Morgunblaðið - 13.07.1982, Blaðsíða 40

Morgunblaðið - 13.07.1982, Blaðsíða 40
Síminn á afgreiöslunni er 83033 N ÞRIÐJUDAGUR 13. JÚLÍ 1982 KVÖLDVAKA Á VINDHEIMAMELUM Landsmóti hestamanna að Vindheimamelum í Skagafirði lauk á sunnu- Ekki vantaði að áhorfendur tækju undir sönginn, enda hestamenn dag. Mannfjöldi fylgdist með kvöldvökum landsmótsins og það þrátt söngelskir i meira lagi. Myndin var tekin á vökunni á laugardagskvöld. fyrir úrhellisrigningu. Boðið var upp á söng og gamanmál ýmiss konar. Sjá úrsiit á Vindheimamelum á bls. 30 og 31. MorgunbiaaiA/ Krútján örn. MIKII) hefur borist af karfa til Sandgerðis að undanfórnu en þaðan eru gerðir út 35—40 bátar, sem sótt hafa í karfastofninn vegna þorskleysis. Þá hefur ra'kjuaflinn verið góður frá því sem af er, og hafa þeir níu bátar sem stunda rækjuveiðarnar frá Nandgerði verið með 17—1800 kiló í róðri og veitt rúmlega 400 tonn af þeim 700 tonna kvóta, sem þeim var úthlutað. Myndin er tekin er unnið var við uppskipun úr Haferninum tiK 90, sem kom inn til Sandgerðis með 120 tonn af karfa í gærmorgun. MorminblaðíA/ RAX 24 punda lax úr Kjarrá THTTUGU OG fjögurra punda lax veiddist í Kjarrá, efri hluta Þverár í Borgarfirði þann 7. júlí síðastliðinn, en laxinn veiddi Þórarinn Sigþórsson tannlæknir, samkvæmt upplýsingum sem Mbl. fékk hjá Sigmari Björtts- syni í gær. Laxinn, sem er hængur, veiddist í svokölluðu Einarsfljóti og tók hann maðk. Þetta er stærsti lax sem Mbl. hefur haft spurnir af í sumar. Einarsfljót er veiðistaður mjög ofarlega í ánni, upp á Tví- dægru og er þangað langur vegur. Veiðin í Þverá er öll að glæðast og er mikil ganga í ánni. A laug- ardag höfðu um 300 laxar veiðst í efri ánni, —Kjarrá. Þá var þriggja daga „holl“ að ljúka veiðum og fékk það 109 fiska, sem er mjög góð veiði. Einn Akranestogaranna bundinn við bryggju: Heftir áhrif á af- komu 200 manns „VIÐ gátum ekki fengið olíu á togar- ann, nema gegn staðgreiðslu. Það gátum við ekki, því rekstarfé fyrir- tækisins er þrotið og meira en það og fyrirgreiðslu til greiðsiu á olíu gátum við hvergi fengið. Af þessum sökum fer Óskar Magnússon ekki til veiða á ný,“ sagði Finnur Sigur- geirsson, framkvæmdastjóri Útgerð- arfélags Vesturlands, í samtali við Morgunblaðið í gær, en skuttogar- inn Óskar Magnússon er í cigu þessa félags. „Við vitum ekki hvenær eða hvort við komum togaranum til veiða á ný, það verður ýmislegt að skýrast áður, en við höfum reynt að þrauka eins og frekast hefur verið kostur," sagði Finnur enn- fremur. Það kom fram hjá Finni að mik- il hætta er á einhverju atvinnu- leysi á Akranesi, nú þegar Óskar Magnússon fer ekki til veiða. Á togaranum sjálfum eru 16 menn og fjórir vinna við útgerðina í landi. Togarinn hefur lagt upp afla hjá tveimur frystihúsum á Akranesi: Hraðfrystihúsi Þórðar Óskarssonar og hraðfrystihúsi Hafarnarins. Aflinn úr Óskari Magnússyni hefur verið uppistaða hráefnisins í þessum frystihúsum 9g er nú mjög lítið að gera í þeim. I þessum tveimur frystihúsum vinna hátt á annað hundrað manns, en um 200 manns á Akra- nesi byggja afkomu sína á vinnu í frystihúsunum tveimur og útgerð Óskars Magnússonar. „Mér kemur stöðvunin á Óskari Magnússyni ekki á óvart, og sjálf- ur tel ég furðulegt að það skuli ekki vera fleiri togarar, sem nú þegar hafa stöðvast," sagði Ágúst Einarsson hjá Landssambandi ís- lenzkra útvegsmanna þegar Morg- unblaðið bar stöðvun togarans undir hann. Hittir Vigdís Reagan? SAMKVÆMT upplýsingum, sem Mbl. hefur aflað sér, benda líkur til, að forseti Islands, Vigdís Finnbogadóttir, muni hitta Ronald Reagan, Banda- ríkjaforseta, í ferð hennar til Bandaríkjanna í haust vegna Norðurlandakynningarinnar, sem þá fer fram. Ekki mun ákveðið, hvernig fundi þeirra verður háttað. Hvalveiðum Islend- inga mótmælt við sendiráðið í Bonn HÓPUR fólks úr þýzku Green- peace-samtökunum mótmælti hval- veiðum íslendinga fyrir framan ís- lenzka sendiráðið i Bonn í gær. Fé- lagar úr samtökunum fóru einnig að sendiráðum Rússlands og Jap- ans og mótmæltu hvalveiðum þess- ara þjóða. Mótmælaaðgerðir fóru mjög friðsamlega fram og kom hvergi til neinna átaka. Pétur Eggerz, sendiherra Is- lands í Bonn, sagði í samtali við Morgunblaðið í gærkvöldi að fá- mennur hópur fólks, úr þýzku Greenpeace-samtökunum hefði tekið sér stöðu fyrir framan Sendiráð Islands síðdegis í gær og þrír fulltrúar samtakanna hefðu fengið Ieyfi til að koma inn í sendiráðið. „Inni í sendiráðinu afhentu full- trúar samtakanna mér ályktun, þar sem hvalveiðum Islendinga er mótmælt og ég var beðinn um að koma á framfæri á íslandi. Þessir menn voru allir mjög prúðir, en ég átti nokkur orðaskipti við þá al- menns eðlis. Þeir spurðu mig spurninga, sem ég var tilbúinn að svara, því lögreglan hafði áður að- varað okkur og sagt að mikil þátttaka yrði í mótmælum Greenpeace fólksins. Það var mjög fátt utandyra, en fulltrúar sam- takanna sögðust vera fulltrúar einnar milljónar dýravina um allt Þýzkaland," sagði Pétur Eggerz. Pétur sagðist ekki vita til að nein læti hefðu orðið við sendiráð Rússa og Japana, þar sem hval- veiðum þessara þjóða var mót- mælt í gær Tíu hús á Suð- ureyri til sölu BLIKUR eru á iofti í atvinnu- málum á Suðureyri við Súg- Ungur mað- ur hrapaði til bana í Eyjum UNGUR maður hrapaði til bana í Vestmannaeyjum um miðjan dag á sunnudag, en hann var á lundaveið- um í Sæfelli, samkvæmt upplýsingum sem Mbl. fékk hjá lögreglunni í Vest- mannaeyjum í gær. Talið er að pilturinn hafi hrapað 30—40 metra niður í sjó, en lík hans fannst seint á sunnudags- kvöld eftir nokkra leit. Maðurinn var 18 ára gamall. Hann hét Magn- ús Guðmundsson til heimilis að 111- ugagötu 71, Vestmannaeyjum. Hann var fæddur 23. mars 1964. andafjörð. 10 hús, flest nýleg einbýiishús, eru þar nú til söiu, vegna þess að fólkið hyggst flytjast í burtu. Af þessu tilefni hafði Mbl. samband við Ellert Ólafsson, sveitarstjóra á Suðureyri. Ellert sagði að atvinnulíf væri í dauf- ara lagi um þessar mundir. Einn bátur hafi verið seldur í burtu, Fiskiðjan Freyja hefði dregið saman seglin, og öll útgerð væri afar erfið. Sagðist Ellert hafa heyrt af fólki sem ætlaði að flytja í burtu en gæti ekki selt húsin sín, þó væri aðeins einn á atvinnuleys- isskrá enn sem komið væri. Ellert sagði að það kæmi í ljós í haust hvernig þessi atvinnu- mál færu.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.