Morgunblaðið - 13.07.1982, Blaðsíða 37

Morgunblaðið - 13.07.1982, Blaðsíða 37
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 13. JÚLÍ1982 45 Rossi skorar annað mark sitt í leik Italíu og Póllands. Sjónvarpsleysið og HM: Furðulegt að fúlsa við auglýsingatekjum upp á hundruð þúsunda Jón Olafsson skrifar: „Kæri Velvakandi. Mig langar til að taka undir þær raddir sem gagnrýnt hafa Ríkis- útvarpið/Sjónvarp hér í dálkunum og lýst hneykslan sinni á meðferð þess á HM-keppninni á Spáni. Það er í rauninni alveg furðu- legt, að stofnun sem berst í bökk- um fjárhagslega skuli leyfa sér að fúlsa við auglýsingatekjum upp á hundruð þúsunda króna. Og það er líka furðulegt, að stofnun, sem þarf á velvild og meðbyr að halda hjá almenningi, ekki síður en stjórnvöldum, ef hún ætlar að leysa vandræði sín, skuli ögra viðskiptavinum sínum eins frek- lega og raun varð á hjá sjónvarp- inu, þegar það skellti á og lokaði fyrir útsendingar frá heimsmeist- arakeppninni. Og einkarétt sinn gat Sjónvarpið aðeins hugsað sér að nota til að hindra að myndirnar yrðu sýndar — láta þær úreldast og falla í gengi, en valda þúsund- um og aftur þúsundum áhorfenda vonbrigðum og ergelsi. Hvað var það sem olli þessum ólíkindaviðbrögðum Sjónvarps- ins? Um það hafa engin svör feng- ist önnur en þau, að forráðamenn- irnir viti ekki hvað sé að gerast í kringum þá. Þetta er vissulega ekki uppörvandi til afspurnar. En er þar ekki að nokkru komin skýr- ing á því geðleysi sem birtist okkur daglega á skjánum (nema auðvitað ekki á fimmtudögum) allan ársins hring (nema auðvitað ekki í júlí). Ég held að þetta breytist ekki nema með nýjum mönnum, sem eru tilbúnir að láta skriffinnsku víkja fyrir verkum, dáðleysi fyrir dug. En ef stofnunin heldur áfram í óbreyttri mynd, þá legg ég til að hún verði gerð að deild við Þjóð- minjasafnið og sett undir yfir- stjórn Þórs Magnússonar." Þessir hringdu . . . Svækjuhiti á Hrafnistu H.B. hringdi og hafði eftirfar- andi að segja: — Ég fór upp á Hrafnistu á sunnudag til að heim- sækja ömmu mína, sem er svo sem ekki í frásögur færandi. En hissa varð ég þegar ég varð vitni að því að gamla fólkið varð bókstaflega að flýja fram á gangana, vegna þess að ekki var líft inni á her- bergjunum fyrir hita. Mér er sagt að það sé vegna geislahitunar sem er í húsinu og virðist erfitt að hafa stjórn á. Og ekki lítur út fyrir að loftræstingin á staðnum sé nógu góð, því að það var svækjuloft í húsinu og fólki leið alveg hrylli- lega illa. Svo að ég nefni annað í leiðinni, þá finnst mér það furðu sæta, að heimilið skuli ekki hafa orðið sér úti um myndsegulband til að bæta upp sjónvarpsleysið í júlímánuði, eins og gert hefur ver- ið á spítölunum. Ég heyrði að fólk- ið var að tala um hvað því leiddist mikið, kvöldin væri svo löng. Það var að reyna að horfa á útsending- una frá HM á Spáni, en hafði lítið gaman af því. Annars horfir það yfirleitt á allt sem á boðstólum er hjá sjónvarpinu, barnatímana og annað. Um notkun stefnuljósa Loks langar mig að nefna notk- un stefnuljósa í umferðinni, sem Steinar Waage taldi að leigubíl- stjórar vanræktu aðallega. Mín reynsla er sú að það er frekar ungt fólk, sem nýbúið er að fá bílpróf, sem notar stefnuljósin eins og vera ber. Aðrir virðast vanrækja þessa skyldu afleitlega og skapar það vissulega óvissu og hættu. Ég hef heyrt marga unga krakka tala um þetta, hvað það sé óþægilegt. Svikin um miðlærin J.H., Hafnarfirði, hringdi og kvað eftirfarandi vísu hafa flogið sér í hug við lestur greinarkorns hér í dálkunum: Rannveigarraunir Rannveig, húsfrú höfuðborgar, hringdi mikið vonsvikin. Við matarkaup til sárrar sorgar svikin var um miðlærin. Frábær þjónusta í NLF-búðinni Svana hringdi og hafði eftirfar- andi að segja: — Fyrir helgina þurfti ég að versla í NLF-búðinni á Laugaveginum. Mig vantaði all- margar vörutegundir í rétt sem ég ætlaði að búa til. Þegar ég gat um þetta við afgreiðslustúlkuna, tók hún körfu og tíndi allt til fyrir mig. Þetta gerði hún með ljúfu geði og hefi ég ekki áður fengið eins frábæra þjónustu í nokkurri verslun. Mig langar til að senda þessari glaðlegu og hressu stúlku kveðju mína og þakklæti. NYKOMIÐ ■ OFNÞURRKAD OREGONPÆN STÆRÐIR 2V2“x5“ og 3“x6“ PANTANIR ÓSKAST SÓTTAR STRAX. ALLAR UPPLÝSINGAR VEITTAR Á STADNUM OG í SÍMUM 11333 — 11420 M| TIMBURVERZLUN UU ÁRNA JÓNSSONAR & CO. H/F LAUGAVEGI 148 ANNAR VALKOSTUB -ALLRAHAGUR tffl FREEPORTKLÚBBURINN boðar til FUNDAR með DR. FRANK HERZLIN eiganda og yfírlækni FREEPORT HOSPITAL um efnið SUCCESSFUL LIVING 1 KRISTALSAL HÓTELS LOFTLEIÐA ÞRIÐJUDAGINN 13. JÚLÍ 1982 KL. 20.30 Fundurinn er öllum opinn

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.