Morgunblaðið - 13.07.1982, Page 19

Morgunblaðið - 13.07.1982, Page 19
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 13. JÚLÍ 1982 19 Orsakir slyss enn ókunnar New Orleans, 12. júlí. AP. ÁFRAM er haldið að leita að lík- um þeirra sem fórust með Boeing 727, þotu Pan American og létust á jörðu niðri sl. laugardag í öðru mesta flugslysi sem orðið hefur í Bandaríkjunum. Allir sem voru með þotunni, eða 145 manns, fór- ust og a.m.k. 8 manns á jörðu niðri, þegar þotan hrapaði í fjöl- mennu úthverfi New Orleans. Ekkert hefur enn komið fram sem skýrt gæti orsakir slyssins. Síðast þegar heyrðist til áhafn- arinnar nokkrum mínútum fyrir slysið, kom ekkert fram, sem benti til þess að ekki væri allt í lagi um borð í vélinni og sjón- arvottar af slysinu segja að eld- ingu hafi ekki lostið niður í vél- ina. Aðkoman á slysstað var hræðileg og illa hefur gengið að bera kennsl á líkin. Margir far- þeganna voru með fjallháar peningaupphæðir á sér, enda næsti viðkomustaður vélarinnar spilaborgin Las Vegas. Á mynd- inni sjást hjálparsveitarmenn leiða einn íbúa hverfisins brott af slysstað. Sihanouk væntir hernaðaraðstoðar Hangkok, Thailandi, 12. júlí. AF. NORDOM Sihanouk, prins, bað í dag um hernaðaraðstoð frá Bandaríkjun- um og öðrum ríkjum sem ekki aðhyllast kommúnisma til að koma herafla Hanoi-stjórnarinnar út úr Kambódíu. Sihanouk, sem áður var bæði konungur og helsti valdamaður Kambódíu, sagði við fréttamenn að stjórnvöld í Víetnam ætluðu „að þurrka Kambódiu út af landakortinu og mannkynssögunni", og bætti við: „Hitler er á lífi í Hanoi“. Blaðamannafundurinn fylgdi í kjölfar tilkynningar í gær þess eðlis að þrír flokkar undir stjórn Sihanouks hefðu myndað sam- steypustjórn á kambódískri grundu. Samsteypan er mynduð af flokki Sihanouks, kommúnista- flokki Rauðu Khmeranna sem eru fyrrum andstæðingar Sihanouks og þriðja flokknum sem er á móti kommúnisma og kallar sig KPLNF. Sihanouk var í haldi hjá Rauðu Khmerunum meðan á stjórnartíð þeirra stóð, 1975 til 1979, er þeir urðu að víkja fyrir innrásaröflum Víetnama. Aðspurður hvort hann og leið- togi KPNLF yrðu ekki troðnir undir í samstarfinu með Rauðu Khmerunum, sagði hann að það væri algjörlega komið undir stjórn Bandaríkjanna og annarra ríkja sem ekki að hyllast komm- únisma, en í þeirra valdi væri að veita þeim þann stuðning sem rtieð þarf, til að styrkja her þeirra og koma á jafnvægi milli aflanna í samsteypunni. Hann viðurkenndi að samsteyp- an ætti langt í land með að geta snúið aftur til Phnom Penh, höf- uðborgar Kambódíu, en þar sitja nú við völd stuðningsmenn Ha- noi-stjórnarinnar með aðstoð 180.000 víetnamskra hermanna. Einnig er almenningsálitið í land- inu ekki hliðholl Rauðu Khmerun- um þar sem enn er í minnum ha- fðir ógeðfelldir stjórnarhættir þeirra. Anker Jörgensen sextíu ára í dag Kaupmannahöfn, 12. júlí. Frá frétUriUra Mbl., Ib Björnbak. ANKER Jörgensen, forsætisráó- herra Dana, er sextugur í dag, þriðjudaginn 13. júlí, og i tilefni af afmælinu verður upp á ýmsu fitjað til að gera honum daginn sem eftir- minnilegastan. Jörgensen er nú um stundir vinsælastur einstakra stjórn- málamanna í Danmörku. Anker Jörgensen varð fyrst for- sætisráðherra árið 1972 þegar Jens Otto Krag valdi hann sem sinn eftirmann og var það í fyrsta sinn í 50 ár, að forsætisráðherr- ann hafði ekki áður gegnt öðru ráðherraembætti. Hann hefur set- ið á þingi síðan 1964 en á bakhjarl sinn í verkalýðshreyfingunni, var formaður Félags ófaglærðra verkamanna, sem er stærsta verkalýðsfélagið í Danmörku. Anker Jörgensen og kona hans, Ingrid, eiga fjögur börn og hafa lengi búið í fimm herbergja íbúð á þriðju hæð í blokk í einu verka- mannahverfi Kaupmannahafnar. Afmælisdagurinn hefst klukkan hálf átta að morgni hjá Anker en þá verður hann sóttur í gömlum, opnum slökkviliðsbíl og ekið til kaffisamsætis með flokksmönnum sínum í Folkets Hus. Að því búnu hefur Anker boð inni í forsætis- ráðuneytinu og síðan málsverður á Langeliniepavillonen, en þar verða m.a. Willy Brandt, fyrrum kanslari, og Kalevi Sorsa, for- sætisráðherra Finna, en hann verður fulltrúi annarra norrænna forsætisráðherra. Efnahagsmálin eru Dönum þung í skauti um þessar mundir og Anker á erfiða tíma í vændum. I dag ætlar hann þó að gleyma þeim og taka þátt í gleðskapnum, sem hinir fjölmörgu vinir hans og kunningjar standa fyrir í tilefni af sextugsafmælinu. Útsýn býöur viöskiptavinum sínum ótrúlega hagstæöa bílaleigusamn- inga og flugfargjald til Luxemburg og heim aftur. Lesið þessa veröskrá og hugleiöiö hvort þarna sé ekki einmitt þaö sem hentar orlofsáætlun yöar í ár. Bíll, ótakmarkaöur kílómetrafjöldi og flugfar fram og til baka pr. mann: Brottför 23. júlí 6. ágúst, 13. ágúst og 10. sept. Innifaliö: í þessum gjöldum er innif. flugfarseðill KEF-LUX-KEF, bill í umsaminn dagafjölda. þ.e. 1—4 vikur m/ ótakmörk- uöum kílómetrafjölda, ábyrgöatrygging (skyldutr.) gegn 3. aöila, en leigutaki ber sjálfsábyrgö aö upphæö kr. 3.350.00. Kaskótrygging þ.e. Collison Damage Waiver — CDW. Vegakort fylgja bílnum. Ekki innifaliö: Flugvallarskattur á islandl, nú kr. 200.00, né annarsstaöar, bensín, olíur o.þ.h. Útsýn bendir á aó félagar í FÍB sem taka meö sér al- þjóöleaa fólagsskírteiniö, sem FIB gefur út (kr. 20.00) •iga kost á þjónustu, ráö- leggingum og aöstoö frá bílaklúbbum (Evrópu. Bílaflokkur Fj. manna um bíl 1 vika 2 vikur 3 vikur 4 vikur A. Fiat 126 5 menn Kr. 3.965 kr. 4.367 kr. 4.665 kr. 4.865 - Fíat 127 4 menn kr. 4.045 kr. 4.520 kr. 4.895 kr. 5.170 3 menn kr. 4.245 kr. 4.770 kr. 5.345 kr. 4.665 2 menn kr. 4.445 kr. 5.245 kr. 5.425 kr. 6.675 B. Ford Fiesta 5 menn kr. 4.045 kr. 4.425 kr. 4.745 kr. 4.980 - VW Polo 4 menn kr. 4.145 kr. 4.585 kr. 4.995 kr. 5.305 3 menn kr. 4.345 kr. 4.865 kr. 5.405 kr. 5.855 2 menn kr. 4.545 kr. 5.345 kr. 6.195 kr. 6.945 C. Ford Escort 5 menn kr. 4.145 kr. 4.545 kr. 5.145 kr. 5.480 — Opel Kadett 4 menn kr. 4.295 kr. 4.845 kr. 5.465 kr. 5.935 3 menn kr. 4.525 kr. 5.285 kr. 6.045 kr. 6.690 2 menn kr. 4.905 kr. 5.435 kr. 7.195 kr. 8.205 D. Ford Taunus 5 menn kr. 4.305 kr. 4.835 kr. 5.345 kr. 5.805 — Opel Ascona 4 menn kr. 4.435 kr. 5.105 kr. 5.785 kr. 6.335 3 menn kr. 4.645 kr. 5.545 kr. 6.425 kr. 7.220 2 menn kr. 5.105 kr. 6.445 kr. 7.745 kr. 8.995 E. Station 5 menn kr. 4.345 kr. 4.935 kr. 5.525 kr. 6.010 — Wagons 4 menn kr. 4.405 kr. 5.235 kr. 5.965 kr. 6.595 3 menn kr. 4.745 kr. 5.725 kr. 6.685 kr. 7.565 2 menn kr. 5.245 kr. 6.745 kr. 8.145 kr. 9.515 F. Ford Granada 5 menn kr. 4.445 kr. 5.195 kr. 5.745 kr. 6.325 — Opel Rekord 4 menn kr. 4.615 kr. 5.435 kr. 6.245 kr. 6.985 3 menn kr. 4.945 kr. 5.985 kr. 7.095 kr. 8.095 2 menn kr. 5.445 kr. 7.095 kr. 8.745 kr. 10.305 G. Ford Transit 9 menn kr. 4.145 kr. 4.485 kr. 4.845 kr. 5.095 — Minibus 8 menn kr. 4.195 kr. 4.575 kr. 4.945 kr. 5.275 7 m jnn kr. 4.245 kr. 4.695 kr. 5.145 kr. 5.505 6 menn kr. 4.325 kr. 4.735 kr. 5.345 kr. 5.815 5 menn kr. 4.325 kr. 5.045 kr. 5.795 kr. 6.245 Feröaskrifstofan ______— /____ UTSYN. / Reykjavík: Austurstræti 17, sími 26611. ''V Akureyri: Kaupvangsstræti 4, sími 22911.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.