Morgunblaðið - 13.07.1982, Blaðsíða 5
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 13. JÚLÍ 1982
5
Stroku-
fanginn
ófundinn
Ferðir milli Reykja
víkur og Mývatns
FERÐASKRIFSTOFA Guðmundar
Jónassonar helur hadð áætlunarferðir
milli Reykjahliðar i Mývatnssveit og
Reykjavíkur.
Farið er um Sprengisand, á laugar-
dögum norður yfir og suður á
sunnudögum. Mun þetta vera í
fyrsta skipti sem haldið er uppi
áætlunarferðum milli Mývatns-
sveitar og Reykjavíkur, en ætlunin
er að ferðirnar standi yfir frá því að
Sprengisandur verður bílfær og
fram um mánaðamótin ágúst/sept-
ember og jafnvel lengur ef grund-
völlur verður fyrir því. Farið var í
fyrstu ferðina um helgina og tókst
hún vel í alla staði. Lagt er upp
klukkan 8 frá Umferðamiðstöðinni í
Reykjavík og á sama tíma á sunnu-
dögum frá hótel Reynihlíð í Mý-
vatnssveit, og gert er ráð fyrir að
komið sé í áfangastað klukkan 7 að
kvöldi.
FANGINN AF Litla Hrauni, sem
strauk af Borgarspítalanum í síð-
ustu viku er enn ekki kominn í
leitirnar, samkvæmt upplýsingum
sem Mbl. fékk hjá lögreglunni í
gær.
Maðurinn strauk þegar hann
var í læknisskoðun á Borgarspít-
alanum. Hann reif sig lausan frá
hjúkrunarkonu og komst óséður
út af spítalanum.
Lögreglan leitar nú mannsins.
Ennþá má finna skafla á leiðinni yfir Sprengisand. Hér má sjá einn sem
ekki var krækt fyrir, heldur brotist í gegnum. Til hliðar má sjá Guðmund
Jónasson.
?**'?'? WW/J J:
NÝLEGA var frá því skýrt í frétt í
Morgunblaðinu aö miklar gatnagerð-
arframkvæmdir stæðu yfir í sumar á
Blönduósi. Gengið er frá götum og
bílastæðum í kauptúninu og lagt var-
anlegt slitlag. Myndin er tekin nýlega
af framkvæmdunum á Blönduósi.
Flugvél
nauðlendir
FLUGVÉL af geröinni Cessna
Skyhawk, sem ber einkennis-
stafina TF-DUA, nauðlenti
aðfaranótt laugardags á veginum
í Hvalfirði skammt frá bænum
Galtalæk.
Engin slys urðu á fólki. Vélin
var að koma ofan af Snæfells-
nesi, þegar hreyfillinn stöðvað-
ist skyndilega og sá flugmað-
urinn, sem er ung stúlka, sér
ekki annað fært en að lenda á
veginum, sem var eini sjáan-
legi lendingarstaðurinn í ná-
grenninu. Nauðlendingin tókst
eftir atvikum vel, en aðstæður
til lendingar voru erfiðar, orðið
skuggsýnt, nokkur hliðarvind-
ur og brekka uppí móti. Við
lendinguna rak vélin niður
annan vænginn. Skemmdir á
vélinni eru ekki taldar alvar-
legar.
daga
ævintýraferð
til Norður-Ameríku
Fyrsta flokks langferðarbifreið
Við heimsækjum:
16 tylki í Bandaríkjunum
2 fylki í Kanada
10 stórborgir
Heimssýninguna 1982 í Tennessee
Aðeins
ein ferð
eftir
6. ágúst
Við sjáum:
Stórskipasiglingar á St. Lawrence-fljóti
Tóbaksekrur Suöurríkjanna
Sólbakaða Atlantshafsströndina
Hjólabátana á Mississippi-fljóti
DALA-RAFN frá Vestmannaeyj-
um seldi 60 tonn af fiski í Grimsby
í gærmorgun fyrir 503 þúsund
krónur og var meðalverð á kíló
krónur 8,50.
Við förum:
í frægustu háhýsi í heimi:
Sears-bygginguna í Chicago
CN-turnínn í Toronto
World Trade Center í New York
Lögreglan á Húsavík:
Þakkar rall-
keppendum
prúðmannlega
framkomu
Við skoðum fræg söfn:
Smithsonian-safniö í Washington
Metropolitan-safniö í New York
Museum of Industrial Science í Chicago
Ford-bílasafniö í Detroit
Indíánasafniö í Cherokee, N-Carolina
MORGUNBLAÐINU hefur borist
eftirfarandi athugasemd frá lögregl-
unni á liúsavík.
Lögreglan á Húsavík vill koma á
framfæri þökkum til keppenda í
Húsavíkurralli 1982 fyrir drengi-
lega og prúðmannlega framgöngu
í umferðinni, í nýafstöðnu ralli.
Einnig þakklæti til
Bifreiðaíþróttaklúbbs Húsavíkur
fyrir gott samstarf og góða skipu-
lagningu á keppninni. Viljum við
taka fram að þrátt fyrir mikið eft-
irlit og radarmælingar um helgina
og sérstaklega á meðan keppni
stóð yfir, var enginn keppandi eða
áhangendur keppninnar, svo sem
þjónustubílar eða tímaverðir,
teknir fyrir of hraðan akstur um
helgina. Þess má geta að 14 al-
mennir borgarar voru teknir fyrir
of hraðan akstur á sama tíma.
Lögreglan á Húsavík.
Sérlega vel skipulögö hringferð,
■■■1^ en ekki of erfiö.
ísienzkur fararstjóri
^^allan tímann.
Allar nánari
upplýsingar liggja
frammi
á skrifstofunum.
Reykjavík:
Austurstræti 17.
Sími 26611.
Akureyri:
Kaupvangsstræti 4
Sími 22911.
Feróaskrifstofan