Morgunblaðið - 11.02.1983, Blaðsíða 7
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 11. FEBRÚAR 1983
7
Innilegar þakkir til frænda og vina sem sendu mér
gjafir, blórn og skeyti á 70 ára afmœlinu 25. janúar.
Kærar kveðjur
Trausti Jónsson
Skúlagötu 56, Reykjavík.
ÖRYGGI
GÆÐI
ENDING
TS'iöamaíkadulinn
s&ttttisgötu 12- /
Golf GL 1982
Hvítur, ekinn 9 þús., síisallstar og
ýmislegt fl. Verö 210 þús.
Peugeot 504 pick-up 1981
Ljósblár, ekinn 7 þúsund, útvarp
snió- og sumardekk. Verð 150 þús.
Subaru 1800 1982
Rauöur, ekinn 22 þús., snjó- og
sumardekk, sem nýr bíll. Verð 225
þús.
Audi 100 Dísel 1980
Grásanz, ekinn 92 þús., 5 cyl vél,
útvarp, snjó- og sumardekk (með
mæli) Verö 280 þús.
Mazda 626 2000 1981
Grænn, ekinn 26 þús. Sjálfskiptur,
aflstýri, útvarp, segulband, sóllúgs
o.fl. Verö 168 þús.
Daihatsu Chared 1982
Rauöbrúnn, ekinn 35 þús. Sjálfskipt-
ur. Útvarp, segulband. Verö 155 þús.
Honda Prelude 1981
Hvitur, ekinn 11. þús. Útvarp, sóllúga.
Verö 195 hús.
Peugeot 505 S.R. 1982
Blár, ekinn 4. þús. Sjálfskiptur, afl-
stýri, sóllúga. Verð 320 þús.
Húshitunar-
kostnaður
Húshitunarkostnaöur
skapar veigamikið búsetu-
misrétti. Sumstaðar þurfa
launamenn að greiða fjór-
faldan húshitunarkostnað,
miðað við heitavatnsverð á
höfuðborgarsvæðinu. Allt
að helmingur daglauna
verkamanns gengur til
rafmagns- og hitunarkostn-
aðar þar sem þessi kostn-
aður er mestur!
Alþingi samþykkti á
sinni tíð 1,5% gjald á sölu-
skattsstofn, orkujöfnun-
argjald, sem ganga átti til
að jafna, að vissu marki,
hitunarkostnað f landinu.
Þetta gjald gaf 190 m.kr.
1982. Ríkisstjórnin varði
hinsvegar aðeins 30 m.kr.
af þessari fjárhæð til jöfn-
unar. Samkvæmt fjárlög-
um 1983 gefur þetta gjald
315 m.kr. í tekjur, en að-
eins á að verja 67 m.kr. til
jöfnunar. Það er því ríkis-
stjórnin, undir forystu
orkuráðherra og fjármála-
ráðherra (beggja úr Al-
þýðubandalagi), sem hefur
brugðist, bæði trúnaði Al-
þingis og fólkinu, sem
þyngstu byrðar ber í jæssu
efni.
Það er svo kapítuli út af
fyrir sig að þetta sama
ríkisvald heldur heita-
vatnsverði frá Hitaveitu
Reykjavíkur undir kostn-
aði, til að lækka verðbætur
á laun, líka laun þeirra
sem búa við háan hitunar-
kostnað, vegna þess að
„vísitölufjölskyldan" býr,
reikningslega, við heita-
vatnsverð í Reykjavík,
jafnvel þótt hún þreyi verð-
bólguþorrann og dýrtíðar-
góuna í kjördæmum Ragn-
ars Arnalds og Hjörleifs
Guttormssonar! Það er allt
á eina bók lært hjá jæssum
„kaupverndunarpólitíkus-
um“ og „kosningar eru
kjarabarátta" eins og
menn muna.
Framsóknar-
menn taka
Reyknesinga
og Reykvík-
inga í karp-
húsið
Nær hvarvetna í veröld-
inni — þar sem lýðræði
ríkir — eru menn jafnir að
Ff»m*ók«»rfJofckurimi.
Töpuð ár (,0/s.[o)
Þjtlðviljinn getur þess í fyrradag. að þrjú ár séu liðin
frá myndun núverandi rikisstjórnar. Hjörleifur Guttorms-
son gat þess í rteðu utn helgina, að fjðgur ár v*ru liðín
síðan hann varö iðnaðarmáíaráðherra.
Aiian þann ttnia hefur raforkuverðið, sem álbræðslan
dðir, haldi/.t óbreyts Hjörletfur eetur ekki kvattað
:i«.iaa |»vt. að b.arsn haQ eki i fengið að ráða ferðínni
tngað tii
Niðurstjidan er ftðait iómtö ár Þ.Þ.
„Blesspartýið“
byrjað
Stjórnarliöar standa nú í miklum önnum:
kveðjuorðin til samstarfsaðila í ríkisstjórn
hrannast upp í málgögnum þeirra. Tíminn
gat þess í leiöara í gær aö fjögur ár væru
liðin frá því Hjörleifur Guttormsson,
„lok-lok-og-læs-ráöherra“ Alþýöubanda-
lagsins, settist á veldisstól. Fyrir þessi
fjögur ár fær Hjörleifur eftirfarandi Tíma-
einkunn: „Allan þennan tíma hefur raf-
orkuverðið, sem álbræöslan greiðir,
haldizt óbreytt. Hjörleifur getur ekki
kvartað undan því, að hann hafi ekki
fengiö aö ráöa ferðinni. NIÐURSTAÐAN
ER FJÖGUR TÖPUÐ ÁR.“ Niöurstaöa
Tímans spannar ríkisstjórnina í heild,
ráöherrana alla, þó samfelld ráöherra-
seta þeirra sé mismunandi, sumra þrjú,
annarra fjögur „töpuö ár“.
áhrifum um skipan þjóð-
þinga, enda eiga mannrétt-
indi, eins og kosningarétt-
ur, art vera óháð búsetu.
Flestir sanngjarnir menn
eru þeirrar skoðunar að
stíga eigi afgerandi spor í
átt til slíks jöfnunar hér á
landi; nálgast það í áföng-
um, ef ekki einu stökki. En
ekki framsóknarmenn!
Sem dæmi um framsókn-
armálflutning (sem dæmir
sig sjálfur) er hér birtur
óstyttur leiðari úr fram
sóknarmálgagninu I)egi, 4.
febrúar sl.:
„Svokölluð samtök
áhugamanna um jafnan
kosningarétt hafa nú tekið
til starfa í Reykjavík. At-
hyglisvert er að flestir
framámenn þessara sam-
taka eru fyrrum forgöngu-
menn samtakanna sáluðu
sem nefndu sig „Varíð
land". Þau samtök gengust
fyrir skoðanakönnun um
afstöðu manna til herstöðv-
armálsins og vakti öll starf-
semi samtakanna miklar
deilur og dómsmál risu út
af ýmsu því sem sagt var
um samtökin. Nú ætla
sömu menn að gangast
fyrir skoðanakönnun um
jöfnun kosningaréttarins.
Könnunin nær að sjálf-
sögðu aðeins til höfuðborg-
arsvæðisins, enda vart
ástæða til að kanna hug
íbúa landsbyggðarinnar í
þessu máli.
Þetta er sýnishorn af því
sem koma skal. Allt fram-
kvæmdavaldið er í Reykja-
vík, löggjafarvaldið er þar
staðsett. æðsti dómstóll
landsins, öll æðri menntun
og megnið af allri opinberrí
þjónustu. Hvað varðar svo
landsbyggðarfólkið um það
hvernig landinu er stjóm-
að? fbúar landsbyggðar-
innar hafa það jú langt um-
fram fbúa höfuðborgar-
svæðlsins að eiga greiðari
aðgang að náttúrudásemd-
um landsins, eins og ein af
röksemdum skeleggs bar-
áttumanns fyrír jöfnum
kosningaréttar hljóðaði. En
hver tekur mark á svona
þvaðri? Einu náttúniundr-
in sem landsbyggðarbúar
umgangast meira en höfuð-
borgarbúar tengjast
brauðstritinu — sjávarút-
vegi og landbúnaði — sem
ásamt framleiðshiiðnaði
leggja til efnin í bakstur
þjóðarkökunnar. Stærstu
bitar hennar eni hins vegar
etnir á höfuðborgarsvæð-
inu.
Einhver jöfnun kosn-
ingaréttarins er sjálfsögð,
en á meðan eins mikið
misrétti ríkir á öðrum svið-
um þjóðlífsins og raun ber
vitni væri algjör jöfnun
kosningaréttarins vísasta
leiðin til að auka enn á
þennan órétL Eða eins og
konan sagði: Við þurfum
enga þingmenn ef við fáum
Alþingi."
STÓRMARKAÐSVERÐ
Geriö verösamanburö
Coop grænar baunir 1/1 d. kr. 19,85
Coop bl. grænmeti 1/1 d. kr. 23,40
Leni eldhúsrúllur 2 stk. kr. 24,75
C-11 þvottaefni 3 kg. kr. 87,70
Vex þvottalögur 2 I. kr. 38,15
Vinnuskyrtur 3 geröir frá kr. 99,00
Herrastígvél (græn) kr.295,00
Dömustígvél (svört) kr. 125,00
Bollapör kr. 37,00
Úrvals saltkjöt og baunir fyrir sprengidag.
Kynnum
föstudag kl. 4—8
Pizzur frá Halta
Hananum.
Ávaxtasafa
frá Sanitas
kynningarverð
STÓRMARKAÐURINN
Opiö til kl. 22.00
föstudaga
og hádegis laugardag.
Skemmuvegi 4A,
Kópavogi