Morgunblaðið - 10.06.1982, Síða 25
24
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 10. JÚNÍ 1982
25
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 10. JÚNÍ 1982
Útgefandi
Framkvæmdastjóri
Ritstjórar
Fulltrúar ritstjóra
Fréttastjórar
Auglýsingastjóri
hf. Árvakur, Reykjavík.
Haraldur Sveinsson.
Matthías Johannessen,
Styrmir Gunnarsson.
Þorbjörn Guömundsson,
Björn Jóhannsson.
Freysteinn Jóhannsson,
Magnús Finnsson,
Sigtryggur Sigtryggsson.
Baldvin Jónsson.
Ritstjórn og skrifstofur: Aöalstræti 6, sími 10100. Auglýsingar: Að-
alstræti 6, sími 22480. Afgreiösla: Skeifunni 19, sími 83033. Áskrift-
argjald 120 kr. á mánuði innanlands. í iausasölu 8 kr. eintakið.
Hrunadansinn
Goðsögnin um stöðugleika á vinnumarkaði þegar Al-
þýðubandalagið á aðild að ríkisstjórn hefur reynzt hin
örgustu öfugmæli. Launaórói hefur verið hvað mestur þar
sem Alþýðubandalagið hefur haft tögl og hagldir í stjórn-
sýslu, eins og t.d. í heilbrigðiskerfinu, og launaþróun þar
kallað á hliðstæð viðbrögð annarsstaðar í þjóðfélaginu.
Þrátt fyrir versnandi viðskiptakjör og rýrnandi þjóðar-
tekjur af þeim sökum, sem og veiðibrests á loðnu og
óhagstæðari samsetningar sjávarfangs, stefnir allt í
harðnandi stéttaátök, þar sem hver starfshópurinn af öðr-
um gerir kröfu til stærri hluta af lækkandi þjóðartekjum.
Ef fram heldur sem horfir um tilkostnaðarhækkanir út-
flutningsframleiðslu, umfram söluverð erlendis, verður
þrautalendingin „enn og aftur" gengislækkun, smærri
krónur með minna kaupgildi. Niðurstaðan verður allra tap
en engra ávinningur.
Hér verður ekki reynt að meta stöðuna í samningavið-
ræðum ASÍ og VSÍ, enda það margir endar lausir, að erfitt
er í að spá. Ljóst er þó að alvarleg&sti þröskuldur í vegi
samninga er sá rökstuddi ótti láglaunafólks, að Benedikt
Davíðsson, formaður launamálaráðs Alþýðubandalagsins,
hyggist bíða átekta, meðan ASÍ gengur frá samningum, en
koma síðan aftan að láglaunafólki með hagstæðari samn-
inganiðurstöður fyrir sína umbjóðendur. „Sagan endurtek-
ur sig,“ segir máltækið.
Samningar á vinnumarkaði eru að sjálfsögðu frjálsir.
Viðsemjendur geta samið um hvaðeina, sem báðir aðilar
sættast á. Hinsvegar er það velsæmisspursmál í hugum
fólks, hvort rétt sé að beita láglaunahópum fyrir kjarbar-
áttu, sem endar í hlutfallslega meiri kjarabótum til hinna
betur settu. Það er og talandi dæmi um hræsni Alþýðu-
bandalagsins þegar Svavar Gestsson, félagsmálaráðherra,
lætur Þjóðviljann hafa eftir sér í gær, að kjör láglauna-
fólks þurfi að hafa forgang, á sama tíma sem Benedikt
Davíðsson, formaður launamálaráðs flokksins, stendur í
„neðanjarðarsamningum", sem koma eiga í bakið á lág-
launafólki, enda er flokkurinn að verða að pólitísku við-
undri í augum alþýðu manna.
Eftir þriggja ára stjórnarsetu Alþýðubandalagsins er
„stöðugleikinn á vinnumarkaðinum" sá, að hagsmunahópar
þjóðfélagsins dansa hrunadansinn umhverfis lækkandi
þjóðartekjur af meira kappi en nokkru sinni. Og formaður
verkalýðsmálaráðs Alþýðubandalagsins stýrir sáttaum-
leitunum — með baktjaldamakki — í strand, að því er
virðist. Verkföll virðast því framundan næstu tvo daga —
og ótímasett allsherjarverkfall í næstu viku, sem verður að
skrifast á reikning Alþýðubandalagsins. — Engin sam-
staða er milli aðila í ríkisstjórn um efnahagsviðbrögð. —
En „heimavarnarlið" Alþýðubandalagsins leikur undir
hrunadansinn af miklu kappi — og hefur ekki áhuga eða
áhyggjur af öðru en spaugilegum innanflokksdeilum um
skipun flokksfulltrúa í hafnarnefnd Reykjavíkurborgar!
Landssamband iðnaðar-
manna 50 ára
Landssambandi iðnaðarmanna, sem sameinar félög, ein-
staklinga og fyrirtæki á sviði byggingariðnaðar, fram-
leiðsluiðnaðar og þjónustuiðnaðar í ein heildarsamtök, er
50 ára um þessar mundir. Á þessum tímamótum leggur
sambandið höfuðáherzlu á, að sögn Sigurðar Kristinsson-
ar, forseta þess, að öll löggjöf varðandi nútíma iðnrekstur
verði tekin til heildarendurskoðunar á næsta Alþingi. Til-
gangur þeirrar endurskoðunar skal vera að koma starfs-
skilyrðum íslenzkra iðnfyrirtækja í það horf, að þau verði
ekki lakari en annarra höfuðatvinnuvega þjóðarinnar.
Um leið og Mbl. þakkar Landssambandi iðnaðarmanna
farsælt forystustarf og árnar því framtíðarheilla skal
sterklega tekið undir þá áskorun, að skipulega verði hafizt
handa um endurskoðun viðkomandi löggjafar til að styrkja
starfsskilyrði íslenzkra iðnfyrirtækja.
Bolívar í Þjóðleik-
húsinu annaö kvöld
Þrjátiu manna leik-
flokkur frá Rajatabla
í Venezuela sýnir tvö
verk á Listahátíð
ÞRJÁTÍU manna leikflokk-
ur frá Rajatabla-leikhúsinu
er kominn til landsins til að
koma fram á Listahátíð í
Reykjavík. Rajatabla sýnir
tvö leikrit í Þjóðleikhúsinu,
Bolívar, sem frumsýnt verð-
ur á föstudagskvöld og
endursýnt á laugardags-
kvöldið, og Forseta lýðveld-
isins, en það leikrit verður
fyrst sýnt 14. júní og síðan
endurtekið þriðjudagskvöld
15. júní.
Rajatabla-leikhúsið hefur
starfað í rúm tíu ár, en það er
með leiksmiðjusniði. Aðalleik-
stjóri Rajatabla er Carlos Gim-
énez, en hann átti upptökin að
því að þetta tilraunaleikhús var
stofnað. Rajatabla-leikhúsið er
þekkt víða um lönd. Fyrstu árin
náði starfsvettvangurinn ekki út
fyrir Suður-Ameríku en frá því á
árinu 1975 hefur leikhúsið verið
á ferð og flugi og m.a. tekið þátt
í helztu leiklistarhátíðum sem
haldnar eru austan hafs og vest-
an.
Bolívar fjallar eins og nafnið
bendir til um Símon Bolívar,
sem á öndverðri síðustu öld lagði
allt undir til að ná rómönsku
Ameríku frá Spánverjum. Bol-
ívar er í hávegum hafður hjá
þeim ellefu einræðisstjórnum
sem eru við völd í Suður-Amer-
íku nú á dögum, en rauði þráður-
Atriði úr Bolívar.
inn í leikritinu er annars vegar
draumur Bolívars um einingu og
frelsi rómönsku Ameríku og
hins vegar sú mynd sem blasir
við nú. Höfundur leikritsins um
Bolívar er José Antonio Rial, en
um verkið segir hann m.a.: „Bol-
ívar er pólitískt leikrit þar sem
andlát, jarðarfarir, uppvakning
persóna sem aldrei voru til eða
eru dauðar, ólík tímaskeið, and-
stæð tungumál, samfélags-
árekstrar, fatnaður eða skrúðar,
tónlist, tákn o.s.frv. er notað í
þeim tilgangi að fjalla um lífið í
rómönsku Ameríku í dag.“
Carlos Giménez, leikstjóri og
stjórnandi Rajatabla.
Bolívar var frumsýndur í Ven-
ezuela í byrjun marz sl. en svo
vill til að Island er fyrsta landið
sem Rajatabla fer með sýning-
una til, en í framhaldi af heim-
sókninni hingað verður leikurinn
sýndur í tíu Evrópulöndum.
— Á.R.
Ivo Pogörelich — nýstárlegur
Chopin-túlkandi í Laugardalshöll
Forráðamenn Listahátíðar í Reykjavík hafa fengið júgóslavneska
píanóleikarann Ivo Pogörlich til að koma hingað til lands og leika með
Sinfóníuhljómsveit íslands í Laugardalshöll nk. mánudagskvöld, 14. júní.
Svo sem kunnugt er af fréttum varð flautuleikarinn James Galway fyrir
slysi þannig að hann gat ekki komið á Listahátíð og leikið með sinfóníu-
hljómsveitinni í kvöld, svo sem ráð var fyrir gert, og var þá brugðið á það
ráð að útvega í skyndi aðra tónlistarstjörnu í hans stað.
Ivo Pogörlich er 24ra ára að
aldri. Hann varð heimsþekktur
fyrir tveimur árum þegar hann
tók þátt í Chopin-keppninni í
Varsjá en þá klofnaði dómnefndin
vegna Pogörlichs. Helmingur
dómnefndarinnar gaf honum
hæstu einkunn fyrir frammistöð-
una í keppninni en hinn helming-
urinn taldi að hann ætti skilið að
fá lægstu einkunn. Lyktaði þess-
um átökum svo að sá hluti dóm-
nefndarinnar sem stóð með Pog-
örlich sagði af sér og þar með var
píanóleikarinn kominn á forsíður
blaðanna. Viðbrögð hans við úr-
slitunum voru þau að hann fór
beint til Deutsche Grammophone
og lék þar inn á plötu með verkum
eftir Chopin en á plötuumslagi bað
Pogörlich fyrir kæra kveðju til
Varsjár.
Ivo Pogörlich lærði píanóleik í
Moskvu. Hann sigraði í Casa
Grande keppninni á Ítalíu 1978 og
í Alþjóðlegu tónlistarkeppninni í
Montreal 1980. Hann hefur vakið
athygli fyrir nýstárlega túlkun á
verkum Chopins, en á tónleikun-
um í Laugardalshöll á mánudags-
kvöld leikur hann annan píanó-
konsert Fredérics Chopins.
Einn frægasti dansari Indlands í íslenzku óperunni:
Hún segir sögur
meö dansandi líkama
Shovana Narayan, sem er einn frægasti dansari Indlands og hefur
dansað víða um heim sígildan indverskan dans, Kathak, sem er einn af
sex danstegundum af trúarlegum toga í Indlandi, mun dansa á fjölum
íslenzku óperunnar nk. laugardagskvöld. Shovana mun dansa þar bæði
hraða og taktfasta dansa og rólega dansa sem byggja á frásögn með
hreyfingum, en á fundi með blaðamönnum Morgunblaðsins sagði hún
eins auðveldlega sögur með hreyfingum og svipbrigðum eins og landan-
um er tamt að segja frá með orðum.
Shovana er ávallt fengin til að
dansa fyrir erlenda þjóðhöfð-
ingja þegar þeir heimsækja Ind-
land og meðal þeirra, sem hún
hefur dansað fyrir, eru Carter,
forseti Mexico, Karl Bretaprins,
forseti Bangladesh og oft hefur
hún dansað fyrir Indiru Gandhi.
Þetta er í fyrsta sinn sem Shov-
ana dansar á Islandi og reyndar
í fyrsta skipti á Norðurlöndum,
en hún hefur dansað all víða um
heim. Hún vann fyrir nokkrum
árum alþjóðlegan titil á vegum
Sameinuðu þjóðanna þar sem
miðað var við gáfur og fegurð.
Hinn sígildi dans Shovana er list
sem ekki hefur áður verið sýnd á
íslandi og tilþrifamikil tónlist er
undirtónninn.
Kathak er sígildur trúardans
sem hefur þróast á 2000 árum í
Norður-Indlandi. Venjulega er 4
manna hljómsveit með Shovana
en hérlendis hefur hún tónlist-
ina á tónbandi.
Shovana kom til landsins í
gær frá Vínarborg þar sem hún
dansaði í fyrrakvöld. Hún dans-
aði í fullum skrúða fyrir frétta-
menn í gærkvöldi, en fóta-
búnaður hennar inniheldur 400
bjöllur sem skipta miklu máli í
hljómfallinu þegar hinn austur-
lenzka fegurð og mýkt tjáir sög-
una með hinum ótrúlega mörgu
möguleikum líkamans í þeim
efnum án orða. Kathak þýðir
saga og hinir margbreytilegu
dansar segja sögur úr ýmsum
áttum.
um ökklana.
l.jÓNm. Mbl. (íuðjó
%
Kjarvalsstaðir
á Listahátíð:
Verk John
Speights á
kammertón-
leikum í kvöld
Þriðju kammertónleikarnir í röð á
Kjarvalsstöðum á Listahátíð verða í
kvöld klukkan níu, en á þessum tón-
leikum verða kynnt verk eftir John
Speight. Á efnisskrá eru tvö verk,
Verses and Cadenzas og Strengja-
kvartett nr. 2.
í tónleikaskrá segir um fyrra
verkið að það sé grundvallað á
John Speight
fyrsta samspilskaflanum. Að hon-
um afloknum kemur einleikskafli
fyrir klarinett. Á eftir næsta sam-
spilskafla leikur fagottið einleik.
Þriðji samspilskaflinn sem er
fyrir fagott og klarinett er mjög
stuttur og við tekur einleikur á pí-
anó. í síðasta samspilskaflanum
leika öll hljóðfærin einleik sam-
tímis. Þetta verk var samið fyrir
þremur árum handa flytjendum
sem eru Sveinbjörg Vilhjálms-
dóttir píanóleikari, Hafsteinn
Guðmundsson fagottleikari og
Einar Jóhannesson klarinettleik-
ari.
Strengjakvartettinn skiptist í
tólf kafla. Það var tileinkað Þor-
katli Sigurbjörnssyni og frumflutt
fyrir fjórum árum, en flytjendur á
tónleikunum að Kjarvalsstöðum í
kvöld eru fiðluleikararnir Helga
Hauksdóttir og Rut Ingólfsdóttir,
Pétur Þorvaldsson sellóleikari og
Sesselja Halldórsdóttir, sem leik-
ur á víólu.
Elliðaárnar
opnaðar í dag
ELLIÐAÁRNAR voru opnað-
ar klukkan 7 í morgun og
fyrstur átti að renna Davíð
Oddsson borgarstjóri í
Reykjavík. Átti hann að hefja
veiðar í Fossinum, sam-
kvæmt gamalli hefð.
í samtali við Morgunblaðið í
gær, sagði Friðrik Stefánsson
framkvæmdastjóri SVFR, að auk
borgarstjóra myndu Aðalsteinn
Guðjohnsen rafmagnsstjóri og
Gunnlaugur Pétursson borgarrit-
ari veiða í ánum fyrir hádegi, frá
klukkan 7—13. Eftir hádegi, frá
klukkan 15—21, verða við veiðar
þeir Haukur Pálmason yfirverk-
fræðingur Rafmagnsveitna
Reykjavíkur, Þórður Þ. Þorbjarn-
arson borgarverkfræðingur,
Gunnar Eydal skrifstofustjóri
borgarstjórnar og Ragnar Júlíus-
son formaður veiði- og fiskirækt-
arráðs.
•Samkvæmt heimildum Morgun-
blaðsins er laxinn farinn að ganga
í Elliðaárnar, þó seinna sé en oft
áður, og voru í gær komnir 6 laxar
upp fyrir teljara. Tíðindamaður
Mbl. sagðist í gær hafa séð nokkra
laxa í neðsta veiðistaðnum, Eld-
húshyl, og ennfremur sáust laxar
bylta sér í ósnum.
Hvað sprengdi vióræóur ASÍ og VSÍ?
í fyrrinótt slitnaöi upp úr samningaviðræöum ASÍ og VSÍ og sögöu
vinnuveitendur, aö ástæöan væri „leynisamningur", sem Meistarasam-
band byggingarmanna og byggingarmenn heföu gert meö sér, en sá
samningur geröi ráö fyrir mun meiri hækkunum, en gera mætti ráö fyrir
aö yröu upp á teningnum í viöræöum ASÍ og VSÍ. Morgunblaðið innti
deiluaöila eftir áliti þeirra á málinu. Fara svör þeirra hér á eftir:
Ásmundur Stefánsson:
„ÞAÐ, SEM gerðist við upphaf sáttafundar í gær,
var að Vinnuveitendasambandið gerði okkur grein
fyrir hugmyndum eins af forystumönnum Meistara-
sambands byggingarmanna, um það hvernig mætti
leysa deilu byggingarmanna,“ sagði Ásmundur Stef-
ánsson, forseti ASI, i samtali við Mbl.
— Vinnuveitendur bentu þar á, að í þessum
hugmyndum byggingarmanna væri um að ræða
mun meiri hækkun en búast mætti við að fengist
í samningum ASÍ og VSÍ. Spurning Vinnuveit-
endasambandsins var því sú, hvort landssam-
böndin, sem væru í samfloti Alþýðusambands-
ins, treystu sér til að ganga frá samningum fyrr
en ljóst væri, hvort þessar hugmyndir bygg-
ingarmanna yrðu að raunveruleika.
Svarið, sem gefið var af hálfu þeirra Alþýðu-
sambandslandssambanda, sem eru í samflotinu,
var það að þau teldu óhjákvæmilegt að reyna að
ná samningum og flýta því, en jafnframt hlyti
þeim samningum að fylgja fyrirvari þess efnis,
að ef samið yrði um meiri kauphækkanir í öðrum
samningum, hlytu samningar þeirra að verða
teknir til endurskoðunar til samræmis. Vinnu-
veitendasambandið hins vegar neitaði alfarið á
þessum grundvelli, að ræða við landssamböndin,
sem fæst hafa fengið efnislegar umræður hingað
til. Vinnuveitendasambandið neitaði ennfremur
að ræða við Alþýðusambandið eða heildarsamn-
inganefnd okkar um þær almennu kröfur sem
þar eru á borðinu um grunnkaupshækkanir, vísi-
tölu og fleira. Málið fór því í harðan hnút í nótt.
Það er því óhjákvæmilegt, að þau verkföll, sem
boðuð höfðu verið 10.—11. júní, komi til fram-
kvæmda. Við vonumst hins vegar til þess, að
sáttanefnd taki einhver skref í málinu til að
koma viðræðum af stað að nýju. Það liggur hins
vegar ekkert fyrir um slíkt. Sáttanefndin tók sér
tíma og frá henni höfum við ekki heyrt ennþá,
sagði Asmundur Stefánsson ennfremur.
Asmundur sagði, að Alþýðusambandsmenn
hefðu ekki farið í neinar efnisumræður um þess-
ar hugmyndir umrædds forystumanns Meistara-
sambandsins. — Þær eiga betur heima í viðræð-
um Meistarasambandsins og byggingarmanna,
sem við þá semja. Hins vegar er rétt að árétta,
að þessi forystumaður og þeir fulltrúar sem
þarna voru af hálfu byggingarmanna voru á því
máli, að engar tillögur hefðu verið lagðar fram í
þessu máli gagnvart félögunum, sagði Ásmundur
Stefánsson, forseti ASÍ, ennfremur.
Benedikt Davfðsson:
„VIÐ höfum verið að tala um hækkanir á svipuðum
nótum og aðrir, nema hvað rætt hefur verið um ein-
hverja leiðréttingu á reiknitölunni, sem hefur ekki
hækkað í samræmi við aðrar launahækkanir í landinu
á undanförnum árum,“ sagði Benedikt Davíðsson,
formaður Sambands byggingarmanna, í samtali við
Mbl.
— Menn verða hins vegar að hafa það hugfast,
að það er einungis verið að tala um leiðréttingu á
þessu ákveðna launakerfi, sem aðeins hluti bygg-
ingarmanna starfar eftir. T.d. eru aðeins 20—30%
félaga í Trésmiðafélagi Reykjavíkur, sem starfa
samkvæmt þessu kerfi, en félagið er stærst þeirra
félaga, sem aðild eiga að sambandinu. Hins vegar
starfar meginþorri félaga í Múrarafélaginu sam-
kvæmt þessu kerfi, en þeir standa utan okkar sam-
bands, sagði Benedikt ennfremur.
— I mörgum undanförnum samningum hafa
laun verið skert verulega í þessu ákveðna launa-
kerfi, þegar breytingar hafa verið í aðra átt í öðr-
um kerfum. Annars hefur það komið í ljós í þeim
könnunum, sem gerðar hafa verið, að reiknitalan
hefur verið skert um 24 —40%, mismunandi eftir
stéttum, frá árinu 1971. Hugsanleg leiðrétting er
því eitthvað til mótvægis við þetta. Við reiknum
ekki með, að þarna verði eitthvað stórt stökk held-
ur verið eitthvað komið til móts við okkar menn,
sagði Benedikt ennfremur.
— Þegar það er haft í huga, að aðeins hluti bygg-
ingarmanna starfar samkvæmt ákvæðisvinnukerfi,
þá er ljóst að sú hækkun sem kann að koma til mun
ekki virka nema hlutfallslega, sagði Benedikt.
Benedikt bætti því við, að vinnuveitendur hefðu
sett dæmið mjög ýkt upp. — Það er greinilega gert
til að finna góða áróðursstöðu á þessum slita-
punkti. Það er hins vegar rétt, að við höfum stefnt
að, og okkar viðsemjendur hafa viðurkennt, að leið-
rétting á þessu kerfi væri nauðsynleg, sagði Bene-
dikt Davíðsson að lokum.
Þorsteinn Pálsson:
„ÞETTA gerist þannig, að á mánudagskvöldið á sátta-
fundi fengum við upplýsingar um, að Meistarasam-
band byggingarmanna teldi sig hafa upplýsingar um
það hvernig Ijúka mætti samningum við byggingar-
menn, að loknum heildarsamningum við Alþýðusam-
bandið,“ sagði Þorsteinn Pálsson, framkvæmdastjóri
Vinnuveitendasambands íslands, í samtali við Mbl.
— Við óskuðum þá þegar eftir því, að sátta-
nefndin hlutaðist til um, að við fengjum í hendur
efnisatriði í þessu hugsanlega samkomulagi, sem
Meistarasambandið taldi, að ná mætti samningum
um. Sáttanefndin gerði þetta og formaður
Meistarasambands byggingarmanna gaf fulltrúa
Vinnuveitendasambandsins munnlega skýrslu um
þessi efnisatriði. Hún var skrifuð niður og síðan
lesin upp fyrir formann Meistarasambandsins og
hann staðfesti, að hún væri rétt niður skrifuð.
Þegar hér var komið sögu, var ljóst að þarna
voru komnir á flugstig samningar við þá sem eru í
hæstu flokkum launakerfisins, sem gerðu ráð fyrir
verulegum hækkunum fram yfir það sem aðrir aðil-
ar innan Alþýðusambandsins gátu átt möguleika á
í samningum. Vinnuveitendasambandið taldi við
þessar aðstæður óhjákvæmilegt, að gera viðræð-
unefnd Alþýðusambandsins og formönnum lands-
sambanda þess grein fyrir þessum nýju upplýsing-
um.
í því sambandi er alrangt, að nokkur trúnaður
hafi verið brotinn. Þær grófu ásakanir eiga ekki við
nein rök að styðjast. Það hefur ekki eitt einasta
efnisatriði í þessari skýrslu, sem formaður Meist-
arasambandsins gaf Vinnuveitendasambandinu,
verið upplýst opinberlega. Einungis rætt á sátta-
fundinum.
Við lögðum þessi efnisatriði fyrir viðræðunefnd
Alþýðusambandsins og spurðum hvort hún teldi, að
þessar upplýsingar myndu breyta afstöðu hennar
til væntanlegra samninga. Svar Alþýðusambands-
ins var það, að þetta myndi breyta stöðunni og
setja yrði skilyrði fyrir væntanlegum samningum,
þannig að þeir yrðu að gera fyrirvara um uppsögn,
eða endurskoðun hugsanlegs samkomulags, ef
byggingarmenn semdu á eftir. Þetta gat Vinnuveit-
endasambandið auðvitað ekki samþykkt. Með því
hefði það framselt samningsrétt sinn gagnvart
meginþorra launþega í landinu í hendur bygg-
ingarmeisturum.
Þannig voru samningarnir komnir í sjálfheldu og
þannig er staðan í dag. Við lítum svo á, að báðir
meginsamningsaðilar séu í miklum vanda, eftir að
þetta upplýstist og niðurstaða sáttafundarins í gær
var sú, að það væri eðlilegt að sáttanefndin fengi
umþóttunartíma til að íhuga núverandi stöðu máls-
ins, sagði Þorsteinn Pálsson.
Gunnar S. Björnsson:
„EG ER meira en lítið undrandi á Vinnuveitendasam-
bandinu, að halda því fram, að við höfum sprengt
þessar viðræður, þó þarna hafi farið fram einhverjar
viðræður milli manna innan okkar raða og þeirra, þar
sem menn hafa verið að ræða stöðu mála og hvernig
staðan sé á hverjum stað fyrir sig, þá eru samningar
okkar ekkert komnir á veg og við höfum alfarið neitað
okkar viðsemjendum um þær kröfur, sem þeir hafa
verið með,“ sagði Gunnar S. Björnsson, formaður
Meistarasambands byggingarmanna, í samtali við
Mbl.
— í okkar huga hefur aldrei verið annað en að
fylgja því, sem annars staðar kann að verða ofan á.
Við gerum okkur fyllilega grein fyrir því, að við
höfum enga stöðu til annars.
Við höfum aftur á móti mjög lítið getað fylgzt ’
með því, sem verið hefur að gerast niðri í Karphúsi,
þar sem við erum ekki innan Vinnuveitendasam-
bandsins og flestir okkar viðsemjenda eru ekki inn-
an raða Alþýðusambandsins. Þær ásakanir vinnu-
veitenda um að við höfum sprengt upp viðæðurnar
í gær, eru því gersamlega úr lausu lofti gripnar. Og
þær upplýsingar, sem þeir leggja á borð innan
veggja í Karphúsinu í gær, sem að þeirra mati hafa
sprengt þetta upp, eru gersamlega úr lausu lofti
gripnar að mínu mati og affluttar og vitlaust fram-
settar ef þær eru byggðar á því einkasamtali, sem
ég átti við ákveðinn starfsmanna Vinnuveit-
endasambandsins. Auk þess sagði Þorsteinn Páls-
son, að þetta blessað skjal hefði verið lesið upp yfir
mér og ég staðfest það. Það hefur aldrei verið gert.
Ég sá þetta plagg fyrst þegar ég var kallaður inn á
fund til formanna landssambanda Alþýðusam-
bandsins í gær, sagði Gunnar S. Björnsson.
Gunnar sagði, að engar hugmyndir hefðu verið
settar fram af hálfu meistara til lausnar deilu að-
ila.—Þó að við höfum að sjálfsögðu verið að velta
fyrir okkur ýmsum hlutum til lausnar þessari
deilu, þá hafa þeir ekki verið framsettir við við-
semjendur okkar, sagði Gunnar S. Björnsson