Morgunblaðið - 10.06.1982, Side 36
36
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 10. JÚNÍ1982
- + Elskulegur eíginmaöur minn, faöir, fósturfaöir, tengdafaðir og afi. KRISTBERG ELÍSSON, Hólagötu 41, Ytri-Njaróvík, lést í Landakotsspítala 8. júnf 1982. Jaröarförin auglýst síöar. Elín Sæmundsdóttir, Kristberg Ells Kristbergsson, Jónína Guöbjartsdóttir, Jóhann Sævar Kristbergsson, Jóhanna Árnadóttir, Guöný Elíasdóttir, Ólafur Jónsson. Svandís Elín Kristbergsdóttir, Jóhanna Elín Halldórsdóttir.
+ SIGRÍOUR JÓHANNESDÓTTIR, Tjarnarbraut 19, Hafnarfiröi, veröur jarösungin frá Hafnarfjaröarkirkju, föstudaginn 11. júní kl. 15.00. Jóhanna Sigurjónsdóttir, Bergþór Jónsson, Vilborg Sigurjónsdóttir, Erlingur Steingrímsson, Vífill Sigurjónsson.
+ Eiginkona mín, MARGRÉT ÓLAFSDÓTTIR BLÖNDAL, veröur jarösungin frá Oómkirkjunni, föstudaginn 11. júní kl. 1.30. Lérus H. Biöndal.
+ Eiginmaöur minn og faöir okkar, KRISTINN J. GUÐJÓNSSON, Hringbraut 136 D, Keflavík, veröur jarösunginn frá Keflavíkurkirkju kl. 2, laugardaginn 12. júni. Gyöa Hjálmarsdóttir og börn.
+ Eiginmaöur minn, ÓSKAR GfSLASON, múrarameistari og ökukennari, Skeggjagötu 5, veröur jarösunginn frá Fossvogskirkju kl. 3 e.h., föstudaginn 11. júní. Fyrir mína hönd og annarra vandamanna, Ingileif S. Guömundsdóttir.
+ Þökkum af alhug auösýnda samúö og hlýhug við andlát og útför eiginmanns míns, fööur okkar, tengdafööur og afa, HENRY HENRIKSEN, Grénufélagsgötu 33, Akureyri. Sérstakar þakkir til lækna og hjúkrunarfólks lyfjadeildar Fjórö- ungssjúkrahúss Akureyrar. Árdís Henriksen, börn, tengdabörn og barnabörn.
+ Þökkum innilega auðsýnda samúö og hlýhug viö andlát og útför JÓHÖNNU ÁSGEIRSDÓTTUR, Ferjubakka 6. Gústaf A. Gestsson, Ása b. Gústafsdóttír, Sturla Jóhannesson, Fríða G. Gústafsdóttir, Svanur Rögnvaldsson, barnabörn og barnabarnabörn.
+ Þökkum af alhug öllum j>eim mörgu sem sýndu okkur samúö og vinarhug viö andlát og útför HJÁLMARS ÞORSTEINSSONAR fré Hofi, og sérstaklega öllum á Sólvangi i Hafnarfiröi fyrir frábæra umönn- un og vinsemd. Börn, barnabörn, fósturbörn og tengdabörn.
+ Alúöarfyllstu þakkir færi ég öllum þeim sem auösýndu mér samúö og hlýhug viö andlát og útför eiginmanns míns, SNORRA ÓLAFSSONAR, klæöskera, Ólöf Ólafsdóttir, Sólheimum 23, Reykjavík.
Ingibjörg Þórðar-
dóttir - Kveðjuorð
Fædd 27. nóvember 1904
Dáin 1. júní 1982
Það var á unglingsárum, sem
Ingibjörgu föðursystur okkar
dreymdi þann draum, að hún þótt-
ist finna fjóra unga í hreiðri.
Draumspakir menn réðu þennan
draum á þann veg, að hún ætti
eftir að giftast ekkjumanni með
fjögur börn.
En þótt hún frænka okkar gift-
ist aldrei, þá kom þessi draumur
engu að síður fram. Örlögin hög-
uðu því svo til, að fjóra unga í
hreiðri fann hún. Það vorum við
systkinin fjögur. Hún kom á heim-
ili bróður síns, föður okkar, í veik-
indum móður okkar fyrir þrjátíu
árum og átti síðan verulegan þátt
í uppeldi okkar.
Ingibjörg var vel greind kona og
óvenju vel að sér. Hún las allt sem
hún komst yfir og heimur bók-
menntanna var sá heimur, sem
henni var hugstæðastur og kær-
astur. Sérstaklega hafði hún
ánægju af ljóðum. Hún kunni
ógrynni af þeim og alltaf hafði
hún tiltæk ljóð um það sem rætt
var hverju sinni.
Ingibjörg var einstaklega já-
kvæð og glaðvær að eðlisfari. Hún
sá alltaf björtustu hliðarnar á
hverju máli og oft lá við að hún
neitaði að trúa að til væru skugga-
hliðar á tilverunni. Hún naut alls
þess sem fallegt er, hún unni leik-
list, dansi og tónlist, því að þar
sem fegurð og gleði var að finna,
leið henni vel. Lífsviðhorf hennar
einkenndist mjög af því að taka
öllu með jafnaðargeði og gera sér
ekki rellu út af smámunum, og það
veitti sannarlega ekki af, því að
það gekk á ýmsu hjá okkur á þess-
um árum, þegar í hönd fóru ár
veikinda og hjónaskilnaðar og alls
sem því fylgir.
Eftir að foreldrar okkar skildu
stóð hún áfram við hlið móður
okkar og æ síðan reyndist hún
móður okkar einstök hjálparhella.
Það hlýtur að hafa þurft alveg
einstaka þolinmæði, umburðar-
lyndi og gott skap til að umbera
okkur systkinin á þessum árum og
allt þetta átti hún í ríkum mæli.
Það var sérkenni hennar að hún
var aldrei vör við neitt kynslóðabil
og enginn heldur, sem umgekkst
hana. Hún tók þátt í vandamálum
okkar systkinanna frá fyrstu dög-
um og engu breytti þegar vanda-
málin urðu vandamál fullorðinna.
Það var ekki aðeins hægt, heldur
nauðsynlegt, að sækja til hennar
ráð og aðstoð, en ef til vill umfram
allt fordómalausa áheyrn.
Ingibjörg Þórðardóttir fæddist
á Ljósalandi í Vopnafirði 27. nóv-
ember 1904, og var því 77 ára þeg-
ar hún lézt í Borgarspítalanum 1.
júní sl. eftir tæpra tveggja sól-
arhringa sjúkrahúsvist, þá fyrstu
og síðustu á hennar ævi. Foreldrar
hennar voru hjónin Albína Jóns-
dóttir frá Ljósalandi og Þórður
Jónasson, bóndi þar. Hún ólst upp
í föðurhúsum, fjórða í röðinni af
ellefu systkinum. Af þeim eru nú
sjö á lífi. Á unga aldri vann Ingi-
björg við ýmis störf til sjávar og
sveita, var í vist á vetrum og
kaupavinnu á sumrin, eins og títt
var um ungar stúlkur á þeim ár-
um.
Árið 1930 flutti hún til Reykja-
víkur. Það ár kom Jóhanna systir
hennar heim frá Kanada eftir 8
ára dvöl og setti hún á stofn
saumastofu ásamt Ingibjörgu.
Þriðja systirin, Fríða, bættist í
hópinn 2 árum seinna, og ráku
þær saumastofu allt til ársins
1969 er Jóhanna lézt. Þær bjuggu
lengi á Óðinsgötu 4 og Þórsgötu 1,
en sl. 20 ár hafa þær systur búið í
Stigahlíð 28.
Ingibjörg starfaði lengst af á
saumastofu með systrum sínum,
en einnig vann hún um tíma í Iðnó
og árin 1967—77 vann hún í Múla-
kaffi.
Þó að Ingibjörg dveldi langdvöl-
um á okkar heimili, hélt hún alltaf
heimili með systrum sínum, Jó-
hönnu, Fríðu og Guðrúnu, en tvær
þær síðastnefndu lifa hana.
Hjá þeim var samofinn vinnu-
staður og heimili, oft glatt á hjalla
og gestagangur mikill. Hefur
heimili þeirra systra að vissu leyti
verið miðpunktur fjölskyldunnar,
því að þar hafa allir verið vel-
komnir og þangað hafa allir getað
leitað allt frá því að þær komu
fyrst til Reykjavíkur.
Það er margs að minnast að
leiðarlokum, þegar við nú kveðjum
Ingibjörgu föðursystur okkar. Við
sjáum á bak skemmtilegum og
ráðagóðum félaga. En efst í huga
okkar nú er þó fyrst og fremst
þakklæti, þakklæti fyrir allt það
sem hún var okkur.
Hallveig, Guðfinna, Jón Örn
og Albina Thordarson.
Jón Guðmunds-
son - Kveðjuorð
Kveðja frá Mennta-
skólanum í Reykjavik
Þegar verktakinn, er smíðaði
eina húsið, sem íslenzka ríkið hef-
ur reist fyrir Menntaskólann í
Reykjavík, Iauk því verki árið
1964, jukust umsvif við húsvörzlu
svo mikið, að einn af starfs-
mönnum verktakans var fenginn
Afmœlis- og
minningargreinar
ATHYGLI skal vakin á því, að afmælis- og minn-
ingargreinar verða að berast blaðinu með góðum
fyrirvara. Þannig verður grein, sem birtast á í mið-
vikudagsblaði, að berast í síðasta lagi fyrir hádegi á
mánudag og hliðstætt með greinar aðra daga. Greinar
mega ekki vera í sendibréfsformi. Þess skal einnig
getið, af marggefnu tilefni, að frumort ljóð um hinn
látna eru ekki birt á minningarorðasíðum Morg-
unblaðsins. Handrit þurfa að vera vélrituð og með
góðu línubili.
+
Innilegar þakkir fyrir auösýnda samúö og vinarhug viö andlát
eiginmanns míns, fööur, tengdafööur og afa,
SVEINS AÐALSTEINS GISLASONAR.
Hulda Guðmundsdóttir,
Ásdts Svainsdóttir,
Guömundur Sveinsson,
Reynir Sveinsson,
Siguröur Sveinsson,
Aöalsteinn Sveinsson,
Sólveig Sveinsdóttir,
og barnabörn.
Guölaugur Guöfinnsson,
Ingibjörg Björgvinsdóttir,
Guömundína Kristjónsdóttir,
Sigríöur Þórhallsdóttir,
Margrét Högnadóttir,
Hallbjörn Heiömundsson.
til að láta af fyrri störfum, vera
um kyrrt og taka að sér vörzlu
hins nýja húss, enda gjörkunnug-
ur því. Þessi maður var Jón Guð-
mundsson, sem kvaddur er í dag.
í átján ár hefur hann verið
tengdur skólanum og sinnt sínum
störfum af einstakri kostgæfni og
samvizkusemi. Hann vann ýmis
önnur störf fyrir skólann en þau
ein að líta eftir nýhúsinu, og öll
voru þau rækt af sömu natninni
og trúmennskunni. í stórri stofn-
un, sem býr við stöðug þrengsli, er
það ómetanlegt að hafa starfsfólk,
sem kemst vel af við aðra.
Jón Guðmundsson lauk löngu
lífsstarfi sínu á útmánuðum, er
hann fór héðan til vistar á elli-
heimili. Dvölin þar varð ekki löng,
en þar mun hann einnig hafa
áunnið sér vinsældir fyrir ljúf-
mennsku.
Honum eru hér með þökkuð
löng og vel unnin störf.
Guðni Guðmundsson