Morgunblaðið - 13.07.1982, Page 47
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 13. JÚLÍ 1982
27
Jafntefli hefði
réttari mynd af
ÍSLENDINGAR léku vináttulands-
leik við Finna í Helsinki á sunnu-
daginn, og sigruðu Finnar í leiknum
með þremur mörkum gegn tveimur,
eftir að hafa leitt 2—0 í hálfleik.
Leikurinn þótti heldur slakur, sér-
staklega fyrri hálfleikur, en þá gerð-
ist mjög fátt markvert. Sigurmark
Finnanna var fádæma klaufalegt, en
þeir skoruðu það á síðustu mínútu
leiksins. Fyrirgjöf utan af kanti fór
framhjá öllum varnarmönnum ís-
lenska liðsins og í markið.
Finnarnir voru mun sterkari í
fyrri hálfleiknum og skoruðu þá
tvö mörk eins og áður kemur
fram. Fyrra markið kom strax í
byrjun leiksins og það seinna
fáum mínútum fyrir leikhlé. Is-
lendingarnir voru mjög daufir í
fyrri hálfleik og gekk ekkert upp
hjá liðinu.
Dæmið snerist við í síðari hálf-
leiknum, þá voru íslendingarnir
betra liðið og léku mjög vel. Gott
spil sást oft á tíðum hjá okkar
strákum og góð barátta var í lið-
inu, en þeir náðu ekki að skora
þrátt fyrir mörg góð tækifæri. Um
miðjan hálfleikinn skipti Jóhann-
es Atlason, landsliðsþjálfari,
Gunnari Gíslasyni inn á fyrir
Árna Sveinsson og stuttu seinna
kom Ómar Torfason í stað Ragn-
ars Margeirssonar.
Við þessar skiptingar kom nýtt
blóð í liðið og fáum mínútum
seinna fengu Islendingar víta-
gefió
leiknum
spyrnu er Lárusi var brugðið inni
í teig. Marteinn Geirsson, fyrir-
liði, sá um að skora af öryggi úr
vítinu.
10 mínútum eftir að Marteinn
minnkaði muninn jöfnuðu svo ís-
lendingar. Janus Guðlaugsson óð
þá upp kantinn og gaf vel fyrir og
Atli Eðvaldsson skoraði með
glæsilegum skalla.
Síðustu mínútur leiksins fékk
hvorugt liðið færi til að skora og
benti allt til þess að leiknum lykt-
aði með jafntefli. En á síðustu
mínútunum kom svo klaufamarkið
sem sagt var frá í upphafi og
tryggði Finnum sigur. Sá sigur
var ekki sanngjarn, jafntefli hefði
gefið réttari mynd af gangi mála.
Marteinn Geirsson:
„Þetta var leikur sem við
áttum alls ekki að tapa“
ÞETTA var leikur sem við áttum alls
ekki að tapa. Jafntefli voru sann-
gjörn úrslit. Við fengum á okkur
mikið klaufamark undir lok leiksins
og það var okkur dýrkeypt, sagði
Marteinn Geirsson fyrirliði íslenska
landsliðsins.
— Við áttum mjög góðan síðari
hálfleik gegn Finnum, en sá fyrri
var slakur af okkar hálfu. Við tók-
um vel á í þeim síðari og náðum að
jafna metin, eftir að hafa verið
2—0 undir í leiknum. Samleikur
okkar var þá góður og góð barátta
í leikmönnum. Að mínum dómi
var finnska liðið mjög svipað að
getu og við. Þeir léku með fimm
atvinnumenn á móti okkur. En
það var sárt að tapa þó svo að
þetta hafi bara verið vináttu-
landsleikur. Við áttum það alls
ekki skilið eins og við lékum, sagði
Marteinn. — J>R
Brynjólfur hljóp
1500 m á 3:51,88
BRYNJÓLFUR Hilmarsson UÍA
hljóp 1500 metra á 3:51,88 mínútum
á miklu stórmóti í Stokkhólmi á
þriójudag. Brynjólfur keppti i
unglingaflokki og varð sjöundi, en
mikill uppgangur hefur verið hjá
sænskum millivegalengda- og lang-
hlaupurum í ár. Sigurvegarinn,
Jonny Kroon, fékk tímann 3:41,64
og annar stórefnilegur sænskur
unglingur, Janne Person, hljóp á
3:41,68 mín.
Þetta er bezti tími Brynjólfs í ár,
en hann hljóp á 3:49,77 mín. í fyrra.
Jafnframt hefur Brynjólfur hlaupið
800 metra á 1:54,94 mín. í sumar.
Hefur Brynjólfur æft vel frá því í
haust, og búist við að hann bæti sig
• Óskar Jakobsson keppir á Reykjavíkurleikunum. Tekst honum að bæta
árangur SÍnn í kúlu Og kringlu? Ljósm. IV)r»rinn Kagnarsson
Þrír Bandaríkjamenn á
heimsmælikvarða keppa
á Reykjavíkurleikunum
ÞRÍR bandarískir frjálsíþrótta-
menn, sem allir eru á heimsmæli-
kvarða, keppa á Reykjavíkurleikun-
um í frjálsíþróttum á Laugardals-
velli helgina 17. og 18. júli. Eru þeir
bandarískur háskólameistari í kúlu-
varpi og kringlukasti á þessu ári,
margfaldur bandaríkjameistari og
fyrrum heimsmethafi í kringlukasti,
og einnig stangarstökkvari á
alþjóðamælikvarða.
Þessar frjálsíþróttakempur eru:
John Powell, heimsmethafi í
kringlukasti. Hann var næstbezt-
ur í kringlukasti í heiminum í
fyrra með 69,98 metra, sem er
hans bezti árangur. Hann hefur
kastað rétt tæpa 68 metra í sumar,
og því til alls líklegur hér, ekki
hvað sízt ef einhver andvari verð-
ur í Laugardal.
Dean Crouser, bandarískur há-
skólameistari í kúluvarpi og
kringlukasti í ár. Hann er aðeins
22 ára og að áliti sérfræðinga efni-
legasti kúluvarpari og kringlu-
kastari, sem fram hefur komið.
Framfarirnar eru miklar milli ára
hjá honum, hann varpaði kúlu 19
metra í fyrra, en hefur varpað
21,07 í ár. Þá hefur hann varpað
kringlu rúma 65 metra í ár, spjóti
75 metra og sleggju 63 metra.
Hann hefur verið öruggur með um
21 metra í kúluvarpi í sumar.
Nat Durham, ungur stangar-
stökkvari, sem stokkið hefur 5,41
metra í ár.
Ljóst er af þessu, að þessir
íþróttamenn koma til með að setja
sterkan svip á Reykjavíkurleikina.
Powell er að vísu sterkari en
okkar beztu menn, Erlendur,
Óskar og Vésteinn, en það á við
um þá þremenningana, að þeir
vaxa við hverja raun, og því verð-
ur enginn svikinn, sem kemur að
fylgjast með keppni þessari, en
auk Powell og Crouser verður
sænski kringlukastarinn kunni,
Ricky Bruch, meðal þátttakenda.
Jafnframt má við því búast, að
Oskar Jakobsson reyni að leggja
Crouser að velli í kúluvarpinu, og
snúa þannig við úrslitum frá
bandaríska háskólameistaramót-
inu, þar sem Crouser vann Óskar
með nokkrum sentimetrum.
Loks er Durham verðugur
keppinautur fyrir þá Sigurö T. Sig-
urósson og Kristján Gissurarson.
Sigurður hefur verið við að setja
met á hverju móti og Kristján er í
örri framför, skauzt yfir 5,00
metra á síðasta móti.
Jón reynir við met
í 5 km hlaupi á
Reykjavíkurleikunum
JÓN Diðriksson hlaupari úr
UMSB, keppir í 1.500 og 5000
metra hlaupum á Reykjavíkurlcik-
unum í frjálsíþróttum 17. og 18,
júlí, og reynir hann við íslandsmet
i síðarnefndu greininni.
íslandsmetið i 5 km hlaupi á
Sigfús Jónsson ÍR, 14:26,2, sett
1975, en Jón hljóp á 14:39,6 við
slæmar aðstæður á Akureyri S
fyrra.
Jón hefur æft vel S vetur og
sumar og hlaupið betur en
nokkru sinni fyrr í keppnum. Á
hann góða möguleika á að setja
met í 5 km, en þá munar mikið
um stuðning og hvatningu frá
áhorfendum, rétt eins og þegar
Bretinn Moorcroft setti heims-
met í greininni á dögunum, hann
sagði góðan stuðning áhorfenda
hafa jafngilt sekúndu á hverjum
hring, en það er einmitt munur-
inn á meti Sigfúsar og árangri
Jóns á Akureyri, að jafnaði sek-
únda á hring.
Jón fær verðuga andstæðinga í
metstilrauninni, tvo Svía sem
hlaupið hafa rétt undir 14 mín-
útum, og tvo Wales-búa, sem
einnig hafa hlaupið rétt innan
við 14 mínútur. Ætti hann að
geta notið góðs af þessum hlaup-
urum, en best yrði, ef íþrótta-
unnendur flykktust á völlinn og
hvettu hann áfram af krafti.