Morgunblaðið - 10.06.1982, Page 27
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 10. JÚNÍ1982
27
Borgarspítalinn:
30 meinatæknar og 20
röntgentæknar segja upp
UPPSAGNIR 30 meinaUekna og 20 röntgenttekna á Borgarspítalanum voni
lagðar fram á fundi borgarráðs á þriðjudag, samkvæmt upplýsingum sem
Morgunblaðið fékk hjá Davíð Oddssyni borgarstjóra.
Uppsagnirnar taka gildi þann 1. efnisleg afstaða til uppsagnanna á
september. Ekki var tekin nein borgarráðsfundinum.
Kjaradeila tæknimanna útvarpsins:
Tilboð frá fjármálaráðu-
neytinu kannað nú í dag
Fjármálaráðuneytið lagði fram samningstilboð í deilu þess og tæknimanna
útvarpsins á samningafundi í gær. Ekki fékkst uppgefið í hverju tilboðið væri
fólgið, en það verður lagt fyrir starfsmenn rikisútvarpsins í dag.
Morgunblaðið hafði samband
við Þóri Steingrímsson, talsmann
tæknimanna útvarpsins, og sagði
hann, að í framhaldi samkomu-
lagsins hefði verið haldinn samn-
ingafundur á mánudag og annar í
gær. Á fundinum í gær hefði fjár-
málaráðuneytið lagt fram ákveðið
samningstilboð, en ekki væri hægt
að segja að svo komnu máli í
hverju það væri fólgið. Það yrði
lagt fyrir Starfsmannafélag út-
varpsins í dag og þá kæmi í ljós
hvernig mönnum líkaði það.
Eins og kunnugt er af fréttum
hófu tæknimenn útvarpsins aftur
vinnu við útvarpið um helgina eft-
ir stutta vinnustöðvun. Varð það
að samkomulagi að Starfsmanna-
félag útvarpsins tryggði vinnufrið
þar til samningstímabilið væri út-
runnið, en þegar skyldi hefja
samningaviðræður að nýju. Þá
gætu þeir starfsmenn, sem sagt
höfðu upp störfum, hafið vinnu að
nýju, þrátt fyrir að stöður þeirra
hefðu verið auglýstar.
Leikfélag Akureyrar:
Treystum á ríki og bæ til
að halda þessu gangandi
— segir Þórey Aðalsteinsdóttir gjaldken
LEIKÁRI Leikfélags Akureyrar er nú lokið og gekk rekstur þessa eina
atvinnuleikhúss utan Reykjavikur vel, ef frá er skilin siðasta sýning þess. Að
sögn gjaldkera LA, Þóreyjar Aðalsteinsdóttur, á leikfélagiö því í erfiðleikum
eins og stendur, en góðar líkur væru þó á áframhaldandi starfi ef styrkir rikis
og bæjar hækkuðu nokkuð.
Þórey sagði, að styrkir á árinu
1982 næmu 654.000 krónum frá ríki
og 950.000 frá Akureyrarbæ. Langt
væri komið að eyða þessum styrkj-
um, en þó ekki meira en svo að
hægt væri að hefja starf aftur í
haust. Gengi fyrsta verkefni
haustsins vel og styrkir hækkuðu,
myndi þetta bjargast, en ekki
meira en svo. Þórey sagði ennfrem-
ur, að fjögur verk hefðu verið sýnd
í vetur, Dýrin í Hálsaskógi, sem
hefðu gengið framúrskarandi vel,
Rúmum og dýnum
stolið á Garði
Jómfrú Ragnheiður, sem gengið
hefði vel, Þrjár systur hefðu gengið
þokkalega, en Eftirlitsmaðurinn
kolfallið og því orðið leikfélaginu
þungur í skauti. Næsta leikár yrðu
níu og hálfur fastráðinn starfs-
maður og nú væri gengið frá ráðn-
ingu leikhússtjóra, sem er Signý
Pálsdóttir og unnið væri af kappi
að undirbúningi fyrir næsta vetur.
„Við erum bjartsýn," sagði Þórey
að lokum, „og treystum því að bær
og ríki hjálpi okkur að halda þessu
gangandi. Því það er alveg bráð-
nauðsynlegt að hafa eitt atvinnu-
leikhús úti á landi, hafa þau ekki
öll á Stór-Reykjavíkursvæðinu.“
&
Husqvarna
Gunnar Asgeirsson hf.
Suöurlandsbraut 16 Simi 9135200
Akurvík, Akureyri
KQMDU
SK0ÐAÐU
0GREYNDU
nýju 4ra gíra eldavélina
Hvergi er meira
úrval af rúmum
10 til 15 rúmdýnur og um 5 rúm
hurfu af Gamla Garði síðastliðna
helgi.
Ekki er ljóst með hvaða hætti
þessir hlutir hafa horfið, en á þess-
um tíma var unnið við að undirbúa
rekstur sumarhótels á Gamla
Garði og enn bjuggu nokkrir stúd-
entar á garðinum. Verið var að
fjölga rúmum á herbergjum og því
nokkuð af dýnum og rúmum á ein-
um gangi hússins. Eftir því sem
næst verður komizt, að sögn for-
ráðamanna sumarhótelsins, áttu
útidyr að vera læstar og þykir allt
benda til þess, að þarna hafi kunn-
ugir verið á ferð.
Málið hefur enn ekki verið kært
til rannsóknarlögreglunnar.
Leiðrétting
Þau mistök urðu í blaðinu sl.
miðvikudag, að rangt var farið
með nafn manns. í myndatexta
með frétt um aðalfund Flugfélags
Austurlands stóð að Guðmundur
Sigurðsson væri í ræðustól, en það
er ekki rétt. Myndin er af Þorst-
eini Sveinssyni kaupfélagsstjóra,
en hann var fundarstjóri á aðal-
fundinum.
Morgunblaðið biðst velvirðingar
á þessum mistökum.
HUSCACNASOLLIN
BÍLDSHÖFÐA 20 - 110 REYKJAVÍK SÍMAR: 91-81199 81410
Geföu þér góöan tíma þegar þú lítur inn í stærstu
húsgagnaverslun landsins.
Því það er svo margt að sjá
bps/wi > Hwm MIÐBÆJARMARKADNUM ObJwi % HSlMI 27620 Bps/wi % Ht+JLwt