Morgunblaðið - 02.11.1982, Blaðsíða 5

Morgunblaðið - 02.11.1982, Blaðsíða 5
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 2. NÓVEMBER 1982 5 Martin Berkowski Nýr hljóm- sveitarstjóri Óperunnar HLJÓMSVEITARSTJÓRI ís- lenzku óperunnar, sem stjórnar hefur tónlistinni í Töfraflaut- unni, Gilbert Levin, er nú aó hætta eins og raunar hafði verið ákveðið strax í upphafi og tekur Mark Tardue við af honum og mun annast stjórn hljómsveitar- innar fram að jólum. Þá mun Eiríkur Hreinn Helgason nú byrja að syngja Papageno, en sökum veikinda hefur Steinþór Þráinsson sungið hann á fyrstu þremur sýningunum. Munu þeir síðan skipast á um að syngja hlut- verk Papageno. Þá skal þess getið, að í „Hvað er að gerast um helg- ina“, sem birt var í Mbl. á föstudag féll niður nafn Júlí- usar Vífils Ingvarssonar, sem syngur hlutverk Mónostatos- ar. Þá var þar einnig sagt að Dóra Einarsdóttir hefði saum- að búninga, en hún sá um alla útfærslu á þeim. WMKKSWlA------ “SJÓMVHRR leikliot- DEILP, 6ÓÐHN DH&J Berkowski á Háskólatónleikum: Leikur verk eftir Beethoven og Liszt Á HÁSKÓLATÓNLEIKUM i Norræna húsinu í bádeginu á morgun, mióviku- dng, leikur Martin Uerkow.ski píanó- verk eftir Ludwig van Beethoven og Franz Liszt. Martin Berkowski fæddist í Wash- ington DC árið 1943 og vakti snemma athygli fyrir píanóleik sinn og fyrir kunnáttu í rafeindafræði, að því er fram kemur í fréttatilkynn- ingu frá Tónleikanefnd Háskólans. Berkowski hlaut Fullbright-styrk til framhaldsnáms í pianóleik í Vinar- borg. Hann hlaut verðlaun National Music League Young Artist Audi- tions í New York en þeim verðlaun- um fylgdi fimm ára samningur um tónleikahald víðsvegar um Banda- ríkin. Þá hefur hann hlotið verðlaun í Vasella International Piano Com- petition. Berkowski hefur haldið tónleika víða um heim, leikið inn á hljómplötur og komið fram í útvarpi og sjónvarpi. Háskólatónleikarnir hefjast kl. 12.30 og standa í 30 til 40 mínútur. PHILIPS litsiónvörp Þeir hjá Philips eru í fararbroddi í framleiðslu lit- sjónvarpstækja. Við hjá Heimilistækjum reynum svo að bjóða sem flestar gerðir þessarar frábæru framleiðslu til þess að allir fái eitthvað við sitt hæfi: Steríó tæki 10“ CX 1130 26“ CS 3390 16“ CT 3418 staðgreiðsluverð kr 27.710,00 staðgreiðsluverð kr 33.955,00 staðgreiðsluverð kr 26.775,00 14“ CT 3005 staðgreiðsluverð kr 13.666.00 16“ CT 3015 staðgreiðsluverð kr 14.843,00 16“ fjarstýrt, staðgreiðsluverð kr 16.853,00 heimilistæki hf. HAFNARSTRÆTI 3 - 20455 - SÆTÚNI 8 - 15655 20“ C1 3010 staðgreiðsluverð kr 17.255,00 20“ 3430 fjarstýrt, staðgreiðsluverð kr 20.700,00 22“ CS 1001 staðgreiðsluverð kr 22.378,00 22“ fjarstýrt, staðgreiðsluverð kr 24.918,00 26“ CS 1006 staðgreiðsluverð kr 22.910,00 26“ 3270 fjarstýrt, staðgreiðsluverð kr 25.704,00 26“ CP 2102 „de luxe“ staðgreiðsluverð kr 30.178,00 VIÐ ERUM SVEIGJANLEGIR í SAMNINGUM

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.