Morgunblaðið - 28.09.1982, Page 5
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 28. SEPTEMBER 1982
5
Frá Reykjavík
til Chicago
AF ÁHUGA las ég bók Hannesar Jónssonar „Friends in
Con(1ict“ og greinar um hana eftir Björn Bjarnason og sir
Andrew Gilchrist í Morgunblaöinu.
I bókinni heldur Hannes
Jónsson því fram, að Andrew
Gilchrist hafi verið laekkaður í
stöðu innan bresku utanríkis-
þjónustunnar um tvö stig, þ.e.
frá sendiherra í aðalraeð-
ismann, þegar hann fór frá Is-
landi til stárfa í Chicago. Þar
sem ég starfaði með sir And-
rew í 12 mílna „þorskastríðinu"
finnst mér sú skylda hvíla á
mér að leiðrétta þessa stað-
haefingu.
í bresku utanríkisþjónust-
unni voru starfsmenn flokkaðir
frá 10. stigi (byrjendur) upp til
1. stigs og við þá flokkun skipti
titillinn, sem starfsmaðurinn
bar í stöðu sinni: sendiherra,
sendiráðunautur, aðalræðis-
maður o.s.frv., aðeins máli útá-
við, á meðan viðkomandi
starfsmaður sinnti skyldu-
störfum sínum, en titillinn
skipti engu máli inn á við varð-
andi flokkun í þjónustunni.
Chicago er ein mikilvaegasta
viðskiptaborgin í Bandaríkjun-
um og var hún í nákvæmlega
sama flokki og Reykjavík inn-
an utanríkisþjónustunnar þó
forstöðumaður hennar væri
kallaður aðalræðismaður. Öll-
um þeim, sem eitthvað þekkja
til í bresku utanríkisþjónust-
unni, ætti því að vera ljóst, að
Andrew Gilchrist var ekki, ég
endurtek ekki, lækkaður í
starfi þegar hann fór frá Is-
landi.
Hafi sir Andrew að ein-
hverju leyti verið talinn óhæf-
ur hefði hann alls ekki verið
skipaður sendiherra í Indó-
Sir Andrew Gilchrist
nesíu (þar sem hann fékk titil-
inn sir) eftir störf í Chicaco né
heldur orðið sendiherra í Dubl-
in eða formaður Highlands and
Islands Development Board í
Skotlandi.
27. september 1982
Brian D. Holt.
Fundur í Valhöll í kvöld:
Viðskiptaráðherra
Noregs flytur erindi
VIÐSKIPTARÁÐHERRA Noregs,
Arne Skauge, mun flytja erindi í
Yalhöll, Háaleitisbraut 1, í kvöld,
þriðjudagskvöld, og mun hann
fjalla um norrænt samstarf á sviði
efnahags- og iðnaðarmála. Krindið
flytur hann í boði Sambands
ungra sjálfstæðismanna, sam-
kvæmt upplýsingum sem Mbl.
fékk hjá Geir H. Haarde, for-
manni SUS.
Auk þess að vera viðskipta-
ráðherra í ríkisstjórn Kaare
Willochs, þá á Arne Skauge sæti
í norrænu ráðherranefndinni.
Hann hefur verið ráðherra í eitt
ár, en þingmaður frá árinu 1977.
Aður en hann var kjörinn á þing
átti hann sæti í borgarstjórn
Bergen. Arne Skauge er yngsti
ráðherrann í norsku ríkisstjórn-
inni, 34 ára gamall. Hann er
hagfræðingur að mennt.
I för með viðskiptaráðherra
Noregs hingað til lands er að-
stoðarráðherra hans, Nette
Kongshem, og mun aðstoðar-
Arne Skauge
ráðherrann einnig sitja fundinn
í kvöld. Fundurinn hefst klukk-
an 8.30, en að loknu erindinu
mun Arne Skauge svara fyrir-
spurnum.
Fimm ára afmæli SÁÁ:
Leitað til 9 þús.
félagsmanna
um stuðning
við byggingu
sjúkrastöðvar
„OFT HEFUR verið þörf, en
nú er virkilega nauðsyn á að
félagsmenn okkar bregðist
myndarlega við,“ sagði Björg-
ólfur Guðmundsson, formaður
SÁÁ, í samtali við blaðamann
Morgunblaðsins, er hann var
spurður um fjáröflun sem nú
er í gangi vegna byggingar
nýrrar sjúkrastöðvar SAÁ.
„Við stöndum nú í afar kostn-
aðarsömum framkvæmdum,"
sagði Björgólfur, „en nú er
áætlað að byggingarkostnaður
verði um 32 milljónir króna.
Við áformum að taka sjúkra-
stöðina í notkun á næsta ári, en til
að svo megi verða, þurfa allir að
leggjast á eitt. Við höfum núna
sent út gíróseðla til allra félags-
manna í Samtökum áhugafólks
um áfengisvandamálið, hartnær
níu þúsund manns. — Gíróseðill-
inn er óútfylltur en öll framlög
eru vel þegin, eftir efnum og
ástæðum hvers og eins. En við
treystum á að félagar í SÁÁ taki
nú enn einu sinni höndum saman
til að tryggja framgang bygg-
ingarinnar," sagði Björgólfur.
Samtök áhugafólks um áfeng-
isvandamálið verða fimm ára nú
hinn 1. október næstkomandi.
Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson, fram-
kvæmdastjóri samtakanna, sagði,
að á þessum tíma hefðu þúsundir
manna farið í meðferð vegna
alkoholisma, og tugþúsundir
manna hefðu notið fræðslu erind-
reka samtakanna um áfengismál
og eiturlyf. Skortur á'sjúkrarúm-
um væri hins vegar tekinn að há
starfseminni, og því hefði verið
ráðist í byggingu hinnar nýju
sjúkrastöðvar við Grafarvog í
Reykjavík. Með tilkomu hennar
stórbatnaði öll aðstaða til að taka
við sjúklingum, og ekki væri deilt
um að mikil þörf væri fyrir það.
„Því höfum við nú skrifað félags-
mönnum okkar og óskað eftir
stuðningi þeirra,“ sagði Vilhjálm-
ur. „Við stöndum og föllum með
frjálsum framlögum fólks og því
er það afar mikilvægt að vel verði
brugðist við nú, á 5 ára afmælinu,
sem svo verður minnst sérstaklega
í október næstkomandi.“
1983
Verðskulduð
athygli...
Nýtt yfirborö bíla vekur alltaf athygli, en
Tercelinn hefur einnig hlotið verðskuldaða
athygli fyrir það sem undir yfirborðinu er.
Þar vildum við sérstaklega benda á:
Hitagalvaniseraó ,,boddý“ sem
varnar ryðskemmdum og
stuðlar að aukinni endingu
bílsins.
Reinforced
Body Construclion
Sérstök stálstyrking grindar
sem eykur öryggi
ökumanns og farþega.
Þá er í Tercelnum nýtt fjöðrunarkerfi sem
gefur lengri og betri fjöðrun, endurbætt fram-
hjóladrif og hemlakerfi.
Bíllinn tryggir sjálfkrafa minni bensíneyðslu
og jafnari gang með innbyggðum hitajafnara.
Fleiri nýjungar hefur Tercel að geyma sem
sölumenn okkar vildu gjarnan útskýra.
TOYOTA
UMBOÐIÐ P. SAMÚELSSON & CO. HF.
NÝBÝLAVEGI 8 — KÓPAVOGI SÍMI 44144
BLÁPELL SF draupnisgötu7A AKUREYRI
— SÍMI 96-21090