Morgunblaðið - 13.07.1982, Síða 17

Morgunblaðið - 13.07.1982, Síða 17
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 13. JÚLÍ1982 17 „Smábátaútgerðin er spegilmynd af vandamálum tog- araútgerðarinnar" — sagði Snæbjörn Arnason, skipstjóri á Pilot frá Bíldudal „Sjávarútveg.sráöunejtið úthlutar leyfum til veiða, án tillits til stærðar skelfi.sks- og rækjustofna. Hér er bátum fjölgað þrátt fyrir að kvóti sé sá sami og fyrr en kjör þeirra sem fyrir hafa verið rýrð að sama skapi. Að mínu áliti er ráðuneytið að ganga á snið við lög frá 25. apríl 1975, um samræmda vinnslu sjávar- afla og veiðar sem háðar eru sér- stökum leyfum,“ sagði Snæbjörn Arnason, skipstjóri á Pilot BA 6 í samtali við Morgunblaðið. „Þá er hér mikill hiti í mönnum með framkvæmd þessara veiða hér á Bíldudal að öðru leyti. Sjáv- arútvegsráðuneytið ákvað að hörpudiskaveiðar mættu ekki fara fram úr 400 tonnum, en hef- ur látið það afskipt hvernig þess- um kvóta er skipt milli báta. Það eru þrír bátar sem fengið hafa leyfi til þessara veiða, en sú hefur orðið raunin á, að aðeins tveir þeirra hafa stundað þær til þessa, Snæberg BA og Þröstur BA, en eigendur þriðja bátsins, Pilot, hafa ekki enn séð sér fært að fara á sjo, þrátt fyrir leyfið, vegna rangrar samkeppni við sölu afl- ans. Eg fékk sent bréf frá eina skelfiskkaupandanum á Bíldudal, Rækjuveri, þar sem mér var tjáð, að fyrirtækið sæi sér ekki fært að kaupa minn afla vegna þess að hinir bátarnir tveir hafi boðið lægra verð, þ.e. verð undir lög- ákveðnu verði Verðlagsráðs. En þess skal getið, að mér er meinað af ráðuneytinu að selja afla minn annars staðar," sagði Snæbjörn. „Það er því í raun fyrirtækið Rækjuver, en ekki ráðuneytið, sem stjórnar því, hvernig þessum 400 tonna kvóta er skipt. Þá finnst mér furðulegt að sam- gönguráðuneytið skuli veita rétt- indalausum mönnum undanþágu, án tillits til þess, hvort menn með full réttindi og annasöm skólaár að baki, þurfi að sitja heima. Hér á Bíldudal er áhöfnin á einum skelfiskbátnum öll með undan- þágu, og það eru einmitt þeir sem hafa selt sinn afla á ólöglegu verði og gert það að verkum, að menn með full réttindi og ára- tuga reynslu þurfa að sitja heima, af þeirri ástæðu einni að þeir vilja fara að boði stjórn- valda, og selja afla sinn á réttu verði." Snæbjörn Árnason skipstjóri Líttu við á Amarhóli í hádeginu og láttu okkur stjana við þig. Engin óþarfa bið og betri matur á betra verði fyrirfinnst ekki. Sýnishorn úr matseðli dagsins: Rjómalöguð laxasúpa Salat Skötuselur í vermouth-hlaupi kr. 65,- ARHARIIÓLL Hvíldarstaðurí hádegi.höll að kveldi. 4-hurða Sedan Nú fæst HONDA CIVIC í 4ra hurða Sedan útgáfu Verd midad vid gengi 8. júní 1982 BEINSKIPTUR 5 GÍRA KR. 129.000.- M/RYÐVÖRN OG SKRÁNINGU SJÁLFSKIPTUR KR. 132.800.- M/RYÐVÖRN OG SKRÁNINGU HONDA Á ÍSLANDI — SUÐURLANDSBRAUT 20 — SÍMI 38772

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.