Morgunblaðið - 10.06.1982, Blaðsíða 48
ttgunfcliifeifc pg
AUGLYSINCASIMINN ER:
^22480
JMvreunbUbib
FIMMTUDAGUR 10. JÚNÍ 1982
33—35 þúsund félagar ASÍ í
verkfalli í dag og á morgun
Flestar verzlanir lokaðar
Benzínstöðvar eru lokaðar
Innanlandsflug liggur niðri
Á MIÐNÆTTI skall á tveggja daga verkfall liðlega 60 aðild-
arfélaga og sambanda innan Alþýðusambands Islands, eftir
að viðræður ASÍ og VSÍ sigldu í strand í fyrrinótt. í þessum
félögum og samböndum eru 33-35 þúsund félagar af þeim
liðlega 60 þúsund, sem eru í liðlega 160 félögum og sambönd-
um innan ASÍ. Þess má geta að verkalýðsfélögin á Vestfjörð-
um eru ekki með í aðgerðum.
Áhrif verkfallanna eru mjög
víðtæk og er aðalreglan sú, að
verkalýðsfélögin hafa neitað að
verða við beiðnum um undan-
þágur. Þó var veitt undanþága
til félaga í Verzlunarmannafé-
lagi Reykjavíkur, sem starfa á
dagblöðunum, þannig að blöðin
koma út þrátt fyrir verkfallið.
Það er hins vegar ljóst, að
flestar verzlanir verða lokaðar,
nema í þeim tilfellum, sem eig-
endur og fjölskyldur þeirra
verða við störf. Verzlunar-
mannafélag Reykjavíkur hafn-
aði undanþágubeiðni beggja
stóru flugfélaganna, Flugleiða
og Arnarflugs, og leggst innan-
landsflug þeirra því niður. Þá
hafnaði VR ennfremur undan-
þágubeiðnum frá kvikmynda-
húsum og lyfjaverzlunum, en
neyðarþjónustu lyfjaverzlana
verður haldið uppi.
Samkvæmt upplýsingum frá
skipafélögunum, verður lítil
sem engin röskun á áætlana-
siglingum skipanna, því ferðum
þeirra hefur verið hagað með
hliðsjón af aðstæðum. Bcnzíd-
stöðvar verða lokaðar vegna
verkfallsins. Strætisvagnar
Reykjavíkur aka samkvæmt
laugardagsáætlun, eða á hálf-
tíma fresti.
Seint í gærkvöldi var sam-
þykkt á félagsfundi í Verzlun-
armannafélagi Suðurnesja að
veita undanþágu vegna milli-
landaflugs, en bæði Arnarflug
og Flugleiðir höfðu sótt um
slíkt. Millilandaflug verður því
með eðlilegum hætti. Þau
verkalýðsfélög, sem nú eru í
verkfalli, og þó nokkur til við-
bótar hafa síðan boðað allsherj-
arverkfall frá og með 18. júní
nk. hafi ekki náðst samningar í
kjaradeilu ASÍ og VSÍ.
Iðnaðarráðuneytið:
| «.Wi*
4
Breska popphljómsveitin Human League kemur til landsins i dag. Hljóófæri flokksins komu hins vegar til
landsins í gærdag með Elektra-vél Arnarflugs, sem verið hefur í leiguflugi í Afríku undanfarið, frá þvi hún var
keypt af íscargo. Hljóðfærin komu hins vegar frá Bandaríkjunum þar sem hljómsveitin hefur verið á tónleika-
ferðalagi. Þau eru ekki nein smásmiði og vegur útbúnaðurinn á tólfta tonn. Hljómsveitin setur það skilyrði að
lofthæðin í þeim sölum sem hún leikur í, sé helst 10 metrar. Eitthvað hlýtur að ganga á. íslenskir poppunnendur
fá úr því skorið annað kvöld og laugardagskvöld til hvers öll þessi lofthæð er nauðsynleg.
Sjá í miðopnu frásagnir af Listahátíðarviðburðum.
Ræður ráðgjafa til endurskoðun-
ar á samningunum við Alusuisse
IÐNAÐARRAÐUNEYTIÐ hefur ráðið
bandariska lagaprófessorinn Charles
Lipton sem ráðgjafa þess við skoðun á
samningsstöðu ríkisstjórnarinnar við
Alusuisse. Sérfræðigrein Liptons er
samningar er varða nýtingu náttúru-
auðlinda þjóða og samningar í þvi til-
efni við fjölþjóðafyrirtæki.
Samkvæmt þeim upplýsingum,
sem Morgunblaðið fékk í iðnaðar-
ráðuneytinu, verður meginviðfangs-
efni Liptons að gefa ráðgjöf varð-
andi lögfræðilega stöðu ríkisins
gagnvart Alusuisse og hvernig megi
breyta samningum við fyrirtækið.
Er tíðinda að
frá sáttanefnd
„ÞAÐ hafa engar ákvarðanir verið teknar og þær verða alls ekki teknar fyrr
enn í fyrsta lagi seinnipartinn í dag,“ sagði Guðlaugur Þorvaldsson, ríkissátta-
semjari, í samtali við Mbl., er hann var inntur álits á stöðu mála í deilu ASÍ og
VSÍ, en viðræður aðila sigldu í strand í fyrrinótt og tveggja daga verkföll
meirihluta félagsmanna ASI hófust á miðnætti sl.
Vinnuveitendur héldu því fram á
sáttafundi í fyrradag, að Meistara-
samband byggingarmanna og bygg-
ingarmenn hefðu gert með sér
„leynisamning", sem gerði ráð fyrir
mun meiri launahækkunum bygg-
ingarmönnum til handa en gera
mætti ráð fyrir að myndu verða upp
á tengingum í viðræðum ASÍ og
VSI.
Þegar þetta var komið upp á
borðið lýstu forystumenn Alþýðu-
sambandsins því yfir, að þeir
myndu ekki gera samninga nema
með þeim fyrirvara, að þeir yrðu
endurskoðaðir, ef byggingarmenn
eða aðrir semdu um meiri hækkan-
ir. Þetta gátu vinnuveitendur ekki
vænta
í dag?
fallizt á og töldu sig með því fram-
selja samningsrétt sinn í hendur
byggingarmeisturum.
Aðilar, þ.e. ASÍ og VSÍ, voru því
sammála um, að ekki þýddi að
halda viðræðum áfram og vísuðu
málinu til sáttanefndar, sem ákvað
að taka sér umhugsunartíma. Þess
er því beðið með nokkurri eftir-
væntingu hvað kemur frá sátta-
nefnd í dag.
Sjá bls. 25: „Hvað sprengdi við-
ræður ASÍ og VSÍ?“
Það sé mjög eindregin krafa og ósk
íslenzkra stjórnvalda að ná fram
leiðréttingum á samningum við Alu-
suisse og sé það í framhaldi af
árangurslausum viðræðum við Alu-
suisse að Charles Lipton hafi verið
ráðinn. Kom Lipton hingað til lands
fyrir skömmu er gengið var frá
ráðningu hans og hélt hann þá
fyrirlestur á vegum iðnaðarráðu-
neytisins um störf sín og viðfangs-
efni og sóttu hann um 20 lögfræð-
ingar.
Lipton er mjög þekktur lögfræð-
ingur á sviði sínu víða um heim og
auk þess hefur hann verið fyrirles-
ari við ýmsa háskóla vestan hafs. Þá
hefur hann starfað fyrir Sameinuðu
þjóðirnar, meðal annars í miðstöð
þeirra um fjölþjóðafyrirtæki um
nokkurn tíma og jafnframt verið
lögfræðilegur ráðgjafi Alþjóða-
bankans. Þá hefur hann starfað
fyrir fjölþjóðafyrirtæki og veitt
ráðgjöf ríkisstjórnum í 39 löndum.
Morgunblaðið reyndi að ná tali af
Hjörleifi Guttormssyni, iðnaðar-
ráðherra, vegna ráðningar Liptons,
en án árangurs.
1—0 fyrir Fram í leiknum gegn Fortuna Dússtldorf. Sjá frásögn á íþróttasíðu.
___________________________________________________ Liimn. Mbl. KÖE.
Hundar fundu 650
gr af hassi í pósti
FÍKNIEFNADEILD lögreglunnar í Reykjavík tók fyrir skömmu 650
grömm af haasi, sem send voru til landsins í pósti. í framhaldi af því var
tvennt handtekið og úrskurðað í gæzluvarðhald þann 27. maí siðastlið-
inn. Maðurinn situr ennþá inni, en losnar á morgun. Konan var laus úr
gæzluvarðhaldi í fyrstu viku júní.
Skötuhjúin fóru fyrir skömmu
til Amsterdam og festu þar kaup
á hassinu. Þau sendu það síðan í
pósti til landsins stílað á annan
aðila. Fikniefnahundar lögregl-
unnar þefuðu hassið uppi í póst-
inum. Pakkinn var sóttur og far-
ið með hann á annan stað en
heimilisfangið hljóðaði upp á og
var hassið rakið til skötuhjú-
anna.
Andvirði hassins nemur á
svörtum markaði hérlendis
eitthvað um 130 þúsund krónum.
Þetta er mesta magn sem tekið
hefur verið í einu í langan tíma.
Á síðastliðnu ári voru tekin rúm
2 kg af marijúana í Keflavík og
fyrir nokkrum árum um 3 kg af
hassi, sem mun vera mesta
magn sem tekið hefur verið af
fíkniefnum í einu hér á landi.