Morgunblaðið - 10.06.1982, Page 37
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 10. JÚNÍ1982
37
I ráði að stofna upp-
eldisbraut við MI
SKÓLASLIT Menntaskólans á ísa-
firði fóru fram laugardaginn 29. maí
1982 kl. 14.00 i Alþýðuhúsinu. Við
upphaf athafnarinnar lék Kamm-
ersveit Vestfjarða fimm stutt lög eft-
ir Kurt Weill.
I ræðu skólameistara, Björns
Teitssonar, kom fram, að níu fast-
ir kennarar hefðu starfað við skól-
ann á vetrinum, og 11 stundakenn-
arar kennt meira eða minna. Nú
eru 3—4 hinna föstu kennara á
förum, og hafa störf þeirra verið
auglýst. Þá hefur brytinn í mötu-
neyti heimavistarinnar, Valmund-
ur Árnason, sagt starfi sínu lausu.
í hinum hefðbundna mennta-
skóla, dagskólanum, voru í vetur
við nám 129 nemendur, og þar að
auki 27 í nýstofnaðri öldungadeild.
Sé öldungadeildinni sleppt komu
62 nemendur við sögu á 1. ári, 30 á
2. ári, 16 á 3. ári og 21 á 4. ári. Af
fyrstaársnemum voru 15 á við-
skiptabraut. Á 2.—4. ári voru 38 á
félagsfræða- eða málasviði en 29 á
raungreina- eða náttúrufræða-
sviði. Sem fyrr voru stúlkur í tals-
verðum meirihluta í skólanum.
Undir vorpróf gengu 110 nem-
endur í dagskólanum, og hafa 94
staðist þau eða náð rétti til fram-
haldsnáms. Af nemendum öld-
ungadeildar hafa 20 náð upp á
vorprófum. Skólameistari nefndi
það, að afföllin á 1. ári hefðu verið
heldur meiri í vetur en stundum
áður, enda árgangurinn óvenju
fjölmennur.
Undir stúdentspróf gekkst 21
nemandi, 11 af félagsfræðasviði og
10 af náttúrufræðasviði. Hæstu
fullnaðareinkunn af nýstúdentum
hlaut Eygló Aradóttir frá Pat-
reksfirði, 1. einkunn 8,25, en hún
var af náttúrufræðasviði. Næst-
hæst varð Heiðdís Hansdóttir frá
Isafirði.
Hæstu einkunn fyrir vetrar-
námið í skólanum öllum hlaut
Birgir Þórisson frá Hvalskeri í
Rauðasandshreppi, 9,1, en hann
var nemandi á 2. ári.
Skólameistari sagði, að öld-
ungadeildin við skólann hefði far-
ið vel af stað, enda væri þar um
góða nemendur að ræða. Hann
sagði að kannað yrði á næstunni,
hvort grundvöllur væri fyrir
starfrækslu öldungadeildar á 1.
ári aftur á næsta vetri, en til þess
að svo gæti orðið þyrfti að fást
lágmarkstala nemenda. — Nú er
auglýst eftir nemendum á uppeld-
isbraut 1. árs við skólann, en
menntamálaráðuneytið hefur
heimilað skólanum að hefja starf-
rækslu slíkrar brautar í haust, ef
þátttaka verður næg. Gert er ráð
fyrir að hér verði um tveggja ára
braut að ræða, sem einkum gefi
réttindi til fóstru- og þroska-
þjálfanáms, svo og náms við
íþróttakennaraskóla.
Skólameistari ræddi um bygg-
ingamál skólans, en þau hafa lítið
gengið í vetur. Nú alveg nýlega
var þó boðinn út verkáfangi við
hið nýja kennsluhúsnæði, og á það
allt að verða tilbúið undir tréverk
fyrir 15. mars 1983.
Fulltrúi fimm ára stúdenta,
Svandís Kristjánsdóttir, flutti
ávarp fyrir hönd síns árgangs og
árnaði skólanum heilla.
Að lokinni afhendingu próf-
skírteina og verðlauna beindi
skólameistari máli sínu til nýstúd-
enta, þakkaði þeim fyrir góð kynni
og ræddi nokkuð um tilganginn
með uppeldi og menntun yfirleitt.
Við lok athafnarinnar lék einn
úr hópi nýstúdenta, Björk Sigurð-
ardóttir frá ísafirði á píanó, verk
eftir Chopin.
(FrétUtilkynning)
Þorlákshöfn:
Stefnt að vígslu
kirkjunnar að ári
HINN 28. apríl 1979 var tekin fyrsta
skóflustunga að Þorlákskirkju í
Þorlákshöfn.
Það ár var lokið við að steypa
hana upp, og um síðustu áramót var
hún fokheld. Þá var búið að kaupa
allt efni til einangrunar o.fl. án þess
að stofnað hefði verið til nokkurra
skulda.
2. mars 1974 var stofnaður á
vegum Kvenfélags Þorlákshafnar
Kirkjubyggingarsjóður til minn-
ingar um Hlyn Sverrisson, sem
fórst af slysförum 5. janúar sama
ár.
Síðan hafa Þorlákskirkju borist
ótal gjafir bæði í formi vinnu og
peninga.
Um síðustu áramót höfðu henni
verið færðar 15.994,- gamlar krón-
ur og 123.733,- nýjar. Þá höfðu eig-
endur vörubíla og vinnuvéla gefið
kirkjunni vinnu fyrir kr. 867.759,-
gamlar krónur og 74.393,- nýkrón-
ur auk þess sem 150 manns höfðu
gefið 3.251 vinnustund og raf-
tæknifræðingur allar raflagna-
teikningar i húsið.
Nú er farið að vinna inni í kirkj-
unni og er það von þeirra, sem
fyrir þeim framkvæmdum standa,
að það geti orðið óslitið þar til hún
stendur fullbúin og vígð til þeirrar
þjónustu, sem henni er ætlað að
inna af hendi.
Standi Þorlákshafnarbúar sam-
an af jafnmiklum myndar- og
rausnarskap hér eftir sem hingað
til — sem raunar þarf ekki að efa
— þá verður hægt að vígja Þor-
lákskirkju á næsta ári.
Sóknar- og byggingarnefndir
þakka þann óhemju stuðning og
velvilja sem kirkjubyggingin hefir
notið og vænta sama áhuga og ein-
ingar um lokaáfangann, sem nú er
hafinn.
GODA álegg á brauðid V?
- bragðgott og hollt G0ÐI
1 1
I |Sgr=a VANTAR ÞIG VINNU (nj W/l\ VANTAR ÞIG FÓLK g M Al'GLÝSIR l M AI.LT LANT) ÞEGAR Þl AIG- 1 I.YS1R 1 MORGl'NBLAÐIM’l
Einnig ný snyrtistofa
Erla Gunnarsdóttir og Ólöf Wessmann snyrtifræöingar opna nýja snyrtistofu og snyrtivöruverslun
í hinum nýju húsakynnum aö Hótel Esju Suðurlandsbraut 2, sími 83055
þær bjóða upp á sólarium og alhliða snyrtingu.
Sólogsnyrting