Morgunblaðið - 28.12.1982, Blaðsíða 35
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 28. DESEMBER 1982
35
fólk í
fréttum
Bing Crosby og
David Bowie á
hljómplötu ...
+ Árið 1977 að haustlagi fóru
saman í upptökusal þeir Bing
Crosby og David Bowie og
sungu saman tvö lög, „Peace on
Earth“ og „Little Drummerboy".
Þessi litla plata er nú um þaö bil
að slá öll sölumet í Evrópu.
Bing Crosby lést síöan mán-
uöi eftir aö hljóöritunin fór fram,
en kynni þeirra félaga, sem voru
stutt, hófust þegar þeir voru
fengnir í sjónvarpsþátt saman í
Lundúnum. Öllum aö óvörum, aö
því er sagan segir, tókst meö
þeim mikill vinskapur og munu
þeir hafa komiö víöa viö í sam-
ræöum sínum.
Ástæöan fyrir því aö platan
kom ekki á markaöinn fyrr en á
þessu ári kvaö vera sú, aö ekkja
Bing Crosby, Catherine, setti sig
upp á móti útgáfu hennar og
ekki náöust samningar milli
ekkjunnar og útgáfufyrirtækisins
RCA ..
David Bowie og Bing Crotby,
söngvarar á einna mest seldu
jólaplötunni í ár.
Díana áhyggjufull
+ Díana prinsessa af Wales kvaö
vera æfareiö um þessar mundir
vegna þess aö stjúpmóöir henn-
ar hefur tekiö sig til og selt lista-
verk af æskuheimili hennar, Al-
thorp Hall. Hún mun hafa selt
fjöldann allan af myndum úr höll-
inni, sem er um 62 herbergi aö
stærö, en Althorp Hall hefur jafn-
an þótt ein þeirra halla í Bret-
landi sem hefur aö geyma hvaö
mesta dýrgripina.
Listunnendur í Bretlandi hafa
einnig veriö áhyggjufullir vegna
þess sem þeir kalla „útsölu“ í
höllinni, og segja aö ef fólk ætli
sér á annað borö aö selja dýr-
gripi eigi þeir aö láta kunnáttu-
menn um verkiö þannig aö þeir
seljist aö minnsta kosti á réttu
veröi ...
Díana mun ekki vera aö hugsa
um sinn eigin hag í þessum mál-
um, heldur lýst henni ekki á
þessa framkomu sem hún segir
vera svíviröilega gagnvart yngri
bróöur hennar Charles, sem er
erfingi hallarinnar og eignanna
þegar aö því kemur. Charles er
átján ára aö aldri og gengur í
menntaskóla, en hann mun hafa
hug á aö leggja fyrir sig hag-
fræöinám í framtíöinni.
Peningana sem Laföi Spencer
hefur fengiö fyrir listaverkin mun
hún hafa lagt í viðgeröir á höll-
inni, og hún hefur ekkert annað
um máliö aö segja en: „Heimili
okkar er í dag í betra ásigkomu-
lagi en þaö hefur nokkurn tima
verið“ .. og skyldi engan undra.
COSPER
w _ 1 1] & Æ
Í; l g
©n* ~ 913) COSPER
— Má ég vera með?
Leikarar á
frumsýningu
+ Mynd þessi sýnir Dudley Moore
ásamt samstarfsmönnum hans
Mary Tyler Moore (þau munu ekki
vera skyld) og Katherine Healy er
þau komu til aö vera viöstödd
frumsýningu myndar sinnar „Six
Winds" í síöastliöinni viku.
í sátt og samlyndi
+ Mick Jagger og vinkona hans
Jerry Hall eru nú tekin saman aö
nýju eftir smáhvíld er til kom vegna
heiftarlegs rifrildis, aö því er kunn-
ugir segja. Þau hafa veriö á feröa-
lagi um heiminn aö undanförnu, og
feröast undir nafninu herra og frú
Vincent og falin bak viö svört gler-
augu. Þau komust samt sem ekki
hjá því aö þekkjast og sjást hér
glöö í bragöi ...
Styrkir úr Menningarsjóði
Theódórs Johnson
í samræmi viö skipulagsskrá Minningarsjóðs
Theódórs Johnson hefur háskólaráö ákveðið að
úthluta hinn 22. janúar 1983 tveimur styrkjum að
fjárhæð kr. 5.000.- hvorum.
í 4. gr. skipulagsskrár sjóösins segir m.a.:
„Þeim tekjum, sem ekki skal leggja við höfuðstól
skv. 3. gr. skal variö til að styrkja efnilega en
efnalitla stúdenta, einn eða fleiri, til náms við Há-
skóla íslands eða framhaldsnáms erlendis að
loknu námi við Háskóla íslands."
Umsóknum skal skilað á skrifstofu háskólans fyrir
10. janúar 1983.
Háskóli íslands
Sex bombur
og skothólkur
saman í pakka
Prumur
sem segja sex.
*
FLUGELDAMARKAÐIR
HJÁLPARSVEITA SKÁTA