist
var handa um að reisa í ágúst-
mánuði 1981. Verður húsið full-
smíðað um 850 m2 og hýsir málm-
iðna- og rafiðnaðardeildir skólans.
Skólameistari greindi frá því að
skólinn hefur nú á fimm árum
tekið við því hlutverki, sem honum
var ætlað í áætiunum um fram-
haldsnám á Vesturlandi, sem
gerðar voru á árunum 1973—1976,
og fullyrða megi að framhaldsnám
á Vesturlandi sé nú skipulagt sem
ein heild og að nemendur eigi
greiða leið milli skóla.
Fjölbrautaskólinn á Akranesi
starfar á sjö námssviðum, samfé-
lagssviði, raungreinasviði, heil-
brigðissviði, viðskiptasviði, tækni-
sviði, matvælasviði og listasviði. A
skólaárinu brautskráðust 88 nem-
endur frá skólanum, þar af luku 32
stúdentsprófi, 17 verslunarprófi, 3
sjúkraliðaprófi, sveinsprófi í
húsasmíði luku tveir, vélvirkjun 1,
6 nemendur luku 2. stigs vélstjóra-
prófi.
Margrét Þorvaldsdóttir stúdent
á uppeldisbraut hlaut verðlaun úr
Minningarsjóði Elínar írisar Jón-
asdóttur fyrir ágætan árangur í
íslensku. Sigríður Sigurðardóttir
stúdent og Hugrún O. Guðjóns-
dóttir sem lauk verslunarprófi
fengu verðlaun fyrir ágætan
námsárangur. Áslaug Rafnsdóttir
nemandi í öldungadeild hlaut við-
urkenningu fyrir ágætan náms-
árangur á verslunarprófi. Eyrún
Þórólfsdóttir nemandi í 9. bekk
hlaut viðurkenningu úr Minn-
ingarsjóði Ingunnar Sveinsdóttur
og Sigríður Skúladóttir hlaut við
skólasiitin sérstaka viðurkenn-
ingu fyrir ástundun og prúð-
mennsku.
Kór skólans söng við skólaslita-
athöfnina og barst honum við það
tækifæri gjöf frá Kvenfélagi
Akraness, ferðastyrkur, en kórinn
er um þessar mundir á tónleika-
ferð í Noregi.
Stofnað Neytendafélag
Reykjavíkur og nágrennis
NEYTENDAFÉLAG Reykjavíkur og
nágrennis var stofnsett þriðjudaginn
18. maí síðastliðinn. Ákveðið var að
starfssvæði félagsins yrði Reykjavík,
Kópavogur, Seltjarnarnes, Garða-
bær, Hafnarfjörður, Bessastaða-
hreppur, Mosfellssveit og Kjósar-
sýsla. Félagsmenn í Neytendasam-
tökunum, sem nú verða félagar í
þessari nýstofnuðu deild heildar-
samtakanna, eru nú 2447.
Markmið Neytendafélags
Reykjavíkur og nágrennis er að
gæta hagsmuna neytenda á fé-
lagssvæðinu. Hyggst félagið veita
félagsmönnum almenna ráðgjöf
og upplýsingar sem lúta að verð-
og vöruþekkingu. Félagið mun
veita félagsmönnum leiðbeiningár
um rétt sinn í viðskiptum og
ennfremur fyrirgreiðslu, ef þeir
verða fyrir tjóni vegna kaupa á
vöru og þjónustu.
Nýkjörin stjórn Neytendafélags
Reykjavíkur og nágrennis væntir
þess að neytendur á félagssvæðinu
geri þetta félag að sterku afli sem
standi vörð um hagsmuni neyt-
enda. Þeim sem óska að gerast fé-
lagsmenn, en árgjald er 150 krón-
ur, er bent á að hafa samband við
skrifstofu félagsins í Austurstræti
6 sem er opin virka daga milli
klukkan 15 og 17.
Stjórn Neytendafélags Reykja-
víkur og nágrennis skipa: Jóhann-
es Gunnarsson formaður, Erna
Hauksdóttir varaformaður, Lára
V. Júlíusdóttir gjaldkeri, Jón Ás-
geir Sigurðsson ritari, og með-
stjórnendur: Anna Kristbjörns-
dóttir, Bergþóra Gísladóttir,
Björn Hermannsson, Gyða Jó-
hannesdóttir, Jóhanna Thor-
steinsson, Sigrún Ágústsdóttir,
Sigurður Sigurðsson og Teitur
Jensson.
(FrétUtilkynning.)
Efnalaugin Vesturgötu 53
veröur lokuð frá og meö 24. júní til 12. ágúst. Viö-
skiptavinir vinsamlega sækiö fatnaö ykkar. Opið
þriöjud. og fimmtudag frá 9—18.
Ath.: Engin móttaka fram aö lokun.
VALDAR
enskar og amerískar vasabrotsbækur. M.a. nýjustu
bækur eftir metsöluhöfundana Alastair Maclean,
Arthur Hailey, Adam Hall og Desmond Bagley.
Verslunin Örk,
Verslunarmiðstöðinni Miövangi,
Hafnarfiröi. Sími 54333.
LAWN-BOY
GARÐSLÁTTUVÉLIN
SÍMI 81500-ARIVIÚLA11
Það er leikur einn að
slá með LAWN-BOY
garðsláttu vélinni,
enda hefur allt verið
gert til að auðvelda
þér verkið.
Hafeindakveikja. sem
tryggir örugga gang-
setningu.
Grassafnari, svo ekki
þarf að^raka.
3,5 hö, sjálfsmurð tvi-
gengisvél, tryggir lág-
marks viðhald.
Hljóðlát.
Slær út fyrir kanta og
alveg upp að veggjum
Auðveld hæðarstilling
Ryðfrí.
Fyrirferðalitil, létt og
meðfærileg.
VELDU GARÐSLÁTTUVÉL, SEM GERIR MEIR
EN AÐ DUGA.
Ein frægasta og virtasta dansmær Austurlanda,
hin indverska
SHOVANA NARAYAN
dansar á nýja sviðinu í Gamla Bíói laugardaginn
12. júní kl. 14.
Þessi frábæra listakona hefur hlotiö einróma lof áhorfenda jafnt sem gagnrýnenda, en í Evrópu hefur hún sýnt list sína
í Bretlandi, Frakklandi, Þýskalandi, Hollandi, Belgíu og Sviss.
Hún hlaut titilinn „Ungfrú Sameinuöu þjóðirnar“ í hinni svokölluðu „Brain &
Beauty“-keppni stofnunarinnar 1974.
ÍÍALÖ'G í