Morgunblaðið - 13.07.1982, Blaðsíða 33

Morgunblaðið - 13.07.1982, Blaðsíða 33
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 13. JÚLÍ 1982 41 1« lk í fréttum Jerry Hall er bæéi sýningarstúlka og kábojstúlka. + Jerry Hall er IjóshærA sýningar- stúlka frá Texas, sem hefur aðsetur i Farís. Hún er ein hæstlaunaðasta sýningarstúlka í heimi, auk þess sem hún og Mick Jagger í hljómsveitinni Kolling Stones eru ástfangin hvort af öðru og hafa verið það i fjögur ár. Jerry Hall er mikil hestakona og hún á nú þegar 200 ekra búgarð í Texas sem hún hefur keypt sér sjálf fyrir þá peninga sem hún hefur unnið sér inn sem sýn- ingarstúlka. En nú hefur Mick Jagger gefið henni 300 ekrur af landi til viðbótar. Ætlar Jerry Hall nú að hefja hrossarækt á búgarði sínum, en Mick Jagger hefur í hyggju að framleiða kvikmynd sem á að heita: „Jafnvel kábojstúikur hafa heimþrá." Mkk Jagger og Jerry Hall eru alltaf jafn ástfangin. JERRY HALL VERÐUR RÍKARI RÍKARI Roger Vadim COSPER Hungraði engillinn + Franski leikstjórinn Roger Va- dim, fyrsti eiginmaður Brigitte Itardot og sá sem fyrst gerði hana fræga i kvikmyndinni „Og Guð skapaði konuna“, er nú orðinn 54 ára og örlítið farinn að fitna. Fyrir nokkrum árum skrifaði hann ævi- sögu sina og hét hún „Minningar djöfulsins.“ Nú hefur hann skrifað aðra bók og heitir hún „Hungraði engillinn." Hún fjallar um 18 ára leikara sem kunnugir segja að lík- ist Roger Vadim mikið á þessum aldri. Edith l’iaf og Boris Vian koma líka fram í bókinni undir öðrum nöfnum. Roger Vadim á fjögur börn með fjórum konum. Dóttir hans og Jane Fonda heitir Vanessa og að eigin sögn lætur hann sér mjög annt um hana. „í lengri tíma hef ég ekki gert annað en að fara á milli Frakklands og Bandaríkjanna til að halda nógu nánu sambandi við hana. I sex mánuði var hún svo í París hjá mér og ég hugsaði svo mikið um hana að hún gleymdi sér oft og kallaði mig mömmu. Að lokum endaði þetta með þvi að ég keypti mér hús beint á móti húsi Jane. Vanessa mun aldrei sakna foreldra sinna,“ segir Roger Vadim. Að auki á hann 23 ára dóttur, Nathalie, með Annette Stroyberg, Christian sem nú er 17 ára er sonur hans og Cather- ine Denevue og Vania 6 ára, er dóttir hans ' og Catherine Schneider. Sumarhús Til sölu sumarhús á 10.000 m2 landi á einum besta staö í Borgarfiröi. Skipti á 2ja til 3ja herbergja íbúö á Reykjavkursvæöinu kæmi til greina. Símar 20424 14120 Heimasímar 43690, 30008. Sölumaður Þór Matthiasaon. Lögfrmöingur Björn Baidursson. Til sölu Chevrolet Van m/gluggum, lengri gerö árg. ’76. Allur ný yfirfarinn aö utan sem innan. Ný klæddir hækkaöir stólar frammí, bekkur afturí og ný sprautaöur aö utan sem innan. 8 cyl. 350 sjálfssk. power stýri og brems- ur, skoöaður ’82. einstaklega vel meö farinn bíll. Uppl. í síma 85040 á daginn og 35256 á kvöldin. Nú eru sértilboðin líka á sunnudögum Sértílboðin okkar hafa eingöngu gilt í miöri viku, en nú er hægt aö fá þau líka á sunnudögum, þ.e.a.s. ef dvaliö er lengur en eina nótt. Innifalið í sértilboói: kvöldveröur, morgunveröur, hádegisveröur og gisting fyrir aðeins a mann. 390 kr. Það býður enginn betur. Munið bátaleiga, — gufubað, sólaríum, minigolf, video og síöast en ekki síst, fyrir þá sem vilja halda sér í formi í fríinu: Líkamsræktaraðstaða og thailenzk nuddkona fyrir þá sem vilja slaka á og kasta stressinu á braut. Fyrir börnin er sérstakur barnaleikvöllur. Perla fslenskrar náttúrufeguröar

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.