Morgunblaðið - 28.12.1982, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - 28.12.1982, Blaðsíða 20
20 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 28. DESEMBER 1982 Sovézkur hervagn í Kabúl, höfuðborg Afganistan, á innrásardaginn. Rossi kjörinn „knatt- spyrnumaður Evrópu“ Innrásinni í Afganistan mótmælt í mörgum löndum Nýju Ikdhi, Los Angeles og Nikosíu, 27. desewber. Al*. MÖRG hundruð manns frá Afgan- istan, jafnt karlmenn, konur og börn, minntust þess í dag í Nýju I)elhi, höfuðborg Indlands, að þrjú ár eru liðin frá því að Sovétríkin réðust inn í heimaland þeirra, Afg- anistan og komu þar á fót komm- únistastjórn undir forystu Babrak Kaupmannahöfn, 27. dosombcr. AP. SKYNDIVERKFÖLL hafnarverka- manna í því skyni að mótmæla fyrir- hugaðri lækkun á atvinnuleysisbótum breiddust í dag út eins og eldur i sinu um hafnir Danmerkur og höfðu það í Hir með sér, að uppskipun og útskipun lamaðist í mörgum höfnum þar í landi. f Kaupmannahöfn var tilkynnt af hálfu hafnarverkamanna, að þeir myndu ekki koma til vinnu fyrr en 7. janúar nk. í Árósum, sem er næst stærsta höfn Danmerkur, var tilkynnt að hafnarverkamenn ætli að halda að sér höndum þangað til 3. janúar, en þá hyggjast þeir halda fund til þess að ákveða, hvort þeir eiga að snúa til vinnu eða ekki. Tilgangurinn með verkföllunum Karmals. Nú eru yfir 100.000 her- menn í innrásarliði Sovétríkjanna i Afganistan. I Nýju Delhi hrópaði mótmæla- fólkið „Niður með KGB“, „Niður með kommúnismann" og „Lengi lifi Múhameðstrúin". Mótmælend- urnir báru stóra græna og hvíta er að mótmæla áformum ríkis- stjórnar hægri- og miðflokkanna um að skera niður styrk til þeirra, sem ekki hafa atvinnu nema að nokkru leyti, um rúmlega 20% frá og með 1. janúar nk. Þessi sparnað- aráform eru þáttur í löggjöf, sem núverandi minnihlutastjórn Dan- merkur lét samþykkja á þjóðþing- inu nú í haust, en samtök bæði verkamanna og atvinnurekedna hafa haldið því fram, að þessi lækk- un eigi eftir að bitna of harkalega á sumum verkamönnum. Er því hald- ið fram, að sumir hafnarverkamenn og fiskimenn stundi þess konar at- vinnu, að þeir hafi ekki vinnu nema 18—20 klukkustundir á viku. I höfninni í Hirtshals á Norður- 1'arÍN, 27. de.semfxT. Al'. ÍTALSKI markakóngurinn Paolo Rossi bætti í kvöld enn einni skrautfjöðrinni í hatt sinn er hann var útnefndur „Knattspyrnumaður Evrópu" af hinu virta franska tíma- riti „France Football“. íþróttafrétta- menn frá 26 Evrópulöndum taka þátt í kjöri þessu, sem nú fór fram í 27. sinn. Rossi varð í sumar heimsmeist- ari með ítalska landsliðinu í loka- keppni HM á Spáni. Til að bæta um betur varð hann markahæsti maður keppninnar og var að henni lokinni kjörinn besti leikmaður hennar. Rossi hafði algera yfirburði í borða sem á stóð: „Sovétríkin eru óvinir Múhameðstrúarinnar" og „Bjargið Afganistan, bjargið Ind- landi“. Mótmælafundinum lauk með því að samþykkt var ályktun, þar sem Sovétríkin voru fordæmd. Hundruð afganskra manna komu saman á mótmælafund á Jótlandi skýrðu hafnaryfirvöld svo frá í dag, að verkamenn væru að reyna að koma í veg fyrir það með valdi, að færeyska flutningaskipið Lómurinn yrði affermt. Sögðu hafn- aryfirvöld, að verkamenn, sem stæðu utan við verkalýðsfélög, yrðu teknir til þess að afferma skipið, en af hálfu þessarar verkamanna var neitað að vinna að affermingu skipsins undir lögregluvernd. Síðast þegar fréttist, var sjálf áhöfn skips- ins tekin til við að afferma það. Þegar eru farnar að berast fréttir um, óstaðfestar að vísu, að verka- menn í hafnarborgum í öðrum lönd- um í Vestur-Evrópu hyggist efna til samúðaraðgerða gagnvart skipum, sem fara eiga til Danmerkur. kjörinu og hlaut 47 stigum meira en sá, sem næstur honum kom, Al- ain Giresse frá Frakklandi. Röð tíu efstu manna varð annars, sem hér segir: 1. Paolo Rossi, Ítalíu, 115 at- kvæði, 2. Alain Giresse, Frakk- landi, 68 atkvæði, 3. Zbigniew Boniek, Póllandi, 53 atkvæði, Bruno Conti, Ítalíu, 48 atkvæði, Karl-Heinz Rummenigge, V- Þýskalandi, 47 atkvæði, 6. Renat Dasaev, Rússlandi, 17 atkvæði, 7. Pierre Littbarski, V-Þýskalandi, 10 atkvæði, 8. Dino Zoff, Ítalíu, 9 atkvæði, Michel Platini, Frakk- landi, 5 atkvæði, og 10. Bernd Schuster, V-Þýskalandi, 4 atkvæði. sunnudag í Los Angeles í Banda- ríkjunum til þess að mótmæla innrás Sovétríkjanna í heimaland þeirra. í Bonn í Vestur-Þýzkalandi fóru menn hundruðum saman S mótmælagöngu að sendiráðsbygg- ingu Sovétríkjanna þar í borg, en þar er búsett margt fólk frá Afg- anistan. Þeir héldu á grænum og hvítum borðum, sem á stóð: „Afg- anistan lifir, niður með KGB“. Mótmælaganga þessi fór friðsam- lega fram. Annar hópur fólks frá Afganist- an í Bonn lét frá sér fara sérstaka yfirlýsingu í dag, þar sem mót- mælt var „svívirðilegu ofbeldi og hernámi Sovétríkjanna í Afgan- istan". í tilkynningu, sem vestur- þýzki jafnaðarmannaflokkurinn kunngerði í dag, var skorað á allar ríkisstjórnir heims að hefja „sam- stilltar aðgerðir gegn stjórnvöld- um í Moskvu til þess að finna skynsamlega lausn á styrjöldinni í Afganistan". Slík lausn yrði að fela í sér „ótakmarkað fullveldi og sjálfstæði afgönsku þjóðarinnar". í íran efndu flóttamenn frá Afganistan til mótmælafundar fyrir framan sovézka sendiráðið í Teheran, höfuðborg írans. Á fundi þessum var samþykkt ályktun, þar sem hvatt var til stofnunar á ísl- ömsku lýðveldi í Afganistan og skorað á alla þá sem berðust gegn stjórn Karmals, að sameinast. Veður víða um heim Akureyri *4 snjóél Amsterdam 6 skýjaó Aþena 14 heiðskírt Berlín 7 skýjaó BrUssel 11 skýjað Buenos Aires 40 heiðskírt Chicago 4 rigning Dyflinni 9 heiðskírt Feneyjar 12 skýjað Frankfurt 4 rigning Faareyjar 3 haglél Genf 6 heiöskirt Helsinki 5 skýjað Hong Kong 16 heiðskírt Jerúsalem 13 skýjað Jóhannesarborg 27 heiöskírt Kairó 23 skýjað Kaupmannahöfn 7 rigning Las Palmas 18 léttskýjaö Lissabon 10 skýjað London 10 heiðskirt Los Angeles 18 skýjað Madrid 14 heiöskírt Malaga 15 heiðskírt Mallorca 15 hálfskýjaö Mexíkóborg 20 heíðskírt Miami 25 heiöskírt Montreal -10 skýjað Moskva -1 skýjað Nýja Delhí 23 heiðskírt New York 17 skýjaö Ósló 4 heiðskírt París 10 skýjaö Reykjavik -2 (>oka Rio de Janeiro 31 heiðskírt Róm 13 heiðskfrt San Francisco 11 skýjað Stokkhólmur 4 rigning Tókýó 13 heiöskírt Vancouver 8 skýjað Vín 4 heiðskírt Forsetadótt- urinni sleppt (.ualt-mala-borg, 27. desember. Al'. IIINNI 33 íra gömlu dóttir Ilondur- a.s-forsota var í gær sleppt úr haldi, en mannræningjar hafa haft hana undir höndum síðustu vikurnar. Ræningjarnir gerðu það að kröfu sinni fyrir lausn konunnar, að til- kynning frá baráttuhópi þeirra væri birt í öllum dagblöðum í Mexíkó og Mið-Ameríku. Það var gert á fimmtudaginn, og í gær var Judith Zionmara Suazo Estrada skilað í sendiráð Honduras í Guatemala. Skyndiverkföll hafnar- verkamanna í Danmörku Jóhannes Páll páfi í jólaboðskap sínum: Megi bræður mínir í Póllandi öðlast von Hetlehem, Kóm og London, 27. desember. Al*. MIIN FÆRRI pílagrímar komu til Betlehem, fæðingarbæjar Krists, en undanfarin ár og er efnahags- kreppu í heiminum, einkum Bandaríkjunum og Vestur-Evrópu, kennt um, en þaðan koma að jafn- aði flestir pílagrímar til Betlehem til þess að vera viðstaddir jólahá- tíðina. Að þessu sinni voru aðeins 3.000 manns staddir á torginu við Fæðingarkirkjuna svonefndu, er messa var sungin þar á jólanótt, en stundum hafa þá verið þar saman komnir 15.000 manns. Fæðingar- kirkjan og torgið í kring var að venju veglega prýtt vegna jólahá- tíðarinnar. Hátíðarhöldunum lauk á jóladag með því, að erkibiskup- inn í Jerúsalem gekk í fararbroddi fyrir pílagrímagöngu frá Fæð- ingarkirkjunni, sem reist var fyrir 800 árum, til haga fjárhirðanna, þar sem sagan segir, að Betle- hemsstjarnan hafi fyrst sést. Þetta er annað árið í röð, sem ferðamönnum í Betlehem fer fækkandi og er talið, að þeir hafi ekki verið fleiri en 25.000 að þessu sinni, sem þangað komu vegna jólahátíðarinnar og er það um 40% færra en í fyrra. Þetta er mikið áfall fyrir efnahag borgarinnar, sem byggir að verulegu leyti á komu ferðafólks. Veður var hins vegar gott á jóla- dag og hátíðahöldin fóru vel fram. Israelskt varðlið fylgdist þó vandlega með því að hermd- arverkamenn eða skæruliðar PLO hefðu sig ekki í frammi. — Við óskum þess, að ljós þessarar nætur megi berast til allra jarðarbúa og þá einkum til þeirra, sem þjást, sagði Páll páfi II í sinni hefðbundnu jólaræðu, „Urbi et Orbi“ (Til borgarinnar og heimsins). Páfinn flutti jóla- boðskap sinn af svölum Péturs- kirkjunnar í Róm og voru um 50.000 manns viðstaddir, er páf- inn flutti jólakveðjur á 42 tungu- málum. — Ég óska þess innilega, að bræður mínir og systur í Pól- landi og þá einkum þau, sem að- skilin hafa verið frá fjölskyldum sínum, megi öðlast nýja von, sagði páfinn á pólsku. — Við þessar erfiðu aðstæður í föður- landi mínu, bætti hann við, ætti boðskapur fæðingar Krists að fá sérstaka þýðingu. Þá minntist páfinn ennfremur á Samstöðu, samtök frjálsu verkalýðsfélag- anna í Póllandi, sem kaþólska kirkjan hefur stutt eindregið. Ræðu páfa var ekki sjónvarpað beint til Póllands og var þetta þriðja árið í röð, sem henni er ekki sjónvarpað þangað. Þá var ræðunni ekki sjónvarpað heldur til neinna annarra kommúnista- landa, enda þótt henni væri sjónvarpað beint til 30 landa í Évrópu, Asíu, Afrík'u og Jóhannes Páll páfi II rómönsku Ameríku. Elísabet II Bretlandsdrottning flutti sinn árlega jólaboðskap á jóladag og bar þar lof á brezka herliðið, sem tókst að ná aftur Falklandseyjum úr höndum Argentínumanna fyrr á þessu ári. Var ávarpi drottningar út- varpað og sjónvarpað til þeirra 47 landa, sem aðild eiga að brezka samveldinu og var það í samræmi við fyrri hefð, en afi drottningar, Georg konungur V, flutti fyrstur jólaboðskap í út- varpi fyrir 50 árum. I ræðu sinni nú sagði Elísabet drottning m.a.: Fyrr á þessu ári gerði floti okkar sjómönnum okkar, hermönnum og flug- Margrét Thatcher mönnum kleift að fara íbúum Falklandseyja til hjálpar um 8.000 mílur yfir hafið (12.800 km), þar sem þeir sýndu þann kjark og þá getu, sem þarf til þe3s að geta varið grundvallar- mannréttindi. Síðar í ræðu sinni minntist Bretadrottning ennfremur á þann „geysimikla stuðning", sem Bretland hefði fengið hvaðan- æva úr samveldinu, á meðan Falklandseyjadeilan stóð yfir. Ræða drottningar hefur vakið nokkurt fjaðrafok á meðal vinstri manna í Bretlandi, sem hafa haft uppi ásakanir í hennar garð um að vera að skipta sér af stjórnmálum með ummælum sínum.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.