Morgunblaðið - 02.11.1982, Side 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 2. NÓVEMBER 1982
Umræður utan dagskrár á Alþingi um vaxtahækkanir Seðlabankans:
Ráðherrar deila um
lagaheimild bankans
„K(j er ekki sáttur viö vaxtahækkun
Seðlabanka, hvorki að efni né formi,"
sagði Ragnar Arnalds fjármálaráð-
herra í umræöu utan dagskrár i Sam-
einuöu þingi í gær, er hann og fleiri
ráðherrar svöruðu fvrirspurnum um
vaxtamál frá Matthíasi Á. Mathiesen
(S). Seðlabankinn hefði tekið sina
ákvörðun áður en ráðherranefnd, sem
fjallaði um þessi mál, hafði lokið störf-
um. „En ég vefengi ekki lagalegan
rétt bankastjórnarinnar til ákvörðun-
artökunnar." Þá sagðist fjármálaráð-
herra ekki reiðubúinn til að svara
fyrirspurn um það, hvort hækka ætti
afurðalán í samræmi við tillögur
bankaráös Seðlabankans. „Ég vil láta
endurskoða öll gildandi lög um pen-
ingamál,“ sagði Svavar Gestsson
félagsmálaráðherra, „og breyta laga-
ákvæðum sem varða rétt Seðlabanka
til að ákvarða vexti. Vonandi kemur
stjórnarfrumvarp um þetta efni áður
en langir tímar líða.“ Svavar taldi þó
mesta hættuna stafa af hinum nýju
útlánareglum Seðlabankans.
Steingrímur Hermannsson sjáv-
arútvegsráðherra sagði vaxta-
ákvörðunina þýða 200 m. kr. útgjöld
fyrir sjávarútveginn, og geta hugs-
anlega leitt til stöðvunar hjá ýms-
um fyrirtækjum. Ekki hefði verið
tekið tillit til þessa útgjaldaauka við
síðustu fiskverðsákvörðun. Hann
taldi og rétt að endurskoða nú þegar
útreikningsreglur lánskjaravísitöl-
unnar. Þá sagði Steingrímur að
bankastjórnin hefði ákvarðað
Símamynd Mbl.: KOK
Stimpillinn sem brotnaði og olli biluninni í togaranum Sólberg, en það er ein af
orsökum þess að frystihúsin á Olafsfirði sjá fram á hráefnisskort. Það eru þeir
Einar Ámundason og Kristinn Jónsson, nemar í vélvirkjun í Vélsmiðju Olafs-
fjarðar, sem halda á stimplinum. ---------------
Renna þarf fleiri stoð-
um undir atvinnulífíð
Olafsnrði, I. nóvember. Frá lljálmari Jóns-
syni, blaðamanni Mbl.
EINS og komið hefur fram í fréttum
er atvinnuástand á Olafsfirði nokkuð
ískyggilegt, þar sem tveir togarar af
þremur, sem séð hafa staðnum fyrir
hráefni, eru stopp. Annar vegna þess
að hann er í síipp og hinn vegna
vélarbilunar.
Af þessum sökum hefur Hrað-
frystistöð Ólafsfjarðar séð sig til-
neydda til að segja upp 50 konum,
sem unnið hafa í frystihúsi fyrirtæk-
isins. Hraðfrystihús Magnúsar
Gamalíelssonar hefur sagt upp 60 til
65 manns.
— segir Björn Þór
Ólafsson, formaður
atvinnumálanefnd-
ar ÓlafsfjarÖar
Atvinnumálanefnd Ólafsfjarðar
fundaði í dag vegna þessa máls
með fulltrúum útgerðar, fisk-
vinnslu og verkalýðs. Björn Þór
Ólafsson er formaður nefndarinn-
ar og að fundi hennar loknum náði
Morgunblaðið tali af honum.
Björn Þór sagði, að á fundinum
hefði komið fram að atvinnu-
Sjálfstæðisflokkurinn í Rvík:
Undirbúningur fyrir
prófkjör að hefjast
UNDIRBÚNINGUR fyrir prófkjör
sjálfstæðismanna í Reykjavík fyrir
næstu alþingiskosningar er hefjast,
en prófkjörið fer fram 28. og 29. nóv-
ember nk.
Blaðamaður Mbl. ræddi í gær
við nokkra þeirra sem nefndir
hafa verið sem hugsanlegir fram-
bjóðendur í prófkjörinu í Reykja-
vík, núverandi kjörnir þingmenn
flokksins eru þar undanskildir.
Þeir sem gáfu jáyrði sitt aðspurðir
um hvort þeir ætluðu að bjóða sig
fram voru eftirtaldir, í stafrófs-
röð: Esther Guðmundsdóttir,
Bessí Jóhannsdóttir, Björg Ein-
arsdóttir, Elín Pálmadóttir, Geir
Haarde, Guðmundur H. Garðars-
son, Jón Magnússon, Jónas
Bjarnason og Jónas Elíasson.
Aðeins einn sagði: „Nei, ekki að
þessu sinni," en það var Björn
Þórhallsson.
Gunnar Thoroddsen í prófkjör Sjálfstæöisflokksins?
Svara þeirri spurningu
áður en langt um líður
„ÉG MUN svara þeirri spurningu
áður en langt um líður, en ekki í
dag,“ sagði Gunnar Thoroddsen
forsætisráðherra í samtali við
Morgunblaðið, en hann var spurð-
ur hvort hann hygðist gefa kost á
sér í prófkjöri Sjálfstæðisflokks-
ins sem fram fer 28. og 29. nóv-
ember næstkomandi. Að öðru leyti
vildi forsætisráðherra ekki tjá sig
um málið.
afurðalánavexti, án samþykkis rík-
isstjórnar, en til þess hefði það ekki
lagaheimild. Myndi hann taka þetta
atriði upp í ríkisstjórn á morgun,
þ.e. í dag.
Tómas Árnason bankamálaráð-
herra sagði ekkert leyndarmál, að
tregða ihefði ríkt í ríkisstjórninni
gegn vaxtahækkun, sem væri skýr-
ingin á því hve langur tími hefði
farið í málið hjá stjórnvöldum, en
ákvörðun um vaxtahækkun hafi
verið tekin í framhaldi af bókun
hans á ríkisstjórnarfundi.
Matthías A. Mathiesen (S) bar
fram fyrirspurnir til þriggja ráð-
herra, sem frá er greint á þingsíðu
Mbl. í dag. Hann vakti athygli á því,
að formaður Framsóknarflokksins
ástandið væri ekki eins slæmt og
búið væri að lýsa og væri það leitt
að þetta ónákvæmar tölur skyldu
hafa komið í fjölmiðlum. Nú væru
10 manns á atvinnuleysisskrá á
Ólafsfirði, en frá og með næstkom-
andi miðvikudegi hefði fólki verið
sagt upp í báðum hraðfrystihúsun-
um.
Hins vegar yrðu þeir 60 til 65,
sem sagt væri upp hjá Hraðfrysti-
húsi Magnúsar Gamalíelssonar,
kallaðir aftur til vinnu á mánudag
eða þriðjudag í næstu viku, þegar
togari félagsins kæmi af veiðum. í
salthúsi félagsins hefði og yrði
engum sagt upp.
Hjá Hraðfrystihúsi Ólafsfjarðar
hafði staðið til viðgerð á vinnslusal
og hefði hún verið fyrirhuguð með-
an togari félagsins, Ólafur bekkur,
væri í slipp, þannig að þar hefði
orðið um eitthvert stopp að ræða.
Þar yrði þó um verulegt atvinnu-
leysi að ræða um tíma. Það sem
setti strik í reikninginn væri að
þriðji togarinn, sem gerður er út
frá Ólafsfirði, Sólberg, hefði bilað,
en viðgerð stæði yfir og er fyrir-
hugað, að hann komist á veiðar um
aðra helgi.
„Við viljum gjarnan koma því á
framfæri að atvinna á Ólafsfirði
hefur verið mjög mikil það sem af
er árinu,“ sagði Björn Þór. „Og
þetta sýnir okkur bezt hvað
togaraútgerð er mikilvæg fyrir
byggðarlagið."' -
Aðspurður um hvort hráefnis-
öflun annars staðar frá hefði verið
könnuð, sagði Björn Þór, að for-
ráðamenn fiskvinnslunnar hefðu
athugað það og væru engar líkur á
að það tækist.
Þá var Björn Þór einnig spurður
um hvort atvinnumálanefnd hefði
ákveðið einhverjar aðgerðir á
fundi sínum. „Það er lítið, sem við
getum gert eins og málið stendur í
dag, það verður að ráðast hvernig
fer, en þetta sýnir okkur að
atvinnulíf byggðarlagsins er mjög
einhæft og að það verður að reyna
að renna fleiri stoðum undir það,“
sagði Björn Þór Ólafsson að lok-
Prófkjör
í Norður-
landi vestra
KJÖRDÆMISRÁÐ Sjálfstæðis-
flokksins í Noröurlandskjör-
dæmi vestra hefur ákveðið að
fram fari prófkjör um frambjóð-
endur flokksins í kjördæminu
til næstu alþingiskosninga. Er
að því stefnt að prófkjörið fari
fram dagana 27.—30. nóvember
nk.
Framboð til prófkjörs skal
hafa borizt formanni kjör-
dæmisráðsins, Stefáni H.
Jónssyni, Kagaðarhóli, eða
formanni kjörnefndar, séra
Gunnari Gíslasyni, Glaumbæ,
fyrir 9. nóvember nk.
Prófkjörið fer fram eftir
reglum, sem miðstjórn Sjálf-
stæðisflokksins hefur ákveðið.
Rétt til þátttöku í prófkjörinu
hafa allir skráðir félagsmenn
sjálfstæðisfélaganna í kjör-
dæminu, frá 16 ára aldri, og
þeir aðrir, sem skrá sig á kjör-
skrá fyrir lok annars kjördags
af fjórum.
talaði hér gegn vaxtahækkun, en
varaformaðurinn væri jafnframt
formaður Seðlabankaráðs og ritari
flokksins bankaráðherra.
Halldór Ásgrímsson formaður
bankaráðs Seðlabankans sagði í við-
tali við Mbl. í gærkvöldi að banka-
stjórn Seðlabankans ákvæði vexti af
inn- og útlánum að höfðu samráði
við ríkisstjórn og bankaráð. Hins
vegar væri ágreiningur um túlkun
laga hvað varðar afurða- og rekstr-
arlán atvinnuveganna. Hann sagði
að bankastjórn Seðlabankans hefði
túlkað það þannig allt frá setningu
laganna 1979, að hér væri eigöngu
átt við þau afurðalán sem greiddir
væru af vextir til Seðlabankans.
Halldór sagði það sitt mat að lög-
gjöfin varðandi þetta þyrfti að vera
skýrari. Hann sagði aðspurður í lok-
in að vaxtahækkanirnar hefðu verið
ákveðnar með vitneskju bankaráðs
Seðlabankans.
Ekki tókst að ná sambandi við Jó-
hannes Nordal seðlabankastjóra
varðandi mál þetta í gær.
Um 300 kg pen-
ingaskáp stolið
með 250 þús-
und krónum í
PENINGASKÁP, með ávísunum og
reiðufé er nam um 250 þúsund krón-
um, var stolið úr benzínstöð Esso við
Stórahjalla 2 i Kópavogi i fyrrinótt.
Þjófarnir brutust inn í benzínstöðina
og höfðu peningaskápinn á brott með
sér. Það hefur ckki verið neitt
áhlaupaverk, því skápurinn vegur um
300 kiló.
Af andvirðinu voru um 126 þús-
und k'rónur í peningum og ávísanir
fyrir 127 þúsund krónur. Rannsókn-
arlögregla ríkisins vinnur að rann-
sókn málsins. Tveir 12 og 13 ára
gamlir drengir voru staðnir að
verki við innbrot í verzlunina
Flórída á Hverfisgötu aðfaranótt
laugardagsins.
ísland með 8 vinn-
inga eftir 3 umferðir
Frá Margeiri l*étur8Hyni, í Luzern í Sviss.
ÍSLENZKA sveitin á ólympíuskákmót-
inu hefur hlotið 8 vinninga af 12 mögu-
legum eftir þrjár umferðir, en mótið
hófst á laugardag. í 1. umferð á laug-
ardag vann fsland öruggan sigur yfir
Kýpur, 4—0. Guðmundur Sigurjóns-
son, Jón L. Árnason, Helgi Ólafsson og
Margeir Pétursson unnu allir skákir
í 2. umferð tefldu íslendingar við
Albani og lyktaði viðureign þjóð-
anna með jafntefli, 2—2. Margeir
vann, Helgi og Jón gerðu jafntefli en
Jóhann Hjartarson tapaði. 1 3. um-
ferð mætti íslenzka sveitin þeirri
skosku, og tókst íslendingum að ná
jafntefli eftir að hafa lengst af átt
undir högg að sækja. Þrjár skákir
fóru í bið, en Ingi R. Jóhannsson
gerði jafntefli. Guðmundur
Sigurjónsson tapaði fyrir McNab,
Margeir gerði jafntefli við Swanson,
en Jóni L. tókst að snúa á andstæð-
ing sinn og sigra eftir að hafa átt í
vök að verjast.
Júgóslavar eru nú í efsta sæti með
10 vinninga eftir 3 umferðir, en
V-Þýzkalandi fylgir fast í kjölfarið
með 9'Æ vinning og 1 biðskák.
Bandaríkjamenn hafa 9 vinninga og
2 biðskákir, Svíar 9 og 1 biðskák og
Sovétmenn eru hálfum vinningi á
undan íslenzku sveitinni, með 8‘/4
vinning og 2 biðskákir.
íslenzka kvennasveitin hefur 4
vinninga og eina biðskák að loknum
3 umferðum, Guðlaug Þorsteinsdótt-
ir er með heldur verri stöðu í bið-
skák gegn finnskri stúlku.
Mótsblað Jóhanns Þóris Jónssonar
hefur mælst vel fyrir og hafa 2 tölu-
blöð komið út. „Svisslendingar voru
erfiðir viðfangs og stóðu ekki að öllu
leyti við gefin fyrirheit, en við lögð-
um dag við nótt og tókst að gefa út
mótsblaðið á réttum tírna," sagði Jó-
hann Þórir.
Stjórn og stjórnarand-
staða til funda 1 dag
VIÐRÆÐUR ráöherranefndar ríkis-
stjórnarinnar við formenn stjórnar-
andstöðuflokkanna halda áfram i
dag.
Geir Hallgrímsson, formaður
Sjálfstæðisflokksins, hefur verið
boðaður á fund ráðherranefndar-
innar kl. 17 og Kjartan Jóhanns-
son, formaður Alþýðuflokksins,
síðar. í ráðherranefndinni eiga
sæti Gunnar Thoroddsen forsætis-
ráðherra, Steingrímur Her-
mannsson, formaður Framsóknar-
flokksins, og Svavar Gestsson
formaður, Alþýðubandalagsins.