Morgunblaðið - 11.02.1983, Blaðsíða 38

Morgunblaðið - 11.02.1983, Blaðsíða 38
38 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 11. FEBRÚAR 1983 Heimsbikarkeppnin á skíðum: Sigurvegarinn gerði fæst mistök — yfir 30 stúlkur úr leik í svigkeppninni í Maribor „Eg gerði nokkur smávægiieg mistök í keppninni — í báöum ferðum,“ sagöi Erika Hess, Sviss, eftir að hafa sigraö í svigkeppni í heimsbikarnum í fyrradag í Mari- bor í Júgóslavíu. Menn voru sammála um aö varla væri hægt að segja aö sigur- vegarinn hefði fariö brautina af Luscher aftur á toppnum Peter Luscher, Sviss, er nú aft- ur orðinn efstur í stigakeppninni um heimsbikarinn á skíðum eftir að hafa sigrað í risastórsvigi í Garmisch Partenkirchen í Þýska- landi í fyrradag. Var það fyrsta keppnin í heimsbikarnum sem fram hefur getað farið í Þýska- landi í vetur en þar hefur verið mjög snjólítiö hingað til. Samanlagöur tími Luschers var 1:36.45. Annar var landi hans Pirmin Zurbriggen á 1:36.65. Eftir keppnina er Zurbriggen kominn í þriöja sætiö í stigakeppninni, er meö 138 stig, Phil Mahre er annar meö 146, en Peter Luscher er efst- ur sem fyrr segir meö 160 stig. mestri leikni — heldur hefði hún gert færri mistök en keppinautar hennar. Yfir 30 stúlkur luku ekki keppni, en aðstæður voru mjög erfiöar. Veöur var ekki heppilegt, þar sem þoka lá yfir svæöinu og einnig snjóaði á meöan á keppn- inni stóö, og brautin sem notuð var í fyrri ferðinni þótti verulega erfiö yfirferöar. • Peter LUscher „Akveðin í að halda titlinum“ „Þessi sigur sannar aö ég er á batavegi eftir aðgeröina á hnénu,“ sagöi Hess, en hún var skorin upp í sumar. Hess er aöeins tvítug aö aldri og sigraöi í heimsbikarnum f fyrra. „Nú er ég ákveöin í því aö halda heimsmeistaratitlinum," sagöi hún í samtali viö AP. Hanni Wenzel, Liechtenstein, sagöi aö hún væri „mjög ánægö“ meö sinn árangur, en hún varö í ööru sæti. „Ég er að komast aftur í góöa æfingu — þaö er þaö sem máli skiptir," sagöi hún og var greinilega aö hugsa um Ólympíu- leikana í Sarajevo á næsta ári. Hún vann tvö gull á leikunum 1980. Samanlagöur tími Eriku Hess var 1:42,96, Hanni Wenzel fór á 1:42,96, og þriðja var Anni Kron- bichler, Austurríki, á 1:43,10. Hess er nú í efsta sæti í stigakeppninni í svigi meö 90 stig og Hanni Wenzel er önnur meö 87 stig. í Þessari keppni komst hún upp fyrir bæöi Tamara McKinney, Bandaríkjun- um, og Maria Rosa Quario, Italíu, sem duttu báðar í fyrri ferðinni. Wenzel efst í stigakeppninni Hanni Wenzel, Liechtenstein, er nú í efsta sæti samanlögöu stiga- keppninnar með 170 stig, Tamara McKinney, Bandaríkjunum, er önnur meö 162 og Erika Hess er þriöja meö 160 stig. • Jimmy Connors (t.v.) og Maria Navratilova voru kosin bestu tennis- leikarar í heimi á síðastliðnu ári. Eru þau auðvitað mjög vel að þeim heiöri komin. Connors sigraði t.d. bæði á Wimbledon og á Opna bandaríska meístaramótinu, og Navratilova á Wimbledon og Franska meistaramótinu. Connors hefur lengí staðið í eldlínunni og undanfarin ár veríð einn sá besti í heimi. John McEnroe var „sá besti í heimi“ í hittiðfyrra, en nú var Connors sem sagt útnefndur. Navratilova hefur einnig verið á meðal þeirra bestu í mörg ár, en hún er frá Tékkó- slóvakíu. Connors og Navratilova best í heimi Jímmy Connors og Maria Navr- atilova voru í gær útnefnd heims- meistarar í tennis af alþjóðasam- bandinu. Hlutu þau titlana fyrir „yfirburði í veigamestu mótum íþróttarinnar". Connors, sem sigraöi bæöi á Wimbledon og Opna bandariska meistaramótinu, telst því besti tennismaður í heimi í staö John McEnroe, sem útnefndur var í fyrra, og Navratilova, sem sigraöi á Wimbledon og Franska meistara- mótinu, er talin besta konan. Tek- ur hún viö heiörinum af Chris Evert Lloyd. HSÍ efnir til happdrættis — aðeins 1000 miðar gefnir út — Ferð handknattleikslandsliös- ins til Noröurlandanna var mjög kostnaöarsöm. Og framundan er stórt verkefni, B-keppnin í Hol- landi. Það lætur nærri að þessi tvö verkefni munu kosta HSÍ i kringum átta hundruð þúsund krónur. Þessir peningar eru ekki til í sjóöi hjá HSÍ og því hefur stjórnin ráðist í það verkefni að fara af stað með happdrætti, sagöi Júlíus Hafstein formaður HSÍ á blaðamannafundi í fyrra- dag. HSÍ mun aöeins gefa út 1000 miöa. Vinningar eru 10 sólar- landaferðir með Samvinnuferö- um Landsýn, að verðmæti 20.000 krónur. Hver miði kostar 1000 krónur. Á næstunni mun ein- staklingum og fyrirtækjum verða sendir miðar og er þaö von HSÍ aö velunnarar handknattleiksins taki því vel og styrkji landsliöið í þeim undirbúningi sem þegar er hafin. Þá er hægt að hafa sam- band við skrifstofu HSÍ í Laug- ardal og fá heimsenda miöa. — ÞR. • Ágúst Þorsteinsson • Ingemar Stenmark hefur ekki gengið allt of vel aö undanförnu en hann var í ellefta sæti í risastórsvigskeppninni í Garmisch Partenkirchen í Vestur-Þýskalandi í fyrradag. Þessar myndir voru teknar af Stenmark á dögunum er hann keyröi út úr brautinni og er hann aö vonum ekki allt of hress með sjálfan sig. Agúst keppir í maraþonhlaupi „EG VEIT i sjálfu sér ekkert hvaö ég er að leggja út í, en ég hef æft vel í vetur og vonast bara til aö komast í gegn og standa mig vel,“ sagði Agúst Þorsteinsson langhlaupari úr UMSB i samtali við Mbl. í gær. Ágúst stundar æf- ingar og nám í háskólanum í Austin í Texas í Bandaríkjunum, en um aðra helgi keppir hann í maraþonhlaupi í Houston. Er þaö í fyrsta sinn sem Ágúst leggur til atlögu viö þá vegalengd. „Þaö hefur gengiö vel hjá mér í vetur, ég hef hlaupiö frá 110 til 200 kílómetra í viku hverri í allan vetur og hef upp á síökastiö reynt að undirbúa mig sérstaklega fyrir hlaupiö. Ég er sæmilega ánægöur meö æfingarnar, hef sloppiö vel i gegnum allt þetta álag og vonast til aö ná um 2:25 klukkustundum. Nú er bara aö vona aö aöstæöur veröi góöar, ekki of mikill hiti,“ sagöi Agúst. Ágúst sagöi aö hlaupaleiöin yröi hagstæð, engar mishæöir sem kynnu aö draga þrek úr hlaupurun- um. Hann sagöi aö hlaupiö heföi unnist á 2:12 stundir í fyrra og kvaöst búast viö aö nóg yröi af hlaupurum viö sitt hæfi til aö etja kappi viö. „Þetta leggst bara vel í mig og ég vonast til aö standa mig vel. Þaö kemur svo í Ijós hvort ég gef mig aö þessari keppnisgrein eöa haldi mig viö brautarhlaupin," sagöi Agúst aö lokum. — ágás.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.