Morgunblaðið - 13.07.1982, Page 41

Morgunblaðið - 13.07.1982, Page 41
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 13. JÚLÍ 1982 21 Rummenigge: „Ekki minnast á fótbolta vid mig næstu vikur“ Vestur-þýaka ieikmennirnir rengu Kóðnr raóttökur er þeir komu til Frankfurt í ger, þrítt fyrir ad þeir hafí tapað úrslita- leiknum gegn ítölum. UM 5.000 manns tók á móti þeim. Walter Wallmann, borgar- stjóri, sem tók á móti leik- mönnunum, sagði þeim að vera ekki niðurdregnum, það væri frábær árangur að kom- ast í úrslitaleikinn. Jupp Derwall, sem hefur verið gagnrýndur harðlega i blöðum fyrir að hafa komið iila fram við blaðamenn, sagði við þá á flugvellinum í Frankfurt að hann myndi fyrst í stað taka sér frí frá knattspyrnu. Karl-Heinz Rummenigge sagðist líka fara í frí. „Ég á þriggja vikna sumarfrí og ég skal svo sannarlega nýta það. Við höfum allir verið svo strekktir undanfarið, líkam- lega og andlega, að við viljum ekki heyra minnst á fótbolta á næstunni." Hundruðir aðdáenda fögn- uðu þeim félögum er þeir óku í opnum Benz-sportbíl í gegn- um borgina til veislu sem haldin var liðinu til heiðurs. Rossi besti leik- maður keppninnar FRÉTTAMENN völdu á sunnudag- I inu bestu leikmenn HM-keppninnar og hlaut ítalinn Paolo Rossi flest | Símamynd Al*. • Gulldrengurinn Paolo Rossi skorar fyrsta mark ítalíu í úrslitaleiknum. Rossi, lengst til hægri, skallar boltann fast í jörðina og þaðan fór hann í netið. Rossi er nú þjóðhetja á Ítalíu. En hann var markahæsti leikmaður HM-keppninnar og var líka kjörinn leikmaður HM-keppninnar. Sá sem er á miðri mynd er Antonio Cabrini en honum mistókst að skora úr vítaspyrnu í leiknum. stig, 437, og annar vard Brasilíumað- urinn Falcao, með 252 stig. Karl- Heinz Rummenigge, V-Þýskalandi, varð þriðji með 207 stig og Zbigniew Boniek hlaut 179 stig og varð fjórði. Adidas-fyrirtækið stendur fyrir þessu kjöri og gefur til þess verð- laun. Hlýtur Rossi gullknöttinn, Falcao hlýtur silfurknöttinn, og Rummenigge bronsknöttinn. Adidas veitir einnig marka- hæstu leikmönnum keppninnar viðurkenningu. Rossi varð marka- hæstur með 6 mörk og fær hann gullskóinn að launum. Rummen- igge hlýtur silfurskóinn, en hann varð annar í keppninni um marka- kónginn, skoraði 5 mörk, og Brasilíumaðurinn Zico fær bronsskóinn fyrir mörkin 4 sem hann gerði. Boniek frá Póllandi skoraði einnig 4 mörk en hann lék einum leik meira en Zico, og hreppir Zico því verðlaunin. Simamynd AP. • Fyrirliði Ítalíu, Dino Zoff, borinn í gullstól á Santiago Bernabau-leikvanginum í Madrid eftir að hann haföi tekið við heimsbikarnum úr hendi forseta FIFA, eftir að lið Ítalíu hafði sigrað V-Þýskaland 3—1 í úrslitaleik keppninnar. Gífurlegur fögnuður var um alla Ítalíu eftir að sigurinn var í höfn og forseti landsins sem var á leiknum kyssti alla leikmennina á báðar kinnar að leik loknum er hann óskaði þeim til hamingju meö sigurinn. Sjá bls. 22, 23, 24, 25 og 28. Heimsmeistarakeppninni í knatt- spyrnu á Spáni er nú lokið. Hún hófst 13. júní með leik Argentínu og Belgíu, og lauk á sunnudaginn með úrslitaleik ítala og Vestur-Þjóðverja. Mörg óvænt úrslit litu dagsins Ijós í keppninni eins og venjulega og kem- ur fyrst upp í hugann sigur Alsírbúa yfir Vestur-Þjóðverjum. Keppni þessi var gífurlega vin- sæl meðal fólks og er talið að um 500 milljónir manna hafi að jafn- aði fylgst með hverjum leik í bein- um útsendingum í sjónvarpi. 2,5 milljarðar fylgdust með úrslita- leiknum, og í allt er talið, að sjón- varpsáhorfendur á leikjum frá keppninni hafi verið um 30 millj- arðar. Heimsmeistarar Ítalíu léku í forkeppni HM í riðli með Luxem- borg, Danmörku, Júgóslavíu og Grikklandi. Liðið sigraði í 5 leikj- um, gerði 2 jafnteUi og tapaði að- eins einum leik, gegn Dönum í Kaupmannahöfn, 1—3. Eru Danir að sjálfsögðu að springa úr monti eftir keppnina, og slá dönsku blöð- in þeim sigri nú upp aftur. ítaiirnir byrjuðu ekki með nein- um glæsibrag á Spáni. Þeir gerðu jafnteUi í þremur fyrstu leikjum sínum, gegn Póllandi, Perú og Kamerún, og komust upp úr for- riðlinum á hagstæðari markatölu en Kamerún. En leikmenn liðsins uxu með hverjum leik, og eru verðugir heimsmeistarar. Þeir hafa marga mjög góða leikmenn og knatt- spyrna þeirra er frábærlega vel skipulögð af snillingnum Enzo Bearzot, þjálfara þeirra. Gamli maðurinn Dino Zoff hefur sjaldan verið betri í markinu, vörnin er örugglega sú sterkasta í heimi í dag og miðjuleikmenn og fram- herjar liðsins eru einnig mjög góð- ir. Liðið byggir leik sinn á skyndi- sóknum og eru leikmenn alltaf eldfljótir fram og stórhættulegir, eins og sást vel í leiknum við Þjóð- verja á sunnudaginn. Ilprútlirl Bikarkeppni KSÍ: 8 liða úrslit í næstu viku FYRIR helgina var dreg- arri deild. KR-ingar ið í bikarkeppni KSÍ, en mæta Reyni Sandgerði, leikir í 8 liða úrslitum en önnur lið sem leika verða spilaðir miðviku- saman eru þessi: KA — daginn 21. júlí. Sjö fyrstu Víkingur, Breiðablik — deildar lið eru eftir í IA og Keflavík — Fram. keppninni, og eitt úr ann- Adidas-verðlaunin: ítalir urðu heimsmeistarar ESPARA 82

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.