Morgunblaðið - 13.07.1982, Page 15

Morgunblaðið - 13.07.1982, Page 15
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 13. JÚLÍ 1982 15 Dalvík: Enn ekki búið að ráða bæj- arstjóra Dalvík, 9. apríl. ENN er allt á huldu um hver verður hæjarstjóri á Dalvík. Hinn 25. júní síð- astliðinn rann út frestur sá, er gednn var út til umsóknar um embættið. Tiu manns sóttu um starfíð og sjö þeirra óskuðu nafnleyndar. Þeir þrir sem heimiluðu nafnhirtingu voru Svarfdæl- ingarnir Þorsteinn Arnason, Björn Mikaelsson og Ævar Hjartarson. Þrátt fyrir fundi í bæjarstjórn og bæjarráði frá því að umsóknarfrest- ur rann út hefur hinn nýkjörni meirihluti framsóknarmanna ein- hverra hluta vegna ekki treyst sér til að ganga frá ráðningu. Að und- anförnu hafa þó sést hér á sveimi þingmenn og aðrir fulltrúar Fram- sóknarflokksins í kjördæminu, enda er nú fyrirhugað að ganga frá ráðn- ingu bæjarstjóra á bæjarstjórnar- fundi hinn 15. júlí næstkomandi. Að loknum kosningum hafa orðið miklar breytingar á starfsliði bæj- arskrifstofunnar. Auk bæjarstjóra Valdimars Bragasonar lætur nú af störfum Karl Guðmundsson bæjar- ritari, sem ráðinn hefur verið sveit- arstjóri í Hveragerði og Kristín Þorkelsdóttir bæjarbókari, sem þeg- ar hefur látið af störfum. Þessar stöður hafa nú verið auglýstar og þann 6. júlí síðastliðinn rann út um- sóknarfrestur um starf bæjarritara. Fimm umsækjendur voru um starf- ið. Fjórir óskuðu nafnleyndar, en sá fimmti var Svarfdælingurinn Rögnvaldur Friðbjörnsson. Almenn- ingur hér er heldur óhress með þessa nafnleynd og telur að hinn óbreytti borgari eigi ekki síður rétt á að vita um nöfn umsækjenda, en hinir sjö kjörnu bæjarfulltrúar. Fyrir kosningar hétu frambjóðend- ur kjósendum auknum upplýsingum um málefni bæjarins og því finnst fólki skjóta skökku við nú í upphafi kjörtímabils að fá ekki vitneskju um umsækjendur í þau störf er varða hvern íbúa bæjarfélagsins. Kosið hefur verið í allar nefndir og ráð á vegum bæjarins og hafa ekki síður orðið mannaskipti þar. í flestum nefndum hafa framsókn- armenn meirihluta og formann, en þau tíðindi gerðust þó að í hafnar- nefnd gómaði Alþýðabandalagið formennsku. Nýkjörinn forseti bæj- arstjórnar er Kristján Olsen útibú- stjóri. Fréttaritarar. Menntaskólarnir í Rvík: 177 fengu ekki skólavist 177 af þeim 883 sem sóttu um skóla- vist í menntaskólunum í Reykjavík, fengu ekki skólavist i skólunum og var vísað á aðra skóla. Menntaskólarnir í Reykjavík eru þrír, Menntaskólinn í Reykjavík, Menntaskólinn við Hamrahlíð og Menntaskólinn við Sund. í MR byrja í haust 227 nemendur sem er heilum bekk minna en í fyrra, í MH byrja 248 og í Menntaskólanum við Sund byrjar 231 nemandi í haust. Eins og áður sagði eru það 177 nemendur sem ekki fá skólavist í þessum þremur skólum og var þeim vísað á aðra skóla, drjúgur hluti eða yfir 80, eru nemendur sem útskrif- uðust úr grunnskólunum í Breið- holti og var þeim vísað á Fjölbrautaskólann í Breiðholti; hin- ir eru utan af landi. Menntaskólinn á Akureyri vísaði 60, af þeim 240 sem sóttu um skóla- vist, frá, en þar byrja 180 nýjir nemendur í haust. KM- húsgögn, Langholtsvegi 111, sími 37010 - 37144. SVEFNHERBERGISHÚSGÖGNI Vinsælu svefnherberg- ishúsgögnin eru nú komin aftur í miklu úr- vali. Einnig geysigott úrval af alls konar húsgögn- um af ýmsum geröum. - * \ I I útsölumarkaóurinn Kjörgarói, Laugavegi 59, kjallara, sími 28640 Nýjar vörur bætast við daglega t.d. peysur — buxur — pils — skyrtur — kjólar — þykkir bolir — jakkar — úlpur — handklæði og margt margt fleira. Komið og gerið góð kaup á úrvals vörum á lágu verði í í / í í

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.