Morgunblaðið - 02.11.1982, Blaðsíða 17
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 2. NÓVEMBER 1982
Reykjavík:
Hjólbaröahúsiö,
Skeifunni 11, sími 31550
Hjólbarðaþjónustan
Hreyfilshúsinu, Fellsmúla 24, sími 81093
Nýbarði sf.,
Borgartúni 24, sími 16240
Mosfellssveit: o0ltudehkki*Sf‘’- ectni
Bjarkarholti, simi 66401
Nýbaröi,
Garðabær
Lyngasi 2, simi 50606
KÓDavoaur- Hjólbaröaviögerö Kópavogs
H a ‘ Skemmuvegi 6, sími 75135
sólud sngódekk
Þessi snjódekk eru sóluð eftir ströngum bandarískum staðli.
Þau hafa dúndurgóða spyrnu, endast von úr viti og eru öll með
hvítumhring. Þú ættir að hafa samband við næsta útsölustaðog
tryggja þér gang því verðið er ótrúlega lágt.
Melko Akkja
Hinir sívinsælu kuldajakkar:
-með vindþéttu vatnshrindandi ytrabyrði.
—fóðraðir með einangrandi vatti.
—dregnir saman í mittið með snúru.
-með stóra rúmgóða vasa.
-með hettu, innrennda í kragann.
-með inná-vasa með rennilás.
Nú er Melka-vetur
í HERRAHÚSINU.
BANKASTRÆTI 7
AÐALSTRÆTI4
Félag áhugamanna
um réttarsögu stofnað
FÉLAG áhugamanna um réttar-
sögu var stofnað hinn 7. október
síðastliðinn, en hlutverk félagsins
er að efla réttarsögu, íslenzka og
almenna, sem fræðigrein. í frétta-
tilkynningu, sem Morgunblaðinu
hefur borizt er skýrt frá því,
hvernig félagar innan félagsins
hyggjast ná þessum markmiðum.
Þar segir m.a.: Tilgangi sínum
hyggst félagið m.a. ná með því:
1) Að örva og styrkja rannsókn-
ir í réttarsögu, t.d. með því að
knýja á um fjárveitingar í
því augnamiði, með því að
auðvelda útgáfu íslenskra
fræðirita í réttarsögu og með
því að stuðla að auknum
bókakaupum íslenskra rann-
sóknabókasafna um réttar-
söguleg málefni.
2) Að efla réttarsögukennslu
við Háskóla íslands eða utan
hans.
3) Að kynna fræðigreinina og
niðurstöður nýrra rannsókna
fyrir félagsmönnum og öðr-
um, m.a. með erindaflutningi
og fræðslufundum.
4) Að annast eða hlutast til um
útgáfustarfsemi á þessu
sviði, eftir því sem föng eru
á, fyrst og fremst í samvinnu
við rannsóknastofnanir eða
bókaútgefendur.
5) Að efla kynni og samstarf við
erlenda réttarsögufræðinga,
tengsl við erlendar rann-
sóknastofnanir á þessu sviði
og stuðla að þátttöku íslend-
inga á ráðstefnum réttar-
sögufræðinga.
Fyrstu stjórn félagsins skipa:
Dr. Páll Sigurðsson, dósent
(formaður), Davíð Þór Björg-
vinsson, sagnfræðingur, Gunnar
F. Guðmundsson, sagnfræðing-
ur, dr. Ingi Sigurðsson, lektor,
og Steingrímur Gautur Krist-
jánsson, borgardómari. I vara-
stjórn eru séra Bjarni Sigurðs-
son, lektor, og dr. Björn Sigfús-
son, fyrrverandi háskólabóka-
vörður.
Drætti frestað í
happdrætti SATT
ÁKVEÐIÐ hefur verið að fresta
drætti í byggingarhappdrætti
SATT (Samband alþýðutónskálda
og tónlistarmanna) til 23. des. nk.,
en dráttur átti að fara fram 13.
okt. sl.
Sala miða hefur gengið ágæt-
lega og eru nú seldir um 20.000
miðar, en betur má ef duga skal,
því heildarupplag miða er 50.000.
Vinningar eru 27 að verðmæti kr.
375.000.
Fróóleikur og
skemmtun
fyrirháa sem lága!
Jólafrímerki gefin
út í annað sinn
HINN 16. nóveniber næstkomandi
gefur Póst- og simamálastofnunin út
jólafrímerki og verdur þaö í annað
skipti, sem sérstök jólafrímerki eru
gefln út hérlendis. Efnt var til sam-
keppni um gerö frimerkjanna aö
þessu sinni og hlaut Tryggvi T.
Tryggvason fyrstu verölaun, en alls
bárust 76 tillögur.
Myndefni jólafrímerkja 1982
eru jólalög, táknuð með nótum og
óhlutlægri myndskreytingu. í báð-
um merkjunum eru notuð stef úr
lagi Sigvalda Kaldalóns, „Nóttin
var sú ágæt ein“. Á öðru frímerk-
inu (300) er byrjunin á laginu, en á
hinu (350) er síðari hluti viðlags.
Myndskreytingin á merkjunum
táknar frið jólanna annars vegar
og klukknahljóm hins vegar, segir
í frétt frá Pósti og síma.