Morgunblaðið - 28.12.1982, Side 40

Morgunblaðið - 28.12.1982, Side 40
40 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 28. DESEMBER 1982 j,£.g Vcit cÁ þú Ótt cxPmatL'i bróÁum, en h\jqÍ> get 'eg keypt har\ola komu servy cx dílt ?" ást er ... TM R«q U.S Pat. Off.—all riQhts reserved •1982 Los Angetes Times Syndicate ... að gera það sem hækkar blóðþrýsting hans. Dokaöu aðeins við, forstjórinn er á fundi! HÖGNI HREKKVÍSI 1982 McNaught Synd . Inc. „...06 HÉR. ER HEKBERGIP L rr.ALVEÓ E/NS 0 ' þ1'' SKILDIR Ví A.í/ Margt sem mig furð- ar á í skrifum fólks G.G. skrifar: „Mig hefur lengi langað til að pára þér línu, en tíminn verið lít- ill. Það er svo margt sem mig furðar á í skrifum fólks, en þá fyrst finnst mér nú kasta tólfun- um, þegar það getur verið að láta minningargreinaskrif um fólk sem það þekkir ekki neitt fara í taug- arnar á sér. Það er sagt að við getum bara slökkt á útvarpi eða sjónvarpi, ef okkur líkar ekki efn- ið. Og þá hlýtur að vera ennþá minni vandi að sleppa því bara að lesa minningargreinar. Annars er það nú alveg forkast- anlegt annað veifið, hvað Sjón- varpið leyfir sér að bjóða landslýð uppá í því sem á að heita skemmt- efni, og því miður eru íslensku þættirnir engir eftirbátar hinna útlendu í sóðaskap og óþverra. Það er dálítið hart að borga fullt gjald fyrir sjónvarp og verða svo helst að hafa það lokað mikinn hluta útsendingartímans. Annars ætla ég ekki að vera svo neikvæð að telja allt ómögulegt. Margir þættir eru ágætir. Sér- staklega vil ég skora á sjónvarpið að fá ungmennin, Önnu, Garðar og Ágústu, til að syngja aftur. Það var frábært efni. Nýlega las ég grein eftir ein- hvern sem var mikið að fjargviðr- ast út í þá sem ganga í hús og selja fyrir jólin, kort og annað slíkt. Taldi hann það jafnvel brot á frið- helgi heimilanna og að gömlu fólki væri gerður hinn mesti grikkur með slíkum heimsóknum, á þess- um síðustu og verstu tímum, þeg- ar ráðist er á gamlar konur og þær rændar. Auðvitað er slíkt óafsak- anlegt og mundi ég greiða því at- kvæði mitt, að þeir sem slíkt stunda, yrðu flengdir opinberlega hæfilega fast á beran botninn, og þá á ég við, að skömmin yrði þyngri á metunum en sársaukinn. Samt vil ég nú vona, að flestu af blessuðu fullorðna fólkinu okkar sé forðað frá að eyðileggja líf sitt með sífelldum ótta við að eitthvað hendi, sem svo aldrei verður. Satt að segja er ég ein af þeim sem hef lagt það á mig, ég vil orða það svo, fyrir gott málefni, að fara í hús og selja kort, og sem betur fer þá telst það til undantekninga, að maður verði var við svo nei- kvæð viðhorf sem komu fram í umræddum pistli. En þeir sem eru neikvæðir virðast bara verða svo miklu duglegri að tjá sig í blöðun- um ferUniö hin og er það leitt. Eg held meira að segja að margt blessað eldra fólkið sé bara fegið að fá kort og slíkt heim til sín, ekki síst ef það á bágt með að komast í búðir og hefur fáa til að snúast fyrir sig. Pólk er yfirleitt mjög elskulegt og margir bros- andi, jafnvel þótt þeir afþakki kortin. Sumir, gæti ég trúað, eru nógu einmana til þess að þykja það agnartilbreyting að tala við ókunnuga í útidyrunum stundar- korn. Svo að ég hef ærna ástæðu til að ætla að sem betur fer séu það ekki margir, sem finnst frið- helgi heimilanna sé rofin, þótt stutt sé á bjölluhnappinn. Enda held ég að þeir ættu þá ekki að vera að hafa neina dyrabjöllu." Ekki nema einn af mörg þúsund sjómönnum og öðrum lífeyrisþegum — sem svona hafa verið leiknir Þessir hringdu . . . Rödd hans mætti hljóma oftar á öldum ljósvakans María Björgvinsdóttir hringdi og hafði eftirfarandi að segja: — Ég er unnandi góðrar söng- listar og legg ævinlega við hlustir, þegar listamenn okkar á því sviði láta til sín heyra í útvarpi eða sjónvarpi. Einn af ágætustu söngvurum okkar, Friðbjörn G. Jónsson, kysi ég að heyra miklu oftar á öldum Ijósvakans en raun hefur borið vitni. Ég minnist þess aðeins að hafa heyrt rödd hans tvívegis í útvarpi á árinu sem er að líða, þó að vel geti verið að það hafi nú verið oftar. En í bæði þessi skipti líkaði mér söngur hans dá- vel og lagavalið. Er ekki til hljómplata með söng hans? Auðunn Auðunsson skrifar: „I Velvakanda 17. desember sl. birtust bréf frá tveimur köppum um þá heimsku að greiða vexti af sparifé innlánseigenda. Þessir menn heita dr. Magni Guð- mundsson og Lúðvík Eggertsson. Mér hefði ekki komið á óvart, þó að annar Lúðvík, þ.e. nafni hans Jósepsson, hefði skrifað í þessa veru. En á sömu opnu Velvakanda í sama blaði skrifar þriðji maður- inn, Guðmundur Magnússon. Vaxtakjör hafa leikið hann þann veg, að hann fær aðeins einn þriðja af vöxtum þess fjármagns sem hann hefur unnið fyrir og lagt inn í lífeyrissjóð. Ég il upplýsa, að sjómenn á Norðurlöndum og í Þýskalandi hafa fyrir mörgum árum komist á eftiriaun mun fyrr en Guðmundur taiai urn, . eftir 25 ára v< ru á -jó. Dr. Magni Guðmundsson, mikið hljóta skrif Guðmundar Magnús- sonar að hafa glatt þig. Tekist hef- ur að ræna einn sjóara um tvo þriðju af eignum sínum. En dr. Magni, ég get glatt þig enn þá meira. Guðmundur Magnússon er ekki nema einn af mörg þúsund sjómönnum og öðrum lífeyrisþeg- um, sem svona hafa verið leiknir. Andvirði 150 skuttogara var flutt milli sparifjáreigenda og lífeyr- issjóða til lántakenda á síðasta áratug einum. En mér er hulin ráðgáta, hvers vegna bankarnir og aðrar lánastofnanir eru æ ofan í æ að reyna að plata fólk til að spara OR leggja sparifé sitt inn hjá sér. Mér er til efs, að það dugi við braskarana og væri sýnu betra að borga auglýsingakostnaðinn í hærri vexti. En svona dulspeki skilja sennilega ekki aðrir en doktorar." Kriðbjörn G. Jónsson

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.