Morgunblaðið - 11.02.1983, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 11.02.1983, Blaðsíða 18
18 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 11. FEBRÚAR 1983 Amsterdam: Sprenging í franskri ræðis- mannsskrifstofu Amsterdam, 10. febrúar. AP. SPRENGING varð í ræðismanns- skrifstofu Frakka í Amsterdam í nótt, sem olli talsverðum skemmdum. Engin slys hlutust þó á fólki. Hreyf- ing vinstri sinnaðra öfgamanna, MAF, hefur lýst ábyrgð á hendur sér vegna sprengingarinnar. Þessi sprenging kemur í kjölfar sams kon- ar sprengingar, sem varð í skrifstof- um franska flugfélagsins Air France á mánudag og í bústað franska sendi- herrans sama dag. Sprengingin í Amsterdam varð kl. 3.10 að staðartíma í nótt og var það öflug, að þung útihurð ræð- ismannsskrifstofunnar þeyttist út. Á þessum tíma var hins vegar eng- inn inni á skrifstofunni, en þar eru einnig til húsa menningarmála- stofnun Frakklands, Alliance Francaise. Klaas Wilting, talsmaður hol- lenzku lögreglunnar, sagði í dag, að sprengjunni hefði verið komið fyrir rétt fyrir utan útihurð hússins. „Hún hlýtur að hafa verið allstór," sagði Wilting ennfremur við frétta- menn. Þá sagði hann, að hluti af loftinu yfir inngangi ræð- ismannsskrifstofunnar hefði stór- skemmst. Skemmdirnar hafa ekki enn verið metnar, en framhlið hús- sins hefur líka orðið fyrir miklu tjóni. Falangistar draga Bandaríkja- menn inn f fjöldamorðsmálin Beirút, Líbanon, 10. febrúar. AP. FLOKKUR kristinna hægri manna í Líbanon, falangistaflokkurinn, hefur loks tjáð sig um fjöldamorðin í Beir- út í september síðastliðnum, tveimur dögum eftir að skýrsla rannsóknar- nefndarinnar í ísrael var birt. Flokkurinn tjáði sig í gegnum málgagn sitt, dagblaðið Al-Amal, og gagnrýndi harðlega hið mikla fjaðrafok sem fjöldamorðin ollu. í leiðara Al-Amal var þó ekki gerð að aðalatriði skýrsla rannsóknar- nefndarinnar ísraelsku sem sagði að 300 hermenn falangista hafi framið morðin og varnarmála- ráðherra ísrael, Ariel Sharon, ætti að segja af sér fyrir að hleypa þeim inn í flóttamannabúðirnar. Þess í stað beindi leiðari Al- Amal reiði sinni og skrifum að skýrslu bandaríska utanríkisráðu- neytisins sem lögð var fyrir þingið í gær. Þar stóð að fjöldamorðin væru dæmi um stórfelld mann- réttindabrot í Líbanon. Al-Amal segir að það sé sorglegt að Banda- ríkjamenn skuli skilja að Sabra- og Chattila-flóttamannabúðirnar og aðra hluta Líbanon. „Líbanon er allt atað blóði Líbana sem Pal- estínumenn og Sýrlendingar hafa Veður Akureyri -5 skýjaö Amsterdam 2 snjókoma Aþena 19 heióskírt Barcelona 3 skýjað Berlín -2 skýjaö Brússel 1 skýjað Chicago 1 rigning Dublin 5 heiöríkt Feneyiar 3 rigning Frankfurt 5 heióríkt Færeyjar -4 skýjaó Genf 1 skýjaó Hetsinki -B heióskírt Hong Kong 15 rigning Jerúsalem 15 heióskírt Jóhannesarborg 26 heióakirt Kaupmannahofn 0 heíórkt Kairó 19 heiórikt Las Palmas 17 léttskýjaö Ussabon ‘10 heiórikt London 2 skýjaó Los Angeles 22 skýjaó Madrid 6 skýjaó Mallorca 8 Mttskýjaó Mafaga 10 heiðrikt Mexikóborg 25 heióskirt Miami 22 skýjaó Moskva -8 skýjaó Nýja Dethí 20 skýjaó New Vork 1 heióskírt Ósló -6 heióskírt Paris t skýjaó Peking 2 heiðskirt Perth 25 skýjaó Reykjavík +2 skýjaó Rio de Janeiro 32 rigníng Rómaborg 9 rigning San Francisco 17 skýjaó Stokkhólmur -5 skýjaó Tel Aviv 17 heióskírt Sænsk stjórnvöld neita að framselja pólsku flugmennina Siokkhólmi, 10. febrúar. Al*. SÆNSK stjórnvöld neituðu enn í gær að framselja tvo pólska herflugmenn sem flýðu frá Póllandi í tíu ára gam- alli þyrlu á þriðjudag. Þeir flugu í tvær stundir yfir Eystrasaltið í slæmu veðri, snjókomu og roki, lentu á Tarno-eyju í Bleking. Þyrlan kom sænska hernum í opna skjöldu og í minnst sex mínútur flaug þyrlan í sænskri landhelgi án þess að Svíar yrðu hennar varir. Sænska lögreglan hélt yfir- heyrslum áfram í gær og neitaði að gefa upp nöfn Pólverjanna, sem beðist hafa hælis sem pólitískir flóttamenn í Svíþjóð. Pólska her- stjórnin hefur á móti krafist að fá mennina tvo framselda umsvifa- laust ásamt herþyrlunni sem þeir notuðu við flóttann. Pólska frétta- stofan PAP greindi frá nöfnum flóttamannanna, annar þeirra er Zbignew Wojza, 25 ára gamall flug- maður í pólska flughernum. Hinn er Henryk Ksiazek, 30 ára, fyrrum flugmaður. Lítið er vitað um þá fé- laga, t.d. ekki hvort þeir skildu eft- ir fjölskyldu í Póllandi. Út hefur þó lekið, að þeir hafi verið með flótt- ann í bígerð um alllangt skeið og þeir hafi sagt lögreglunni í Svíþjóð að þeir hafi flúið vegna þess að þeim líkaði ekki stjórnskipulagið í Póllandi. Gagnrýndir fyrir óhóf Stjórn Norræna menningarmálasjóðs- ins bauð til laxveiða á íslandi 1981 Osló, 10. febrúar. Frá frétlaritara Morgunblaðsins, Jan Erik Lauré. Mynd þessi sýnir hvernig umhorfs var eftir sprenginguna við franska sendi- ráðið í Amsterdam í dag. úthellt síðustu átta árin. Er ekki dauði 100.000 Líbanonmanna fyrir byssum og hnífum Palestínu- manna og Sýrlendinga fjölda- morð?“ spyr leiðari Al-Amal. Áður en skýrsla ísraelsku rann- sóknarnefndarinnar var opinber- uð, neituðu falangistar hvað eftir annað að hafa verið bendlaðir við morðin í Sabra- og Chattila-búð- unum. í leiðara Al-Amal var hins vegar síður en svo dregið úr hlut- deild falangista, hún öllu heldur varin með kjafti og klóm. Stjórnarfundur í Norræna menn- ingarmálasjóðnum, sem haldinn var á Islandi í júlí 1981, hefur haft nokk- ur eftirköst. Formaður sjóðsins, Jo Benkow, sem er formaður Hægri flokksins í Noregi, hefur sætt harðri gagnrýni af hálfu danska endur- skoðandans sem yfírfarið hefur bókhald sjóðsins. Norræni menningarmálasjóður- inn er ein af undirstofnunum Norðurlandaráðs. Sú gagnrýni, sem sjóðurinn hefur sætt nú, á rót sína að að rekja til þess, að sjóður- inn hafi varið of miklu fé til stjórnarfundar á íslandi 1981. Þessi stjórnarfundur kostaði 114.000 kr. í hótelútgjöldum einum saman. Fundurinn stóð í fjóra daga og á þeim tíma var þeim, sem hann sóttu, boðið til laxveiða. Hóteldvölin í þeirri ferð kostaði 35.000 kr. „Þess konar hlutir eiga ekki að vera hluti af dagskránni á stjórn- arfundum sjóðsins í framtíðinni," segir í athugasemdum endurskoð- andans. Þá gagnrýnir endurskoð- andinn Benkow sérstaklega fyrir að hafa greitt sjálfum sér háa þóknun fyrir formannsstörf sín fyrir sjóðinn. Þá hafi aðrir stjórn- armeðlimir sjóðsins fengið há stjórnarlaun. Jo Benkow hefur vísað þessari gagnrýni á bug með þessum orð- um: „Við samþykktum aðeins uppástungu frá íslenzku gestgjöf- unum. Síðar kom það í ljós að út- gjöldin af þessum sökum urðu miklu hærri en gert hafði verið ráð fyrir. Það hefði verið erfitt að hafna fundardagskrá sem íslend- ingarnir höfðu verið svo vinsam- legir að útbúa fyrir okkur". Stútur við stýri: Tínir rusl í almenningsgörð- um um helgar San Jose, Kaliforníu, 10 febrúar AP. BANDARÍSKUR dómari í San Jose var gómaður ölvaður við stýrið fyrir nokkni og í gær var kveðinn upp dóraur. Auk sektar og öku- leyfíssviptingar skal Gerard Kettermann auk þess tína rusl í almenningsgörðum næstu helgar. Það var 24. janúar síðastliðinn, að Ketterman sat að sumbli á skrifstofu sinni. Hann eigraði síðan út í bíl og ók af stað. Öku- ferðinni lauk við bensínstöð nokkra og hafði Ketterman þá ekið niður umferðarskilti. Er lögreglan kom að honum var hann gífurlega ölvaður, með drafandi rödd og blóðhlaupin augu. Framrúðan brotin og þurrkurnar skemmdar. Ketter- mann viðurkenndi að hafa hellt í sig tæpum tveimur lítrum af víni áður en hann lagði af stað. Auk þess að tína rusl, bíður Ketterman að greiða 600 dollara sekt, námskeið í aksturshæfni og viðgerð á umferðarskiltinu sem hann á sjálfur að reisa á sínum stað. Endurnýjaðar tillögur frá Bandaríkjunum um bann við eiturhernaði Genf, 10. febrúar. AP. BANDARÍKJAMENN lögðu í gær fram endurnýjaðar tillögur um bann við eiturefnahernaöi á fundi afvopn- unarnefndar Sameinuðu þjóðanna. í tillögunum felst meðal annars, að leyft verði að rannsaka opinberlega allar ásakanir um notkun slíkra vopna, einnig að innan tíu ára frá samkomulagi verði búið að eyðileggja allar birgðir eiturefnahergagna. „Afvopnunarnefndin er búin að fjalla um þessi mál í 14 ár og okkur finnst tími til kominn að gera eitthvað afgerandi í málinu," sagði Luis G. Fields, sendiherra Banda- ríkjanna í Genf. Hann gat þess að Sovétmenn lægju undir grun um að hafa beitt vopnum af umræddu tagi í hernaði sínum í Afganistan og því yrði að fá í gegn samþykki fyrir að allar ásakanir yrðu rannsakaðar. Viðbrögð afvopnunarnefndarinnar voru ekki kunn í gær. Líbíumenn safna liði á Chad-landamærunum N’Djamena, ('had, 10. febrúar. AP. IDRISS Miskine, utanríkisráðherra Afríkuríkisins (,'had, sagði í útvarps- og sjónvarpsræðu í landi sínu í gær, að Líbýumenn væru að safna liði á landa- mærum landanna og ætluðu að inn- lima Chad. „Við höfum öruggar sann- anir fyrir því að Moammar Khadafy sé að setja saman hrikalega stríðsvél og hann ætlar sér að gera árás á okkur," sagði Miskine og kvatti íbúa Chad til Krafízt 2 millj. sterlingspunda fyrir verðlaunahestinn Shergar Dublin, 10. febrúnr. AP. KRAFA um 2 millj. sterlingspunda lausnargjald fyrir verölaunahcst- inn Shergar var í dag borin fram við Guy Drione, sem er yfírmaður hrossaræktarbús Aga Khans á ír- landi, en þaðan var hestinum rænt á þriðjudag. Staðfesti írska lög- reglan það í dag, aö þessi krafa hefði verið borin fram í símtali um miðnætti sl. nótt. Fyrirliði bóf- anna, sem talaði í símann, sagði, að framvegis myndi bófaflokkur- inn nota lykilorðið „Arkle“ þegar hann léti frá sér heyra, en Arkle er heiti eins helzta veðhlaupahestsins á írlandi um þessar mundir. írski lögreglustjórinn, Jim Murphy, sem stjórnar leitinni að hestinum, hefur eindregið lagt það til, að kröfu ræningjanna um lausnargjald verði neitað al- farið. „Slíkt myndi skaða alla hrossarækt í heild sinni í þessu landi", var haft eftir Murphy í dag. Blað í Englandi skýrði frá því í dag, að maður, sem ekki vildi segja til nafns síns, hefði hringt á ritstjórnarskrifstofu þess og hótað að senda þangað afskorið eyra af hestinum til sönnunar því, að hann og félagar hans hefðu Shergar á valdi sínu. samstöðu og varnar gegn hinum mikla óvini í norðri. Utanríkisráðherrann sagði að auk Líbýuhers, hefði Khadafy safnað saman fjölda málaliða, þ.á m. 700 Katandang Gendermesmönnum frá Zaire og 500 Suður-Afríkumönnum. Einnig 66 herflugvélum og fjölda skriðdreka. „Njósnavélar Líbýu fljúga yfir land okkar daglega og hluti Líbýuhers hefur hreiðrað um sig í norðurhéruðum Chad,“ sagði Miskine. Líbýumenn gripu inn í 17 ára gamalt borgarastríð Chad að beiðni fyrrum forseta landsins, Goukouni Quefdei. Þeir drógu sveitir sínar þó til baka í nóvember 1981 og í fyrra- sumar var svo stjórn Goukouni steypt af stóli. Khadafy sagði nýlega í blaðaviðtali í Frakklandi, að Gouk- ouny hefði beðið sig að grípa inn í á nýjan leik, en hann myndi ekki gera svo. Miskine hefur hins vegar sagt að yfirlýsingar Khadafys miði ein- ungis að því að fela sannleikann fyrir heiminum og almenningsálit- inu. „Það er ekkert að marka orð Khadafys, hann hefur það eitt í sigt- inu að innlima Chad, gera það að leppríki Líbýu og skipa gæðinga sína í stjórn,“ segir utanríkisráðherrann.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.