Morgunblaðið - 11.02.1983, Side 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 11. FEBRÚAR 1983
Vísitölumálið:-
Miðstjórn ASÍ varar
við skerðingarhótunum
og harmar úrræðaleysi
MIÐSTJÓRN Alþýðusambands l'slands samþykkti á fundi sínum í dag eftirlif-
andi ályktun samhljóða:
„Vísitölumál hafa verið mjög til
umfjöllunar í fjölmiðlum að undan-
förnu. Af því tilefni vill miðstjórn
ASÍ að eftirfarandi komi fram.
1. í samingaviðræðum á síðastliðnu
sumri lýsti Alþýðusambandið sig
reiðubúið til þess að semja um að
nýr vísitölugrunnur yrði tekinn í
notkun við útreikning yísitölu
framfærslukostnaðar. Á því
strandaði, að Vinnuveitendasam-
bandið hafnaði nýja grunninum
nema nýir frádráttarliðir yrðu
jafnhliða teknir upp við verð-
bótaútreikning. Ekkert bendir til
að afstaða verkalýðssamtakanna
verði önnur í komandi samning-
um.
2. Alþýðusambandið hefur ávallt
verið reiðubúið til þess að ræða
breytt vísitölufyrirkomulag. Af-
staða Alþýðusambandsins hefur
mótast af því sjónarmiði að nýtt
viðmiðunarkerfi yrði að tryggja
kaupmátt ekki síður en núver-
andi kerfi. Rétt er að minna á að
samkvæmt erindisbréfi og sér-
stakri yfirlýsingu ríkisstjórnar-
innar skyldi svonefnd vísitölu-
nefnd hafa þetta sjónarmið að
meginmarkmiði.
Yfirlýsingar einstakra valds-
manna að undanförnu ganga þvert á
ofangreind sjónarmið. Krafist er
aukinnar verðbótaskerðingar með
nýjum frádráttarliðum og lengingu
verðbótatímabila. Miðstjórn ASl
fordæmir þessi viðhorf. Ljóst er að
efnahagsvandinn verður ekki leyst-
ur með síendurteknum kjaraskerð-
ingum. Miðstjórnin bendir á, að frá
því í desember hefur verkafólk þol-
að verulega kjaraskerðingu til við-
bótar almennri tekjurýrnun á árinu
1982. I kjölfar þessarar kjaraskerð-
ingar hefur ekki bólað á efnahags-
aðgerðum stjórnvalda á öðrum svið-
um.
Miðstjórn Alþýðusambands fs-
lands varar við skerðingarhótunum
einstakra ráðamanna og harmar
það úrræðaleysi sem í þeim opinber-
ast.“
Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn:
Ræddu um að efla lán-
tökuheimild sjóðsins
HINN 10. febrúar var haldinn í Washington DC í Bandaríkjunum
fundur í bráðabirgðastjórnarnefnd Alþjóðagjaldeyrissjóðsins undir
forsæti Sir Geoffrey Howe, fjármálaráðherra Bretlands. f nefndinni
eiga sæti ráðherrar eða fulltrúar þeirra frá aðildarlöndum sjóðsins,
segir í fréttatilkynningu frá Seðlabanka íslands.
A fundinum voru ræddar efna-
hagshorfur í heiminum um þessar
mundir, svo og hlutverk Alþjóða-
gjaldeyrissjóðsins. Ræddar voru
tillögur um að efla lántökumögu-
leika sjóðsins og þar með tækifæri
Rangt nafn
f FRÁSÖGN af málflutningi í
Hæstarétti, sem birtist á miðsiðu
Morgunblaðsins í gær var rangt
farið með nafn eins þeirra, sem
sækja rétt sinn gagnvart ríkis-
valdinu. Nafn hans er Valdimar
Olsen. Morgunblaðið harmar þessi
mistök og biður hlutaðeigandi af-
sökunar.
hans til að liðsinna þeim ríkjum,
sem eiga við efnahagsörðugleika
að etja.
Dr. Jóhannes Nordal, seðla-
bankastjóri, flutti ræðu á fundin-
um f.h. Norðurlandanna fimm, en
Jóhannes er nú fulltrúi landanna í
bráðabirgðastjórninni. Hann
ræddi m.a. hið alþjóðlega efna-
hagsástand og gerði grein fyrir
hugmyndum Norðurlandanna um
hvernig vinna mætti bug á þeim
efnahagserfiðleikum, sem nú er
við að fást.
í máli sínu vék dr. Jóhannes
Nordal einnig að málefnum Al-
þjóðagjaldeyrissjóðsins og mælti
fyrir hugmyndum Norðurland-
anna um möguleika á að auka
ráðstöfunarfé sjóðsins.
Jón I. Bjarnason
ritstjóri
JÓN I. Bjarnason, ritstjóri og blaóa-
fulltrúi Kaupmannasamtaka ís-
lands, er látinn í Reykjavík 61 árs aó
aldri, en hann var fæddur 8. júní
1921 á Ingjaldssandi.
Jón lauk búfra-óiprófi frá Bænda-
skólanum á llvanneyri og stundaói
síóan nám vió Samvinnuskólann. I>á
stundaói Jón framhaldsnám í bú-
fræóum í Svíþjóð.
Jón réðst til starfa hjá Kaup-
mannasamtökum íslands árið
1963, sem blaðafulltrúi samtak-
anna og ritstjóri Verzlunartíð-
inda, tímarits samtakanna, og
gengdi Jón þessum störfum til
dauðadags.
Jón hafði áður starfað sem
kaupmaður um langt árabil og
m.a. verið í fulltrúaráði Kaup-
mannasamtaka íslands og rit-
nefnd Verzlunartíðinda.
Jón er þekktur fyrir störf sín að
útivistarmálum, bæði innan
látinn
Ferðafélags fslands og síðar
Ferðafélagsins Útivistar.
Eftirlifandi eiginkona Jóns er
Lilja Maríasdóttir og áttu þau
hjónin sex börn.
Vestmannaeyjum, 10. Tebrúar.
ÞESSI bíll tók upp á því um daginn aó bregóa sér mannlaus í heimsókn til nágrannans í Hrauntúninu í Eyjum.
Þarna háttar svo til að mikill hæðarmunur er á lóðum og renndi bfllinn sér beinustu leið fram af háum steyptum
vegg og stakkst á trýnið inn á lóó. Var eins gott að hann stöóvaðist þarna því stefna bflsins var beint á
stofuglugga hússins og má því segja að betur hafi farið en á horfðist. Skemmdir uróu ekki verulegar.
— hkj.
Borgarstjórn:
Keldnasamningurinn
samþykktur í gærkveldi
— um 1750 íbúðalóðir verða á svæðinu ir sem yrðu byggingarhæfar árin
BORGARSTJÓRN samþykkti á auka
fundi í gærkveldi samning borgar-
stjóra og menntamálaráöherra um
málefni Keldna og Keldnaholts, en
samningurinn kveöur á um maka-
skipti á löndum og um stöðu stofnana
ríkisins á svæðinu. Samningurinn var
samþykktur að viðhöfðu nafnakalli
með 12 atkvæðum borgarfulltrúa
Sjálfstæðisflokksins gegn 7 atkvæð-
um fulltrúa Alþýðubandalags,
Kvennaframboðs og Alþýðuflokks.
Annar fulltrúi Framsóknarflokks sat
hjá, en hinn var fjarstaddur, en hafði
áður boðaö hjásetu sína í bókun.
Davíð Oddsson borgarstjóri sagði
við umræðurnar, sem stóðu fram á
tólfta tímann í gærkveldi, að með
þessu samkomulagi væri verið að
tryggja framtíðarbyggð borgarinn-
ar á svæðinu meðfram Grafarvogi.
Benti hann á að með samkomu-
laginu væri í raun verið að ganga
frá kaupum borgarinnar á yfir 110
ha lands úr landi Keldna, sem borg-
in fengi með hagstæðum hætti.
Vakti borgarstjóri athygli á því að
með þessum samningi væri sýnt og
sannað að raunhæfur möguleiki
hafi-verið á að tryggja ijorginni
land á þessu svæði, þrátt fyrir
málflutning vinstri meirihlutans
fyrrverandi, sem engum samning-
um hefði ætlað sér að ná.
Davíð sagði að miðað við skipulag
fyrrverandi meirihluta hefði verið
gert ráð fyrir að 104 ha lands yrði
varið til íbúðabyggðar á þessu
svæði, en núverandi landnotkunar-
tillaga gerði ráð fyrir því að íbúða-
byggðin verði um 140 ha.
Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson,
formaður skipulagsnefndar sagði
við umræðurnar, að þetta sam-
komulag væri þannig úr garði gert,
að bæði ríki og borg gætu vel við
unað og væri um jöfn skipti á landi
að ræða. Við Grafarvog væri hag-
kvæmt og fallegt byggingarsvæði
og samkvæmt samkomulaginu væri
hægt að hefja þar framkvæmdir nú
þegar. Sagði hann að gert yrði ráð
fyrir að á svæðinu yrðu um 1.750
íbúðir og í ár yrðu 390 byggingar-
hæfar, þar af værí um 250 einbýlis-
húsalóðir að ræða. Þá kæmu og til
úthlutunar í ár 500 einbýlishúsalóð-
1984 og 1985.
Fulltrúar minnihlutans lögðust
við umræðurnar gegn samningnum
og töldu hann óhagstæðan fyrir
borgina. Töldu þeir að borgin hefði
samið af sér og langtímahagsmun-
um hefði verið fórnað fyrir stund-
arhagsmuni. Fulltrúar Framsókn-
arflokksins sögðu, að samnig þenn-
an mætti einkum þakka mennta-
málaráðherra, enda hefði hann
beitt sér fyrir því að samningar
næðust.
7 ráðherrar og 6
ráðuneytisstjórar
á Norðurlandaþingi
SJÖ íslenskir ráðherrar og sex ráðuneytisstjórar verða á þingi Norður-
landaráðs í Osló dagana 21. febrúar til 25. febrúar næstkomandi.
Ráðherrarnir eru Gunnar
Thoroddsen forsætisráðherra,
Tómas Árnason viðskiptaráð-
herra, Svavar Gestsson félags-
málaráðherra, Hjörleifur Gutt-
ormsson iðnaðarráðherra, Frið-
jón Þórðarson dómsmálaráð-
herra, Ingvar Gíslason mennta-
málaráðherra og ólafur Jóhann-
esson utanríkisráðherra. Eigin-
konur ráðherranna allra munu
einnig fara til Osló, að konu
Hjörleifs Guttormssonar undan-
skilinni.
Ráðuneytisstjórarnir, sem
verða í Osló eru Guðmundur
Benediktsson, Brynjólfur Ing-
ólfsson, Hallgrímur Dalberg,
Páll Flygenring, Birgir Thorlac-
ius og Ingvi Ingvason. Eiginkon-
ur þeirra allra munu einnig fara
utan.
Ráðherrarnir sem heima
verða á meðan á þinginu stendur
eru því þeir Steingrímur Her-
mannsson sjávarútvegsráðherra,
Pálmi Jónsson landbúnaðar-
ráðherra og Ragnar Arnalds
fj ármálaráðherra.
Auk ráðherranna sem fara
utan, munu sex alþingismenn
sitja þingið, þeir Eiður Guðna-
son, Halldór Ásgrímsson,
Matthías Á. Mathiesen, Páll Pét-
ursson, Stefán Jónsson og Sverr-
ir Hermansson.