Morgunblaðið - 10.06.1982, Page 47
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 10. JÚNÍ1982
47
• Sigurvegararnir i Vouge-keppninni isamt aðstandendum mótsins: F.v.
Áffústa Dúa, Guðmundur S. Guðmundsson, Jóhanna Ingólfsdóttir, Guðrún
Eiríksdóttir, Guðrún B. Madsen, Lóa Sigurbjörnsdóttir, Kristín Svein-
björnsdóttir, Hrafnhildur Þórarinsdóttir, Guðjón Einarsson.
Ljósmynd: Óskar Sœm.
Guðrún og Hannes sigruðu
Opna Vouge-golfkeppnin fór fram
á Grafarholtsvcllinum á laugardag-
inn, en það er kvennakeppni. Keppni
var hörð og spcnnandi, en úrslit
urðu sem hér segir:
Flokkur forgjöf 0—21 pt
1. Guðrún Eiríksdóttir GR 30
2. Jóhanna Ingólfsdóttir GR 29
3. Ágústa Dúa Jónsdóttir GR 29
Flokkur forgjöf 22—36 pt
1. Guðrún B. Madsen GK 23
2. Lóa Sigurbjörnsd. GK 19
3. Hrafnhildur Þórarinsd. GK. 16
Næst holu á 2. braut var Kristín
Sveinbjörnsdóttir, 4,37 m.
MK-keppnin fimmtud. 3. júní
(Múlakaffi). 18 holu höggleikur með og án forgj.
ÚRSLIT
án forgjafar högg
1. Hannes Eyvindsson 68
2. Ragnar Ólafsson 73
3.-4. Sigurður Hafsteinss. 74
3.-4. Sigurður Péturss. 74
Með forgjöf högg netto
1. Hannes Eyvindsson 66
2. Magnús Steinþórsson 68
3.-4. Guðmundur Vigfúss. 70
3.-4. Gunnar Finnbjörnss. 70
Verðlaunasófasett frá Ítalíu
Aklæði eftir eigin vali.
Smiöjuvegi 6. Sími 44544.
Fimleikar:
4 tóku alþjóðapróf
DÓMARANÁMSKEIÐ í keppnis-
fímleikum kvenna var haldið hér á
landi dagana 19.—23. april sl., kenn-
ari var Eva Örrensjö frá Gautaborg.
19 íslenskir dómarar tóku próf og
þar af voru 4 sem náðu prófí sem
alþjóðlegir dómarar:
Margrét Bjarnadóttir, Berglind
Pétursdóttir (18 ára), Anna Kr.
Jóhannesdóttir, Áslaug Óskars-
dóttir (16 ára).
Þetta er stór áfangi í sögu ís-
lenskra fimleika, með þann sam-
anburð að Danir eiga tvo alþjóð-
lega dómara og Finnar 3, í keppn-
isfimleikum kvenna.
Tekið var próf á Unglingameist-
aramóti Norðurlanda í Laugar-
dalshöll.
Dunlop-mót
i golfi
OPNA Dunlop-mótið í golfí fer fram
á Hóimsvelii við Leiru um helgina.
Leiknar verða 36 holur með og án
forgjafar, en þeir fá einungis að
keppa sem hafa 23 í forgjöf eða
minna. Skráningu lýkur í kvöld
klukkan 20.00, en hámarksþátttöku-
fjöldi er 120 manns.
Sovéskir íþróttamenn
keppa í Peking
KANNSKI AÐ eitthvað sé að rofa til
í samskiptum Kína og Sovétríkj-
anna, en fyrir nokkru buöu Kínverj-
ar Sovétmönnum að senda hóp
frjálsíþróttafólks á stórmót mikið í
Peking sem haldið verður í Peking
daganna 18.—20. júní. Risaveldin
tvö hafa árum saman átt í landa-
mæraútistöðum, en boð Kínverja
kom aðeins tveimur dögum eftir að
kínversk viðskiptasendinefnd lauk
boðsferð til Moskvu. Sovéska frjáls-
íþróttasambandið fékk svo til strax
grænt Ijós hjá ríkisstjórninni og er
því að sjá að slökunartímabil sé í
fæðingu.
Ekki leið á löngu þar til að
Rússarnir tilkynntu lið það sem
þeir hygðust senda til Peking. Er
það ekki flokkur af lakara taginu,
fjórir gullverðlaunahafar frá síð-
ustu Olympíuleikum og einn silf-
urverðlaunahafi. Fjöldi þjóða mun
taka þátt í mótinu í Peking, Tékk-
oslóvakía, Finnland, Austur-
Þýskaland, Indland, Japan, Rúm-
enía, Thailand og Trinidad/Tob-
ago.
15 bátar kepptu
í siglingamóti
Þyts í Hafnarfirði
Síðastliðinn laugardag fór fram í
Hafnarfjarðarhöfn, fyrsta siglinga-
keppni barna og unglinga á optim-
ist-seglbátum, á vegum siglinga-
klúbbsins Þyts.
Keppt var um farandbikar og
verðlaunapeninga í yngri flokki
(9—12 ára), sem Regluboðinn,
fræðslu- og fréttablað siglinga-
manna hafði gefíð. f eldri flokki var
keppt um verðlaunapeninga. Keppt
var í góðu veðri, en rigningarsudda,
framan við Herjólfsgötuna, þannig
aö mjög gott útsýni var yfír keppn-
issvæðið. 15 optimist-bátar tóku þátt
í keppninni, frá þremur siglinga-
klúbbum og tókst hún í alla staði
vel.
Úrslit urðu þessi:
í yngri flokki 9—12 ára hlaut:
fyrstu verðlaun Magnús R. Rík-
harðsson, Þyt, Hafnarfirði, önnur
verðlaun Jón Eiríksson, Þyt,
Hafnarfirði, þriðju verðlaun Sig-
urður Gylfason, Vogi, Garðabæ.
í eldri flokki 13—15 ára hlaut:
fyrstu verðlaun Baldvin Björg-
vinsson, Ými, Kópavogi, önnur
verðlaun Óttar Hrafnkelsson,
Ými, Kópavogi, þriðju verðlaun
Sævar M. Magnússon, Ými, Kópa-
vogi.
Hjólreiðafólk
• Stuttbuxur • Síöar buxur • Peysur og jakkar
27*13 S|»nr«
Ti iiin
KH4IU Xvrn
Remt-Komhi
5- y A
UTIUF
Glæsibæ, simi 82922.