Morgunblaðið - 13.07.1982, Page 13

Morgunblaðið - 13.07.1982, Page 13
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 13. JÚLÍ 1982 13 Aðalfundur Prestafél. íslands: Sr. Þorbergur Kristjánsson end- urkosinn formaður AÐALFUNDUR Prestafélags íslands var haldinn að Hólum í Hjaltadal hinn 29. júní sl. i tengslum við prestastefn- una. í skýrslu sinni vék formaður fyrst að biskupaskiptunum á sl. hausti og sagði m.a.: „Sigurbjörn Einarsson sat biskupsstól þannig, að lengi verður minnst fyrir margra hluta sakir. Sem boðanda Orðsins ber hann svo hátt, að hiklaust má jafna til höfuðskörunga, fyrr og síðar. fslcnskir prestar árétta enn þakkir honum til handa — biðja um blessun Guðs fyrir hann og hús hans. Á aðalfundi PI 1982 fögnum við jafnframt komu Péturs Sigurgeirs- sonar til biskupsembættis. Hann hefir lengi verið sóknarprestur í fjölmennu prestakalli og þjónað samtímis einni fámennustu og af- skekktustu sókn landsins. Það er haft fyrir satt, að honum hafi tekist vel í báðum tilfellum að svara kröf- um daganna. Hann kemur þannig með mikla prestlega reynslu og lífs- vísdóm til hins ábyrgðarríka starfs. Félagar PÍ fagna því — biðja um heillir honum til handa og fjöl- skyldu hans og handleiðslu hins hæsta. Herra Pétur var áður vígslubisk- Refabú rísa í Svarf- aðardal Dalvik, 9. apríl. MIKILL áhugi virðist vera á refarækt í Svarfaðardal. í bygg- ingu eru refabú á þremur bæj- um, Ytra-Garðshorni, Þverá í Skíðadal og í landi Sökku reisir hlutafélagið Ilalalæða sitt bú. I Ytra-Garðshorni og á Þverá er refaræktin hliðar- búgrein við hinar hefðbundnu búgreinar, en Dalalæða býr einungis með refi. Allir þessir aðilar stefna að því að hefja störf í þessari búgrein með kaupum á refum með haust- inu. Munu þeir kaupa fóður frá minkabúinu á Böggvis- stöðum á Dalvík, en þar rekur Þorsteinn Aðalsteinsson eitt- hvert stærsta loðdýrabú landsins með minkum og ref- um. Veðrátta í Svarfaðardal hef- ur verið óvenju þurrviðrasöm að undanförnu og gætir þess víða í grassprettu. í þessari viku gerði þó töluverða úr- komu, sem var kærkomin gróðri, þrátt fyrir kulda, sem henni fylgdi, en ef hlýir dagar kæmu nú á næstunni má vænta þess að grasspretta verði vel í meðallagi. Eins og í öðrum sveitar- hreppum gengu íbúar Svarfað- ardalshrepps til sveitarstjórn- arkosninga laugardaginn 26. júní. Undanfarin tvö kjörtímabil hafa farið fram hlutbundnar kosningar til hreppstjórnar og voru tveir listar í kjöri. Að þessu sinni voru kosningarnar óhlut- bundnar. Veruleg breyting varð á skipun hreppsnefndar, en í hana voru kosnir nýir menn, nema Halldór Jónsson oddviti á Jarðbú, sem hlaut mikinn meirihluta atkvæða og var hann einnig kosinn sýslu- nefndarmaður. Auk Halldórs voru kjörnir Gunnar Jónsson, Brekku, Jón Þórarinsson, Hæringsstöðum, Yngvi Ei- ríksson, Þverá í Skiðadal, og Atli Friðbjörnsson, Hóli. Fréttaritarar. up Hólastiftis hins forna. Við þeim titli hefur nú tekið sr. Sigurður Guðmundsson, prófastur á Grenjað- arstað. Hann bjóðum við velkominn á þennan vettvang og væntum þess, að vígslubiskupsembætti megi inn- an tíðar opna víðari dyr og verk- meiri en verið hefir. Víst er, að hinn nýi vígslubiskup Hólastiftis hefir margt til brUnns að bera, sem brúka má í biskupsembætti. Hann er vask- legur maður og víllaus — fundvís á úrræði, sér oft færan veg, þar sem öðrum virðist björg loka leiðum. Við samfögnum sr. Sigurði með vegs- aukann og traustið — biðjum Guð að blessa hann og ástvini hans.“ Þá ræddi formaður ýmis atriði, er varða starfsaðstöðu presta og kjör og lagði áherslu á, að prestar gætu illa unað því öllu lengur að greiða hluta embættiskostnaðar af eigin launum. Sr. Birgir Ásgeirsson skýrði frá gangi samninga og gerði sérstaklega að umtalsefni bókun í sérkjara- samningi, þar sem gert er ráð fyrir nýjum reglum um endurgreiðslu út- lagðs kostnaðar sóknarprests í emb- ættisþágu. Sr. Þórir Stephensen var talsmað- ur nýstofnaðrar námsmats- og námsleyfanefndar. Sr. Þórhallur Höskuldsson kynnti áfangaskýrslu starfskjaranefndar. Umræður urðu um þessi mál og sér- stök samþykkt gerð varðandi akst- urskostnað. Félag brauðlausra presta fékk að- ild að PÍ. Sr. Árni Bergur Sigur- björnsson var kosinn í kjaranefnd í stað sr. Birgis Ásgeirssonar, er eigi gaf kost á endurkjöri. Úr stjórn áttu að ganga sr. Karl Sigurbjörnsson, sr. Þorbergur Kristjánsson og sr. Þórhallur Höskuldsson, en voru all- ir endurkjörnir. (Fréttatilkynning.) Sjáifvirkur símsvari 16780 Upplýsingar um skipaferðir allan sólarhringinn. Nú höfum við tekið í notkun sjálfvirkan símsvara sem veitir upplýsingar allan sóiarhringinn um ferðir skipa og beina síma fyrirtækisins utan venjulegs skrifstofutíma Sími á skrifstofu 21160 HAFSKIP HF. Símsvari allan sólarhringinn 16780

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.