Morgunblaðið - 13.07.1982, Page 42

Morgunblaðið - 13.07.1982, Page 42
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 13. JÚLÍ 1982 Rossi varð • ítalir hafa varla ráðið sér af gleði að undanförnu vegna velgengni landsliðs þeirra í knattspyrnu. Þegar liðið varð heimsmeistari stigu ítalskir áhorfendur villtan gleðidans á áhorfendapöllunum á leikvanginum í Madrid. Á myndinni hér að ofan má sjá hvar ítalskir áhorfendur fagna sigri. ítalski fáninn var alls staöar og dansaö var og sungið. markakóngur The Guardian: Ruglingsleg og óvænt úrslit BRESKA blaðið The Guardi- an segir fyrir stuttu, aö þrátt fyrir að lið Englands, Skot- lands og N-lrlands hafí verið slegin úr keppninni, geti menn sætt sig við það. Blaðið segir, að nú er Ron Greenwood hætti sem lands- liösþjálfari Englands, geti hann bent á, að úrslit margra leikja í keppninni hafi verið svo rugl- ingsleg og óvænt, að gjörsam- lega ómögulegt sé að fullyrða að besta lið keppninnar hafi orðið heimsmeistari. Blaðið bendir á nokkur úr- slit, hjá liðunum fjórum, sem léku í undanúrslitunum. Það segir: „Úrslitaliðin eru Pól- land, sem ekki tókst að sigra Kamerún; ftalía, sem þrátt fyrir að vera of góðir fyrir Bras- ilíu, tókst hvorki að sigra Kam- erún né Perú; Vestur-Þýska- land sem tapaöi fyrir Alsír og Frakkland, sem Englendingar lögðu að velli án mikilla erfið- leika.“ Blaðið segir ennfremur að erfitt sé að draga neina ákveðna ályktun af þessari ruglingslegu kcppni, nema hvað knattspyrnan sé skrýtinn leikur. Fagnaðarlætin á Ítalíu: „Megi Þýskaland hvfla í friði“ ÍTALIK voru að sjálfsögðu yfir sig hrifnir með frammistöðu sinna manna á Spáni, og eftir úrslitaleik- inn á sunnudaginn voru geysileg fagnaðarlæti á götum úti á Ítalíu. Aðeins nokkrum mínútum eftir að flautað hafði verið til leiksloka, og ítalir höfðu tryggt sér heimsmeist- aratitilinn í þriðja skipti, hafði ara- grúi fólks safnast saman utan dyra í borgum landsins. Þó óvenju kalt væri í veðri á Ítalíu kom það ekki í veg fyrir að fólk tæki þátt í fagnað- arlátunum. 90 mínútum áður höfðu göturnar verið gjörsamlega auðar, og jafnvel ítalska fréttastofan, Ansa, hafði lok- að meðan á leiknum stóð. Á Piazza Del Popolo, stærsta torgi Rómaborgar, höfðu hundruð manna fylgst með leiknum í risa- stórum sjónvarpsskermi, og eftir leikinn fylltist torgið af reyk frá flugeldum, og þúsundir manna blésu þar í flautur og börðu trommur. Einnig voru menn þar með ýmiskonar áletruð skilti, á einu stóð „Megi Þýskaland hvíla í friði“ og „ítalir, þið eruð stórkost- legir“. Fréttastofan Ansa líkti fagnað- arlátunum við það þegar Italir urðu heimsmeistarar í fyrsta skipti 1934 og síðan aftur 1938. Skip í Napolíhöfn þeyttu þoku- lúðra og sírenur, og þúsundir bíla og fótgangandi vegfarenda tróðu sér um götur borgarinnar. Gabriela Damera, kona að verða sjötug, líkti látunum við það þegar Mussolini var að þruma ræðum sínum yfir fólkið á valdatíma hans 1922 til 1943. Einn ítölsku aðdáendanna var með líkkistu sem á stóð; „Herra Þýskaland, látinn eftir 90 kvala- fullar mínútur.“ Þýsku leikmennirnír daufir: „Eg trúi þessu varla enn“ ÞÝSKU leikmennirnir voru mjög niðurlútir er þeir yfirgáfu Santiago Bernabeu-leikvanginn eftir leikinn. Sumir þeirra kenndu sjálfum sér um tapið, en aðrir höfðu afsakanir á reiðum höndum. Miðvörðurinn Uli Stielike, var mjög reiður út i dómar- ann brasilíska, og sagði „að hann hefði greinilega dæmt ítölum í hag. Hann fór illa með okkur. Sá sem ekki tók eftir þvi hlýtur að hafa horft á allt annan leik.“ Flestir leikmannanna neituðu að ræða við blaðamenn, en Klaus Fischer gat þó stunið upp nokkrum oröum. „Ég trúi þessu ekki enn,“ sagði hann. „Ég var svo nálægt þvi að verða heimsmeistari. Verðlauna- pening fyrir þann titil mun vanta í verðlaunagripasafn mitt sem atvinnumanns í knattspyrnu. Nú verður það aðeins draumur," sagði þessi 32 ára framherji frá Köln. • ítalinn Paolo Rossi var kjörinn besti leikmaður keppninnar og varð hann jafnframt markahæstur, skoraði sex mörk. Hér fagnar Rossi einu marka sinna. Blöðin hrósa Ítalíu fyrir góða Dagblöð út um allan heim eru sammála um að landslið ftalíu sé mjög vel að Heimsmeistaratitiinum komið. Liðið hafi slegið út allar HM 1986: Verður KÓLUMBÍA er eina landið sem til greina kemur, til að halda næstu hcimsmeistarakeppni í knattspyrnu, að sögn Joao Havelange, forseta FIFA, á laugardaginn. Kom þetta fram á blaðamanna- fundi, þar sem rætt var um, hvort Kolumbía væri ekki reiðubúin að halda keppnina 1986. „Þeir hafa aldrei tjáð FIFA að þeir væru ekki tilbúnir að halda keppnina. Það eru aðeins sögur sem birst hafa í blöð- um,“ sagði Havelange. sterkustu knattspyrnuþjóðir verald- ar í keppninni og leikið stórkostlega vel gegn Argentínu, Brasilíu og V-Þjóðverjum. Danir eru ánægðir Hann sagði að FIFA myndi senda nefnd til Suður-Ameríku- ríkisins á næstunni til að ræða undirbúninginn. Fregnir herma að bandaríska knattspymusamband- ið sé reiðubúið að halda keppnina eftir fjögur ár, en Kurt Lamm, formaður sambandsins, sagði um helgina, að þeir hefðu sótt um að halda mótið 1990 og byggjust við að Kólumbía stæði við sitt. Ef þeir hins vegar gæfust upp „gæti önn- ur staða komið upp í málinu,“ sagði Lamm. knattspyrnu með sigur ítala og í dönsku blöðun- um í gær mátti lesa fyrirsagnir eins og þessa: „Eina liðið sem sigraði Ítalíu var danska landsliðið". En eins og öllum er kunnugt um sigraði danska landsliðið það italska 3—1 á Idrettsparken í Kaupmannahöfn, í undankeppninni fyrir HM. Fyrirsagnir stórblaðanna voru á ýmsan hátt, til dæmis: Þeir sigr- uðu vélmennin, Rossi er konung- urinn, Stórkostlegt Ítalía, og fleira í þessum dúr. ftalía lék klassískan fótbolta og sigraði, sögðu sérfræðingar ensku blað- anna. Það var alveg greinilegt á umsögnum blaðanna að lið Þjóð- verja var ekki í neinu uppáhaldi hjá þeim. Mörg þeirra skrifuðu að þó ekki hefði verið nema fyrir brotið á Battiston sem markvörð- urinn Schumacher framdi þá hefði verið réttlætanlegt að liðið hefði tapað. ÍTALINN Paolo Rossi varð marka- kóngur HM-keppninnar. Hann skor- aði 6 mörk og næstur varð Karl- Heinz Rummenigge, V-Þýskalandi, með 5 mörk. Þeir voru jafnir fyrir úrslitaleikinn, en Rossi skoraði eitt mark í honum og tryggði sér marka- kóngsnafnbótina. Rossi skoraði ekkert í þremur af fjórum leikjum Ítalíu á Spáni, þegar liðið gerði jafntefli við Perú, Pólland og Kamerún og sigraði Enginn er eins vinsæll á Italíu í dag og knattspyrnumaðurinn Rossi. Hann varð markahæsti leikmaður HM-keppninnar og kom iiði Ítalíu á skrið. Nú keppast allir um að heiðra Rossi. Skóverksmiðja tilkynnti að hann fengi fría skó hjá fyrirtækinu til æviloka. Matsölustaður einn í svo heimsmeistara Argentínu. En síðan vaknaði Rossi svo sannar- lega til lífsins. Þrjú mörk hans nægðu til að sigra Brasilíu og tryggja Ítaiíu sæti í undanúrslit- unum, og síðan skoraði hann bæði mörk liðsins í 2—0 sigrinum við Pólland. Síðan kom hann ítölum á sporið í gær er hann skoraði fyrsta markið gegn Þjóðverjum. Tveir leikmenn skoruðu þrjú mörk, Zbigniew Boniek, Póllandi, og Zico frá Brasilíu. Róm bauð honum að borða fritt það sem eftir væri ævi hans. Rossi verð- ur sæmdur stórriddarakrossi Ítalíu. Og síðast en ekki síst er talið að hann hafi hækkað í verði um 25 milljónir ísl. króna vegna frammi- stöðu sinnar í keppninni. í Kólumbíu Rossi hækkar í verði tl m t* Cl S.I «. ffntii) m H M * i m m rm m% m m- »• « «« mt tm ** *« * a r* «■ * m*

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.