Morgunblaðið - 10.06.1982, Side 45
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 10. JÚNÍ1982
45
Margir verða illa fyrir
barðinu á verðbólgunni
(•jaldmiAilsbreytingin hefur orðið til ills, að mati bréfritara.
Heiðraði Velvakandi!
Fyrir nokkru ritaði maður
einn pistil í Velvakanda um
verðlagsþróunina á undanförn-
um áratugum.
Málið var það, að fyrir löngu
voru litlum dreng gefnar 40
krónur, sem voru látnar til
ávöxtunar. í sparisjóðsbók. Á
þeim tíma jafngilti þessi upp-
hæð verðmæti fjögurra lamba,
en eftir öll þessi ár, með rentum
og renturentum, jafngilti upp-
hæðin fáeinum grömmum af
kjöti.
Þetta er lærdómsríkt dæmi, en
hefur einnig aðra hlið. Hefði
drengurinn haft aðstöðu, hjálp,
til að kaupa 4 gimbrar, í stað
þess að leggja þetta í spari-
sjóðsbók, og sett upp vísi að fjár-
búi, þá væri hann e.t.v. orðinn
fjárríkasti bóndi landsins.
En síðan kemur annað dæmi,
sem aðeins hefur eina hlið (einn-
ig úr Velvakanda). Maður einn
erfði skuldabréf í Byggingar-
sjóði verkamanna, að upphæð
2.000 kr. frá 1942, með 4% árs-
vöxtum og til 42 ára. Við mynt-
breytinguna varð þetta bréf að
20 kr. og ársvextir, sem verið
höfðu 80 kr. urðu nú að 80 aur-
um!
Á sínum tíma, tók það þann
sem keypti bréfið upphaflega,
4—6 mánuði að vinna fyrir þess-
um 2.000 kr.
Nú var sagt við myntbreyting-
una, að enginn tapaði og enginn
græddi, maður fengi einungis
hundrað sinnum verðmætari
krónur. En athugum málið svo-
lítið nánar. Maðurinn sem keypti
þetta bréf var ca. 5 mánuði að
vinna fyrir þessum 2.000 kr., þ.e.
upphæðinni sem bréfið kostaði.
Fiskverkunarkonur t.d. á Vest-
fjörðum, tæki það aðeins 40 mín-
útur (og hafa þær þó ekki hátt
kaup). Hvað skipstjóra á „togara
sem tekur trollið inn að aftan“,
tæki það langan tíma, ja, því get
ég ekki svarað, hef ekki aðgang
að micro-sekúndureiknivél.
Að sönnu er þetta ekki einung-
is að kenna myntbreytingunni,
heldur fyrst og fremst fjár-
mála(ó)stjórninni okkar. Hver
kannast ekki við „íslenska
fjármálaundrið"? En hefur al-
menningur nokkuð leitt hugann
að umsögn ráðandi manna um
myntbreytinguna, sem hafa
reynst einhver almestu ósann-
indi (fyrirgefðu orðið sem mér
var hugsað til) sem nokkurn
tíma hefur verið troðið upp á ís-
lensku þjóðina.
Eimskipafélag íslands hf. gef-
ur út jöfnunarhlutabréf til að
tryggja hag hluthafa og vextir
eru 10% og þetta er „óskabarn
þjóðarinnar" og einnig mitt.
Ríkissjóður gaf út verðtryggð
bréf vaxtalaus, a.m.m. til 10 ára,
síðan til 5 ára, einnig verðtryggð
og með 1% vöxtum, svo til 3 ára
með 3 % % vöxtum og er nú kom-
inn í samkeppni við bankana um
sparifé landsmanna, sem ávaxta
sparifé m.a. í 6 mánaða reikn-
ingum með 1% vöxtum og verð-
tryggð að fullu og eftir fyrsta
sinn eru þeir lausir í einn mán-
uð, þ.e. raunverulega fastir að-
eins í 5 mánuði, mjög hagkvæmt.
Við, aldamótafólkið, sem á
undanförnum áratugum höfum
reynt að safna fyrir jarðarför-
inni, eigum ekki fyrir henni
lengur. Hver ætlar að moka yf-
ir?
Sæúlfur.
„Helgi dæmalausi“
„Hr. Velvakandi!
Ég er einn af þeim, sem sit við
eldhúsborðið og þusa við mig og
mína um landsins gagn og nauð-
synjar, en svo fer það yfirleitt
aldrei lengra. í þessu dægurþrasi
hefur fréttaritarann okkar í
Washington, Helga Pétursson, oft
borið á góma, enda ekki að ófyr-
irsynju, þar sem maðurinn hefur
flutt okkur sem heima sitjum oft á
tíðum alveg frábæra yfirsýn um
gang heimsmálanna, séð frá hin-
um vestræna heimi. Og þó að lesn-
ar séu fréttir vel og skilmerkilega,
þá er það nú einhvern veginn svo,
að Helgi kemur eins og skrattinn
úr sauðarleggnum með þær út-
skýringar, sem framhjá runnu við
fréttalesturinn, og bætir þá yfir-
leitt punktinum yfir það sem um
var fjallað hverju sinni. Mér dett-
ur í hug strákur sem var í Tíman-
um og hét Denni dæmalausi.
Hann er hreint dæmalaus hann
Helgi, hvernig hann getur sífellt
haldið okkur við þá atburði sem
eru að gerast hverju sinni. En þeg-
ar hann kom með þáttinn í kvöld-
fréttatímanum 3. þ.m., gat ég ekki
stillt mig og greip pennann. Þegar
hann fjallaði um fjölmiðlana, og
hvernig hann næði útsendingum
okkar á stuttbylgjum og aflaði
þannig efnis til hins vestræna
heims.
Þessi sterka þjóðerniskennd, að
það væri ekki nóg að afla okkur
frétta heldur yrðu hinir að fá
eitthvað líka.
Þátturinn hjá Helga var sérlega
hlýlega unninn, bæði í upptöku og
útsendingu, og maður fékk á til-
finninguna að það væru ekki alltaf
forsetarnir og ráðherrarnir, sem
skiptu mestu máli, heldur værum
við líka til, þessi örsmáa þjóð á
norðurhveli jarðar.
Þegar ég færi Helga Péturssyni
bestu þakkir fyrir vel unna og vel
lesna fréttapistla, veit ég að talað
er fyrir hönd þorra þjóðarinnar,
sem fylgist yfirleitt með af áhuga
hverju sinni.
Ég sendi Helga og öllu hans
fólki bestu kveðjur og þakkir fyrir
það sem hann hefur gert og á
ógert."
Gissur Geirsson, Selfossi.
GÆTUM TUNGUNNAR
Sagt var: Þeir litu til hvors annars.
Rétt væri: Þeir litu hvor til annars.
BENIDORM
BEINT
LEIGUFLUG
GÓÐIR
GISTISTAÐIR
BROTTFARARDAGAR:
^ 23/6, 14/7, 4/8, 25/8, 15/9
ATH.: OKKAR VERÐ
FERD ASKRIFSTOFAN
NOATUNI 17 SIMAR 29830 og 29930
Þingvellir
í júní
Hvaö er hægt aö hugsa sér skemmtilegra en aö
skreppa á Þingvöll meö alla fjölskylduna og gefa fólk-
inu frí frá eldhússtörfum, bregöa sór í Valhöll og njóta
íslenzkrar náttúrufeguröar, eins og hún gerist best. Því
hvaö er fallegra en júnídagur á Þingvöllum.
Munið bátaleiguna — minigolfið — gufubað-
ið — líkamsræktaraðstööuna. Solarium og nudd
um helgar. Fyrir börnin er sérstakur barnaleik-
völlur.
Sértilboðin
okkar eru gisting, kvöldverður, morg-
unverður og hádegisverður. Aðeins kr.
390 per. mann aem er ekkert verð.
Alltaf nýlagað kaffi á könn-
unni og kökurnar okkar
stórgóöu.
Danska kúrekastúlkan
KIRI
PERU
sýnir listir sínar föstudag,
laugardag og sunnudag.
Njótiö góðra veitinga
í fögru umhverfi.
Verið ávallt velkomin. sími 99-4080.-
I
EFÞAÐERFRÉTT- NÆMTÞÁERÞAÐÍ £ MORGUNBLAÐINU