Morgunblaðið - 02.11.1982, Blaðsíða 25

Morgunblaðið - 02.11.1982, Blaðsíða 25
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 2. NÓVEMBER 1982 29 Sovéskt listafólk hingað á vegum MIR HÓPIIR listafólks, tónlistarmanna og dansara frá Tadsjikistan, einu af Mið-Asíulýðveldum Sovétríkjanna, er væntanlegur hingað til lands 4. nóv. nk. til tæplega hálfsmánaðar dvalar og þátttöku í árlegum Sovéskum dög- um MÍK, Menningartengsla íslands og Ráðstjórnarríkjanna, scgir í frétta- tilkynningu frá MÍR. í hópnum eru m.a. nokkrir af fremstu listamönnum Rúbob-sveit- ar Ríkisfílharmoníunnar í Tadsjik- istan, en hún er í flokki frægustu Stórstúka íslands: Nauðsyn að mörkuð sé áfengis- málastefna MOKGUNBLAÐINU hefur borizt eft- irfarandi fréttatilkynning frá Stór- stúku íslands: „Á miðju ári 1981 boðaði forsæt- isráðherra, Gunnar Thoroddsen, nokkra aðila til viðræðu um áfeng- ismálastefnu. Tveir fundir voru haldnir, en ekki fleiri. Stórstúka íslands fagnaði þessu framtaki forsætisráðherra og óskar eindregið eftir því að viðræður verði aftur upp teknar og ákveðin áfeng- ismálastefna af hálfu hins opinbera mörkuð. Stórstúka íslands er elsta og öfl- ugasta bindindisfélag í landinu. Hún gefur út barnablaðið Æskuna, útbreiddasta barnablað á Norður- löndum. Þá rekur Stórstúkan 31 barnastúku með 3 þúsund meðlim- um og á sl. sumri gaf Unglingaregla IOGT út fræðsluverkefni um áfengi og önnur fíkniefni fyrir nemendur í 10 ára bekkjum grunnskólans. 1981 gekkst Stórstúkan fyrir víð- tæku samstarfi félaga og stofnana gegn áfengi og öðrum eiturlyfjum. Samstarf þetta hefur verið nefnt: Átak gen áfengi. í umræðum um áfengismála- stefnu leggur Stórstúka íslands einkum áherslu á eftirtalin atriði: a) Hömlur á sölu áfengis í samræmi við ályktun Heilbrigðisstofnunar Sameinuðu þjóðanna. b) Opinberir aöilar hætti vínveit- ingum á sínum vegum. c) Stöðvuð verði sala á áfengum bjór og öl- og hraðvíngerðarefn- um hér á landi. d) Eftirlit með sölu og dreifingu eiturlyfja verði stórlega hert og í því sambandi verði sett á lagg- irnar sameiginleg nefnd frá dóms-, heilbrigðis- og mennta- málaráðuneyti til samræmingar á opinberum aðgerðum." Námskeið fyrir yfirmenn í slökkviliðinu DAGANA 1.—6. nóvember verður haldið í Keykjavík námskeið á vegum brunamálastjórnar fyrir yfirmenn I slökkviliðinu um land allt. Er þetta seinna námskeiðið af tveimur sem brunamálastjórn gengst fyrir nú á stuttum tíma um brunavarnir. Hið fyrra var 11.—16. október og sóttu það 25 manns. / Þórir Hilmarsson brunamála- stjóri sagði, að aðsóknin hefði verið það mikil á þetta námskeið að ákveðið hefði verið að tvískipta því. Þarna væri um að ræða bæði fyrir- lestra og fræðilega umfjöllun auk verklegra æfinga í reykköfun, slökkvun elds með handslökkvitæki o.fl. „Það er mikill menntunaráhugi í slökkviliðsmönnum hér á landi, og komast færri að á þessu námskeiði en vilja. En við verðum með fleiri námskeið í vetur, bæði í reykköfun og um eldvarnaeftirlit og annað,“ sagði Þórir. þjóðlaga- og dansflokka sem nú starfa í Sovétríkjunum, að mestu skipuð stúlkum sem leika á rúbob, þjóðlegt tadsjiskt strengjahljóð- færi, dansa og syngja. Einnig eru með í förinni nokkrir einsöngvarar og einleikarar í fremstu röð, m.a. óperusöngkonan Ojat Sabzalíéva, dansarinn Savrígúl Kúrbanova, söngkonan Mússan Ibragimova og Vilmat-Zade konsertmeistari, kunnur píanóleikari og organisti. Þá verður með í förinni Masnún Baratov, listrænn stjórnandi Rú- bob-sveitarinnar, svo og Sergo N. Sharipov, varaformaður Vináttufé- lagsins í Tadsjikistan, T. Vakhidov tadsjiskur þingmaður og K.M. Toj- rov, fulltrúi í Æðstaráði Sovétríkj- anna. Tónleikar og danssýningar Listafólkið frá Tadsjikistan mun koma fram á tónleikum og danssýn- Stúlkur úr Rúbob-sveit Rikisfílharmoníunnar í Tadsjikistan. ingum og við ýmis önnur tækifæri hér í Reykjavík og á nokkrum stöð- um á Suður- og Suðvesturlandi, svo og í Vestmannaeyjum. Að kvöldi fimmtudagsins 4. nóv- ember verða Tadsjikarnir t.d. við opnun sýningar í Ásmundarsal við Freyjugötu á listmunum og nytja- hlutum frá heimalandi þeirra, en laugardaginn 6. nóvember kl. 2 síð- degis kemur listafólkið fram á tón- leikum og danssýningu í Austur- bæjarbíói. A undan tónleikunum og danssýningunni verða flutt stutt ávörp, Sovéskir dagar MÍR settir formlega og minnst 65 ára afmælis Októberbyltingarinnar og 60 ára af- mælis SSSR, Sambands sósíalískra Sovétríkja. Síðar þann sama dag, laugardag, verður listafólkið frá Tadsjikistan í Eden í Hveragerði, þar sem opnuð verður í listaskálan- um sýning á nokkrum listaverkum tadsjiskra myndlistarmanna. Tón- leikar og danssýning verður í Hlé- garði í Mosfellssveit sunnudaginn 7. nóvember kl. 16 og í Vestmannaeyj- um verður hópurinn 8. og 9. nóv- ember. Síðar kemur listafólkið fram á skemmtunum á nokkrum stöðum á Suður- og Suðvesturlandi, m.a. í Gunnarshólma í Landeyjum föstudag 12. nóvember. Sófasett í úrvali. " Léöur og tauáklæði V*-1-' S,.V' PREMHJ LINEAD’ORO Dcsion & f Gullverölaun fyrir hönnun og stíl ímar 3i010 svegi 111 V

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.