Morgunblaðið - 11.02.1983, Blaðsíða 29

Morgunblaðið - 11.02.1983, Blaðsíða 29
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 11. FEBRÚAR 1983 29 Attræður í dag: Aðalsteinn Hallsson leikfimikennari „Ég var fæddur íþróttastrákur," sagði Aðalsteinn Hallsson, þegar hann rifjaði upp tildrög þess að hann lagði leið sína til Kaup- mannahafnar fyrir meira en hálfri öld og innritaðist þar á Statens Gymnastik Institut. „Níu ára gamall lék ég mér að því á túninu heima á Kóreksstöðum að stökkva heljarstökk afturábak og áfram. Það kenndi mér ungur búfræðingur, Ingólfur Sigfússon. Áður hafði hann kennt mér bæði kraftstökk og kollstökk. Björn Jak- obsson leikfimikennari kenndi mér síðar leikfimi og réði því að ég fór utan til náms. Við vorum þre- menningar. Kóreksstaðir eru í Hjaltastaða- hreppi. Þeir voru kurteisir Kór- eksstaðamenn. Stórir á vöxt og heljarmenn að burðum, enda komnir í beinan karllegg frá Jóni og Hjörleifi sterka. Þeir voru ákaflega rólegir og fóru kurteis- lega með skap sitt. Það er talið að landnámsmaður- inn Kórekur hafi búið á Kóreks- stöðum. Hann var veginn á kletti sem heitir Vígið. I gömlu kvæði sem kveðið var í tilefni af sam- komu, blysför og álfadansi, er haldin var við hamraborg í landi Kóreksstaða segir: „Kórekur sá kappi kveður rámt í haug.“ Það hefur aldrei verið grafið þarna, en þetta er hár klettur, sérstakur og sérkennilegur. Á Kóreksstöðum bjuggu þrír bræður, Hallur faðir minn og Sveinn bjuggu á heimajörðinni, en Halldór í Kóreksstaðagerði. Hall- dór lærði járnsmíði í Kaupmanna- höfn. Hann kunni víst lítið í dönsku og skopuðust Danir að honum af þeim sökum. Þá kom hann auga á heljarmikinn steðja, heilt bjarg. Hann sagði ekki neitt en tók steðjann og skákaði honum upp þar sem hann átti að vera. Þá þögnuðu Danir, því að það sprok skildu þeir. Sveinn var með af- brigðum rólegur. Hallur faðir minn var yngstur. Hann var söng- gefinn. Ragnheiður Viggósdóttir las nýverið um hann kafla í út- varpsþættinum „Man ég það sem löngu leið“. Þar var ságt frá álfa- dansi og blysför snemma á öld- inni, en faðir minn var álfakóng- ur. Ég man þennan atburð. Ég bar grímu, sem gerð var úr hrein- dýrsfeldi og kom víst fullnærri einu blysinu því eitthvað mun hafa súrnað í augum og sviðnað önnur augabrúnin. Það var sam- komuhús í landi Kóreksstaða og þar var sungið og leikið á hljóð- færi. Ég hygg að Einar föðurbróð- ir minn hafi gengist fyrir því að orgel kom á Kóreksstaði. Það mun vera eitt hið fyrsta er kom þar eystra. Faðir minn lærði orgelspil hjá Brynjólfi Þorlákssyni vetur- inn 1896. Séra Vigfús Þórðarson á Hjaltastað og faðir minn sungu saman Glútana. Ég man ennþá hvernig þeir voru klæddir. Pabbi var í gráum fötum, en séra Vigfús dökkklæddur. Ég man þetta enn í dag svo ljóslifandi. Undirleikarinn var Jón Gunnlaugsson bóndi á Ei- ríksstöðum. Svo spilaði faðir minn einnig á fiðlu. Ég veit ekki hvar hann hefir lært það, en þeir stilltu saman fiðlurnar Þórólfur Rík- arðsson bóndi í Húsey og faðir minn. Það er einhver sú fjörug- asta músík sem ég hef heyrt, það voru norsk lög. Ég man þetta svo vel. Þetta voru alveg rífandi skemmtileg danslög. Pabbi fór með Þórólfi suður á Firði, allt til Fáskrúðsfjarðar og þar fann hvann kvonfangið, Þórunni Björnsdóttur, móður mína. Skóla- ganga hennar var ekki önnur en sú, að hún var eitt ár á kvenna- skólanum á Laugalandi í Eyja- firði. Ég á öll bréf frá foreldrum mínum. Ég er stoltur af því að hafa haldið þeim öllum saman. Það var fyrirmynd, hennar ís- lenska mál. Seyðisfjörður var rómaður stað- ur á þessum árum og stóð af hon- um mikill ljómi. Þar voru verzlun- arumsvif mikil, skipakomur tíðar og kaupstaðarferðir bænda. Sagt var að för manna þangað fylgdi svo mikil tilhlökkun að til voru þeir sem fóru að slaga strax og þeir litu staðinn úr fjarska. Svo var a.m.k. um heiðursbónda einn við Selfljót. Það voru 18 brekkur niður i Seyðisfjörð frá Kóreks- stöðum þegar farinn var Gilsár- dalur og Vestdalsheiði, en ekki Fjarðarheiði. Ég kom 12 ára gam- all til Seyðisfjarðar og man þá ferð ennþá. Þetta voru hæglætis- bændur í förinni. Ég var á undan lestinni. Þegar ég kem fyrir svo- kallaðan Hrútahjalla þá er þar tindrandi upplýsing, Seyðisfjörður upplýstur með rafljósum. Ég stöðvaði hestinn í forundran og horfði á ljósadýrðina. Aðalkaupmaðurinn á Seyðis- firði var þá Stefán Th. Jónsson. llonum til aðstoðar var Jón í Firði. Það voru gjörvilegir menn. Og svo var Árni frá Múla starf- andi í Framtíðinni. Ég sá hann í fyrsta skipti í þessari ferð. Árni sagði: „Hvað ertu gamall og hvað heitir þú?“ Eg sagði honum það. Þá lagði hann lófann svona utan- um vangann á mér og sagði: „Þú lítur út fyrir að vera dálítið sprækur strákur." Það þótti mér vænt um. Þá var ég hreykinn. Svo sá ég Árna frá Múla á íþróttamóti á Egilsstöðum, þar var stórt tjald og Árni var hæstur allra manna og söng allra manna mest. Hann tók svo lagið á Kóreksstöðum seinna." Þegar talið berst að námsdvöl Aðalsteins og vist hans á Eiðum þá hýrnar geð hans. Einkum er honum minnisstæður stjórnandi skólans, séra Ásmundur Guð- mundsson, síðar prófessor og bisk- up. „Við báðum séra Ásmund að halda ræðu á Ungmennafélags- hátíð. Hann tók tilmælum okkar vel og hélt ljómandi ræðu. Ég stundaði svo nám í Eiðaskóla tvo vetur, árin 1920 til 1922. Hann var þá tekinn við skólastjórn. Séra Ásmundur verður mér ógleyman- legur. Hann kenndi mér íslensku og íslandssögu. Hann var mikill kennari og svo skemmtilegur að það neistaði af honum. Gaman- samur var hann og átti til að segja við mig: „Æ, Áðalsteinn, verið þér nú ekki að roðna." Og þá roðnaði ég því meir. Ég þakka það kennslu hans að ég fékk mikinn áhuga á sögu, las það sem ég komst yfir og þuldi einhver ósköp. Var mér þá stundum strítt af skólapiltum. Einn skólafélaganna, Skúli Þórð- arson, varð síðar sagnfræðingur. Skúli var flestum fimari á þessum árum. Við bjuggum þarna í heima- vist, á efstu hæð, rishæð hússins, ég held 6 í hverju herbergi. Það var margt ágætra manna. Dag nokkurn gengur einn nemandinn, Sverrir Fougner frá Reyðarfirði, á fund séra Asmundar og segir að nú sé Skúli að hættulegum leik. Hann gangi milli glugganna og tefli á svo tæpt vað að hann geti varla tyllt gómunum í karminn hinum megin og banki upp á gluggann. Þetta voru tvær hæðir og ef Skúli hefði misst taksins hefði hann sennilega legið stein- dauður. Skúli var hvergi hræddur. En Sverrir bætti við: „Mér er sem ég sjái hann Aðalsteinn Hallsson fara ekki að apa þetta eftir.“ Á því var engin hætta þá, en seinna tóku fimleikar hug minn allan en saga varð hlutskipti Skúla. Við urðum perluvinir í Eiðaskóla. Hittumst síðar úti í Kaupmannahöfn þegar ég var á Statens Gymnastik Institut en hann í Hafnarháskóla. Það varð mikill fagnaðarfundur og veizla út af því. En ég var að segja frá Ásmundi. Hann var skemmtilegur, ástúðleg- ur og vinsamlegur. Eitt sinn fylgdi hann mér upp að Gilsárteigi. Minningin um hann er mér ógleymanleg. Ég bar ótakmarkaða virðingu fyrir þeim manni. Það komu ýmsir góðir gestir í heim- sókn þessa vetur mína á Eiðum. Mér er það í fersku minni þegar Guðmundur Friðjónsson skáld á Sandi kom. Hann var hrífandi skemmtilegur. Við hlustuðum á hann hvert kvöld. Eitt kvöldið, að loknum fyrirlestri skólastjórans segir Guðmundur skáld: „Skóla- stjórinn ykkar gekk með ykkur áð- an inn í sólskinslönd kristininnar en nú ætla ég að sýna ykkur örlítið inn í heiðríkju heiðninnar" Þessu gleymi ég aldrei. Áherzlurnar voru líka alveg sérstakar. Þá er mér minnisstæð för frá Eiðum til Seyðisfjarðar. Ég fylgdi frú Steinunni, konu séra Ásmund- ar, yfir Fjarðarheiði á rennihjarni og í blíðuveðri. Við nemendur Eiðaskóla ætluðum að láta taka af okkur ljósmynd. Jafnframt ætlaði ég að finna að máli Kristján lækni og fá hann til þess að taka úr mér tönn. Sú heimsókn verður mér ævinlega minnisstæð og er til marks um hugkvæmni og verk- lægni þeirra er kunna sitt fag. Kristján læknir var fremur feit- laginn maður, bráðmyndarlegur og einstaklega vel látinn. Hann lá í rúminu þegar ég kom. Ég bar upp erindi mitt. Kristján sonur hans var þarna nærstaddur. Kristján læknir segir: „Kiddi minn. Réttu mér þessa töng,“ sem hann tiltók. Kristján gerir það. „Komdu hérna Alli minn. Lof mér að leggja handlegginn utan um hálsinn á þér.“ Og þar með var tönnin fokin, bara án þess ég vissi. Já, hann var snillingur hann Kristján læknir. Það elskuðu hann allir sem þekktu hann.“ Að loknu námi í Eiðaskóla stundaði Aðalsteinn kennslu á Búðum á Fáskrúðsfirði. Þar var skólastjóri Eiður Albertsson, Ey- firðingur að ætt, gjörvulegur mað- ur og réði þar mikli í sveitarmál- um. Hann lét byggja leikfimisal og yfirbyggða sundlaug. „Eiður kom öllu fram, hann var svo gáfaður," segir Aðalsteinn. „Ég gleymi honum aldrei. Hann sagði: „Aðalsteinn minn. Viltu koma og tala við mig kvöldstund." Svo gekk hann um gólf og það er ógleyman- leg stund. Hann sagði: „Ég haga hlutunum svona.“ Þegar ég lít til baka sé ég að eiginlega lærði ég meira á þessum tveimur eða þremur klukkutímum sem Eiður Albertsson talaði við mig um kennslumál en á fleiri ára skóla- göngu.“ Aðalsteinn stundaði nám í Kennaraskólanum og lauk þaðan prófi vorið 1928. Hann lýkur lofs- orði á kennslu þar og minnist Freysteins Gunnarssonar skóla- stjóra með hlýju og virðingu. Haustið 1928 innritast Aðal- steinn í virðulega stofnun, Statens Gymnastik Institut. Nemur þar líffræði og allt er varðar viðbrögð mannslíkamans, taugakerfi og vöðva, fimleika og frækni í leik og starfi. Sveinn Björnsson sendi- herra var Aðalsteini hjálparhella, en hann og séra Stefán Björnsson, móðurbróðir Aðalsteins voru skólabræður. „Svo lá leiðin heim til íslands. Ég vann fyrir mér á leiðinni heim. Ég þekkti stýrimanninn og spurði: „Get ég fengið að vinna fyrir mér hérna um borð?“ og þannig komst ég heim og þénaði 81 krónu.“ Eftir heimkomuna ræðst Aðal- steinn til starfa sem íþróttakenn- ari. Verður sá ferill eigi rakinn hér, en segja má að hvarvetna er hann kemur við sögu verði þátta- skil og líf og fjör færist í fimleika og félagsstörf. Hjá íþróttafélagi Reykjavíkur tekur hann við kennslu örfárra drengja og telpna að hausti. Næsta vor heldur hann fjölmenna fimleikasýningu í Iðnó og þáver- andi borgarstjóri, Pétur Hall- dórsson, gengur brosandi til Aðal- steins og segir: „Komið þér bless- aðir Aðalsteinn. Ljómandi var gaman að sjá drengina yðar sýna. Og ekki eru telpurnar síðri." Myndir frá þessum árum bera með sér þokka og þrifnað. Það ljómar af mennilegum hóp bjartra ungmenna. Nú tekur við gróskumikið og farsælt tímabil hjá Aðalsteini. Hann ritar bækur um fimleika og íþróttir. Um leiki fyrir heimili og skóla og gengst fyrir gerð starfs- leikvalla. Fær Viggó Nathanaels- son til kvikmyndatöku á leikvöll- um þeim er gerðir eru eftir fyrir- sögn Aðalsteins. Nafnkunnir íþróttafrömuðir og æskulýðsleið- togar fagna bókum Aðalsteins. „Þetta er bók sem notuð verður sem kennslubók við Kennarahá- skólann," segir Mbl. Lárus Rist lofar framtak hans. Um starfsvöll Aðalsteins á Suð- ureyri og þátt hans að störfum þar ritaði Gunnar M. Magnúss: „Aðalsteinn var duglegur og áhugamikill skólamaður, hann hafði áður lagt sérstaka áHerzlu á íþróttakennslu. Hann var fjölhæf- ur og vann margt í frístundum sínum utan skólans, einkum kenndi hann börnum og ungling- um íþróttir og leiki. Og tvö ár var hann kennari við sundlaugina. Þá vann hann verk, sem lengi mun halda minningu hans á lofti. Hann smíðaði líkan af leikvelli barna, mátti sjá þar völlinn með öllum áhöldum. Áðalsteinn sýndi líkan leikvallarins á ýmsum stöðum og vakti það mikla athygli. Ekki lét hann þó við þetta sitja en fór strax að smíða áhöld fyrir vænt- anlegan leikvöll. Hann fékk hreppsnefndina til að taka málið að sér og leið ekki á löngu að leik- völlurinn var fullgerður og búinn öllum þeim tækjum, eins og Aðal- steinn hafði hugsað sér hann. Sá hann um framkvæmdir og áhöldin smíðaði hann sjálfur að mestu. Leikvöllurinn þótti hinn prýði- legasti og er mikið notaður. Leik- vallargerð Aðalsteins hefur verið tekin upp á öðrum stöðum." Svo sem sjá má af frásögn Gunnars vann Aðalsteinn ótrauð- ur að brautryðjendastarfi sínu á vettvangi starfsíþrótta. Þótt stundum hafi svarrað á súðum hefir Aðalsteinn jafnan haldið fleyi sínu heilu til hafnar. Æðruleysi hans og gamansemi verið honum styrkur í stríði. Hagmæltur er Aðalsteinn og kann vel að koma fyrir sig orði. A árum síldarleysis kvað hann: Örtröð herjar íslands ströndu er ei lengur gródavon sér nú enga síldarbröndu sjálfur Oskar llalldórsson. í vísnasamkeppni er Sveinn Ásgeirsson gekkst fyrir í útvarpi fyrir allmörgum árum hlaut Aðal- steinn verðlaun fyrir botn sinn í samkeppni í Keflavík. Þeir snill- ingar höfðu marglýst eftir vísu- botni en engan fengið verðan launa fyrr en Aðalsteinn sendi sinn. Verðlaunabotn: Þig ég biö um hjarta o« hönd, heit er ást í mínum barmi. Hrosa vid oss blómskrvdd lönd, blítt ég vef þig mínum armi. Aðalsteinn kvæntist æskuvin- konu sinni, Halldóru Sigfúsdóttur. Leiðir þeirra skildi. Dóttir þeirra er Hanna, gift Val Fannar gull- smið. Seinni kona Aðalsteins var Ásthildur Briem. Þau slitu sam- vistir. Aðalsteinn dvelst nú að Dalbraut 21. Hann verður fjarver- andi á afmælisdaginn. P.P. Snart er det höst eftir Björk Vik Erlendar bækur Jóhanna Kristjónsdóttir Björg Vik er án efa meðal at- hyglisverðustu og beztu höfunda Noregs nú. Landar hennar hafa sýnt henni margs konar viður- kenningu, hún fékk nýverið Cappelen-verðlaunin og nýjasta bók hennar „Snart er det höst“ var útnefnd af hálfu Noregs til bókmenntaverðlauna Norður- landaráðs. Ég er efins í að bækur eftir Björg Vik hafi verið þýddar á íslenzku, minnist þess satt að segja ekki, en Þjóðleikhúsið sýndi leikrit eftir hana fyrir nokkrum árum. I bókinni „Snart er det höst“ eru átta smásögur og einkennast allar af mjög næmri innsýn í sálariíf fólks og leikni hennar að koma efninu til skila er svo snjöll, að unun er að lesa á stundum. Einhvern tíma heyrði ég vísan mann vera að lýsa því hvernig ætti að skrifa smásögu, á hverju ætti að byrja og hvern- ig ætti að „raða upp“ atburðum og hlutum og síðast en ekki sízt persónum, áður en nokkuð mætti fara að gerast. Það er öldungis eins og Björg Vik hafi lögmál smásögunnar svo gersamlega á valdi sínu að hvergi skeikar. Og þó að hún ráði yfir þessari tækni er auðvitað ekki þar með sagt að úr sögum hennar yrðu jafnfögur listaverk og raun ber vitni, ef hún væri ekki íhugul, ritfær og næm. Þetta helzt allt í hendur og nýtur sín í hverri sögunni af annarri. Mér fannst hið hraða tempó í fyrstu sögu bókarinnar „Amandabakken“ dálítið sér- kennilegt og óþægilegt; fannst vanta einhverja mýkt. En þegar á bókina líður fer lesandinn að skilja og skynja betur, að allt er þetta með ráðum gert. Allar sög- urnar hafa þann grunntón að það er kúnst að verða gamall, án þess að glata reisn og kæríeika. Og samskiptin í hjónabandi? Ætli við þekkjum aldrei hvert annað? Og ef ekki, langar okkur þá til að kynnast? Og þorum við að treysta stálpuðum börnum okkar til að fóta sig áfram í til- verunni? Sagan „Ung gutt i mot- lys“ fjallar um þetta efni frá báðum hliðum og er afskaplega vel gerð. Mannlegt innsæi og lofsvert jafnvægi milli efans og bjartsýn- innar, kulda og hlýju. Styrkur Bjargar Vik liggur ekki í dýpt mannlýsinga hennar, heldur augljósum skilningi á flóknum mannlegum samskiptum.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.