Morgunblaðið - 13.07.1982, Side 21

Morgunblaðið - 13.07.1982, Side 21
20 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 13. JÚLÍ 1982 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 13. JÚLÍ 1982 29 plis»r0iiínmMíili||> Útgefandi hf. Arvakur, Reykjavík. Framkvæmdastjóri Haraldur Sveinsson. Ritstjórar Matthías Johannessen, Styrmir Gunnarsson. Fulltrúar ritstjóra Þorbjörn Guömundsson, Björn Jóhannsson. Fréttastjórar Freysteinn Jóhannsson, Magnús Finnsson, Sigtryggur Sigtryggsson. Auglýsingastjóri Baldvin Jónsson. Ritstjórn og skrifstofur: Aóalstræti 6, sími 10100. Auglýsingar: Að- alstræti 6, sími 22480. Afgreiösla: Skeifunni 19, sími 83033. Askrift- argjald 120 kr. á mánuöi innanlands. i lausasölu 8 kr. eintakið. „Við erum óneitan- lega að sökkva ...“ Brátt líður að því að Alþýðubandalafíið hafi átt ráð- herra í ríkisstjórn í fjöjíur ár, ef frá eru taldir nokkr- ir mánuðir í kringum áramótin 1979—80. A þessum fjór- um árum hefur fiskafli verið meiri en nokkru sinni. Salt- fiskur hefur selst fyrir hærra verð og betur en áður. Skreiðarmarkaðurinn í Nígeríu hefur verið góður. Fisk- verð á okkar bestu mörkuðum í Bandaríkjunum hefur verið hærra en áður. Síðustu mánuði hefur orðið dálítið hlé á þessari velgengni út á við og þá kemur í ljós, að engar fyrningar eru til innan lands. Ollu hefur verið eytt jafnóðum og meira en það, safnað hefur verið svo miklum skuldum í útlöndum á tímum góðærisins, að nú þegar aðeins dregur úr því sér fjármálaráðherra Ragnar Arn- alds það eitt framundan sem hann orðaði svo í Þjóðvilja- grein um helgina: „Við erum óneitanlega að sökkva á kaf í ískyggilega skuldasöfnun vegna ört vaxandi viðskipta- halla, ef ekkert er að gert.“ Hvers vegna flutti fjármálaráðherra þessi varnaðarorð ekki fyrr? Er það ekki hann sjálfur sem hefur notið sín best meðal erlendra bankastjóra við þær undirskriftir sem nú hafa breyst í skuldafen? Og hvað hefur verið gert við fjármagnið? Mestu eyðsluráðherrarnir hafa verið flokksbróðir fjármálaráðherra, sjálfur Hjörleifur Gutt- ormsson, iðnaðarráðherra, og formaður Framsóknar- flokksins, Steingrímur Hermannsson, sjávarútvegsráð- herra. Alþýðubandalagsmenn segja Steingrím hafa stuð- lað að vitlausri fjárfestingu með ofinnflutningi á togur- um. En hvað liggur eftir Hjörleif Guttormsson? Vilja alþýðubandalagsmenn vinsamlega benda mönnum á af- rekin hans. Iðnaðarráðherra hefur safnað skjalabunkum samhliða skuldum en hann hefur alls ekkert gert til að bæta þjóðarhag. Þvert á móti hefur hann spillt áliti þjóð- arinnar út á við. Af stefnu þeirra alþýðubandalagsmanna hefur það eitt leitt að mati fjármálaráðherra, að ekki er unnt að taka meiri lán. Af því má draga þá einföldu niðurstöðu, að erlendir aðilar hljóta að verða eignaraðilar í fjárfrekum stjóriðjufyrirtækjum en ekki lánveitendur. Án samstöðu um „nauðsynlegar gagnaðgerðir" sökkv- um við í skuldafenið segir Ragnar Arnalds. Hann spáir einnig nýrri verðbólguöldu. „.. .Og ný verðbólgualda er þar með skollin yfir. Við þetta er svo því að bæta, að í ríkisstjórninni er ekki samstaða um nein úrræði í þessum málum ...“ Orð Ragnars Arnalds? Nei, kveðjuorð Her- manns Jónassonar þegar vinstri stjórn hans hrökklaðist frá 4. desember 1958. Ragnar Arnalds situr e'nn í ríkis- stjórn, en hann hefur flutt kveðjuorðin: „Við erum óneit- anlega að sökkva ...“ Sigur ítala Italir unnu verðskuldaðan sigur í úrslitaleik heims- meistarakeppninnar í knattspyrnu í Madrid á sunnu- daginn. Þótt ítalska liðið hafi komist í undanúrslitin á einkennilegum forsendum, þar sem það flaut upp úr riðli sínum án þess að hafa unnið einn leik, sýndu Italir eftir það, að þeir eru vel að heimsmeistaratitlinum komnir. Frá því var sagt að um helmingur mannkyns eða tæpir tveir milljarðar manna hafi fylgst með leiknum á sunnu- daginn. Má með sanni segja, að fátt sameini jarðarbúa betur en keppni af þessu tagi og þarf því gleði sigurvegar- anna og þjóðar þeirra ekki að koma neinum á óvart. Hamingjusvipurinn á Pertini, hinum aldurhnigna Ítalíu- forseta, í heiðursstúkunni á leikvanginum í Madrid sagði heiminum meira en mörg orð um gleði ítala. Flugleiðavél seink- aði vegna tilkynn- ingar um sprengju SKÖMMU eftir klukkan 15.00 í gær var flugvallarlögreglunni á Glasgow- flugvelii tilkynnt um aö líkur væru á sprengju í flugvél, sem fór í loftió skömmu eftir klukkan 15.00. Meóal þeirra flugvéla, sem til greina komu, var vél frá Flugleiöum. Flugi hennar seinkaói lítillega vegna þessa, en síðar kom í Ijós að tilkynningin átti við aóra flugvél, þannig að fluginu heim til íslands var haldió áfram eins og ekkert hefði í skorizt. Flugstjóri í ferðinni var Jón Ragnar Steindórsson og sagði hann í samtali við Morgunblaðið, að þegar vélin hefði verið að hækka flugið eftir flugtak um hálf fjögur, hefði verið tilkynnt um möguleika á því að sprengja væri í vélinni. Þá hefði verið gripið til þess ráðs að snúa aftur til Glas- gow og fékkst leyfi til tafarlausrar lendingar öryggisins vegna. Flug- mennirnir hefðu verið í stöðugu sambandi við flugvöllinn og er þeir hefðu beðið um nánari upp- lýsingar kom í ljós, að átt hefði verið við flugvél, líklega frá Air Lingus, sem hefði farið í loftið um stundarfjórðungi á undan Flug- leiðavélinni. Þá hefði verið snúið við að nýju og ferðinni til Islands seinkaði aðeins um 7 mínútur. Þá hefðu öryggisins vegna verið gerð- ar ráðstafanir á Keflavíkurflug- velli við komuna þangað. Jón Ragnar sagði ennfremur, að áhöfn vélarinnar hefði tekið þessu mjög rólega og hann hefði til- kynnt farþegum að nauðsynlegt væri að snúa aftur til Glasgow vegna smáatriðis, sem þyrfti að laga. Hann hefði ekki talið rétt að láta farþega vita um hvað málið snerist og raska þannig sálarró þeirra. Sjálfur sagðist hann hafa verið mjög rólegur enda væru ís- lenzkir flugmenn vanir svona til- kynningum síðan úr þorskastríð- inu og kipptu sér því ekki verulega upp við þetta. Enn er ekki kunnugt um það hverjir stóðu að baki þessari til- kynningu, né heldur hvort sprengja hafi sprungið í einhverri þeirra véla, sem frá Glasgow fóru á umræddum tíma. Skattskrá Vesturlands 1981: Soffanías Cesils- son skatthæstur Akranusi, 12. júlí. SKATTSKRÁ Vesturlands 1981, vegna eigna og tekna á árinu 1980, hefur verð lögð fram. Heildarálagning á lögaðila nam 26.982.069 krónum og heildarálagning á einstaklinga nam 118.162.303 krónum. 10 skatthæstu einstaklingar eru: 1. Soffanías Cecilsson, útgerðar- maður, Grundarfirði, 729 þús. 2. Kristján Guðmundsson, útgerð- armaður, Rifi, 391 þús. 3. Guðjón Bergþórsson, skipstjóri, Akranesi, 179 þús. 4. Viðar Karlsson, skipstjóri, Akranesi, 169 þús. 5. Baldur Bragason, tannlæknir, Ólafsvík, 156 þús. 6. Guðmundur Björnsson, for- stjóri, Ólafsvík, 155 þús. 7. Pétur Geirsson, veitingamaður, Botnsskála, 154 þús. 8. Guðmundur Árnason, læknir, Akranesi 154 þús. 9. Guðjón Guðmundsson, yfir- læknir, Akranesi, 138 þús. 10. Jósef H. Þorgeirsson, alþingis- maður, Akranesi, 132 þús. 10 skatthæstu lögaðilar eru: 1. Hvalur hf., Strandarhreppi, 2.190 þús. 2. Kaupfélag Borgfirðinga, Borg- arnesi, 1.703 þús. 3. Haraldur Böðvarsson & co. hf., Akranesi, 1.230 þús. 4. Hraðfrystihús Ólafsvíkur hf., Ólafsvík, 1.008 þús. 5. Síldar- og fiskimjölsvinnslan hf., Akranesi, 861 þús. 6. Þorgeir og Ellert hf., Akranesi, 846 þús. 7. Sigurður Ágústsson hf., Stykk- ishólmi, 570 þús. 8. Vírnet hf., Borgarnesi, 566 þús. 9. Heimaskagi hf., Akranesi 499 þús. 10. íslenska járnblendifélagið hf., Skilmannahr., 455 þús. — Júlíus. Sótti veikan rússnesk- an sjómann á haf út ÞYRLA FRÁ varnarliðinu á Kefla- víkurflugvelli sótti um hádegi á sunnudag veikan rússneskan sjó- mann af 5.000 tonna togara, 150 míl- ur suðaustur af Reykjanesi, sam- kvæmt upplýsingum sem Mbl. fékk hjá Slysavarnafélaginu í gær. Sjómaðurinn var með lifhimnu- bólgu og þungt haldinn og var hann fyrst fluttur á Borgarspítal- ann, en síðan á Landakotsspítala. Auk þyrlunnar fór flugvél af Hercules-gerð í ferðina, en hún leitaði togarann uppi og frá flug- vélinni fékk þyrlan eldsneyti. Flugferðin tók um 4 klukkustund- ir. Sjómanninum líður eftir atvik- um, samkvæmt upplýsingum frá Slysavarnafélaginu. Komið með sjómanninn á Borgarspitalann. Mikill knattspyrnuáhugi Það er ekki ofsögum sagt af knatt- spyrnuáhuga íslendinga. Á meðan sjónvarpið sýndi úrslitaleik heims- meistarakeppninnar í knattspyrnu beint síðastliðinn sunnudag, má heita að umferð um borgina hafi lagzt niður. Einn og einn maður sást þó á ferli, en ekki er hægt að segja að umferðin á Miklubrautinni á með- fylgjandi mynd sé táknræn fyrir sól- rikan sunnudag. Á hinn bóginn brá fólk sér gjarnan á leik, bæði fyrir og eftir útsendinguna og mátti þá sjá fólk af báðum kynjum og á öllum aldri sparka boltanum. Á Höfn í Horna- firði brá amma þessara áhuga- sömu pilta sér í vítaspyrnukeppni, þannig að það þurftu fleiri en Frakkar og Þjóðverjar að ganga í gegn um þá eldraun. Því miður eru okkur ekki kunn úrslit vítaspyrnu- keppninnar á Höfn, en úrslit henn- ar eru vafalaust flestum kunn. Gert ráð fyrir sjónvarpi í júlí í fjárhagsáætlun 1983: Tel líkurnar góðar á að af þessu geti orðið segir Ingvar Gíslason RÍKISÍITV ARPIÐ gerir i fjár- hagsáætlun sinni fyrir næsta ár, ráð fyrir þvi að sjónvarpsútsend- ingar verði í júlímánuði á næsta ári, samkvæmt upplýsingum sem Morgunblaðið fékk hjá Andrési Björnssyni útvarpsstjóra. „Þetta er gert í fullu samráði við mig og ég mun að sjálfsögðu beita mér fyrir framgangi þessar- ar tillögu. Eg tel líkurnar góðar á því að af þessu geti orðið," sagði Ingvar Gíslason menntamála- ráðherra í samtali við Morgun- blaðið. „Fjárhagstillögur útvarps- ins eru skýrar og unnar í samráði menntamálaráðherra við mig og ég mun fylgja þeim eft- ir eins og þær eru. Hitt er annað að þetta er ekki einfalt mál og verður að vinna í samráði við rík- isstjórn og Alþingi. En ég stend algerlega á bak við þetta og er því fylgjandi í einu og öllu að þetta verði réynt," sagði Ingvar. Ingvar sagði að þetta væri til- raun til að koma til móts við þær hugmyndir sem ræddar hafa verið um að það sé eðlilegt að sjónvarp starfi í júlímánuði eins og útvarp- ið. „Það er mikið talað um að fella sumarfrí sjónvarpsins niður, en þetta er ekki einhliða ákvörðun sem ég tek,“ sagði Andrés Björnsson útvarpsstjóri. „Út-“ varpsráð hefur lýst yfir vilja sín- um, en það eru fleiri aðilar sem taka ákvörðun. Engin ákvörðun hefur enn verið tekin, málið krefst mikils undirbúnings. Það þarf aö breyta töluvert uppbyggingu sjón- varpsins og viðamiklar athuganir þurfa að fara fram. Þetta er spurning um fjármál og hvernig hægt er að nota starfsliðið, en í fjármálum erum við háðir opin- b<*rum aðilum, ríkisstjórn á hverj- um tima,“ sagði Andrés Björns- son. Þjóðverjar telja úrslit- in sanngjörn og í Róm ríkir afslöppuð gleði „HÉR líta menn yflrleitt svo á, að úrslit lciksins hafi verið sanngjörn, og að Þjóðverjar hafi aldrei átt möguleika gegn ítölunum í leikn- um,“ sagði Valur Ingimundarson í Miinchen í Vestur-Þýskalandi í sam- tali við Morgunblaðið í gær, er hann var spurður hvernig Þjóðverjar tækju úrslitum Ileimsmeistara- keppninnar í knattspyrnu. „Blöð hér segja Þjóðverja ekki hafa átt möguleika í leiknum," sagði Valur ennfremur, „en ekki ber á neinni gremju út í leikmenn fyrir þeirra frammistöðu. Bent er á að skammt sé liðið frá hinum sögulega leik gegn Frökkum, og að þreyta hafi setið í mönnum í sjálf- um úrslitaleiknum. Einnig er bent á meiðsli Rummenigges. Þó er tal- að um að nokkur heppni hafi fylgt Vestur-Þjóðverjum í allri keppn- inni, og talað er um að ekki hafi verið leikin rétt leikaðferð í úrslitaleiknum. Einkum er talað um að þar hafi réttir menn ekki verið settir til höfuðs réttum mönnum í liði ítala. Loks er svo talað um það hér, að nú sé kominn timi til að gera breytingar á landsliði Þjóðverja, það hafi stað- ið sig vel um árabil, en nú eigi að breyta og yngja ujtp. Annars voru Italir hér meira áberandi en Þjóðverjar eftir úr- slitaleikinn, en fjöldi þeirra býr í Bæjaralandi. Þeir þustu út á götur með fána og gleðilæti, á meðan Þjóðverjar höfðu fremur hægt um sig,“ sagði Valur að lokum. Afslöppuð gleði á Ítalíu „Hér eru menn að vonum glaðir og ánægðir með sigur sinna manna," sagði Hilmar Kristjáns- son í Róm er blaðamaður Mbl. ræddi við hann í gær. „Fánar blakta hvarvetna og menn ehu glaðir í bragði, en þó voru gleði- lætin meiri eftir sigurinn gegn Argentínumönnum og síðar Brasilíumönnum og Pólverjum. Nú er eins og fólk geti aftur andað léttara, því samfara gleðinni yfir fyrri sigrum var einnig mikil spenna og óvissa um framhaldið. Nú er sigurinn í höfn og fólk and- ar léttar á ný. Enginn skyldi þó taka þetta sem svo, að ég sé að gera lítið úr gleð- inni hér, sem vissulega er mikil, en þetta er samt öðruvisi en var. En Rossi, sem var í skammar- króknum í tvö ár, og félagar hans í ítalska landsliðinu, eru óneitan- lega þjóðhetjur hér og sigurvíman liggur í loftinu," sagði Hilmar að lokum. Halldór Ásgrímsson varaformaður Framsóknarflokksins Ekki hægt að ætlast til að afstaða manna liggi fyrir fyrr en ráðstafanir eru ákveðnar „VIÐ höfum alltaf gengið út frá því sem vísu, að þegar menn eru að tala um hluti sem krefjast löggjafar á Alþingi, þá séu menn að gera það á þeim grundvelli að ríkisstjórnin hafi meirihluta,“ sagði Halldór Ás- grímsson alþingismaður og varaformaður Framsóknar- flokksins í samtali við Morg- unblaðið í gærkvöldi. Halldór var að því spurður, hvort hann væri sammála þeirri skoðun forystumanna Alþýðubanda- lagsins, að fá þyrfti skýlausa stuðningsyfírlýsingu við stjórnina frá Eggert Haukdal. „Við göngum út frá því að við framsóknarmenn stöndum að þessum málum, og einnig Al- þýðubandalagið og þeir aðilar úr Sjálfstæðisflokknum sem standa að ríkisstjórninni," sagði Halldór ennfremur. „En þetta verður auðvitað hver hópur að gera upp við sig, en mikilvægast er að okkar mati að taka afstöðu til málefna. Við höfum lengi sagt að koma þurfti til efnahagsaðgerða til að taka á efnahagsvandanum, ekki síst hinum mikla viðskipta- halla. Til þessara mála viljum við taka afstöðu á málefnalegum grundvelli, og við gerum ráð fyrir því að það geri hinir einnig. Við trúum því ekki að neinn aðili að ríkisstjórninni fari frá henni áður en reyni á málefnasam- stöðu. Við trúum því illa að nokk- ur fari úr stjórninni eða hætti stuðningi við hana fyrr en ekki næst málefnasamstaða. Á það þarf að reyna." — Þú telur þá ekki að nú þurfi að liggja fyrir skýlaus stuðnings- yfirlýsing frá Eggert Haukdal, áður en tillögur liggja fyrir? „Það er ekki hægt að ætlast til að slík afstaða manna liggi fyrir, ekki hjá okkur, né í Alþýðubandalagi eða hjá sjálf- stæðismönnum, fyrr en fyrir liggur hvort ágreiningur er um málefni. Þannig eiga menn að vinna í stjórnmálum, þetta er ekkert tilfinningamál." Halldór sagði að lokum að enn væri ekkert að frétta af væntan- legum efnahagsráðstöfunum rík- isstjórnarinnar eða- tillögum hennar. Unnið væri að þessum málum og ekki ljóst hvenær því lyki. Skáklandskeppnin: Naumur sig- ur Englands UM HELGINA áttust íslendingar og Englendingar við í undanrásum Evrópukeppni landsliða í skák. Keppnin fór fram í Middlesborough í norð- vestur Englandi og lauk með naumum sigri Englendinga sem hlutu átta og hálfan vinning gegn sjö og hálfum vinningi íslenska landsliðsins. Fyrri daginn sigruðu Englendingar örugglega, með fimm vinningum gegn þremur, en á sunnudaginn höfðu Islendingar betur, hlutu fjóra og hálfan vinning gegn þremur og hálfum. unglinRa, kom inn fyrir Mestel, sem þurfti að fara til Kanaríeyja þar sem millisvæðamót í skák hófst í gær. Á íslenska liðinu varð sú breyting að Haukur Angan- týsson, sem hafði tapað erfiðri biðskák við Chandler fór út, en Sævar Bjarnason kom inn. Seinni keppnisdagur: Friðrik — Nunn 0—1 Guðmundur — Speelman V4 — 'k Margeir — Stean 1—0 Jón — Keene Ví> — 'k Helgi — Chandler 1—0 Ingi — Littlewood 0—1 Jóhann Hartston 1—0 Sævar — Taulbut 'k — 'k Þeir keppendur úr íslensku sveitinni sem komu til landsins í gær voru þokkalega ánægðir með frammistöðuna, enda enska sveit- in miklum mun stigahærri en sú íslenska. Engu að síður töldu þeir að ekki hefði mátt miklu muna að sigur ynnist og þegar litið væri til baka virtist svo sem heppnin hefði verið með Englendingunum, t.d. hefði Haukur Angantýsson leikið af sér drottningunni í síst lakari stöðu í biðskákinni við Chandíer og þeir Ingi R. og Friðrik Ólafsson gersamlega heillum horfnir. Þriðja þjóðin í riðlinum voru Svíar, en þeir voru úr leik eftir að hafa tapað 7—9 gegn íslensku sveitinni og 6W—9'k gegn Eng- lendingum. Viðureignin um helg- ina réði því úrslitum um það hvor sveitin kæmist áfram í úrslit, en Englendingum nægði jafntefli til að komast áfram. Báðar þjóðirnar tefldu fram mjög sterkum liðum, íslenska sveitin var sú sterkasta sem nokkru sinni hefur teflt fyrir íslands hönd og í ensku sveitina vantaði aðeins stórmeistarann Miles. Það vakti t.d. athygli að hinn þekkti og öflugi alþjóða- meistari William Hartston komst aðeins á áttunda borð og alls tefldu Englendingar fram fjórum stórmeisturum. Fyrri keppnisdagur Friðrik — Nunn 0—1 Guðmundur — Speelman 'k — 'k Margeir — Stean 1—0 Jón — Keene 'k — 'k Helgi — Mestel ‘k — 'k Haukur — Chandler 0—1 Ingi — Littlewood 0—1 Jóhann — Harston 1—0 Eftir fyrri daginn urðu smá- vægilegar breytingar á liðunum. Taulbut, fyrrum Evrópumeistari

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.