Morgunblaðið - 02.11.1982, Blaðsíða 1
48 SÍÐUR MEÐ 4 SÍÐNA ÍÞRÓTTABLAÐI
244. tbl. 69. árg.
l’RIÐJUDAGUR 2. NÓVEMBER 1982
Rrentsmidja Morgunbladsins
í fór með Jóhannesi Páli páfa II til Spánar er Josef Glemp erkibiskup í Póllandi. Glemp er lengst til vinstri á
myndinni og við hlið hans spánskir kardínálar, en myndin var tekin við messu páfa i Avila i gær.
Páfinn á Spáni:
200 þúsund við
messu í Avila
Alba di* Tormes, I. nóvembvr. Al*.
JÓHANNES Páll páfi II söng í dag messu yfir 200 þúsund Spánverjum í
Avila, skammt frá Madrid, en hélt siðan til Alba de Tormes til að Ijúka
formlega hátíðahöldum þeim í minningu heilagrar Teresu sem hafa staðið
yfir í ár. Heilög Teresa, sú kona sem einna mest hefur látið aö sér kveða í
sögu kaþólsku kirkjunnar, var uppi á sextándu öld og stofnaði á sinni tíð
sautján nunnuklaustur á Spáni. Hún er einn af heldri dýrlingum þar í landi.
Spánska konungsfjölskyldan var við messu páfa í Avila og meðtóku Soffia
drottning og börn hennar heilagt sakramenti en Juan ('arlos konungur sat
hjá.
í ræðu sinni sagði páfi m.a. að
heilög Teresa hefði gefið kristnum
konum um allan heim fagurt for-
dæmi með því að lifa dygðugu líf-
erni, í fátækt og við andlega iðkan.
Legstaður dýrlingsins er í Alba de
Tormes og segja tilbiðjendur að
líkami hinnar helgu konu hafi
varðveitzt án þess að rotna. Um
tvær milljónir manna hafa gert sér
ferð til Alba de Tormes síðan há-
tíð dýrlingsins hófst fyrir réttu ári.
Upphaflega var ætlunin að páfi
kæmi til Spánr við upphaf hátíð-
arinnar en af því gat ekki orðið
þar sem hann var ekki orðinn
ferðafær eftir banatilræðið sem
honum var sýnt í maí í fyrra.
Spánska lögreglan mun aldrei fyrr
hafa gert svo víðtækar öryggis-
ráðstafanir og í sambandi við
þessa tíu daga heimsókn sem hófst
á sunnudag en eftir því er tekið að
hún gerir sér sérstakt far um að
láta lítið á sér bera.
Sjá ennfremur frásögn á bls. 21.
Bandaríkin:
Kosið um efnahags-
stefnu Reagans í dag
Washington, 1. nóvember. Al*.
,LÁTIÐ VON en ekki örvæntingu
áóa atkvæðum ykkar,“ var boðskap-
ir Reagans forseta til bandarískra
ijósenda sem ganga að kjörborðinu í
lag til að kjósa nýja fulltrúadeild
tingsins, þriðjung öldungadeildar-
lingmanna og 36 ríkisstjóra. Demó-
iratar reyna að brýna fylgjendur sína
með því að lífskjör Bandaríkjamanna
muni versna til muna fái repúblikan-
ar umhoð til að framfylgja efna-
hagsstefnu forsetans. Repúblikanar
búast við því að missa tuttugu af
þeim 192 þingsætum sem þeir hafa
nú í fulltrúadcildinni, en í öldunga-
deildinni vonast þeir til að halda sínu
Lögregla kom í veg fyrir
fréttamannafund friðarhóps
Mo.skvu, 1. nóvember. AP.
ÓEINKENNISKL/EDDIR lögreglumenn, sennilega úr KGB, hindruðu í
dag þátttöku vestrænna fréttamanna í fundi sem eini sjálfstæði friðarhóp-
urinn í Mosvku hafði boðað til. „Þið hafið tvær mínútur til að koma
ykkur út,“ sagði kraftalegur maður sem ekki vildi segja önnur deili á sér
en þau að hann væri „sovétborgari", þegar þrír fréttamenn ætluðu að
ganga inn í íbúð þá í austurhverfi borgarinnar þar sem fundurinn átti að
vera, „ég veit hvert erindi ykkar er.“ Skömmu síðar stöðvuðu þrír
óeinkennisklæddir lögreglumenn tvo fréttaritara, þegar þeir ætluðu inn í
húsið, en svartri Volgu-bifreið hafði verið lagt fyrir framan útidyrnar
þannig að fréttamennirnir komust ekki inn.
Sergei Batourin, sem hefur orð einn mánuð. Þegar honum var
fyrir friðarhópnum umrædda,
var handtekinn 5. ágúst sl. á þeim
forsendum að hann ætti að gegna
herþjónustu. Síðan var hann
hafður í haldi á geðveikrahæli í
sleppt kvaðst hann hafa verið
neyddur til að taka inn sljóvgandi
lyf, þar sem hann sat innilokaður
með geðsjúklingum.
og bæta jafnvel tvcimur eða þremur
þingsætum við þau 54 sem þeir hafa
nú.
Það er að heita má ófrávíkjanleg
regla að flokkur ríkjandi forseta
tapi í þeim kosningum til fulltrúa-
deildarinnar sem fram fara þegar
kjörtímabil hans er hálfnað, eins
og nú er. Efnahagsmálastefna
Reagans er helzta kosningamálið
og á umræðum um hana hófst og
endaði kosningabaráttan. Demó-
kratar halda því ákaft fram, að
Reagan hafi þegar haft tvö ár til að
koma efnahagslífi landsins á rétt-
an kjöl og að nú sé kominn tími til
að breyta um stefnu að því leyti.
Vart er gert ráð fyrir meira en
40% kjörsókn, en kjörsókn er
venjulega dræm í kosningum þess-
um. Síðast þegar kosið var á miðju
kjörtímatili forsetans var hún að-
eins 35,5%.
AP-símam.vnd.
„Áfram á réttri leið“ er slagorð repúblikana fyrir kosningarnar sem fara
fram í Bandaríkjunum i dag. í gær var allra heilagra messa sem í ensku-
mælandi löndum er haldin með ærslum og miklu hramholti með grasker.
Hér hefur slagorð repúblikana verið skorið í grasker til að fagna forsetahjón-
unum er þau komu í Hvíta húsið í gær eftir helgardvöl i Camp David.
Víðtækar mótmælaaðgerð-
ir en engin átök í Póllandi
N arsjá, I. nóvember. AP.
London:
Lögreglumaður alvar-
lega særður eftir óeirðir
I.undúnum, 1. nóvember. AP.
LÖGREGLUMAÐUR særðist alvarlega í átökum sem urðu þcgar um 200
unglingar, flestir dökkir á hörund, kveiktu clda, settu upp vegatálma og
köstuðu flöskum og múrsteinum, og reyndu þannig að koma í veg fyrir að
fólk sem hafði sezt upp i hreysum sem á að rífa yrði borið þaðan út. Þetta átti
sér stað í Brixton-hverfi í Lundúnum, en þar urðu óeirðir hvað mestar
sumarið 1981.
Auk lögreglumannsins varð
blaðaljósmyndari fyrir hníf-
stungu, en hann særðist ekki
alvarlega. Þrír óeirðarseggir voru
handteknir og í kvöld sagði lög-
reglan að ró væri að komast á í
hverfinu.
MILIJONIR Pólverja flykktust í dag í kirkjugarða um allt landið til að
minnast látinna á allra heilagra messu, svo sem siður er. Við hlið flestra
kirkjugarða var öflugur lögregluvörður með vélbyssur, en enda þótt hvar-
vetna mætti sjá fólk sem bar fána Samstöðu, hinnar óháðu verkaíýðshreyf-
ingar sem bönnuð var í landinu í byrjun októher, er ekki vitað til þess að
nokkurs staðar hafi slegið í brýnu.
Þegar á sunnudag var byrjað
að koma fyrir blómum og kveikja
á kertum í grafreitnum í Powaski
í Varsjá, en þar er táknrænn
grafreitur hinna 4.500 pólsku
herforingja sem myrtir voru í
Katyn-skógi í síðari heimsstyrj-
öldinni. Katyn-skógur er nú inn-
an landamæra Sovétríkjanna og
enda þótt Sovétmenn hafi skellt
skuldinni á nasista á sínum tíma
eru Pólverjar yfirleitt á einu máli
um að það hafi verið Sovétmenn
sem áttu sök á fjöldamorðunum.
Pólsk yfirvöld hafa hvað eftir
annað daufheyrst við kröfum um
að reisa minnisvarða um fórnar-
lömbin í Katyn, en þrír trékross-
ar hafa verið reistir á þeim stað
þar sem Samstöðumenn hafa vilj-
að láta reisa minnisvarða. „Mað-
ur, myrtu mig ekki“ stóð á svört-
um borða sem hafði verið komið
fyrir hjá trékrossunum í dag, en
við borðann voru fest merki Sam-
stöðu.
í Brudno í úthverfi Varsjár,
hefur verið komið upp táknrænu
leiði með minnismerki þeirra
fimmtán sem hafa látið lífið í
átökum við lögregluna síðan her-
lög voru sett í Póllandi í desem-
ber sl. A sunnudagskvöld kom til
mótmælaaðgerða um 5 þúsund
manna eftir messugjörð í krikju
heilags Kostka, en við messuna
var minnzt þeirra sem hafa vérið
teknir höndum vegna stjórn-
málaskoðana. í messunni lásu
leikarar, sem hafa neitað að
koma fram í pólska sjónvarpinu
frá þvi að herlög voru sett, upp úr
ritningunni.