Morgunblaðið - 13.07.1982, Side 44

Morgunblaðið - 13.07.1982, Side 44
24 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 13. JÚLÍ1982 P ítalir heimsmeistarar Italir héldu sigurgöngunni áfram lögðu V-Þjóóverja 3—1 — Þýsku leikmennirnir réöu ekkert við sterka vörn og vel útfærða sókn ítölsku leikmannanna „OKKUR tókst það, þetta er hamingju- ríkasti dagur í lífi mínu. Ég hef unnið sleitulaust að því að ná þessum árangri og það tókst,“ sagði þjálfari Ítalíu, Enzo Bearzot, er lið hans haföi sigrað V-Þjóö- verja, 3—1, í úrslitaleik heimsmeistara- keppninnar í knattspyrnu á sunnudags- kvöldið í Madrid. Sigur ítala var sann- gjarn, þeir voru betra liðið í leiknum og kórónuöu glæsilegan feril sinn í þessari 12. heimsmeistarakeppni í knattspyrnu meö sigrinum. Leikmenn tryggðu Italíu heimsmeistaratitil í þriöja sinn frá upp- hafi. Það voru ekki nein smáliö sem Ítalía sigraði í keppninni. ítalir komu, sáu og sigruöu svo sannarlega. Liö þeirra kom taplaust frá keppninni, skoraöi 12 mörk en fékk á sig 6. Leikmenn Ítalíu sendu fyrrverandi heimsmeistara Argentínu heim í undanúrslitunum, síðan sigruðu þeir lið Brasilíu, sem flestir höfðu hallast ad því að myndu sigra í keppninni. Marg- ir voru á því að Brasilía væri með besta liöið. Loks sigruöu þeir Pólverja örugg- lega, 2—0, í 4 liöa úrslitunum og settu svo punktinn yffir allt saman með því aö vinna glæsilegan sigur á V-Þjóöverjum, 3—1. Leikmenn Ítalíu réðu sér ekki fyrir gleöi þegar leiknum lauk og vissu varla hvernig þeir áttu að láta. Á Santiago Bernabeu-leikvanginum í Madrid tryllt ust ítölsku áhorfendurnir bókstaflega af fögnuöi þegar leiknum lauk, og ítalska fánanum var veifað í gríð og erg alls staðar um völlinn. Ítalíuforseti, sem var meöal áhorfenda í heiðursstúkunni, réði sér heldur ekki fyrir fögnuði, hann stökk á fætur við hvert mark Ítalíu og gladdist ákaft. Það skipti hann litlu hvað öll þau fyrirmenni sem í stúkunni voru hugsuðu um þessi gleöilæti hans. Fögnuður hans í lok leiksins var einlægur eins og allra ítala Varlega leikiö í upphafi Leikur liðanna fór mjög varlega af stað. Ljóst var að liðin tóku enga áhættu, léku bæði sterkan varnarleik og öruggan. Fyrstu 15 mínúturnar fór leikurinn að mestu fram á miðjunni og fá hættuleg marktækifæri komu. Það voru V-Þjóðverjar sem voru mun ákveðnari í fyrri hálfleikn- um. Voru meira með boltann og léku mun betur saman. Vörn Ital- íu var mjög örugg og aldrei hægt að finna í henni veilur. Þá voru leikmenn Ítalíu mjög vakandi fyrir skyndisóknum og voru þær mjög hættulegar. Eftir sjö mínútna leik meiddist Graziani hjá ítölum og varð að fara út af. Altobelli kom í hans stað. Og það var hann sem átti fyrsta hættulega marktækifærið þegar hann náði fyrirgjöf frá Tardelli en Bernd Föster bjargaði skoti hans í horn. Vítaspyrna fer for- göröum hjá ítölum Á 26. mínútu leiksins er dæmd vítaspyrna á V-Þjóðverja. Fyrir- gjöf kom inn á vítateiginn og Conti hugðist hoppa upp og skalla en var hindraður ólöglega af Bri- egel. Það var Cabrini sem fram- kvæmdi vítaspyrnuna. Cabrini hitti boltann illa og skot hans fór framhjá stönginni. Skömmu síðar var Conti fyrsti leikmaðurinn í leiknum bókaður fyrir brot á Klaus Fischer. Þegar 30 mínútur voru liðnar af leiktímanum var leikurinn enn í járnum en þó voru ítalir smátt og smátt að komast meira inn í leikinn. Italía V-Þýskaland 3:1 Fyrsta vítiö sem fer forgöröum í úrslitaleik HM Það áttu margir von á því að leikmenn Ítalíu myndu brotna niður við að vítaspyrna Cabrinis færi forgörðum en það var nú síð- ur en svo. Leikraenn efldust ef eitthvað var. Þetta er í fyrsta skipti í úrslitaleik í heimsmeist- arakeppni í knattspyrnu sem víta- spyrna mistekst og ekki er skorað. Fyrri hálfleikur var nokkuð harð- ur og nokkuð um það að illa væri brotið á leikmönnum beggja liða. Marktækifæri voru hins vegar fá. Besta tækifæri V-Þjóðverja kom á 39. mínútu þegar Breitner tók aukaspyrnu af um 30 metra færi og Fischer skallaði naumlega framhjá. Staðan í hálfleik var jöfn, 0—0. Ítalía nær forystu 1—0 Strax í upphafi síðari hálfleiks voru leikmenn Italíu mun líflegri og sprækari en í þeim fyrri. Sókn- arþungi þeirra var meiri og sam- leikur betri. Á 57. mínútu leiksins kom svo fyrsta markið. Gentiie var eldfljótur að framkvæma aukaspyrnu og sendi út í vítateig- inn og góð fyrirgjöf kom inn í markteiginn. Þar var Paolo Rossi og kom hann á fullri ferð og náði að skalla boltann í jörðina og framhjá Tony Schumacher af stuttu færi. Var þetta sjötta mark Rossi í HM-keppninni. Eftir mark þetta færðist mikið fjör í leikinn. Mikill hraði var nú keyrður upp af V-Þjóðverjum og enn meiri harka kom í leikinn. Hver aukaspyrna af annari var dæmd. Á 62. mínútu skipti Derwall Dremmler út af og setti Hrubesch inná. Aðeins tveimur mínútum síðar náði Hrubesch að skalla á mark Ítalíu en Zoff varði örugglega. Á 67. mínútu áttu V-Þjóðverjar mjög gott marktækifæri. Breitner átti fast skot sem Zoff hélt ekki og aðeins rétt áður en Rummenigge tókst að pota boltanum í netið náði Collovati að stýra boltanum í hendurnar á Zoff aftur. Glæsilegt mark hjá Tardelli Það var Tardelli sem kom ítöl- um í 2—0. V-Þjóðverjar sóttu mjög og reyndu að jafna metin. Við það opnaðist vörn þeirra illa. Þeir Scirea og Bergomi léku bolt- anum á milli sín inn í vítateignum áður en þeir fundu Tardelli sem náði að skjóta glæsilegu vinstri fótar skoti úr frekar þröngri að- stöðu og skora gullfallegt mark al- veg út við stöngina. Þetta mark kom á 69. mínútu leiksins og nú var greinileg ör- vænting farin að færast í leik þýska liðsins. Derwall tók nú Rummenigge út af og setti Hanz Muller inná til þess að reyna að létta leik liðsins, en allt kom fyrir • Antonio Cabrini (t.v.) og Claudío Gentile fagna þriðja marki Itaiíu, þar sem þeir sitja ofan á hrúgu leikmanna sem eru að kyssa Alessandro Alto- belli, þann er skoraði. Sigurinn var kominn i höfn. ■pr Urslitin rédust í leikhléi: Þjóðverjarnir stöppuðu stálii BÁÐIR þjálfararnir voru sammála um það, aö sigur ítala í úrslitaleikn- um hefði ráðist í hálfleik. ítalarnir þjöppuðu sér þá saman á ný, eftir að ('abrini hafði misnotað vítaspyrn- una, en Þjóðverjarnir rifust vegna leikskipulagsins. „Það haföi slæm áhrif á okkur að misnota vitið. Það var hlutur sem hafði ekki aðeins áhrif á leikmann- inn, heldur allt liðið,“ sagði Bearzot, þjálfari Ítalíu. „En í hálfleik söfnuð- ust allir leikmennirnir saman kring- um Cabrini og hresstu hann upp. Þeir ætluðu að koma til leiks í seinni hálfleik nógu ákveðnir og sterkir til að sigra. Og það tókst.“ Jupp Derwall, þjálfari Þjóðverj- anna, sagðist hafa eytt leikhléinu í það að rífast við Uli Stielike, mið- vörð liðsins. „Hann heimtaði að ég færði hann framar í seinni hálf- leiknum, til að fá meiri kraft í miðjuna. Þegar ég skipti fyrri leikmanninum inn á, andmælti hann því mjög greinilega og hélt áfram að kalla allan seinni hálf- leikinn," sagði Derwall. Hann hafði sett Horst Hrubesch inn fyrir Wolfgang Dremmler. „En ég hafði þegar ákveðið leik- aðferð mína þegar ég vissi að Gi- ancarlo Antognoni léki ekki með Ítalíu, og ég hélt því að þeir léku varnarleik. Ég vissi að ég tók mikla áhættu með því að Iáta Rummenigge byrja inn á, en ég vonaði að við gætum náð forystu í leiknum áður en hann gæti ekki leikið lengur." Derwall sagði að menn sínir hefði ekki verið eins sterkir í fyrri

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.