Morgunblaðið - 13.07.1982, Side 45

Morgunblaðið - 13.07.1982, Side 45
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 13. JÚLÍ1982 25 i rifust en ítalir iu hver í annan hálfleik og hann hafði búist við, og ítalir hefðu síðan komið mjög sterkir til síðari hálfleiks og hefðu átt sigurinn skilið. „Ég er ánægð- ur með leik okkar í heildina hér á Spáni, og með það að ná öðru sæti. Við höfum sýnt að við erum enn með eitt sterkasta lið í heimi." Bearzot sagði að lykillinn að velgengni liðsins væri sigurinn yf- ir Argentínu. „Það var upphafið í leikjunum gegn öllum þekktustu liðunum í keppninni. Við unnum þau öll örugglega. Sigrar okkar voru sanngjarnir, og við skoruðum mörg mörk. En leikurinn við Argentínu var sennilega sá mik- ilvægasti fyrir okkur, því þá óx sjálfstraust okkar verulega. Við vorum spenntir í úrslita- leiknum, eins og allir hljóta að skilja. Okkur vantaði Antognoni, þrír menn meiddust hjá okkur strax í upphafi, og við höfðum margt til að vera hræddir um,“ sagði Bearzot. Hann sagði að framherjimj Graziani, sem varð að fara út af eftir nokkrar mínútur, hefði feng- ið slæmt högg á öxlina. Claudio Gentile og Giuseppe Bergomi, voru báðir farnir að haltra snemma, vegna meiðsla í ökklum. „En ég sá að þeir myndu ekki láta bugast og ég hafði það á til- finningunni að við myndum sigra hvort sem var. Það hlaut að koma að því að við nýttum hraða okkar í framlínunni til að skora, og ég vissi að meiri líkur voru til þess ef liðið fengi að haldast óbreytt.* Við sigruðum. Enzo Boarzot, þjálfari ítala, lyftir hér FIFA-bikarnum hátt á loft eftir leikinn, og brosir til ítðlsku áhorfendanna. símimynd ai>. 2—O. ítalinn Marco Tardeili skorar hér annað mark liðs síns i leiknum, meö glæsilegu skoti rétt utan vítateigs. 3—1. Paul Breitner (sést ekki á myndinni) skorar hér hjá Dino Zoff eina mark Þjóðverja í leiknum. Þrátt fyrir góða tilraun tekst Zoff ekki að verja. símamynd ap. ekki. Nú lögðu V-Þjóðverjar allt undir og pressuðu ákaft en ekkert gekk. A 81. mínútu náðu svo Italir skyndisókn, iéku vörn Þjóðverja sundur og saman og Altobelli sem kom inná sem varamaður innsigl- aði sigur Italíu með marki frá vítapunkti. Altobelli fékk góða sendingu, fór sér í engu óðslega þegar Schumacher hljóp út á móti og sendi boltann af öryggi í netið. Ítalía hafði gert út um leikinn. Breitner skorar eina mark V-Þjóöverja Sjö mínútum fyrir leikslok skor- aði svo loks gamla kempan Paul Breitner fyrir V-Þjóðverja. Eftir pressu á mark Ítalíu barst boltinn út til Breitners sem afgreiddi hann snyrtilega með viðstöðu- lausu skoti í netið framhjá Zoff 3—1. En mark þetta kom of seint. Þýska liðið átti ekki lengur neina möguleika á að jafna metin. ítölsku leikmennirnir gerðu í því að halda boltanum og láta síð- ustu mínúturnar renna út. Og það tókst þeim. Sigurinn var þeirra. Bæði iiðin greinilega orðin þreytt Það var greinilegt á leiknum að leikmenn beggja liða voru orðnir þreyttir eftir mjög erfiða undan- keppni. Leikmenn Italíu léku leik- inn af sérstakri skynsemi. Þeir létu V-Þjóðverja um að vinna í fyrri hálfleiknum, vörðust vel en fóru sér í engu óðslega. Þeir beittu skyndisóknum við og við. í síðari hálfleiknum settu þeir síðan allt á fulla ferð um miðbik hálfleiksins og þá tókst þeim að brjóta Þjóð- verjana alveg niður. Síðan héldu þeir fengnum hlut. Þýsku leikmönnunum gekk afar illa að finna leið í gegnum hina geysilega sterku vörn ítalanna. Þau voru ekki mörg marktækifær- in sem V-Þjóðverjar fengu í úrslitaleiknum. Varla kom fyrir að Zoff þyrfti að taka á honum stóra sínum. Liöin Liðin sem léku voru þannig skipuð: V-Þýskaland: Harald Schu- macher, Manfred Kaltz, Karl Heinz Forster, Uli Stieleke, Bernd Forster, Hans Peter Briegel, Wolfgang Dremmler (Horst Hru- bech), Paul Breitner, Karl Heinz Rummenigge (Hanz Muller), Pierre Littbarski, Klaus Fischer. Ítalía: Dino Zoff, Claudio Gent- ile, Fulvio Collovati, Gaetano Scirea, Antonio Cabrini, Gabriele Oriali, Marco Tardelli, Francesco Graziani (Altobelli), Franco Caus- io 89. mín. (vm), Giuseppe Berg- omi, Bruno Conti, Paolo Rossi. Dómari var frá Brasilíu Arn- aldo Cesar Coelho. Áhorfendur voru 110 þúsund. 30 stiga hiti var á meðan á leiknum stóð. Sigurhringur ítala. ítölsku leikmennirnir hlaupa hér sigurhring meö heimsmeistarabikarinn. Þeir eru frá vinstri: Bruno Conti, Giuseppe Bergomi, Gaetano Scirea (með bikarinn), Claudio Gentile, Alessandro Altobelli, Paolo Rossi og Dino Zoff. Vi 'I

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.