Morgunblaðið - 10.06.1982, Qupperneq 23
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 10. JÚNÍ1982
Hermenn í friöargæzluliði Sameinuöu þjóðanna líta undan þegar ísraelskur skriðdreki nálgast stöðvar þeirra á gæzlusvæðinu. Friðargæzlusveitirnar veittu
ísraelsku innrásarherjunum mótspyrnu. símimynd — AP
Israelar reyna að loka eina
opna veginum M Beirút
Beirút, 9. júní. AP.
ísraelsku innrásarherirnir
bjuggu sig undir að loka þjóð-
veginum rnilli Beirút og Dam-
askus í dag til þess að hefta
ferðir leiðtoga PLO á sama tíma
og Sýrlendingar sendu nýjar
sveitir til Líbanon.
Skriðdrekasveitir ísraela
sveigðu til austurs af leið sinni í
morgun og lögðu undir sig hæðir
austur af Beirút, í aðeins tveggja
kílómetra fjarlægð frá hraðbraut-
inni, sem er hernaðarlega mikil-
væg, og um hana fara flutningar
Sýrlendinga í mið- og austurhlut-
um Líbanon.
I nótt fóru langar lestir sov-
ézkra skriðdreka, brynvagna, fær-
anlegra eldflaugaskotpalla og fall-
byssuvagna um þjóðveginn inn í
Bekaa-dal og fjöllin þar í kring.
Sýrlendingar sendu þyrlur búnar
vélbyssum og eldflaugum á undan
lestunum til að kanna framgang
ísraelska liðsins við þjóðveginn,
sem er eina opna landleiðin til
Beirút. ísraelar hafa lagt alla aðra
vegi til borgarinnar undir sig.
Bandarískir embættismenn
sögðu að Bandaríkjastjórn hefði í
undirbúningi umfangsmikið
hjálparstarf fyrir fólk, sem flúið
hefði á brott frá átakasvæðunum í
Líbanon.
Philip Habib, sendimaður
Bandaríkjastjórnar í Miðaustur-
löndum, kom í dag til Damaskus
til viðræðna við ráðamenn þar um
möguleika á vopnahléi í Líbanon,
þar sem gengið yrði út frá því að
Israelar drægju herlið sitt til
baka.
Argentínumenn
vöruðu olíuskip-
ið við loftárás
London, 9. júní. AP.
OLÍUSKIPIÐ „Hercules“, sem laskaðist í loftárás á Suður-
Atlantshafi á þriðjudag, fékk viðvörun frá argentínskri stöð um að
ráðizt yrði á það 15 mínútum áður en árásin var gerð að sögn
talsmanns brezka landvarnaráðuneytisins, Ian MacDonald.
Kallmerki stöðvar í Ushuaia á
suðurodda Argentínu var notað áð-
ur en skilaboðin voru flutt, þannig
að MacDonald sagði að Argentínu-
menn hefðu vitað fullvel að skipið
var olíuskip skráð í Líberíu. Skip-
inu var skipað að sigla til hafnar í
Argentínu og sagt að ella yrði ráð-
izt á það innan 15 mínútna. Skila-
boðin heyrðust í tveimur brezkum
spítalaskipum.
Skipstjórinn á „Hercules", sem
er 220.000 lestir, tilkynnti að fjög-
urra hreyfla skrúfuflugvélar, sem
flugu hátt, hefðu ráðizt á skipið 772
km austur af Falklandseyjum.
Halli er kominn á skipið, sem reyn-
ir að sigla til Brazilíu. Þrjátíu
manna ítölsk áhöfn er á skipinu og
ekki er vitað til þess að nokkurn
hafi sakað.
Bretar telja að árásarflugvélarn-
ar hafi verið C-130 Hercules-flutn-
ingaflugvélar argentínska flug-
hersins. Ein slík réðst á BP-olíu-
skipið „Wye“, 25.000 lestir, við
Falklandseyjar 2. júní. Sprengjum
var velt út um farmdyr flugvélar-
innar, en þær sprungu ekki.
MacDonald lagði áherzlu á að
engin brezk flugvél hefði á nokkurn
hátt verið viðriðin atburðinn og að
Hercules-flugvélar hefðu ekki verið
notaðar til að aðstoða brezka leið-
angursflotann. Skipið, sem var á
leið frá Jómfrúreyjum til Alaska
að taka hráolíu, var langt fyrir
utan brezka hafnbannssvæðið.
Leifar sigraðs herliðs. Hér má sjá hjálma og nestisbauka argentínskra
hermanna, sem gáfust upp fyrir brezkum sveitum við Goose Green. Myndina
tók Ijósmyndari brezku fréttastofunnar Press Association, Martin Cleaver.
W4
Stökk til manna sinna úr 25 þús. feta hæð
David Chaundler ofursti, sem tók
við stjórn annars herfylkis brezku
fallhlifahersveitanna eftir fráfall H.
Jones ofursta, kom með óvenju-
legum hætti til Falklandseyja. Hann
stökk út úr flugvél í 25 þúsund feta
hæð yfir Falklandseyjum og sveif
niður á fjallið Kent í fallhlíf.
Rok var og svartaþoka grúfði yf-
ir eyjunum þegar Chaundler varp-
aði sér út úr Herkúles-flugvél, sem
flogið hafði með hann 3500 sjómíl-
ur frá Ascension. Flugmaðurinn
fann Kent með aðstoð lítils stefnu-
sendis, sem sveitirnar á fjallinu
komu fyrir.
Þegar flugvélin átti eftir eina
sjómílu að vitanum hljóp
Chaundler aftur úr flutninga-
flugvélinni, sem flaug upp í vind-
inn. Hann lét sig síðan falla 21
þúsund fet, eða rúma sex kíló-
metra, og opnaði ekki svörtu silki-
fallhlífina fyrr en hann var í fjög-
ur þúsund feta hæð yfir jörðu.
Lætur nærri að hann hafi fallið til
jarðar með um 200 kílómetra
hraða á klukkustund þar til hann
opnaði fallhlífina. Var hann með
súrefnisgrímu fyrir andlitinu á
meðan.
Chaundler hafði meðferðis lít-
inn sendi, svo hægt væri að miða
hann út, og leiðbeindu sveitirnar á
fjallinu honum að lendingarstaðn-
um. Aðeins örfáum mínútum eftir
að hann sveif til jarðar tók hann
að blaða í kortum og upplýsingum,
í stjórnstöð sveitarinnar, um
stöðvar Argentínumanna við
Stanley.
David Chaundler var náinn vin-
ur ofursta H. Jones, sem féll í árás
á vélbyssuhreiður Argentínu-
manna við Goose Green. Chaundl-
er starfaði í varnarmálaráðuneyt-
inu í London, og þegar fregnir bár-
ust um fall H. Jones fékk hann 24
stunda frest til að gera sig kláran
fyrir flug til Ascension. Chaundler
er 39 ára og tveggja barna faðir.
Faðir hans, Bob, var einnig ofursti
í brezka hernum, hætti þjónustu
1962. Hann var í sveitum sem
lentu á svifflugum í Hollandi í
seinni heimsstyrjöldinni.
.Hvív/lC/
23
TIL
ÍSLANDS
Lestun í erlendum
höfnum
AMERÍKA
PORTSMOUTH
Mare Garant 14. júní
Hofsjökull 17. júní
Santiago 1. júlí
Mare Garant 12. júlí
NEW YORK
Mare Garant 16. júm'
Hofsjökull 18. júní
Santiago 2. júli
Mare Garant 14. júlí
HALIFAX
Hofsjökull 21. júni
Vessel 17. júli
BRETLAND/
MEGINLAND
ROTTERDAM
Álafoss 14. júni
Eyrarfoss 21. júni
Álafoss 28. júni
Eyrarfoss 5. júli
ANTWERPEN
Álafoss 15. júní
Eyrarfoss 22. júni
Álafoss 29. júní
Eyrarfoss 6. júli
FELIXSTOWE
Álafoss 16. júní
Eyrarfoss 23. júní
Álafoss 30. júni
Eyrarfoss 7. júli
HAMBORG
Alafoss 17. júní
Eyrarfoss 24. júní
Álafoss 1. júli
Eyrarfoss 7. júli
WESTON POINT
Helgey 22. júni
Helgey 6. júli
NORÐURLÖND/
EYSTRASALT
BERGEN
Dettifoss 21. júní
Dettifoss 5. júli
KRISTIANSAND
irafoss 23. júni
Lagarfoss 7. júli
MOSS
Mánafoss 15. júní
irafoss 22. júní
Mánafoss 29.'júní
Lagarfoss 6. júli
TRONDHEIM
Laxfoss 14. júní
GAUTABORG
Mánafoss 16. júni
Dettifoss 23. júni
Mánafoss 30. júni
Dettifoss 7. júli
KAUPMANNAHÖFN
Mánafoss 17. júní
Dettifoss 24. júni
Mánafoss 1. júli
Dettifoss 8. júli
HELSINGBORG
Mánafoss 18. júní
Dettifoss 25. júni
Mánafoss 2. júli
Dettifoss 9. júli
HELSINKI
irafoss 16. júni
Lagarfoss 30. júni
GDYNIA
irafoss 18. júní
Lagarfoss 2. júli
HORSENS
irafoss 21. júni
Lagarfoss 5. júli
THORSHAVN
Mánafoss 24. júní
VIKULEGAR
STRANDSIGLINGAR
- framog til baka
frá REYKJAVIK alla mánudaga
frá ISAFIRDI alla þriöjudaga
frá AKUREYRI alla fimmtudaga
EIMSKIP
SlMI 27100