Morgunblaðið - 13.07.1982, Blaðsíða 1
r *
48 SIÐUR MEÐ 8 SIÐNA IÞROTTABLAÐI
152. tbl. 69. árg.
ÞRIÐJUDAGUR 13. JÚLÍ 1982
Prentsmiðja Morgunblaðsins.
Falklandseyjastríðinu formlega lokið:
Bretar senda
fangana heim
London, 12. júlí. AP.
TILKYNNT var í London í dag, að brezka stjórnin liti nú svo á að ollum
vopnaviðskiptum á Suður-Atlantshafi va'ri formlega lokið og þeim 593 Argentínu-
mönnum, sem enn vsru í haldi, yrði sleppt. Í tilkynningu brezka utanríkisráðu-
neytisins segir að borizt hafi viðhlítandi trygg svör um að Argentínumenn teldu
ófriðnum lokið og því yrðu allir fangar frá Argentinu sendir heim. Þeirra á meðal
er Mario Menendez, sem stýrði argentínska liðinu á Falklandseyjum.
Bretar munu hins vegar áfram
halda uppi hafn-og loftferðabanni
við Falklandseyjar og við strönd
Argentínu og viðskiptabanni á Arg-
entínu verður ekki aflétt að svo
stöddu. Talið er afar langt í land
með að nokkrar viðræður geti hafizt
um endanlega framtíð eyjanna.
Fangarnir 593 verða fluttir með
brezku skipi til Argentínu. Argent-
ínumenn hafa þegar skilað eina
brezka stríðsfanganum, sem þeir
höfðu í haldi. Að sögn Breta hjálp-
uðu 35 af föngunum sjálfviljugir við
að hafa upp á djúpsprengjum, sem
Argentínumenn höfðu komið fyrir
og mun einn fanganna hafa slasast
við það starf.
Argentínumenn hafa sakað Breta
um að fara illa með fangana, en
Bretar hafa vísað þeim ásökunum á
bug og sagt að þeir séu í haldi undir
umsjón Rauða krossins.
Reagan Bandaríkjaforseti aflétti í
dag viðskiptabanni Bandaríkja-
manna af Argentínu og hvatti alla
aðila að Falklandseyjastríðinu til að
stuðla að vináttu og samvinnu.
Banni Bandaríkjastjórnar við sölu á
hergögnum til Argentínu, sem verið
hefur í gildi í nokkur ár vegna
mannréttindabrota í landinu, var þó
ekki aflétt.
Utanríkisráðherra Argentínu,
Aguirre Lanari, sagði í kvöld að
Argentínustjórn gæti ekki litið svo á
að ófriðnum væri formlega lokið fyrr
en Bretar afléttu hafn- og loft-
ferðabanninu við Falklandseyjar.
Stórinnrás ír-
ana yfirvofandi
Nikósíu, New York, 12. júlí. AP.
ALLT BENDIR til þess að íranir hafi nú i undirbúningi mikla sókn inn í írak með
það fyrir augum að koma Saddam Hussein forseta frá völdum. Að sögn útvarpsins
í Teheran er „mikil og söguleg orrusta" framundan.
Bandaríska fréttaritið Time,
greinir frá því í nýjasta hefti sínu,
að myndir frá njósnahnöttum sýni
greinilegá að íranir hafa safnað
saman miklu liði við landamæri
íraks og geti liðið verið tilbúið til
árásar í þessari viku.
Að sögn blaðsins hefur hersveitum
alls staðar að í íran verið beint til
landamæranna, þ.á m. átta herdeild-
um, sem áður voru staðsettar við
sovézku landamærin. Búast megi við
því að innrás verði gerð í Irak á
þremur stöðum, við hafnarborgina
Basra, þar sem helztu olíumannvirki
íraka eru niðurkomin, t miðhluta
landsins um 320 kílómetra frá höf-
uðborginni Bagdad og nyrzt í land-
inu, þar sem Kúrdar hafa lengi hald-
ið uppi andófi.
Stríð Irana og Iraka hefur nú
staðið í tæp tvö ár, en Hussein for-
seti íraks lýsti einhliða yfir vopna-
hléi í síðasta mánuði og hefur kvatt
hersveitir sínar heim frá íran. Engu
að síður hafa verið nær daglegar
skærur milli herja landanna undan-
farið.
Leiðtogar írans hafa ekki virt
vopnahléð og sagst mundu binda
enda á stríðið með þeim hætti einum
að koma Hussein frá völdum í írak.
Hussein sagði í viðtali við Time í
síðustu viku, að horfur á friði milli
landanna væru ekki góðar. Hann
sagðist jafnframt halda að íranir
hefðu aðgang að sovézkum vopnum
og nytu stuðnings ísraelskra og
norður-kóreanskra ráðgjafa.
Tilkynnt var í Bonn í dag, að íran
hefði opnað sendiráð sitt í V-Þýzka-
landi á nýjan leik, en því var lokað
fyrr á árinu.
(Símamynd AP.)
HEIMSMEISTARARNIR KOMA HEIIVl — itolsku knattspyrnumennirnir sem sigruðu í heimsmeistarakeppn-
inni í Madrid í fyrradag sjást hér við komuna til flugvallarins í Róm í gær. Fremstur fer Enzo Bearzot þjálfari
liðsins en næstur á eftir kemur Dino Zoff markvörður og fyrirliði ítalska liðsins og heldur hann hróðugur á
verðlaunabikarnum. Sjá nánar af úrslitaleik heimsmeistarakeppninnar á Spáni á íþróttasíðum
MikiÖ mannfall í Beirut um helgina:
Ekkert ríki fæst til að
taka við skæruliðum PLO
Beirút, Tel Aviv, WaHhington, 12. júlí. AP.
SAMNINGAVIÐRÆÐUR um brottflutning Yasser Arafats og skæruliða PLO
stranda nú á því, að erfiðlega gengur að finna ríki til að taka við þeim, eftir að
Sýrlendingar tilkynntu að skæruliðarnir fengju ekki að fara til Sýrlands. Einnig
gengur erfiðlega að ná samkomulagi um hvernig aðskilja skuli herliðin sem
tekist hafa á í og við Beirút undanfarið, að því er heimildir i borginni herma.
Mjög harðir bardagar voru í Beir-
út í gærdag en vopnahléi var komið
á undir kvöld. Að sögn líbönsku
lögreglunnar var barizt samfellt í
10 tíma í gær með þeim afleiðingum
að 83 biðu bana, 211 særðust og 166
Hreinsanir í pólska
kommúnistaflokknum
Varsjí, 12. júlí. AP.
UM 50 þúsund menn voru reknir úr pólska kommúnistaflokknum í apríl
og maí, að því er greint var frá í Trybuna Ludu, málgagni flokksins, í dag.
Alls hafa tæplega 100 þúsund manns verið reknir úr flokknum á þriggja
mánaða tímabili og hefur þeim flestum verið gefið að sök að hafa vikið
frá stefnu flokksins.
Fréttin í Trybuna Ludu er birt
þremur dögum áður en fundur er
fyrirhugaður í miðstjórn komm-
únistaflokksins, en hún hefur
æðsta vald í málefnum hans
milli flokksþinga. Þetta verður
þriðji fundur miðstjórnarinnar
frá því herlög voru sett í landinu
13. desember sl.
Trybuna Ludu segir að brott-
rekstur alls þessa fólks sýni að
verið sé að byggja upp „álit,
traust og áhrif“ flokksins að
nýju. Jafnframt greinir blaðið
frá því, að 3.032 hafi verið teknir
í flokkinn á tímabilinu desember
— júní og þar af hafi 40% verið
verkamenn. Nú er talið að um 2,3
milljónir manna séu í pólska
kommúnistaflokknum, en 3,5
milljónir voru taldar vera í
flokknum á síðasta ári.
Málgagn pólska hersins sagði í
dag að það myndi flýta fyrir því
að herlög yrðu numin úr gildi í
landinu, ef félagar í Samstöðu
hættu að fara að fyrirmælum
leiðtoga sinna, sem fara huldu
höfði í landinu.
Izvestia, málgagn Sovétstjórn-
arinnar, sagði í dag að því færi
víðs fjarri að erfiðleikarnir í
Póllandi væru að baki. Sagði
blaðið að óróleikinn í landinu
væri ekki sízt að kenna and-
sósíalískri hreyfingu meðal ungs
fólks og kaþólikka.
byggingar eyðilögðust í vesturhluta
borgarinnar. Aðalstöðvar friðar-
gæzluliðs Sameinuðu þjóðanna í
Líbanon voru meðal þeirra húsa
sem urðu fyrir stórskotahríð í gær.
Að sögn talsmanns ísraelshers
létu þrír ísraelskir hermenn lífið í
átökunum í Beirút í gær og hafa
ísraelsmenn þá misst alls 285 her-
menn frá því þeir gerðu innrás í
Líbanon 6. júní sl. Að sögn Is-
raelsmanna skutu sýrlenzkir her-
menn á ísraelska hermenn í austur-
hluta Beirút í dag og særðu nokkra.
Fulltrúi PLO í London, Nabil
Ramlawi, skoraði í dag á allar
Arabaþjóðir að senda herstyrk til
Líbanon til að berjast gegn ísraels-
mönnum. Hann bætti því jafnframt
við, að Sýrlendingar yrðu að opna
landamæri sín til að hleypa slíkum
liðssafnaði til Líbanon. Ramlawi
sagði að ef ísraelsmenn yrðu ekki
stöðvaðir nú myndi allur þessi
heimshluti í hættu, þ.á m. hinir
helgu staðir í Saudi-Arabíu og olíu-
lindirnar við Persaflóa.
George Habash, leiðtogi eins
hinna róttækari arma innan PLO,
sagði í dag að ekki kæmi til greina
fyrir hreyfinguna að láta hrekja sig
úr landi. Habash sagði að haldið
yrði áfram að berjast til síðasta
blóðdropa og baráttunni yrði haldið
áfram frá Sýrlandi, Egyptalandi og
Jórdaníu. Habash lýsti einnig mik-
illi vanþóknun á öllum hugmyndum
um að bandarískt herlið tæki að sér
friðargæzlu í Beirút.
í Bandaríkjunum lýsti Reagan
forseti því yfir í dag að hann væri
nokkuð bjartsýnn á að brátt yrði
endi bundinn á ófriðinn í Líbanon.
Byltingartil-
raun í leigubíl
Prag, 12. júlt. AP.
KAREL Kartosek, sagnfræðingur
og einn þeirra, sem undirrituðu
Mannréttindaskrána ’77, verður
dreginn fyrir dómara á fimmtu-
daginn nk., 15. júlí, sakaður um
að hafa „hvatt til byltingar" í
Tékkóslóvakíu.
„Byltingartilraunin" hans
Bartoseks var með þeim hætti,
að í desember sl., þegar hann
var á ferð um götur Prag í
leigubíl ásamt tveimur öðrum
farþegum, sagðist hann vera
andvígur herlögunum í Póllandi
og gerði auk þess tilraun til að
„breyta andstæðum skoðunum"
leigubílstjórans og samferða-
manna sinna.
Bartosek hefur síðustu árin
haft ofan af fyrir sér með verk-
smiðjuvinnu enda fær hann
ekki fremur en aðrir andófs-
menn að stunda það starf, sem
hann hefur menntun til.