Morgunblaðið - 02.11.1982, Síða 22
22
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 2. NÓVEMBER 1982
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 2. NÓVEMBER 1982
27
Utgefandi
Framkvæmdastjóri
Ritstjórar
Fulltrúar ritstjóra
Fréttastjórar
Auglýsingastjóri
hf. Árvakur, Reykjavfk.
Haraldur Sveinsson.
Matthías Johannessen,
Styrmir Gunnarsson.
Þorbjörn Guðmundsson,
Björn Jóhannsson.
Freysteinn Jóhannsson,
Magnús Finnsson,
Sigtryggur Sigtryggsson.
Baldvin Jónsson.
Ritstjórn og skrifstofur: Aðalstræti 6, sími 10100. Auglýsingar: Aö-
alstræti 6, sími 22480. Afgreiösla: Skeifunni 19, sími 83033. Áskrift-
argjald 130 kr. á mánuði innanlands. í lausasölu 10 kr. eintakiö.
Átak í
þágu lífs
jóðarátakið gegn krabba-
meini sem gert var með
fjársöfnun á laugardag bar
góðan árangur. Enginn vafi er
á því, að nú verði á tiltölulega
skömmum tíma unnt að
byggja nýja krabbameinsleit-
arstöð. Þótt læknavísindum
fleygi fram og oft berist frétt-
ir um nýja sigra í baráttunni
við þennan mannskæða sjúk-
dóm, er ljóst að forvarnar-
starfið er árangursríkast. Hin
almenna þátttaka í fjársöfn-
uninni og góðar undirtektir
undir tilmæli Krabbameins-
félags Islands eiga rætur að
rekja til þess að Islendingar
bera traust til þeirra mörgu
færu lækna sem hér starfa og
þess mikla starfs sem Krabba-
meinsfélagið hefur unnið og er
að mörgu leyti einstætt í ver-
öldinni. Með því að festa fé í
hinni nýju leitarstöð eru menn
að fjárfesta í betra og lengra
lífi. Engin fjölskylda í landinu
hefur komist hjá því að kynn-
ast beint eða óbeint, hve
þungbært krabbamein getur
orðið nái það að búa um sig og
breiðast út.
Það er skammt á milli lífs
og dauða. Læknavísindunum
hefur vissulega tekist að
lengja þetta bil. En höggið
sem menn fá því til sönnunar,
hve lífið er þó stutt, verður
þyngst þegar slys ber að hönd-
um. Þá stöndum við berskjöld-
uð og varnarlaus. Á þetta höf-
um við enn verið minnt nú síð-
ustu daga vegna hörmulegra
umferðarslysa, þar sem fimm
manns þar af fjögur ungmenni
hafa týnt lífi. I frægum út-
varpserindum á árinu 1940
ræddi Sigurður heitinn Nordal
um líf og dauða og sagði meðal
annars:
„Það er vissa, sem eg hef
fengið staðfesta bæði af eigin
reynd og öllu því, sem eg hef
haft tækifæri til þess að at-
huga og kynnast, að okkur
farnist best í þessu lífi, að við
höfum sífellda hliðsjón af
dauðanum, möguleika annars
lífs og undirbúningi þess. Því
fer mjög fjarri, að við með því
móti færum okkur þetta líf
verr í nyt, verðum dugminni
eða hamingjusnauðari. Um-
hugsunin um annað líf er sjálf
eitt af ævintýrum þessarar
jarðnesku tilveru, en auk þess
er hún besta vegaljósið til þess
að greina á milli sannra og
falsaðra gæða lífsins. Og jafn-
vel dauðinn, þótt ekkert tæki
við eftir hann, er hið frjósam-
asta efni daglegra hugleið-
inga. Það, sem við venjulega
köílurn dauða, er ekki nema
síðasti áfangi dauðans. Við
erum að deyja alla okkar ævi,
andartökin fæðast og deyja í
senn, hver stund, sem líður, er
horfin og verður ekki aftur
tekin. Sál okkar er heimtuð af
okkur á hverjum degi, í hverri
andrá. Alltaf styttist leiðin til
grafar við hvert spor, sem við
stígum. Dauðinn minnir okkur
á að lifa, lifa af alefli, vaxa,
starfa, njóta. Ef við finnum
ekki, að lífið verði því auðugra
og hvert augabragð því dýr-
mætara sem ævin styttist
meir, þá erum við alltaf að
tapa, þá kemur ekkert í tekju-
dálkinn móti útgjöldunum. Þá
verður lífið í raun og veru
alveg óviðunandi."
Þessi vísdómsorð voru mælt
áður en fyrir lá, að maðurinn
réði yfir því afli sem dugar til
að gjöreyða öllu lífi á jarð-
arkringlunni. Síðan sú stað-
reynd lá fyrir hefur dauðinn
ekki aðeins verið „hið frjósam-
asta efni daglegra hugleið-
inga,“ gegn hinni mestu ógn
heimsslita vilja allir berjast.
Með stofnun Sameinuðu þjóð-
anna átti að^era alheimsátak
gegn stríði. Árangurinn af því
hefur verið misjafn eins og
sagan sýnir frá lyktum síðari
heimsstyrjaldarinnar. Full-
trúum dauðans á alþjóðavett-
vangi hefur verið haldið í
skefjum vegna árvekni og auk-
ins öryggis.
Með þjóðarátakinu gegn
krabbameini gátu menn lagt
sitt af mörkum með því að
veita fjárstuðning. í þessu til-
viki átti hann best við. En
þjóðarátak í þágu lengra og
betra lífs er svo sannarlega
unnt að gera án þess að menn
opni buddur sínar. „Dauðinn
minnir okkar á að lifa, lifa af
alefli, vaxa, starfa, njóta,“
sagði Sigurður Nordal og
bætti síðar við í erindaflokki
sínum um líf og dauða:
„Margt mundi fara öðru vísi
í heiminum, ef hver maður
keppti fyrst og fremst við
sjálfan sig, væri alltaf að
reyna að gera betur og betur, í
stað þess að láta keppnina við
aðra vera ríkasta í huganum.
Um leið og horfið er af þroska-
leiðinni, menn fara að hugsa
um að sýnast, vera metnir af
öðrum í stað þess að vera
sjálfir sínir ströngustu dómar-
ar, er háskinn vís: svikin orð,
svikin verk, ofbeldi. Enginn
mælikvarði er til á gott þjóð-
félag annar en sá, hver skil-
yrði það býr sem flestum
þegnum sínum til sjálfstæðs
og óhindraðs þroska."
Nauðsynlegt að frysta
og salta jömum höndum
— segir Síldarútvegsnefnd, en síldarsöltun er nýlokið
LjÓMmynd Kinar
NÍJ KK nær lokið söltun Suður-
landssíldar upp í gerða samninga um
fyrirframsölu á henni og var söltun
því stöövuð í gær. Alls hafði því í
gærkvöldi verið saltað í um 200.000
tunnur og síðustu þrjá söltunardag-
ana var saltað meira hvern þeirra en
nokkru sinni áður i sögu Nuður-
landssíldarinnar. Aðeins árið 1980
tókust samningar um fyrirframsölu
á saltaðri Suðurlandssíld í meira
magni en nú. Viðbrögð síldar-
saltenda eru nokkuð misjöfn, en
talsverðar óánægju gætir hjá salt-
endum sunnan og suðaustanlands,
en þangað hefur nú borizt minna af
síld en undanfarin ár.
Vegna þessa hefur Morgunblað-
inu borizt eftirfarandi frétt frá
Síldarútvegsnefnd:
Að gefnu tilefni vill Síldarút-
vegsnefnd taka fram eftirfarandi:
1. .Á yfirstandandi vertíð hafa
tekizt samningar um sölu á
meira af saltaðri Suðurlands-
síld en nokkru sinni fyrr að ár-
inu 1980 einu undanskildu.
2. Síldarútvegsnefnd hefir látið
saltendur fylgjast mjög vel
með framvindu söltunar- og
sölumála og margsinnis bent á
að það magn sem þurfi tii að
uppfylla gerða samninga nemi
um 28—29 þús. lestum af þeim
50 þúsund lestum sem sjávar-
útvegsráðuneytið hefir heimil-
að að veiða á verðtíðinni.
3. Um síðustu helgi var öllum
söltunarstöðvum skýrt frá því
með símtölum og í símskeytum
að vegna gífurlegrar söltunar
síðustu dagana væri söltun upp
í gerða fyrirframsamninga,
aðra en samninga um sérverk-
uð síldarflök, um það bil að
Ijúka. í símskeyti nefndarinn-
ar var staðan í markaðsmálun-
um skýrð sem hér segir:
„A) Sænskir og finnskir kaup-
endur hafa tilkynnt að þeir eigi
í miklum erfiðleikum með að
taka við umsömdu samnings-
magni vegna þróunar gengis-
mála og aukins framboðs á
saltaðri síld frá öðrum löndum
og hafa þeir farið fram á lækk-
un samningsmagns. í telex-
skeytum frá Samtökum
sænskra síldarkaupenda segir
að verð frá Norðmönnum á
stærri og feitari síld úr norsk-
íslenska stofninum sé nú um 25
prósentum lægra en íslenska
verðið og írska, skoska og kan-
adiska verðið sé um 40 prósent-
um lægra. Þá segja samtökin
Frá sildarsöltun í Höfn í Hornafirði.
ennfremur að kryddsíld, sem
söltuð er í vaxandi mæli í Sví-
þjóð, sé um 50 prósentum ódýr-
ari en íslenska síldin.
Kaupendum hefur verið til-
kynnt að ekki sé unnt að verða
við óskum þeirra um lækkun á
umsömdu magni.
B) Unnið hefur verið að því að
undanförnu, bæði beint og
fyrir milligöngu viðskiptaráðu-
neytisins og sendiráðs Islands í
Moskva að fá Sovétmenn til að
auka kaup sín en þær tilraunir
hafa engan árangur borið.
Sendiherra íslands i Moskva
tilkynnti viðskiptaráðuneytinu
og SÚN sl. föstudagskvöld að
afioknum fundi með forsvars-
mönnum Prodintorg að frekari
saltsíldarkaup komi alls ekki
til greina m.a. vegna gjaldeyr-
isskorts.
Þá hafa Sovétmenn eins og
Svíar og Finnar margsinnis til-
kynnt að þeim standi til boða
að kaupa saltaða sild frá ýms-
um öðrum löndum á um 40 pró-
sent lægra verði en samið hef-
ur verið um við íslendinga.
Það skal fram tekið að Sovét-
menn hafa fyllilega staðið við
öll fyrirheit varðandi saltsíld-
arkaup frá íslandi.
C) Sölur til landa Efnahags-
bandalags Evrópu eru útilok-
aðar vegna hárra tolla á salt-
aðri síld frá íslandi auk þess
sem mikið framboð er í ýmsum
iöndum bandalagsins á langt-
um ódýrari síld.
D) ítrekaðar tilraunir hafa
verið gerðar til að selja saltaða
síld til ýmsra annarra landa
svo sem Bandaríkjanna,
A-Þýskalands og Póllands en
án árangurs m.a. vegna þess að
ekki er unnt að framleiða salt-
aða síld á íslandi fyrir það verð
sem kaupendur í þessum lönd-
um geta sætt sig við.
E) Með tilliti til framanritaðs
er hér með brýnt fyrir saltend-
um að víkja í engu frá þeim
reglum sem settar eru hverju
sinni um söltunarmagn hverr-
ar tegundar og hvers stærðar-
flokks. Mistök í því efni geta
valdið stórfelldu fjárhagslegu
tjóni fyrir viðkomandi söltun-
arstöð."
4. Þrátt fyrir ástandið á síldar-
mörkuðunum og þau viðbrögð
kaupenda sem fram koma hér
að framan, hefir tilraunum til
viðbótarsölu á saltaðri síld ver-
ið stanzlaust haldið áfram og í
dag tókst í símtali við V/O
Prodintorg í Moskva munnlegt
samkomulag við Sovétmenn
um fyrirframsölu á 10.000
tunnum. í símtalinu settu Sov-
étmenn það fram sem ófrá-
víkjanlegt skilyrði að viðbót-
armagnið verði eingöngu heil-
söltuð síld úr ódýrasta stærð-
arflokki og hefir saltendum
þegar verið tilkynnt með sím-
skeyti um þetta viðbótarsam-
komulag. Það skal tekið fram
að auk þessa viðbótarmagns er
eftir að salta nokkuð af sér-
verkuðum síldarflökum.
5. Enda þótt Síldarútvegsnefnd sé
óviðkomandi skipulag veið-
anna og sala á frystri síld, hef-
ir hún hvað eftir annað bent á
nauðsyn þess að taka síldina
frá upphafi vertíðar jöfnum
höndum til söltunar og fryst-
ingar þannig að ekki skapist
vandræði hjá síldveiðibátunum
þegar söltun upp í gerða samn-
inga er lokið.
Þrátt fyrir þessar aðvaranir
Síldarútvegsnefndar hefir svo
til allur síldaraflinn til þessa
fariö til söltunar og síðustu
þrjá dagana hefir verið saltað
meira hvern dag en nokkru
sinni fyrr í sögu Suðurlands-
sildarinnar.
AA lokum skal sérstök athygli
vakin á því, að markaður fyrir salt-
aða síld er mjög takmarkaður og
hvergi í heiminum hefir á undan-
Fornum árum verið hlutfallslega salt-
að jafn mikið af síldaraflanum og á
íslandi, enda er saltsíldarframleiðsl-
an meiri á íslandi en í nokkru öðru
landi að Sovétrikjunum einum und-
anskildum.
Liðlega 12,8 milljónir króna söfnuðust í „Þjóðarátaki gegn krabbameini“:
„Söfnunin sannkallaö þjóðarátaku
„SÖFNUNIN reyndist sannkallað
þjóðarátak og hún gekk vonum
framar," sögðu þau Eggert Ás-
geirsson og Elsa Hermannsdóttir
hjá Landsráði gegn krabbameini í
samtali við Mbl., er þau voru innt
eftir því hvernig landssöfnun ráðs-
ins um helgina hefði gengið. „AIIs
söfnuðust liðlega 12,8 milljónir
króna um helgina, en fjárframlög
eru ennþá að streyma inn.“
í Reykjavík söfnuðust 4.403 þús-
und krónur, eða 52 krónur á mann, í
Reykjanesi söfnuðust 2.193 þúsund
krónur, eða 42 krónur á mann, á
Vesturlandi söfnuðust 933 þúsund
krónur, eða 62 krónur á mann, á
Vestfjörðum söfnuðust 648 þúsund
krónur, eða 62 krónur á mann, í
Norðurlandi vestra söfnuðust 596
þúsund krónur, eða 56 krónur á
mann, í Norðurlandi eystra söfnuð-
ust 1.416 þúsund krónur, eða 55
krónur á mann, á Austui h ndi sofn-
uðust 855 þúsund krónni eða 66
krónur á mann, og á Seði'rhndi
söfnuðust 1.102 þúsund krónur, eða
56 krónur á mann. Óstaðsett söfn-
uðust 658 þúsund krónur. Kostnað-
ur vegna söfnunarinnar var um 410
þúsund krónur, eða um 3,20% af því
sem kom inn.
Það kom fram í spjallinn við þau
Eggert og Elsu, að stefnt h fði verið
að því, að safna a.m.k 70 krónum á
hvern mann í landinu. Nokkrir rtsð-
ir náðu því. í öxnada! sö'm'.ðastu
189 krónur á mann, 37- któnur að
Laugum, 116 krónur I Bakkafirði,
107 krónur á Reyðarfirði, 105 krón-
ur í Grítnsey, 95 krónur á EsHfirði,
89 krónur á Þórshöfn, 85 krórur á
Breiðdalsvík, í Borgarnesi og Húsa-
vík, 74 krónur á Stöðvarfirði, 73
krónur í Búðardal og 71 króna á
Vopnafirði.
Þau Eggert og Elsa vildu koma á
framfæri sérstökum þökkum til
landsmanna, sem tóku söfnunar-
fólki í langflestum tilfeilum mjög
LANDSrFIRLIT
1 KJBRDffhl ÞUS KR kr/mann
reykjavik reykjrnes vesturland 1 VE8TFIRDIR nordurland v N0RDURLAND E RUSTURLAND SUDURLAND 0STADSETT 4403 2198 933 648 596 1416 855 1102 658 52 42 62 62 56 55 66 56 |
8AHTALS 12809 55
kostnadur 410
kostnadur * 3 »20
vel. „Söfnunin tókst í raun mun bet-
ur heldur en við höfðum þorað að
vona,“ sögðu þau Eggert og Elsa
ennfremur.
Aðspurð um hvort safnazt hefði
nægjanlegt fjármagn til að byggja
hina nýju krabbameinsleitarstöð
Krabbameinsfélags íslands, sögðu
þau Eggert og Elsa, að nokkuð vant-
aði ennþá þar á. „Þetta fór hins veg-
ar mjög langt og gert er ráð fyrir,
að hafizt verði handa þegar í vor.“
Aðstandendur söfnunarinnar
vildu koma á framfæri sérstöku
þakklæti til fjölmargra fyrirtækja
og auglýsingastofa, sem gáfu ýmist
gerð auglýsinganna eða birtingu
þejrra.
í kjölfar söfnunarinnar nú er ver-
ið að hrinda af stað sérstakri söfnun
meðal fyrirtækja landsins, en áætl-
að er, að sú söfnun standi yfir
næstu þrjá mánuðina.
Á slysstað
í Ólafsfirði
Mikil hálka var á veginum þegar tvíburabræðurnir Nývarð og Frí-
mann Konráðssynir biðu bana í Olafsfjarðarmúla. Bifreiðin kastað-
ist um 100 metra niður hlíðina.
Mor^unMaAiA Svavar Maj'nús.son
Stjórnmálaskóli Sjálfstæðisflokksins:
Kennsla í ýmsum þáttum þjóðmála —
ræðumennsku og framkomu í sjónvarpi
STJORNMÁLASKÓLI Sjálfstæðisflokksin.s hefst á mánudaginn, og mun skól-
inn að þessu sinni starfa dagana 8. til 13. nóvember. Að þessu sinni er skólinn
heilsdagsskóli, sem starfar daglega frá kl. 9 til 19, með matar- og kaffihléum.
Stjórnmálaskóli Sjálfstæðisflokksins hefur nú verið starfræktur í 44 ár, að
sögn Hönnu Klíasdóttur á skrifstofu fulltrúaráðs sjálfstæðisfélaganna í
Reykjavík, sem unniö hefur að undirbúningi skólans að þessu sinni.
„Stjórnmálaskólinn hefur að öllu
jöfnu verið starfræktur tvisvar á
ári,“ sagði Hanna í samtali við
blaðamenn Morgunblaðsins, „bæði
vor og haust. Annars vegar hefur
verið um að ræða dagskóla, og hins
vegar kvöld- og helgarskóla, og á
þann hátt hefur verið hægt að gefa
fólki kost á að velja á milli eftir því
hvort formið hentar betur. Skólinn
hefur notið vinsælda og yfirleitt
hafa nemendur verið á milli 20 og
30 talsins. Aðsókn hefur heldur
aukist en hitt á síðari árum, og það
er gleðilegt að sjá, að það fólk sem
hér hefur sótt nám hefur oft orðið
leiðandi í félagslífi á eftir í hinum
ýmsu félögum og á mörgum sviðum
þjóðlífsins. Auknar vinsældir skól-
ans eru okkur hvatning til að halda
áfram, og reynsla síðustu ára sýnir
ljóslega að þörf er fyrir skóla af
þessu tagi.“
— Er skólinn ætlaður sjálfstæð-
ismönnum einvörðungu?
„Nei, það er ekki skilyrði að nem-
endur þurfi að vera flokksbundnir
sjálfstæðismenn. Skólinn er ætlað-
ur öllum þeim sem áhuga'hafa á
íslenskum þjóðmálum, og við höf-
um lagt áherslu á að fá sem leið-
beinendur kunna menn úr hinum
ýmsu stéttum þjóðfélagsins og
menn sem vegna starfa sinna eða
menntunar búa yfir einhverri sér-
Vestmannaeyjar:
Vélhjól og bif-
reið í árekstri
Vestmannaevjum, 1. nóvember.
UMFERÐARSLYS varð hér um há-
degisbilið í dag, þegar vélhjól lenti á
bifreið, sem sveigði í veg fyrir vél-
hjólið.
Pilturinn kom akandi norður
Hlíðarveg, en bifreiðin kom suður
götuna og hugðist ökumaður
hennar beygja yfir að netaverk-
stæði við götuna. Skipti engum
togum, að bifhjólið skall á hlið bif-
reiðarinnar og kastaðist öku-
maður þess í götuna. Meiðsl pilts-
ins urðu sem betur fer ekki alvar-
leg, þar sem hann hafði öryggis-
hjálm á höfði. — hjk.
þekkingu er að gagni megi koma
við kennslu á þessum vettvangi.
Hinu er svo ekki að neita, að sjálf-
sagt nýtist þessi þekking þeim best
sem fylgja grundvallarhugsjónum
Sjálfstæðisflokksins, enda flokkur-
inn sá sem að skólanum stendur.
En að venju verður lögð áhersla á
það í skólastarfinu að kynna nem-
endum hina ýmsu þætti þjóðmála
svo sem uppbyggingu launþega og
atvinnurekendasamtaka, stjórn
efnahagsmála, utanríkis- og örygg-
ismál, starfshætti og sögu ís-
lenskra stjórnmálaflokka, stjórn-
skipan, stjórnsýslu, kjördæmamál,
sveitastjórnarmál. Auk þess er
ræðumennska stór hluti í kennsl-
unni, ásamt fundarsköpum, al-
mennu félagsstarfi og uppbyggingu
og formi greinaskrifa. Þá gefst
nemendum tækifæri til að heim-
sækja, undir leiðsögn, Alþingi,
Morgunblaðið, fundarsal borgar-
stjórnar og sjónvarpið, en einn lið-
urinn í kennslunni er einmitt þátt-
ur fjölmiðla í stjórnmálabarátt-
unni og þar gefst nemendum tæki-
færi til að reyna sig í sjónvarpi."
Innritun í skólann stendur nú yf-
ir, en að sögn Hönnu verður að
takmarka fjölda nemenda og eru
þeir sem áhuga hafa á námi við
skólann að þessu sinni, því beðnir
að láta skrá sig sem fyrst. Skrán-
ingar eru teknar niður í síma
82900, en skólagjaldið er 450 krón-
ur að þessu sinni, og er í því inni-
falin greiðsla fyrir skólagögn og
kaffiveitingar.
Ilanna Klíasdóttir á skrifstofu full-
trúaráðs sjálfsta'ðisfélaganna, en hún
hefur annast undirhúning Stjórnmála-
skólans að þessu sinni.
I.josm.: Kmilía Hj. Kjörnsdóliir
Eru afmælisgreinar ótíma-
bærar minningargreinar?
Eftir Leif Sveinsson
lögfrœðing
Minningargreinar og afmælis-
greinar hafa lengi verið sérís-
lenskt fyrirbæri, sem hvergi á sér
hliðstæðu í blaðaheiminum ann-
ars staðar. Minningargreinar eiga
sér þó svo fastan sess, að líklegt
er, að þær verði langlífar í dag-
blöðum hér á landi. Menn ættu þó
að hafa í huga að nákomin ætt-
menni eða tengdafólk geri sem
minnst af því að rita um sína nán-
ustu. Það hefur aldrei þótt við
hæfi.
En um afmælisgreinar gegnir
gerólíku máli. Þeim er ég andvíg-
ur og svo tel ég vera um flesta
lesendur Morgunblaðsins. Afmæl-
isgrein er ekkert annað en ótíma-
bær minningargrein.
Til er hópur manna, sem hefur
það að atvinnu, að skrifa afmælis-
greinar um fólk, en hér er sýnis-
horn af auglýsingu sem birtist í
Dagblaðinu fyrir nokkru: „Tek að
mér að skrifa eftirmæli og afmæl-
isgreinar. Viðtalstími frá kl.
11—12 f.h. Helgi Vigfússon, Ból-
staðarhlíð 50, sími 36638.“ Þessir
menn taka ríflegar greiðslur fyrir
Leifur Sveinsson
greinar sínar, en dagblöðin birta
þetta ókeypis.
En nú er að birta til. Mér er
fullkunnugt um það, að ritstjór-
um Mbl. er meinilla við að birta
afmælisgreinar um fimmtuga og
sextuga menn og hafa aldrei
frumkvæði að slíku. Þegar menn
hafa náð sjötugs aldri hafa þeir
iðulega fengið birta um sig af-
mælisgrein, t.d. í Mbl. Síðan hefur
komið ný afmælisgrein á fimm
ára fresti meðan líf entist. Með
vaxandi lífslíkum íslendinga
hljóta allir að sjá, að hér stefnir í
hreint óefni.
Fyrir daga útvarps og sjón-
varps, á tímum samgönguleysis
og allsleysis, var það skiljanlegt,
að menn vildu halda upp á afmæli
sín með eftirminnilegum hætti.
En nú eru gerbreyttir tímar. Af-
mælisgreinarnar standa eftir eins
og nátttröll í blaðaheiminum.
Lesendur Mbl. eiga kröfu á læsi-
legra efni en þessum ótímabæru
minningargreinum.
Fyrir allmörgum árum fann
einhver snillingurinn upp á því,
að panta um sig afmælisgrein í
dagblaði einu, en lét þess getið, að
afmælisbarnið yrði að heiman á
afmælisdaginn! Þetta þótti svo
bráðfyndið að í áramótaskaupi út-
varpsins á gamlársdag þetta ár
klykkti Ómar Ragnarsson út með
þessari tilkynningu: „Afmælis-
barnið var aftur að heiman {
nótt.“
Reykjavík, 1. nóvember,