Morgunblaðið - 02.11.1982, Blaðsíða 30

Morgunblaðið - 02.11.1982, Blaðsíða 30
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 2. NÓVEMBER 1982 34 SIEMENS Veljid Siemens — vegna gædanna Öll matreiftsla er auðveldari, med Siemens eldavélinni: MEISTERKOCH SMITH & NORLAND HF., Nóatúni 4, sími 28300. Þessir 2 glæsilegu gæðingar eru til sölu BMW 520 árg. 1980 Beinskiptur, vökvastýri, rafmagnslæsingar, tvívirk sóllúga, stereo-útvarp, litaö gler, metalic lakk, sportfelgur. Ný innfluttur. BMW 728 árg. 1978 Glæsilegur bíll. Áskorun eftir Magnús Óskarsson Ónáðað hefur siitna samvizku mína að hafa ekki sagt aukatekið orð í þakklætisskyni fyrir þá heilsubót sem eina alvörudvöl mín á heilbrigðisstofnun hefur veitt mér. Er þar átt við 4ra vikna vist á Heilsuhæli Náttúrulækningafé- lags íslands í Hveragerði sl. vetur. Ekki veit ég betur en til þess mikla starfs, sem þar hefur verið unnið, hafi verið stofnað af áhuga- mönnum, m.a.s. einum manni um- fram alla aðra. Má vel skipa Jón- asi Kristjánssyni, lækni, á bekk með skapandi athafnamönnum svo sem Haraldi Böðvarssyni, Ein- ari Guðfinnssyni, Óskari Hall- dórssyni og Kristjáni á B.S.A. Svo langt sem þjóðfélag „vel- ferðarinnar" hefur gengið í þá átt að drepa framtak einstakra manna í dróma, er þó enn ekki slokknaður eldur allra þeirra, sem ótrauðir gera sjálfir það sem þeir trúa á. Komin eru á fleygiferð samtök slíkra manna fyrir norðan, sem að fyrirmynd og innan vébanda NLFI eru að reisa nýtt heilsuhæli á úr- valsstað í Eyjafirði. Er svo að sjá sem það starf allt sé af fyrir- hyggju unnið og raunsæi. Þessi samtök þurfa á stuðnindi að halda STRAX. Enginn hefur beðið mig orð til hneigja um þetta málefni, en allt um það hrökk samvizka mín upp með andfælum og spurði hvasst: Hver þarf næst á heilsuhvíld að halda? Hvað hefur þú gert fyrir þína heimabyggð? Má ekki finna nokkrar krónur til að gefa heima- mönnum beint í æð, um leið og greitt er niður ærkjöt ofan í Ar- aba? Ég hef enga köllun fengið til að koma grasi eða jurtasafa ofan í alla menn. (Fæðið í Hveragerði var reyndar afbragðsgott.) En ég kem ekki í svipinn auga á styttri leið til að gera gagn en að flýta fyrir því að heilsuhælið norð- lenzka taki til starfa. Þörfin er ótvíræð. Biðlistinn langi í Hvera- gerði segir sína sögu. Hann þarf að stytta sem fyrst. Ég beini því til allra góðra manna, ekki sízt norðanmanna hér sunnan heiða, að liðsinna áhuga- og athafnamönnunum fyrir norðan. Við skulum fram- kvæma án hiks það sem yfirvegun og geta segja okkur að gera í þessu Magnús Óskarsson efni. Senda t.d. NLFÍ nokkrar krónur til heilsuhælisins í Eyja- firði. Ég kann ekki nægileg skil á söfnunarkerfi norðanmanna, en ef einhver vill treysta mér, skal ég með öryggi koma hlut hans í rétt- ar hendur. Ekki megum við heldur hlífa stjórnmálamönnum, sem elnar nú atkvæðasóttin vegna yfirvofandi kosninga. En fyrst og síðast er þó að gera sjálfur það sem samvizkan býður. Ríkisstjórnin beitir sér fyrir námskeiði um áfengisvandamál Opið kl. 9—18 í dag. Úrvalið aldrei betra RÍKISSTJÓRNIN hefur ákveðið að beita sér fyrir námskeiði fyrir forsvars- menn og starfsmannastjóra opinberra stofnana og stærri einkafyrirtækja um áfengis- vandamál eins og þau snúa að atvinnulífi og vinnustöð- um, segir í frétt frá forsætis- ÆFINGASIOÐIN ENGIHJALLA 8 * «46900 Burt með slenið! Þreytuna og aukakílóin! Taktu af skarið og gerðu líkamsrækt að þinni tómstundaiðju núna strax! 15 daga æfinganámskeið fyrir byrjendur eru að hefjast. Fjölbreyttar æfingar undir stjórn þjálfara - og um leið getur þú kynnst notkun og möguleikum nýjustu líkamsræktartækja Fyrstu námskeiðin byrja mánudaginn 1. nóv. kl. 9 og 10, 14, 15 og 16 ALMENNIR TÍMAR ALLA VIRKA DAGA KL. 8 - 22 Á KVÖLDIN NÝTTU ÞÉR NÝJUSTU TÆKNI í LÍKAMSRÆKT SEM HEFUR FARIÐ SIGURFÖR UM ALLAN HEIM! INNRITUN ER HAFIN I SlMA 46900 Nuddtímar allan daginn - Einnig kvöld- tíma^-^ímapantani^^ím^^90€^^ ráðuneytinu, sem Morgun- blaðinu hefur borizt. Áfengisvarnaráð og Samtök áhugamanna um áfengisvandamál munu sjá um framkvæmd nám- skeiðsins í samráði við ýmsa opinbera aðila. Námskeiðið verður haldið í Vík- ingasal Hótels Loftleiða dagana 2. og 3. nóvember, þ.e. í dag og á morgun. Námskeiðið mun standa frá kl. 9—5 báða dagana. Leið- beinendur og fyrirlesarar munu koma frá Hazelden-stofnuninni í Bandaríkjunum, sem hefur um margra ára skeið þróað sérhæfða ráðgjöf í áfengismálum til at- vinnufyrirtækja vestanhafs með miklum árangri. Fer sá hluti nám- skeiðsins fram á ensku. Að auki munu fulltrúar frá meðferðarstofnunum ríkisins og SÁÁ gefa yfirlit um þá möguleika, sem fyrir hendi eru hérlendis til aðstoðar og meðferðar vegna áfengisvandamála. Þá munu fulltrúar frá Flugleið- um og ef til vill fleiri íslenskum fyrirtækjum skýra frá reynslu af stefnu sinni í áfengismálum starfsfólks. Fyrirlesarar og leiðbeinendur á námskeiðinu verða Paula King og Gary Hestness frá Hazelden- stofnuninni, Jóhannes Bergsveins- son, yfirlæknir meðferðarstofn- ana ríkisins fyrir drykkjusjúka, Þórarinn Tyrfingsson læknir, Stefán Jóhannsson, erindreki áfengisvarnarráðs, og Jóhann Örn Héðinsson, ráðgjafi SÁÁ. Erlendis hafa fyrirtæki af dæm- igerðri íslenskri stærðargráðu mótað sér stefnu í þessum málum með aðfenginni sérfræðiaðstoð. Ríkisstjórnin vill með þessu námskeiði kynna opinberum stofnunum sem og einkafyrirtækj- um og félagasamtökum leiðir í þessum efnum. Þátttaka takmark- ast við um 100 einstaklinga. Áfengisvarnarráð og SÁÁ veita nánari upplýsingar, en nokkur sæti eru laus á námskeiðinu. Mótmæla fjársvelti Námsgagnastofnunar „FYRIR nokkrum árum tók Náms- gagnastofnun við hlutverki Ríkisút- gáfu námsbóka og Fræðslumynda- safns ríkisins. Skólamenn hafa bundið miklar vonir við þessa nýju stofnun enda gefa lög um hana góð fyrirheit. Jafnljóst er að til þess að hægt sé að framkvæma það sem í lögunum stendur þarf fé og það talsvert. Erfitt mun líklegast reynast að meta til fjár arðsemi slíkrar fjár- festingar en þó má öllum vera Ijóst að góðir skólar þurfa góðan útbúnað og sá útbúnaður kostar peninga. Á þeim hefur hins vegar staðið til þessa. Þessvegna mótmælir Kennarafé- lag Reykjavikur, Kennarafélag KSK og Kennarafélag Reykjaness harð- lega því fjársvelti sem Námsgagna- stofnun býr við ár eftir ár. Það veld- ur því að á hverju hausti mega nem- endur og kennarar þola það, löngu eftir að skólar hefjast, að þurfa að biða eftir nauðsynlegum gögnum. Þá veldur fjárskortur og því að útgáfa nýs efnis dregst, jafnvel ár eftir ár. Því skora ofangreind félög á fjár- veitinganefnd Alþingis og fjármála- ráðherra að endurskoða fjárveitingu til Námsgagnastofnunar og sjá til þess að hún verði verulega hækkuð. Þá aðeins geta skólarnir sinnt hlut- verki sínu eins og til er ætlast." Metsölublad á hverjum degi!

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.