Morgunblaðið - 13.07.1982, Síða 16
16
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 13. JÚLÍ1982
MIKIÐ tjón varð í eldsvoða í Garða-
bæ á sunnudagsmorgun þegar þrjár
verksmiðjur, þakpappaverksmiðja
og plastverksmiðja Þakpappaverk-
smiðjunnar hf. og Þakpappaverk-
smiðja Silfurtúns hf., i Garöabæ
brunnu til kaldra kola.
Það var um kl. 5.45 á sunnu-
dagsmorgun að tilkynning barst um
að eldur væri kominn upp í Goða-
túni 2 í Garðabæ. Slökkviliðið í
Hafnarfirði fór strax á staðinn og
kallaði auk þess á hjálp frá Slökkvi-
liðinu í Reykjavík. Þegar slökkvi-
liðið kom á vettvang voru verk-
smiðjuhúsin, sem eru þrjú, alelda
og mikið eldhaf var. Erfitt var að
eiga við eldinn þar sem inni í hús-
unum voru afar eldfim efni og erfið
viðureignar. Sprengingar kváðu við,
það kraumaði í asfalti og eldurinn
gaus jafnharðan upp aftur. Slökkvi-
starf gekk þó eins hægt var að bú-
Mikið tjón varð í eldsvoða í Garðabæ á sunnudagsmorgun, þegar þrjár verksmiðjur brunnu til kaldra kola. Slökkviliðsmönnum tókst að verja timburhúsið
sem er til hægri á myndinni. Ljósm. Kmilís b. Bjórnsdittir
Milljóna tjón í eldsvoða í Garðabæ
ast við og tókst að verja nærliggj-
andi hús að mestu. Birgðastöð
Málningarverksmiðjunnar Sjafnar
var á tímabili í hættu, en þar er
stór málningarlager sem er eldmat-
ur mikill.
Eldsupptök eru ókunn en eru í
rannsókn. Eldurinn mun hafa kom-
ið fyrst upp í þakpappaverksmiðju
Silfurtúns hf. Tjón er ekki full-
kannað, en ljóst er að mikið eigna-
tjón hefur orðið. Þrjár byggingar
eyðilögðust alveg og er brunabóta-
mat þeirra 3.594.000 kr. Ekki er
Ijóst verðmæti innbús, véla, hráefn-
is og birgða en það er mikið, eigandi
Þakpappaverksmiðjunnar hf. var
t.d. nýbúinn að taka heim stóra
pöntun af hráefni. Næstu hús, Póst-
ur og sími og timburhús sem í var
rakarastofa, blómabúð og fl.,
skemmdust nokkuð af vatni og
reyk.
Frá slökkvistarfinu
Ljósm. Mbi. Guðjón Slökkviliðsmönnum gekk illa að eiga við hin eldfimu efni sem voru í
húsunurn. . Ljósm. Mbl. Guójón
Hjólreiðaferðinni til
stuðnings íslensk-
um iðnaði lokið...
ing lék létt lög og Davíö
Oddsson, borgarstjóri í
Reykjavík, og Pálmi Gíslason,
formaður UMFÍ, fluttu ávörp.
Ferðin í kringum landið
hófst á Lækjartorgi 25. júní
og hefur því staðið yfir í 17
daga. Lestin hefur lagt að
baki 3.181 kílómetra, 3.000
manns hafa hjólað á þessum
þremur hjólum og a.m.k.
jafnmargir hafa hjólað með
og lagt hönd á plóginn við
skipulag og framkvæmd
ferðarinnar.
Pálmi Gíslason, formaður
UMFÍ, sem var með í ferð-
inni, sagði að ferðin hefði
heppnast mjög vel, margir
hefðu komið að máli við sig
og lýst yfir ánægju með þetta
framtak hjá UMFÍ. Að
hvetja fólk til að velja ís-
lenzkt hefði sýnt sig að væri
verðugt verkefni að fást við.
Pálmi sagði að engin vanda-
mál eða óhöpp hefðu komið
uppá í allri ferðinni, þrátt
fyrir oft á tíðum erfiðar leið-
ir.
Hjólreiðaferð Ungmenna-
félags íslands, undir kjörorð-
inu „Eflum íslenzkt", lauk á
sunnudag. Eftir að hafa hjólað
frá Félagsgarði í Kjós þann
daginn, kom hjólreiðalestin á
Lækjartorg kl. 2. Þar var hjól-
reiðaferðinni slitið með
dagskrá að viðstöddu fjöl-
menni. Hljómsveitin Upplyft-
Nokkrir forystumenn í l ngmenna-
sambandi Kjalarnesþings á leið úr
Kópavogi niður á Lækjartorg þar
sem hringferð i kringum landið
lokaðist.
Davíð Oddsson, borgarstjóri í
Reykjavík, flutti ávarp þegar hjól-
reiðaferðinni var slitið á Lækjar-
torgi.
Kjósm. Kmilía B. Bjornsdótlir
3000 manns
o
hjóluðu sam-
tals 3181 km
!*«■■«> ■*■■■»*•«•■■■«•••'•■
■■■■■■••■■•■•■■•■■■■■■■••■■•«••••■* • •
• •■••*■■■■■-«■■«■••■■•••■••■■■ •■■••■•»« •-••• • ■ ■■•••••«••'•