Morgunblaðið - 10.06.1982, Blaðsíða 33
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 10. JÚNÍ 1982
33
Ljósm: Ragnar Axelsson.
Þær hafa báðar þurft að flýja föðurlandið af pólitískum ástæðum, og
báðar eiga þær Island að framtíðarlandi. — Víetnamska flóttakonan
Hanna heldur hér á lítilli stúlku frá Póllandi, sem kom með foreldr-
um sínum frá Austurríki fyrir nokkru, eftir mánaða dvöl í flótta-
mannabúðum þar.
Símamenn:
Kjaramálin
efet á baugi
Ágúst Geirsson endurkjörinn formaður
AÐALFUNDUR Félags íslenskra símamanna var haldinn 25. maí
sl. Formaður félagsins, Ágúst Geirsson, flutti skýrslu fram-
kvæmdastjórnar fyrir árið 1981. Veigamestu þættir í félagsstarfinu
voru launa- og kjaramál, auk þess sumarbúðamál, erlent samstarf
og ýmis réttindamál félagsmanna. Gjaldkeri, Bjarni Ólafsson,
skýrði reikninga og er fjárhagur félagsins góður.
Á aðalfundinum var samþykkt
eftirfarandi ályktun:
Aðalfundur FÍS krefst þess, að í
komandi kjarasamningum verði
launakjör opinberra starfsmanna
leiðrétt til samræmis við kjör
annarra starfsstétta.
Fundurinn vísar á bug hlunn-
indamati fjármálaráðherra og tel-
ur það sett fram sem yfirklór til
að neita að framfylgja skýru
samningsákvæði um að við röðun í
launaflokka skuli miðað við kjör
launþega er vinna við sambærileg
störf skv. öðrum kjarasamningum.
Skorar fundurinn á samninga-
nefndir félagsins og BSRB að
standa fast á þessari kröfu jafn-
framt því markmiði að vinna upp
kjaraskerðingu undanfarinna ára.
Aðalfundurinn styður eindregið
kröfu BSRB um breytingu á samn-
ingsrétti opinberra starfsmanna
og minnir á fyrri kröfur FÍS um
Hreinsunar-
dagur í Arbæ
ALMENNUR hreinsunardagur verð-
ur í Árbæ og Selási næstkomandi
laugardag, 12. júni.
Félagasamtök í hverfinu ætlast
ti! að þessi hverfi skarti sínu feg-
ursta á þjóðhátíðardaginn 17. júní
og hvetja þeir íbúa til þátttöku.
Ruslapokar verða afhentir í Árseli
fyrir hádegi.
að allur samningsrétturinn verði í
höndum hvers félags fyrir sig.
Jafnframt var samþykkt álykt-
un um eindreginn stuðning við
kröfur talsímavarða um leiðrétt-
ingu á röðun þeirra í launaflokka.
Þá var ítrekuð krafa um náms-
braut fyrir skrifstofu- og símaaf-
greiðslufólk og taldi fundurinn
óviðunandi þann drátt, sem orðið
hefur á framkvæmd tillagna
skólanefndar Póst- og símaskól-
ans þar að lútandi.
Einnig var samþykkt ályktun
varðandi deilur símvirkja og sam-
gönguráðherra um læsingu á
kosningasímum stjórnmálaflokk-
anna og mótmælt afstöðu ein-
stakra yfirmanna í þeirri deilu.
Félag íslenskra símamanna er
landsfélag með um 1200 félags-
menn. Félaginu er skipt í margar
deildir, sem kjósa 19 manna fé-
lagsráð.
Að loknum aðalfundi var hið
nýkjörna félagsráð kvatt saman.
Fór þar fram kosning á fram-
kvæmdastjórn félagsins til
tveggja ára og er hún þannig skip-
uð:
Ágúst Geirsson formaður, Jó-
hann L. Sigurðsson varaformaður,
Ragnhildur Guðmundsdóttir rit-
ari, Bjarni Ólafsson gjaldkeri, Sig-
urbjörg Haraldsdóttir meðstjórn-
andi, Alexander Guðmundsson 1.
varamaður og Anna Einarsdóttir
2. varamaður.
Kostnaður sjúkrasamlaga
vegna blóðþrýstingsmeð-
ferðar um 40 millj.
FÉLAG íslenskra heimilislækna
stendur fyrir ráðstefnu um háþrýsting
laugardaginn 12. júni. Gestur ráð-
stefnunnar verður sænski aðstoðarpró-
fessorinn Calle Bengtsson, en hann er
þekktur vísindamaður á þessu sviði og
hefur skrifað fjölmargar greinar um
þetta efni. Hann mun flytja fyrirlestra
sína á íslensku, þar eð hann hefur lært
málið með þessa ráðstefnu fyrir aug-
um.
í fyrri rannsóknum hefur verið
sýnt fram á að langvarandi háþrýst-
ingur veldur aukinni tíðni ýmiss
konar sjúkdóma frá hjarta, æðum
og nýrum og minnkuðum lífslíkum.
Með góðri meðferð og eftirliti má
minnka tíðni sjúkdóma og dauðs-
falla af þessum orsökum. Of hár
blóðþrýstingur er eitt algengasta
vandamálið sem læknar fást við og
er talið, að um það bil 20.000 íslend-
ingar hafi of háan blóðþrýsting og
þarfnist einhvers konar meðferðar,
og eftirlits.
Blóðþrýstingsmeðferð er í flestum
tilfellum ævilöng og mjög dýr frá
þjóðhagslegu sjónarmiði og ætla
má, að beinn kostnaður sjúkrasam-
laga vegna lyfja nemi um það bil 40
milljónum króna árlega. Nýjar
rannsóknir á Norðurlöndum benda
til, að einhver hluti þeirra sam fái
meðferð vegna háþrýstings, þurfi
hennar ekki með, þar sem ekki var
nægilega vandað til greiningar og
eftirlits í upphafi. Þar sem hér er
um mjög stóran útgjaldalið að ræða
árlega
fyrir þjóðarbúið, er mjög mikilsvert
að þeir einir njóti meðferðar, sem
örugglega þurfa á henni að halda.
Það er mikilsvert að haft sé í
huga, að sum blóðþrýstingslyf geta
valdið ákveðnum aukaverkunum og
þannig minnkað lífsgæðin og lífs-
nautn, þótt lífið lengist. Á seinni ár-
um hafa komið fram ný lyf, sem
margir sjúklingar þola betur en
eldri tegundir, og auk þess hafa
skammtastærðir breyst með það
fyrir augum að auka vellíðan þess
fólks, sem þarf á ævilangri lyfja-
meðferð að halda.
Þessi vandamál og mörg fleiri,
sem upp koma við meðferð þessara
sjúklinga, er fjallað um á þessari
ráðstefnu í fjölmörgum fyrirlestr-
um og umræðuhópum.
Matti er líka fluttur
Matti hárgreiðslumeistari erflutturfrá Þinghólsbraut 19, Kópavogi að Hótel Esju.